Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pippa skokkar Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 27 ára, var mynduð á hlaupum þegar hún fékk sér kaffibolla í gær. Pippa fær ekki stundarfrið frá ljósmyndurum sem mynda nánast hvert fótspor sem hún tekur. Þá má sjá Pippu skokka eldsnemma morguns í myndasafni en hún hleypur daglega. 26.8.2011 08:31
Vildi meira Kimberly Stewart eignaðist dóttur í vikunni og hlaut hún nafnið Delilah. Þótt Stewart og barnsfaðirinn, leikarinn Benicio del Toro, séu ekki í sambandi mun hún vera afskaplega hrifin af honum. 26.8.2011 08:00
Yfirgefur Dalvík af illri nauðsyn og flytur suður "Við erum af illri nauðsyn að flytja í bæinn,“ segir tónlistarmaðurinn Matthías Matthíasson. Hann hefur búið á Dalvík undanfarin fjögur ár með fjölskyldu sinni en núna verður breyting þar á. "Það er bara brjálað að gera. Ég er nánast ekkert búinn að koma til Dalvíkur síðan í janúar. Þetta var orðin hálfgerð fjarbúð og ekki nógu mikill tími með börnunum og annað. Við ákváðum að taka þetta skref núna. Maður verður að elta vinnuna þangað sem hún er,“ segir Matti. 26.8.2011 07:00
Sinead O'Connor á Airwaves Írska tónlistarkonan Sinead O'Connor heldur tónleika á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í október í haust samkvæmt kvöldfréttum RÚV. 25.8.2011 19:47
Banderas snýr aftur til Almodóvars Eftir mögur ár í Hollywood hefur Antonio Banderas snúið aftur í arma spænska leikstjórans Pedros Almodóvar því kvikmyndin La piel que habito er fyrsta kvikmynd þeirra tveggja í 21 ár. Myndin var frumsýnd í Cannes fyrr á þessu ári og fékk afbragðsgóða dóma. 25.8.2011 23:00
Elva Dögg í Innrásarhóp Elva Dögg Gunnarsdóttir hefur gengið til liðs við grínhópinn Innrásarvíkingarnir. Hún er eini uppistandarinn á Íslandi með Tourette-heilkenni. Hún er ófeimin við að gera grín að sjálfri sér og öllum kækjunum sem hún er með og bara lífinu almennt. 25.8.2011 22:00
Glaðningur fyrir ríka aðdáendur Á heimasíðu Bjarkar Guðmundsdóttur, Bjork.com, var á dögunum auglýst viðamikið Biophilia-box í tilefni af útgáfu samnefndrar plötu hennar. Þrátt fyrir að kosta hátt í eitt hundrað þúsund krónur er boxið nú þegar uppselt en það var gefið út í tvö hundruð númeruðum eintökum. Ljóst er að eingöngu alhörðustu aðdáendur söngkonunnar með mikið fé á milli handanna tryggðu sér eintak og er það væntanlegt til þeirra í pósti í lok september. 25.8.2011 21:00
Alexa í fatabransann Breska sjónvarpsstjarnan og tískufyrirmyndin Alexa Chung verður andlit næstu línu frá verslanakeðjunni Vero Moda. Það þykir mikill fengur fyrir fyrirtækið að fá hina ungu Chung í sínar raðir því hún þykir með eindæmum smart og mikil fyrirmynd í tískuheiminum. 25.8.2011 21:00
Hefur selt 20 þúsund bækur Friðrika Hjördís Geirsdóttir hefur eytt öllu sumrinu í að undirbúa nýjan matarþátt fyrir Stöð 2. Samkvæmt síðustu tölum hefur hún líka selt tuttugu þúsund eintök af tveimur matreiðslubókum sem komu út á þessu ári. 25.8.2011 20:00
