Fleiri fréttir Umhverfis jörðina á 80 dögum á Vísi Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbandið frá ferðalagi Sighvats Bjarnasonar, sem ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann lagði af stað í gær frá Keflavík og sendi myndbandið frá Höfðaborg í dag. 28.2.2011 23:34 Ástarátthyrningur í Búðardal Kvikmyndin Kurteist fólk verður frumsýnd í lok marsmánuðar og eru Ólafur Jóhannesson leikstjóri og hans fólk í Poppoli Pictures nú í óðaönn að leggja lokahönd á verkið. 28.2.2011 16:26 Mikið rétt það voru fleiri partý í gangi Fleiri en Hildur Líf og Linda Ýr héldu partý um helgina. Á laugardaginn var bærinn stútfullur af fólki að skemmta sér. Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á skemmtistöðunum Hvíta Perlan, Risið og Hressó á laugardagskvöldið. 28.2.2011 07:34 Tilnefndur til Emmy-verðlauna Hermann Hermannsson klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Knicks Poetry Slam. Verðlaunin eru systurverðlaun hinna þekktu Emmy-verðlauna og hafa verið veitt árlega frá árinu 1955. 28.2.2011 15:00 Stafræn tónleikaferð Hljómsveitin Stafrænn Hákon er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 22. apríl. Um kynningarferð er að ræða vegna sjöttu plötu hennar, Sanitas, sem kom út síðasta vor. 28.2.2011 14:00 Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock "Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima," segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore Reykjavík. Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðalhlutverkum. 28.2.2011 12:00 Gleymir ekki afmæli 28.2.2011 10:
Sjá næstu 50 fréttir
Umhverfis jörðina á 80 dögum á Vísi Vísir frumsýnir í dag fyrsta myndbandið frá ferðalagi Sighvats Bjarnasonar, sem ætlar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann lagði af stað í gær frá Keflavík og sendi myndbandið frá Höfðaborg í dag. 28.2.2011 23:34
Ástarátthyrningur í Búðardal Kvikmyndin Kurteist fólk verður frumsýnd í lok marsmánuðar og eru Ólafur Jóhannesson leikstjóri og hans fólk í Poppoli Pictures nú í óðaönn að leggja lokahönd á verkið. 28.2.2011 16:26
Mikið rétt það voru fleiri partý í gangi Fleiri en Hildur Líf og Linda Ýr héldu partý um helgina. Á laugardaginn var bærinn stútfullur af fólki að skemmta sér. Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is á skemmtistöðunum Hvíta Perlan, Risið og Hressó á laugardagskvöldið. 28.2.2011 07:34
Tilnefndur til Emmy-verðlauna Hermann Hermannsson klippari hefur verið tilnefndur til fernra New York Emmy-verðlauna fyrir vinnu sína við sjónvarpsþættina Knicks Poetry Slam. Verðlaunin eru systurverðlaun hinna þekktu Emmy-verðlauna og hafa verið veitt árlega frá árinu 1955. 28.2.2011 15:00
Stafræn tónleikaferð Hljómsveitin Stafrænn Hákon er á leiðinni í tónleikaferð um Evrópu sem hefst í Þýskalandi 22. apríl. Um kynningarferð er að ræða vegna sjöttu plötu hennar, Sanitas, sem kom út síðasta vor. 28.2.2011 14:00
Hannar hreyfingar George Clooney og Söndru Bullock "Ég var að vinna í þessu síðasta sumar, var hálft ár í London og þurfti því að kúpla mig út úr vinnunni hér heima," segir Daði Einarsson hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore Reykjavík. Hann vann náið með mexíkóska verðlaunaleikstjóranum Alfonso Cuarón við nýjustu kvikmynd hans, Gravity, sem skartar meðal annars stórleikurunum George Clooney og Söndru Bullock í aðalhlutverkum. 28.2.2011 12:00
Beastie Boys snýr aftur Rappsveitin Beastie Boys hefur loksins ákveðið útgáfudag á nýjustu plötu sinni, Hot Sauce Comittee Pt 2. Hún kemur út 19. apríl og bíða hennar margir með mikilli eftirvæntingu. Gripurinn átti upphaflega að heita Hot Sauce Commiettee Pt 1 og útgáfudagur átti að vera í september 2009. 28.2.2011 09:00
