Fleiri
Frönsk snilld og framtíðin 17.3.2007 00:01 Góð tilfinning að þjóna Ég lít á starf mitt sem listrænt uppeldisstarf,“ segir Þorgerður. „Kennararstarf þar sem maður tekur á móti ómótuðum unglingum. Það að ná góðum árangri í tónlistinni er auðvitað takmarkið og oft tekst með prýði að ná listrænum hæðum í starfinu. 17.3.2007 00:01 Spartanskir magavöðvar Skotinn Gerard Butler er kannski ekki öllum kunnur eins og er. En eftir að heimurinn sér hann sem Leonidas konung höggva mann og annan í leðurbrók með rauða skikkju í myndinni 300 á hann eflaust eftir að grafa sig í minni manna. Þá sérstaklega kvenþjóðinni og samkynhneigðum. 17.3.2007 00:01 Cowell: Ég er meiri stjarna en Springsteen Ljúfmennið lítilláta Simon Cowell lýsti því yfir í sjónvarpsþættinum 60 mínútur að hann væri fimm sinnum meiri stjarna en Bruce Springsteen. Í spjallinu kom það til tals að Springsteen hefði gert nýjan samning við Sony, sem færði honum 100 milljónir dollara. Cowell sagði þá að hann hefði selt miklu fleiri albúm en Springsteen undanfarin ár. Hann ætti því skilið að fá 500 milljónir dollara. 16.3.2007 16:42 Jimmy Somerville á Hinsegin dögum Tónlistarmaðurinn Jimmy Somerville kemur fram á Hinsegin dögum 11. og 12. ágúst næstkomandi. Jimmi er líklega þekktastur fyrir lögin Smalltown Boy og Don´t Leave Me This Way. Hann náði hátindi frægðar sinnar á níunda áratugnum með hljómsveitunum Bronski Beat og The Communards. Síðan hefur Jimmy átt farsælan sólóferil. 16.3.2007 15:12 Módel á rassinum Það þykir spaugilegt þegar fyrirsætur detta í miðri tískusýningu. Það var einmitt það sem kom fyrir á tískusýningu MAX Factor á miðvikudagskvöld. Strandvarðaskvísan Carmen Electra var ein af fyrirsætunum. Gekk henni vel, allt þar til hún var að ljúka við að ganga eftir rananum, en þá rann hún til og datt á rassinn. 16.3.2007 14:32 Lykillinn að hjónabandinu er að tala saman Leikkonan Jada Pinkett Smith segir að lykillinn að góðu hjónabandi sé að eiga í góðum samskiptum við maka sinn. Hún tali ekki við neinn um vandamál sín nema eiginmann sinn, leikarann Will Smith. 16.3.2007 14:00 Sonur Angelinu grét við fyrstu kynni Leikkonan Angelina Jolie hefur ættleitt lítinn dreng frá Víetnam. Fyrstu kynni leikkonunnar við nýjan son sinn gengu ekki áfallalaust fyrir sig en hún sótti hann á munaðarleysingahæli í borginni Ho Chi Minh í gær. Drengurinn litli, sem er aðeins þriggja ára gamall, byrjaði að gráta hástöfum þegar Angelina beygði sig niður til að spjalla við hann. 16.3.2007 12:46 Ampop á iTunes Hljómsveitin Ampop hefur gert samning við iTunes um að þar verði fáanlegar þrjár síðustu plötur sveitarinnar. „Við vorum að reyna þetta fyrir ári. Þá þurftum við að hafa samning við plötufyrirtæki en við komumst einhvern veginn inn núna. Það er væntanlega vegna þess að við erum komnir með útgáfusamning í Frakklandi og höfum verið sýnilegir í Bandaríkjunum,“ segir Birgir Hilmarsson, söngvari Ampop. 16.3.2007 10:00 Berry aftur með REM Bill Berry, fyrrverandi trommari REM, spilaði með sínum gömlu félögum er þeir voru vígðir inn í Frægðarhöll rokksins í New York. Berry, sem hætti í hljómsveitinni árið 1997, spilaði með þeim Michael Stipe, Mike Mills og Peter Buck gömul REM-lög. 16.3.2007 09:45 Bílnúmerið hjá Eika Hauks var notað í leyfisleysi „Ég vissi varla hvaðan á mig stóð veðrið," segir Kristinn Gísli Guðmundsson. En á mánudagskvöldinu fékk hann símhringingu frá góðum félögum sem vinsamlegast bentu honum á að horfa á myndbandið við framlag Íslendinga í Eurovision, Valentines Lost. 16.3.2007 09:30 Bubbi sleginn úr hringnum Fyrstu óvæntu úrslitin eru fyrirliggjandi í Meistaranum. Kempan Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður – gjarnan kallaður Bubbi – var sleginn úr keppni af Birni Guðbrandi Jónssyni líffræðingi: 26 gegn 20 stigum Bubba. Ekki að Björn Guðbrandur sé einhver kettlingur þegar spurningar og svör eru annars vegar. 