Húðflúrmeistari keyrður niður í miðbæ Reykjavíkur „Þetta var bara eldri maður sem var eitthvað að spjalla við konuna sína og skipti um akrein á ljósunum á horni Bankastrætis og Lækjargötu án þess að gefa stefnuljós,“ segir Fjölnir Geir Bragason eða Fjölnir Tattoo eins og hann jafnan kallaður. Keyrt var á hann í miðbæ Reykjavíkur um hádegisbilið í gær. 25.8.2011 19:00
Airwaves á Akureyri Akureyringar eiga gott kvöld í vændum á laugardaginn þegar forsvarsmenn Iceland Airwaves-tónlistarhátíðarinnar blása til tónleika í bænum. 25.8.2011 18:30
Ingalls-krakki á nýrri braut Á fyrstu árum níunda áratugar síðustu aldar fylgdust sjónvarpsáhorfendur (aðallega konur) með þáttunum Húsið á sléttunni. Þar steig sín fyrstu skref ungur strákur sem hefur tekið sér sinn tíma til að komast á toppinn. 25.8.2011 18:00
Katrín Hall í dómarasætið Katrín Hall verður aðaldómari í nýjum dansþætti sem hefur göngu sína í Ríkissjónvarpinu í vetur. Katrín er viss um að þátturinn verði mikil lyftistöng fyrir þá ört vaxandi listgrein sem dansinn er. 25.8.2011 17:00
29,5 kg farin á 4 mánuðum Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, sem eignaðist tvíburana Monroe og Moroccan 30. apríl síðastliðinn lýsir meðgöngunni sem erfiðri líkamlegri upplifun. Mariah, sem hefur verið dugleg að setja myndir af sér á Twitter síðuna sína, lét hafa eftir sér opinberlega hvað hún er stolt af því að hafa lést um 29,5 kíló síðan hún fæddi börnin: Ég er svo stolt af sjálfri mér. Ég er það virkilega. Að ganga með tvíbura er ólíkt öllu öðru. Það er auðvelt að segja að þetta sé allt þess virði en þegar fæturnir þínir eru risastórir og óþekkjanlegir þá er þessi reynsla töluvert erfiðari en margan grunar. Nú skokkar söngkonan daglega og borðar holla fæðu á milli þess sem hún hugar að tvíburunum. Meðfylgjandi myndir voru teknar af söngkonunni í fylgd einkaþjálfarans og aðstoðarkonu í Tribeca hverfi í New York. 25.8.2011 15:00
Leikarar á hestatónleikum Helga „Við ætlum að búa til hestastemningu og taka tónleikana aðeins í aðrar áttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. 25.8.2011 14:45
Kokhraustir án Frusciante Tíunda hljóðversplata Red Hot Chili Peppers kemur út á mánudaginn. Josh Klinghoffer hefur tekið við gítarleiknum af hinum óútreiknanlega John Frusciante. 25.8.2011 14:30
Gul í gær - bleik í dag Söngkonan Katy Perry, 26 ára, var mynduð á götum Los Angeles með bleikt hár. Þá má sjá söngkonuna stilla sér upp á rauða dreglinum með gult hár klædd í strumpakjól á frumsýningu kvikmyndarinnar The Smurfs. Katy er fyrsta konan í heiminum með fimm lög* á sama tíma á Billboard Hot 100 listanum. Michael Jackson er eini listamaðurinn sem hefur náð sama árangri. *Last Friday Night, California Girls, Firework, E.T. og Teenage Dream, sem er titill plötunnar. 25.8.2011 14:00
Nú verður kátt í höllinni Það ríkir mikil gleði við dönsku hirðina eftir að tilkynnt var um að Marie prinsessa væri barnshafandi. Hún og maðurinn hennar, Jóakim prins, eiga von á barni í janúar og verður prinsinn því brátt fjögurra barna faðir. Marie og Jóakim eiga fyrir hinn tveggja ára gamla Henrik en Jóakim eignaðist tvö börn með prinsessunni Alexöndru. Spákona heldur því fram að hjónin eigi von á strák. 25.8.2011 13:00