Glæný tónlistarhátíð Tónlistarhátíðin Bergen-Reykjavík-Nuuk fór fram í leikhúsinu Norðurpólnum á fimmtudag og föstudagskvöld. Fjöldi tónlistarmanna steig þar á svið og lét ljós sitt skína. 28.2.2011 09:00
Óvissa um Eagles-ferð til Hamborgar Á sama tíma og Sena auglýsir tónleika með hljómsveitinni Eagles í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní auglýsir Icelandair pakkaferð á Eagles-tónleika í Hamborg tæpum þremur vikum síðar, eða 28. júní, sem kostar á annað hundrað þúsund krónur. 28.2.2011 08:00
Framúrstefna frá Færeyjum Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI var á meðal þeirra skandinavísku tískumerkja sem sýndu línur sínar á nýyfirstaðinni tískuviku í Kaupmannahöfn. Merkið er upprunalega frá Færeyjum en hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og þykir hönnun þess dökk og framúrstefnuleg. 28.2.2011 06:00
100% keyrsla frá upphafi til enda Killzone 3 er virkilega góður leikur og skyldueign fyrir þá sem vilja sjá hvernig næfurþunnri sögu leikjaseríunnar vindur áfram. Leikurinn er í raun adrenalínsprengja frá upphafi til enda og það er varla hægt að kvarta undan því. 28.2.2011 06:00
Það leiddist engum á Replay Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Replay í gærkvöldi þar sem gleðskapur á vegum Hildar Líf og Lindu Ýr fór fram með látum. Stúlkurnar mættu í hvítri limmósínu og gáfu sér tíma til að pósa fyrir utan staðinn þrátt fyrir kuldann. Sigríður Klingenberg stjórnaði veislunni en hún fékk gesti meðal annars til að dilla sér saman í takt við lagið Sex bomb í flutningi Tom Jones og það vakti mikla lukku. Eins og myndirnar sýna leiddist engum þetta kvöld. 27.2.2011 09:26
Andlit kynlausrar tísku Serbneska fyrirsætan Andrej Pejic hefur heillað tískuheiminn undanfarna mánuði en hann vakti fyrst athygli er hann sýndi fötin hjá hönnuðinum Jean Paul Gaultier í desember síðastliðinn. Síðan þá hefur stjarna hans risið hratt. 27.2.2011 06:00
Þetta lið bókstaflega veinaði Frumsýningargestir, sem skoða má á meðfylgjandi myndum, veinuðu af hlátri á frumsýningu gamanleiksins Nei, ráðherra í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Verkið hefur slegið í gegn víða um heim en fer nú í fyrsta skipti á íslenskar leik- húsfjalir þar sem það er flutt í íslenskri heimfærslu Gísla Rúnars Jónssonar. Eins og sjá má voru leikhúsgestir í hátíðarskapi. 26.2.2011 14:48
Verzlunarskóladama valin ungfrú Reykjavík Verzlunarskóladaman Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir var valin ungfrú Reykjavík á veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Eyrún Anna Tryggvadóttir landaði öðru sæti og Hjördís Hjörleifsdóttir því þriðja. Meðfylgjandi má sjá myndir frá keppninni en gríðarlega góð stemning var á þéttsetnu veitingahúsinu eins og myndirnar sýna greinilega. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan í hópnum og Lilja Ragna Róbertsdóttir sigraði símakosninguna. 26.2.2011 08:22
Skálmöld í Tjarnarbíói Hljómsveitin Skálmöld hélt útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöld. Margt var um manninn á tónleikunum sem mæltust einstaklega vel fyrir. 26.2.2011 15:00
Ný tónlistarhátíð haldin í vor „Það vantar bara partí,“ segir Kristján Freyr Halldórsson hjá Kimi Records. Útgáfufyrirtækið skipuleggur í fyrsta sinn tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin dagana 16. og 17. apríl. 26.2.2011 14:00
Lifa bóhemlífi í München „Ég seldi fyrirtækið áður en kreppan skall á en var samt enn fullur af fjöri. Ég rak auðvitað gallerí í tuttugu ár og núna fæ ég útrás fyrir sköpunargleðina fyrir framan strigann,“ segir Sævar Karl Ólason, fyrrum kaupmaður. 26.2.2011 14:00
