Lífið

HBO staðfestir að Game of Thrones sé á leið til Íslands

Jon Snow sem leikinn er af Kit Harington er sendur í könnunarleiðangur norður fyrir Vegginn í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Þau atriði verða tekin upp á Íslandi. Þættirnir eru sýndir á sunnudagskvöldum á Stöð 2.
Jon Snow sem leikinn er af Kit Harington er sendur í könnunarleiðangur norður fyrir Vegginn í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones. Þau atriði verða tekin upp á Íslandi. Þættirnir eru sýndir á sunnudagskvöldum á Stöð 2.
Önnur þáttaröð Game of Thrones verður að hluta til tekin upp á Íslandi. Tökulið frá HBO kemur hingað til lands í tvær vikur síðar á árinu.

Bandaríski sjónvarpsrisinn HBO staðfesti í gær tvo nýja tökustaði fyrir aðra þáttaröð af Game of Thrones, sem slegið hafa rækilega í gegn hjá sjónvarpsáhorfendum um allan heim. Fréttablaðið sagði frá þessum áformum í síðustu viku en nú hefur formleg staðfesting verið send út.

Króatía varð fyrir valinu í sumartökur en Ísland verður notað fyrir kaldari senur. Á fréttavef Entertainment Weekly kemur fram að Ísland eigi að vera notað fyrir svæðið norðan Veggsins sem Jon Snow og Næturverðir hans kanna. Blaðamaður Entertainment Weekly lýsir því jafnframt yfir að þetta sýni glögglega þann mikla metnað sem lagður er í þættina, það hljóti að vera einsdæmi að sjónvarpsþættir séu teknir upp í þremur löndum á tímum tölvutækni en aðalbækistöðvar tökuliðsins verða á Norður-Írlandi.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eiga tökurnar að standa yfir í hálfan mánuð og því ljóst að þetta er umfangsmikið verkefni. Þá er jafnframt ágætis möguleiki á því að íslensk karlmenni sem telja sig lipur með sverð eigi möguleika á því að fá statistahlutverk.

Hins vegar er enn ekki orðið ljóst hversu margir munu koma að þessu tökum. Þetta er annað stóra tökuverkefnið sem berst til Íslands á skömmum tíma því fyrr í sumar tók leikstjórinn Ridley Scott upp senur fyrir kvikmynd sína Prometheus við Heklu og Dettifoss.

Ekki liggur hins vegar fyrir hvar tökulið Game of Thrones hyggst athafna sig. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins mun framleiðslufyrirtækið Pegasus aðstoða tökuliðið en forsvarsmenn fyrirtækisins vildu ekkert tjá sig um málið.

freyrgigja@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×