Eva Mendes fékk ráð hjá þjónustustúlku Í meðfylgjandi myndasafni má sjá leikkonuna Evu Mendes, 37 ára, á hlaupum með hárið tekið aftur í snúð og uppáklædda yfirgefa tískuviðburð á vegum Salvatore Ferragamo. Eva hefur undanfarið fengið leiðsögn hjá ónefndri þjónustustúlku í New York hvernig hún á að bera sig við að leika þjón í myndinni The Place Beyond the Pines. 25.8.2011 12:21
Ný prímadonna í leikhúsheiminum „Hún er mjög meðfærilegur hundur en smá prímadonna enda leikkona,“ segir Ásta Dóra Ingadóttir, hundaþjálfari og eigandi Gallerís Voff, en hún sér um að þjálfa tíkina Myrru fyrir frumraun hennar á leiksviði. 25.8.2011 12:00
Trítilóð Lísa Söguna um Lísu í Undralandi ættu flestir að þekkja en sagan sem sögð er í Alice: Madness Returns er útgáfa af þessari vinsælu sögu sem vekur nánast ónot hjá manni. 25.8.2011 11:00
Prumpandi einhyrningar eru töff Red Faction: Armageddon er nýjasta útspilið í hinni áratuga gömlu Red Faction-seríu. Sögusviðið er plánetan Mars árið 2170 þar sem mannkynið býr í iðrum plánetunnar vegna mengaðs andrúmslofts. Til þess að skemma sem minnst söguþráð leiksins, sem er alveg sæmilegur, skal bara látið nægja að segja að aðalhetjan er göbbuð til að sleppa lausri plágu sem hefur legið í dvala og þá fer bókstaflega allt til fjandans. Það er svo í verkahring hetjunnar að redda málunum. 25.8.2011 11:00
Sage Francis til Íslands Bandarísku rappararnir Sage Francis og B. Dolan stíga á svið á Sódómu Reykjavík 3. september. 25.8.2011 11:00
James Murphy mætir á Airwaves Bandaríski tónlistarmaðurinn, plötusnúðurinn og útgefandinn James Murphy, hefur boðað komu sína á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina í október. 25.8.2011 11:00
Affleck í nýrri hasarmynd Ben Affleck hefur samkvæmt fréttum vestanhafs samþykkt að leika aðalhlutverkið og leikstýra nýrri hasarmynd frá Joel Silver, framleiðanda Lethal Weapon-myndanna og Die Hard. Myndinni hefur verið gefið vinnuheitið Line of Sight og verður nokkuð óvenjuleg í sniðum því hún mun segja söguna frá sjónarhóli eins manns og verður tekin upp líkt og fyrstu persónu skotleikur í tölvum. Peter O‘Brien, sem skrifaði handritið að tölvuleiknum Halo: Reach, hefur verið beðinn um að skrifa handritið að myndinni. 25.8.2011 10:30
Veðurfréttakona hleypur langhlaup Þrettán Íslendingar taka þátt í Mont Blanc hlaupinu sem hófst í morgun. Hlaupið er 112 kílómetrar og þykir mikið afrek að ljúka því. Ekki síst vegna þess í hve mikilli lofthæð er hlaupið. Veðurfréttakonan og hlaupadrottningin Elísabet Margeirsdóttir tekur þátt í hlaupinu og er nú búin að hlaupa í um þrjá tíma. Elísabet er vön hlaupakona og hljóp meðal annars Laugavegshlaupið, sem er um 54 kílómetra leið, á dögunum. 25.8.2011 10:13
Drottningarnar mættu á Dill Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar vínframleiðandinn Foss distillery blés til veglegrar veislu áveitingastaðnum Dill í Norræna húsinu á þriðjudaginn var þar sem fyrstu afurðum fyrirtækisins var fagnað en það eru birkilíkjörinn Björk og snafsinn Birkir. Margt var um manninn eins og myndirnar sýna og fengu gestir að bragða ýmsar útfærslur af drykkjunum. Ómar Guðjónsson gítarleikari og Eyjólfur Þorleifsson saxófónleikari