Hundrað vilja í Stundina okkar „Við fengum fullt af spennandi umsóknum frá spennandi fólki,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. 26.2.2011 12:00
Almúgapartý á Gullöldinni í kvöld „Þetta partý verður hreint út sagt frábært og verða heimatilbúin skemmtiatriði eins og við gerum best hérna á Gullöldinni," segir Davíð Þór Rúnarsson hjá Gullöldinni í Grafarvogi. Í kvöld verður „Almúgapartý" á Gullöldinni en hugmyndin kom eftir að grein birtist á vefnum bleikt.is um VIP-partý á Replay. 26.2.2011 11:39
Hræðileg æskuár Spjallþáttadrottningin Oprah birti nýverið langt og ítarlegt sjónvarpsviðtal við leikarann David Arquette þar sem hann ræðir meðal annars um erfiða æsku sína. Systur hans tvær, leikkonurnar Rosanna og Patricia Arquette, komu einnig fram í viðtalinu og lýstu erfiðri æsku sinni. 26.2.2011 11:00
Eltihrellir handtekinn Nálgunarbann hefur verið sett á brjálaðan aðdáanda leikkonunnar Sharon Stone. Maðurinn má ekki koma nær húsi leikkonunnar og þriggja barna hennar en eitt hundrað metra. Hann sást á lóð hennar fyrr í mánuðinum og í framhaldinu var hann handtekinn af lögreglu og fluttur á geðdeild. 26.2.2011 10:00
Björk og Emilíana í stelpumynd Íslensku söngkonurnar Björk Guðmundsdóttir og Emilíana Torrini eiga báðar lag í bandarísku stelpuhasarmyndinni Sucker Punch. 26.2.2011 09:00
Dusta rykið af týndu plötunni með Fídel Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega efnileg á sínum tíma og sendi frá sér magnaða plötu, áður en hún hætti skyndilega. Nú hafa meðlimir hljómsveitarinnar dustað rykið af týndum upptökum. 25.2.2011 21:00
Hermir eftir strákunum og rakar á sig hanakamb Gunnar Helgason leikstjóri leikstýrir Herranótt Menntaskólans í Reykjavík þetta árið. Eins og komið hefur fram er það Draumur á Jónsmessunótt sem varð fyrir valinu og er frumsýning í kvöld. 25.2.2011 20:00
Götutískan í Kaupmannahöfn Kaupmannahafnarbúar hafa ávallt þótt vera með puttann á tískupúlsinum. Föstudagur Fréttablaðsins ákvað að nýta tækifærið og fara á stúfana með ljósmyndaranum Hildi Maríu Valgarðsdóttur og mynda smekklega borgarbúa meðan á tískuvikunni í Kaupmannahöfn stóð. Hér má sjá afraksturinn af því. 25.2.2011 17:00
Strákarnir látnir strippa Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona viðurkennir meðal annars í myndskeiðinu að karlleikarar þáttanna sýndu hold en ekki kvenkynsleikararnir en þar verða áhorfendur að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni. 25.2.2011 16:00
Oprah með íslenska hönnun um sig miðja Unnur Friðriksdóttir hönnuður gerir það gott í Los Angeles þar sem hún rekur fyrirtækið UNNURWEAR. Ýmsar stjórstjörnur eru í hópi viðskiptavina Unnar og nýverið bættist sjálf spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey við. 25.2.2011 15:00
Kvöddu látinn félaga Meðfylgjandi myndir voru teknar á miðvikudaginn á tónleikum sem haldnir voru á vegum Extreme Chill og Weirdcore á veitingahúsinu Kaffibarnum fyrir tónlistarmanninn Bjössa Biogen, eða Sigurbjörn Þorgrímsson, en hann féll frá 8. febrúar síðastliðinn. Bjössi var vel þekktur hér á landi sem einn af frumkvöðlum í íslensku dans og raftónlistar senunni og naut mikillar virðingar sem tónlistarmaður bæði hérlendis og erlendis. Listamenn á borð við Ruxpin, Yagya, Futurergrapher, Beatmakin Troopa , AnDre, Skurken, Tanya Pollock, Frank Murder, Krummi Björgvinsson, Steve Sampling og fleiri spiluðu tónlist þetta kvöld til heiðurs Bjössa. 25.2.2011 09:56