16.3.2007 09:15 Bítlarnir á netinu Netfyrirtækið Wippit býður nú dyggum aðdáendum Bítlanna að hlaða niður sjaldséðum myndum af hljómsveitinni og einstökum hljóðupptökum með viðtölum við hljómsveitarmeðlimina fjóra. 16.3.2007 09:00 Sjá næstu 50 fréttir
Vaknaðu Örfáir miðar eru eftir á styrktartónleika gegn átröskun sem fram fara á Nasa 1. apríl. Miðasala hefur farið ótrúlega vel af stað og stefnir allt í að uppselt verði í þessari viku. Björk – Mugison – Lay Low – Pétur Ben - KK – Magga Stína – Wulfgang - Esja koma fram á tónleikunum. 21.3.2007 09:03
Britney útskrifuð úr milljónameðferð Poppprinsessan Britney Spears er útskrifuð úr áfengismeðferð sem hún hefur verið í undanfarnar vikur á Promises-meðferðarstofnuninni í Malibu. Talsmenn hennar segja að hún muni ekki tjá sig við fjölmiðla að svo stöddu og biður aðdáendur um að virða rétt hennar til einkalífs, hún ætli nú að sinna sonum sínum tveimur. Promises-meðferðarstofunin er ekki fyrir hvern sem er. 30 daga meðferð þar kostar jafnvirði rúmlega þriggja milljóna króna en boðið er upp á útsýni yfir hafið, afeitrun, ráðgjöf og 12-spora meðferð. 21.3.2007 08:27
Spooky Jetson og The Portals í úrslit Keppni á öðru kvöldi Músíktilrauna 2007 fór fram í Loftkastalanum í kvöld. Alls léku níu hljómsveitir fyrir gesti og keppnin var ekki síður spennandi en á fyrsta kvöldinu þegar hljómsveitirnar Loobylloo og Magnyl tryggðu sér sæti í úrslitum. Í kvöld komumst áfram hljómsveitirnar Spooky Jetson sem var kosin áfram af áhorfendum og The Portals sem dómnefndin ákvað að senda í úrslit. 20.3.2007 23:17
Heimildarmynd um Thatcher í bígerð Verið er að undirbúa heimildarmynd um fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Margaret Thatcher, og aðkomu hennar að aðdraganda Falklandseyjastríðsins árið 1982. Það eru BBC films og Pathe sem vinna að gerð handrits heimildarmyndarinnar. 20.3.2007 15:39
Naomi þrífur klósett og skúrar gólf Tískufyrirsætan Naomi Campbell mætti á háum hælum til vinnu í gær. Var þó ekki um hefðbundinn vinnudag að ræða hjá fyrirsætunni, heldur var hún að þrífa klósett og skúra gólf í sorpbirgðastöð í New York. 20.3.2007 14:54
Heather Mills hrósað fyrir frammistöðuna Heather Mills, sem nú stendur í harðvítugum skilnaði við Bítilinn Paul McCartney, tekur nú þátt í danskeppninni Dansað með stjörnunum sem sýnd er á ABC sjónvarpsstöðinni. Hún tók danssporin í fyrsta sinn á mánudag og fékk mikið lof dómara fyrir frammistöðu sína. 20.3.2007 14:30
Magnyl og Loobyloo áfram Það voru nálægt 300 manns sem mættu á fyrsta undankvöld Músíktilrauna, Tónabæjar og Hins Hússins 2007 en það fór fram í kvöld. Níu hljómsveitir kepptust um að tryggja sér miða á úrslitakvöldið sem haldið verður laugardaginn 31. mars en hljómsveitirnar Magnyl og Loobyloo sem komust áfram. Loobyloo komst áfram á atkvæðum áhorfenda úr sal, en dómnefndin valdi Magnyl. 19.3.2007 23:19
Sólheimabúggí hjá Nælon Stúlkurnar sem mynda hina vinsælu hljómsveit Nælon komu í heimsókn og sögukynningu að Sólheimum á sunnudaginn 18. mars. Þær létu slæmt ferðaveður ekki stoppa sig og skemmttu íbúum og nágrönnum þeirra með glæsilegum flutningi og fallegum söng í Grænu Könnunni, að sögn Valgeirs F. Backman félagsmálafulltrúa á staðnum. 19.3.2007 14:19