fluttu tónlist fyrir veislugesti sem brögðuðu meðal annars á Björk Royale og Björk í tonic, eða B&T, eins og margir gestanna kusu aðkalla það. Birkir Kristinsson fyrrum landsliðsmarkvörður í knattspyrnu og Björk Eiðsdóttir fjölmiðlakona brugðu skemmtilega á leik með nöfnum sínum. Drykkirnir eru afrakstur tilraunastarfsemi Ólafs Arnar Ólafssonar, formanns Vínþjónasamtaka Íslands og Gunnars Karls Gíslasonar fyrirliða íslenska kokkalandsliðsins. Ólafur Örn og Gunnar Karl reka veitingastaðinn Dill í Norræna húsinuog hafa undanfarin ár gert ýmsar tilraunir með eiginleika íslenska birkisins í eldhúsinu á Dill. "Mig langaði að fanga upplifunina af íslenskri vornótt, augnablikið þegar það er nýstytt upp og döggin sest á birkivaxna hlíðina. Ég held að Björk og Birkir komist ansi nálægt því,” segir Ólafur. Ólafur og Gunnar Karl eru frumkvöðlar í nýnorrænni matargerðarlist á Íslandi en möguleikar íslenskra náttúruafurða eru þeirra hjartans mál. Ásamt Ólafi og Gunnari Karli standa að verkefninu feðginin Jakob Svanur Bjarnason mjólkurfræðingur og Elsa María Jakobsdóttir félagsfræðingur og fyrrum fjölmiðlakona. Birkir og Björk verða á næstu dögum fáanleg á veitingastöðum og skemmtistöðum. Auk þess verður hægt að fá drykkina í vínbúðum og fríhöfn. 25.8.2011 08:51
Veisla í Sambíóunum Sambíóin ætla að blása til Kvikmyndadaga í Kringlunni og sýna kvikmyndir sem farið hafa sigurför um heiminn. Opnunarmynd hátíðarinnar verður Tree of Life eftir Terence Malick en hluti hennar var tekinn hér á landi. Með aðalhlutverkin fara þeir Brad Pitt og Sean Penn. Myndin vann Gullpálmann á Cannes á þessu ári. 25.8.2011 08:00
Spila 24 sinnum á 24 dögum „Þetta verða 24 tónleikar á 24 dögum í 24 borgum í ellefu löndum,“ segir Björgvin Sigurðsson, söngvari og gítarleikari Skálmaldar. 25.8.2011 07:00
Vinir Sjonna taka upp nýtt lag Hljómsveitin Vinir Sjonna ætlar að taka upp nýtt lag á næstunni. Svo gæti farið að rödd hins sáluga Sigurjóns Brink verði notuð í laginu en það á eftir að koma betur í ljós. 25.8.2011 07:00
Grípandi popplög með alþjóðlegum blæ Samstarf tveggja af fremstu poppurum landsins veldur ekki vonbrigðum 25.8.2011 06:00
Þykir of mjó Kántrísöngkonunni LeAnn Rimes brá heldur í brún þegar gestur veitingahúss vatt sér að henni og skammaði hana fyrir að vera of mjó. Rimes, sem sat að snæðingi ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Eddie Cibrian, var mjög brugðið og skrifaði svo reiðilestur til konunnar á samskiptavefnum Twitter þegar heim var komið. 25.8.2011 06:00
O'Brien á leið til Íslands Kanadíska indí-söngkonan Shelley O'Brien hefur tónleikaferð sína um Evrópu með tónleikum á Faktorý í Reykjavík 14. september. O'Brien vakti fyrst athygli þegar hún setti á Youtube lög sem hún spilaði á úkúlele-hljóðfærið sitt. 24.8.2011 20:00
Fanta flott 66 ára gömul Leikkonurnar Jessica Chastain, 30 ára, og Helen Mirren, 66 ára, stilltu sér upp á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar The Debt í New York síðustu helgi. Eins og sjá má á myndunum er Helen áberandi glæsileg klædd í rauðan aðsniðinn kjól. Hvaða kona vill ekki líta út eins og Helen á þessum aldri? 24.8.2011 18:46