Hannaði hlébarðasamfestinginn sjálf "Ég vissi á fimmtudeginum fyrir Edduverðlaunahátíðina að ég myndi mæta og hugsaði að þyrfti ég að fara upp á svið yrði ég hvort sem er allt öðruvísi en aðrir í salnum, svo ég ákvað að gera þetta bara á minn hátt," segir Bjarnheiður Hannesdóttir, sem vakið hefur athygli fyrir þröngan samfesting með hlébarðamynstri sem hún klæddist á hátíðinni. 25.2.2011 00:01
Gert að laga hreiminn Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleikaþáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum. 25.2.2011 07:15
Hitar upp fyrir ferðalag Hljómsveitin Hjaltalín hitar upp fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Evrópu með tvennum tónleikum á Rosenberg í kvöld og annað kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar Hjaltalín hér á landi í þrjá mánuði. 25.2.2011 10:00
Bodyguard endurgerð Til stendur að endurgera kvikmyndina The Bodyguard, sem kom út árið 1992 með Kevin Costner og Whitney Houston í aðalhlutverkum. 25.2.2011 09:30
Vonbrigði Þrátt fyrir digurbarkalega yfirlýsingu í titlinum þá kemst The King of Limbs ekki með tærnar þar sem síðasta plata Radiohead, In Rainbows, hefur hælana. 25.2.2011 00:01
Ferðast um Evrópu Rokksveitin Agent Fresco er að skipuleggja tónleikaferð um Evrópu í júní og júlí. Þetta verður fyrsti alvöru túr sveitarinnar um Evrópu en hingað til hefur hún verið úti í mesta lagi fimm daga í einu. 25.2.2011 12:00
Stillimyndin hverfur af skjánum „Ég vona að þjóðin sé sammála mér um það að við séum búin að hafa stillimyndina of lengi,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins. 25.2.2011 09:00
Vaxandi vinsældir fjárhundsins í Ameríku „Við fáum fjölmargar fyrirspurnir um íslenska fjárhundinn – eiginlega of margar, þar sem við teljum að hundurinn sé ekki fyrir alla,“ segir Maggy Pease, forsvarsmaður ræktunarsambands íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum. 25.2.2011 08:00
Eldri hjón úr pappa Another Year er bráðfyndin mynd um dapurlegt fólk. Sérstaklega ljúf með rauðvíni. 25.2.2011 08:00
Innblásið af íslenskri hefð Guðrún Edda Einarsdóttir, vöru- og skóhönnuður, lærði skóhönnun við London College of Fashion, Cordwainers. Hún vann lokaverkefnið sitt út frá íslensku handverki eftir að hafa heimsótt íslenskt handverksfólk yfir kaffibolla. 25.2.2011 00:01
Vill ekki predika yfir fólki Áttunda plata ensku söngkonunnar PJ Harvey, Let England Shake, er nýkomin út. Í textunum leitar hún í fyrsta sinn út á við í stað þess að kafa ofan í eigið tilfinningalíf. 24.2.2011 22:00
Syngur ekki Oasis-lög Liam Gallagher ætlar ekki að syngja lög með fyrrverandi hljómsveit sinni Oasis á væntanlegri tónleikaferð sinni um Evrópu með nýja bandinu Beady Eye. Í viðtali við BBC sagði hann að um leið og hann myndi syngja eitt Oasis-lag yrðu mörg að fylgja í kjölfarið. 24.2.2011 20:00
Stelur fötum af dótturinni Madonna er farin að færa sig upp á skaftið í samskiptum við dóttur sína með því að fá lánuð föt af henni án þess að biðja um leyfi. 24.2.2011 19:00
Óskar fellur fyrir kóngi Á sunnudagskvöldið er komið að því að kvenkynsstjörnur Hollywood eyði milljónum í útlit sitt og karlarnir troði jafnvel bótoxi í ennið sitt. Það er nefnilega Óskarskvöld, mesta glamúrveisla ársins þar sem tár, gremja og gleði ráða ríkjum. 24.2.2011 18:00
Neeson á toppinn Hver hefði trúað því að Liam Neeson ætti eftir að verða næsta ofurstjarna í Hollywood á sextugsaldri? Sennilega Liam Neeson en nýjasta kvikmynd hans, Unknown, settist makindalega í toppsætið í Bandaríkjunum um helgina. Neeson, sem áður fékk einungis hlutverk lífsleiðra manna eða nasistaforingja, hefur náð augum og eyrum Hollywood-framleiðenda og verður að teljast heitasta „gamalmenna“-hetjan um þessar mundir. Hefur allavega skotið Harrison Ford ref fyrir rass. 24.2.2011 17:00