Charles prins að verða afi Charles Bretaprins er að verða afi. Það eru þó ekki ungu prinsarnir Vilhjálmur og Harry sem bera ábyrgð á þeim gleðiviðburði heldur Tom Parker Bowles, sonur Camillu Parker-Bowls, frá fyrra hjónabandi, sem er að verða faðir í fyrsta skipti, 32 ára að aldri 19.3.2007 09:58
PS3 í verslanir á föstudag PlayStation 3, nýjasta leikjatölvan frá Sony, kemur í verslanir í Evrópu á föstudag. Tölvan fór í sölu í Japan og í Bandaríkjunum um miðjan nóvember í fyrra. Breskir fjölmiðlar segja leikjatölvuunnendur þar í landi jafnt sem annars staðar bíða óþreyjufullir eftir tölvunni. Helst gagnrýna Bretarnir verðið, sem er um 16.000 krónum hærra í Bretlandi en í Bandaríkjunum. 18.3.2007 11:00
Íslensk langferðalög í Kína Þetta hófst allt saman í ársbyrjun 2004,“ segir Óttar um upphafið á Kínaævintýrinu. „Ég var þá nýbúinn að festa kaup á öllum upptökum hins ítalska Robertinos og fór með þær á tónlistarráðstefnu. Þar kveiktu nokkrir kínverskir aðilar á Robertino og eftir nokkrar samningaviðræður varð úr að þeir buðu mér og konu minni til Shanghai til að reka smiðshöggið á samningana og þá fór boltinn að rúlla.“ 18.3.2007 00:01
Ástir Jesú Krists og örlög Kaþólska kirkjan, frumkirkjan, er sveipuð leyndardómum og dularfullum sögum um leynireglur og því er kannski ekki skrítið að samsæriskenningasmiðir fái sitthvað fyrir sinn snúð í sögu hennar og menningu. Þessar smíðar náðu ákveðnu hámarki þegar Dan Brown gaf út bókina Da Vinci lykilinn. 18.3.2007 00:01
Ekki hægt að þegja lengur Ástandið er alvarlegt, það fer ekki fram hjá neinum að átröskun er gríðarlega stórt vandamál hér á landi, og ekki er hægt að þegja lengur yfir því hversu illa er staðið að málum átröskunarsjúklinga innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Alma Geirdal, framkvæmdastjóri og ráðgjafi Forma, samtaka átröskunarsjúklinga. 18.3.2007 00:01
Svefnlaus af ótta Sienna Miller fær ekki mikinn svefn þessa dagana. Leikkonan sætir ofsóknum klæðskiptings sem kallar sig Peter, og hefur ráðið sér lífverði vegna ótta við hann. „Undarlegum bréfum rignir bókstaflega yfir Siennu. Aumingja stelpan hefur verið svo hrædd að hún getur ekki sofið,! sagði heimildarmaður Daily Star um ástandið hjá leikkonunni. 17.3.2007 15:00
Simon Cowell: Ég sel fleiri plötur en Springsteen Frábært gengi raunveruleikaþáttarins American Idol hefur svo sannarlega komið fram á bankareikningnum hans Simon Cowell. Í viðtali fréttaskýringarþáttarins 60 Minutes við Simon, sem verður sýnt Vestanhafs næsta sunnudagskvöld, segir Simon að hann selji fleiri plötur en Bruce Springsteen. 17.3.2007 15:00
Þrennra tónleika hylling Rússnest tónskáld hefur á undanförnum mánuðum notið mikillar athygli á Bretlandseyjum og á Norðurlöndum. Hún heitir Sofia Gubaidulina og er talin með merkari tónskáldum okkar tíma. Nú beinir tónlistargeirinn á Íslandi augum sínum og listgæfni að verkum hennar. Frúin ætlaði að koma í heimsókn en ekki verður af því: aldraður bóndi hennar veiktist og hún afboðaði sig. Sjálf er hún 75 ára. 17.3.2007 14:30
Nýtt lag frá Mínus Nýtt lag með rokksveitinni Mínus, Futurist, fer í útvarpsspilun á þriðjudag. Lagið er að finna á væntanlegri plötu Mínus, The Great Northern Whalekill, sem kemur út 16. apríl. 17.3.2007 14:00
Abbababb! - þrjár stjörnur Plata Dr. Gunna frá 1997, Abbababb!, er líklegast best heppnaða barnaplata frá því að Eniga Meniga kom út. Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir nú leikrit byggt á þessu snilldarverki Dr. Gunna og nú er komin út plata með lögum leikverksins sem inniheldur heil sextán lög. 17.3.2007 12:00