Í sjónvarpsviðtölum í Tyrklandi Sigrún Lilja hóf formlega kynningu á erlendri grundu á íslenska ilmvatninu Efj Eyjafjallajökull by Gyðja og VJK Vatnajökull í Tyrklandi fyrir stuttu. ,,Við höfum verið að vinna að því að undirbúa okkur sjálf og ilmvötnin til að geta byrjað formlega að kynna þau erlendis og hefja sölu á þeim. Ég taldi það henta vel að byrja í Tyrklandi þar sem við höfum einnig hafið framleiðslu á fylgihlutalínunum okkar hér og erum við núna með í framleiðslu næstu fylgihlutalínu Gyðju og einnig fylgihlutalínuna Meyja by Gyðja sem er lína á mjög góðum verðum sem við erum að gera sérstaklega fyrir verslanir Hagkaupa," segir Sigrún. Tyrkland hefur sýnt íslenska hönnuðinum, ilmvötunum sem og fylgihlutnum mjög góð og mikil viðbrögð en Sigrún hafði varla undan að svara kalli fjölmiðla þar í landi. Hún fór í eina fimm sjónvarpsþætti í þegar hún var þar í landi á stöðvunum Sky TV, Ege TV, Show TV og Yeniasir TV sem fjölluðu um ilmvötnin, hönnunina, bókina hennar sem varð metsölubók í Bandaríkjunum fyrir stuttu og heilmikið um Ísland, þetta var því mjög góð landkynning í leiðinni. Einnig var haldin blaðamannafundur og fór hún í hin ýmsu fjölmiðlaviðtöl. Afrakassturinn var birtur víða í Tyrkneskum dagblöðum, í sjónvarpi og á netinu en fjölmiðlar hafa sýnt íslenska hönnuðinum mjög mikin áhuga, sem dæmi eltu papparazzar hana á röndum þegar Sigrún fór í frí í strandparadísina Cesme með manninum sínum Reyni Daða og mynduðu þau í bak og fyrir m.a. í sólbaði á stöndinni. Eftir að greint frá nýjustu afurð Gyðju sem er herrailmurinn VJK Vatnjaökull fyrr í sumar hafa mörg hundruðir ef ekki þúsunudir fjölmiðla- og fréttamiðla útum heim allan keppst við að birta fréttir af íslensku ilmvötnunum frá Gyðju. Fjallað hefur verið um Sigrúnu og ilmvötn Gyðju m.a. í búlgarska Cosmopolitian, á sjónvarpsstöiðnni BBC, Luxe Magazine í Rússlandi, í og hinum ýmsu lífstílsblöðum um heim allan. Suður Afríska Trend fyrirtækið Flux Trends kaus EFJ Eyjafjallajökulls dömuilminn sem ilm mánaðarins. Rússneska sjónvarpstöðin Russia Today fjallaði einnig um ilmvötnin í sjónvarpsfréttum stöðvarinnar svo fátt eitt sé nefnt. Einnig höfðu tugir frétta verið birtar um Sigrúnu og ilmvatnið í Tyrklandi áður en hún hóf kynningu þar í síðustu viku. Hér má sjá þrjú sjónvarpsviðtöl sem Sigrún Lilja fór í þegar hún var stödd í Tyrklandi: Hér er Sigrún í viðtali við Ege TV. Hér er Sigrún í viðtali hjá Yeniasir TV hjá Cay Saati. Hér má sjá viðtal við Sigrúnu við Sky hjá Gune Bakis ásamt túlki, ýmsar fallegar myndir eru sýndar af íslenskri stórbrotinni nátturu á meðan á viðtalinu stendur. 24.8.2011 16:17
Himneskar Happ-möffins Veitingastaðurinn Happ gaf okkur uppskrift af gómsætum möffins-kökum sem seldar eru í Austurstræti og Höfðatorgi. Takið eftir skreytingunum; jarðaberjunum, vínberjunum og smjörkreminu sem gera kökurnar enn girnilegri. Happ-möffins 4 egg 4 dl hrásykur 4 dl hveiti/spelt 2 tsk lyftiduft 2 tsk matarsódi 2 tsk kanill 2 tsk vanilla 1 dl olía 6 dl gulræturhnetur ef vill bakið við 175°C krem:smjör, grískt jógúrt, flórsykur Happ.is 24.8.2011 16:00
Ómáluð eða máluð - þú ert alltaf sjóðheit Sandra Bullock, 47 ára, var mynduð á hlaupum talandi í símann ómáluð í framan eins og sjá má á myndunum. Þá má einnig sjá Söndru með andlitsfarða stilla sér upp á rauða dreglinum ásamt vini sínum, leikaranum Ryan Reynolds, á frumsýningu kvikmyndarinnar The Change-Up. Ryan fer með aðalhlutverkið í myndinni. Ryan og Sandra segjast vera góðir vinir en ekkert meira en það. 24.8.2011 15:37
Róa sig í fótósjoppi Leikkonan Amanda Seyfried, 25 ára, prýðir forsíðu septemberútgáfu indónesíska tímaritsins Joy. Eins og sjá má í myndasafni er búið að eiga við forsíðuna með aðstoð tölvutækninnar. Spurð út í draumaprinsinn í forsíðuviðtalinu svarar Amanda sem er á lausu: Fyrir mig er mjög mikilvægt að maki minn sé með góðan húmor og þroskaður. Svo þarf hann að vita hvað hann vill. 24.8.2011 14:30
Charlie Sheen í fríi með fyrrverandi Vandræðagemlingurinn Charlie Sheen og fyrrverandi eiginkona hans, Brooke Mueller, hafa ákveðið að grafa stríðsöxina ef marka má síðustu fregnir. Þessa dagana eru hjónin fyrrverandi stödd í Mexíkó í fríi ásamt tveggja ára tvíburabræðrunum sem þau eiga saman. Sheen segir þau ekki ætla að taka saman aftur heldur séu þau einungis "góðir vinir sem eru að reyna að vera góðir foreldrar“. 24.8.2011 14:00
Kjörin kynþokkafyllsta kona heims Fyrirsætan og nú leikkonan Rosie Huntington-Whiteley situr á toppnum yfir 100 kynþokkafyllstu konur í heimi, að því er tímaritið Maxim greinir frá. Í yfirlýsingu frá blaðinu segir að Huntington-Whiteley sé rísandi stjarna í Hollywood. 24.8.2011 13:00
HBO staðfestir að Game of Thrones sé á leið til Íslands Önnur þáttaröð Game of Thrones verður að hluta til tekin upp á Íslandi. Tökulið frá HBO kemur hingað til lands í tvær vikur síðar á árinu. 24.8.2011 12:00
Neitaði að syngja í brúðkaupi Kardashian Kris Jenner, móðir Kim Kardashian, sem gifti sig um helgina, bað söngkonurnar Jennifer Lopez og Christinu Aguilera, að syngja í brúðkaupi dóttur sinnar. Jennifer og Christina, sem taka rúmar 113 milljónir íslenskar krónur fyrir einkagigg, afþökkuðu pent þegar Kris bað þær um að syngja í brúðkaupinu án endurgjalds. Þess í stað héldu plötusnúður og hljómsveitin Earth, Wind and Fire uppi fjörinu. Meðfylgjandi má sjá Kim með eiginmanni sínum, daginn eftir brúðkaupið og Christinu Aguilera á LAX flugvelli í Los Angeles í vikunni. 24.8.2011 11:26
Ragnhildur hætt í Kastljósinu „Það sem réði þessu voru bara önnur verkefni. Ég er meðal annars að fara að stjórna þessari danskeppni í nóvember,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, en hún hefur yfirgefið Kastljós Ríkissjónvarpsins í bili. 24.8.2011 11:00
Lambalæri með blóðbergi, rjúpnalaufi og berjum Rómantík ræður ríkjum hjá ungum, íslenskum hjónum í litlu koti í New York, en þar stendur húsfreyjan keik í eldhúsinu og nýtur þess að baka og elda ofan í þakklátan eiginmann sinn, og allt fyrir opnum tjöldum á netinu fyrir aðra að njóta. 24.8.2011 10:00
Brjóst, blóð og barbarismi Conan er fyndin mynd og fjörug, ef maður fer heim í hléi. Lokauppgjörið er óspennandi langavitleysa og afhjúpar handritið endanlega sem þá hrákasmíð sem það er. 24.8.2011 10:00