Meiri þrældómur Þórhalls Gleði Þórhalls Gunnarssonar með hina nýju stöðu var tvíbent þegar Fréttablaðið náði af honum tali. 17.3.2007 12:00
Klettasalat og afbyggður líkami Tvær sýningar verða opnaðar í gallerí Kling & Bang í dag. Spænski listamaðurinn Alejandro Vidal heldur sína fyrstu einkasýningu hér á landi og sýnir myndbandsverk og ljósmyndir í afgirtu rými en í galleríinu gefur einnig að líta vídeóverk þýska listamannsins Johns Bock. 17.3.2007 11:15
Hættið að kvarta Leikkonan Elizabeth Taylor hefur gefið ungum stjörnum í Hollywood góð ráð varðandi framtíðina og segir að þær eigi að hætta að kvarta undan vandræðunum sem fylgi frægðinni. „Frægð kostar ykkur einkalíf ykkar. Þið eigið engan rétt á einkalífi,“ sagði Taylor í sjónvarpsviðtali við Entertainment Tonight. 17.3.2007 10:30
Bogi sáttur við skipuritið „Ég er mjög sáttur við þetta skipurit. Þetta eru nákvæmlega þær áherslur sem ég hef verið að berjast fyrir og því er hvorki fyrir klögumálum né kvörtunum hjá mér að fara. Það er verið að leggja áherslu á dagskrármálin sem er einmitt það sem Ríkisútvarpið á að ganga út á,“ segir Bogi Ágústsson en staða forstöðumanns fréttasviðs, sem hann gegndi, var lögð niður samkvæmt nýju skipuriti. 17.3.2007 10:00
Inga Sædal send heim í X-Factor Inga Sædal, elsti keppandinn í X-factor á Stöð 2, var send heim í gær og standa því einungis fjórir keppendur eftir í söngkeppninni. 17.3.2007 09:59
Brúðkaup í vændum Spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres og leikkonan Portia di Rossi ætla að ganga í það heilaga í sumar. Þær hafa verið saman síðan árið 2004. Di Rossi, sem er hvað frægust fyrir leik sinn í Ally McBeal, og síðar Arrested Development, var þá nýhætt með söngkonunni Francescu Gregorini, stjúpdóttur Ringo Starr. 17.3.2007 09:30
Björk hefur fengið nóg Í nýlegu viðtali á heimasíðu MTV segist Björk Guðmundsdóttir vera eins og margir aðrir óhress með gang mála í heiminum. 17.3.2007 09:00
Ekkert plat þótt fermingin sé 1. apríl Eitt þeirra barna sem fermist í Bjarnarneskirkju í Hornafirði á pálmasunnudag er Sigurður Ragnarsson í Akurnesi. Hann brá sér í bæinn um síðustu helgi til að festa kaup á skóm fyrir ferminguna en jakkaföt var hann búinn að kaupa í versluninni Lóninu á Höfn. 17.3.2007 06:00
Stelpulegar greiðslur "Sem betur fer eru fermingargreiðslur alltaf að verða meira og meira stelpulegar,“ segir Magnea Sif Agnarsdóttir, hágreiðslukona á hársnyrtistofunni Effect á Bergstaðastræti. 17.3.2007 06:00
Finnst skemmtilegt í fermingarfræðslunni Stefán Sigurjónsson fermist hinn 24. mars í Hafnarfjarðarkirkju. Hann segist hafa verið ákveðinn í að láta ferma sig frá því að hann var tíu ára. „Allir í bekknum mínum ætla að láta ferma sig en við fermumst ekki öll í einu því við erum svo mörg,“ segir Stefán. 17.3.2007 06:00
Hlakkar til að hitta gestina Fermingarundirbúningurinn hjá Védísi Köru Ólafsdóttur hófst síðastliðið haust með messusókn og fermingarfræðslu og hefur undirbúningurinn að veisluhöldunum sjálfum staðið yfir í svipaðan tíma. "Mamma byrjaði löngu fyrir jól í veisluundirbúningi en ég byrjaði nú bara að pæla í þessu fyrir um viku síðan,“ segir Védís sem fermist í Árbæjarkirkju hinn 5. apríl næstkomandi. Fermingarfræðslan er að sögn Védísar ekki í mestu uppáhaldi hjá krökkunum. 17.3.2007 06:00
Breyttist í litla konu „Ég átti mjög skemmtilegan dag,“ segir Mjöll Hólm söngkona þegar hún rifjar upp fermingardaginn. „Ég fermdist reyndar ári á undan heldur en venja er, þar sem mamma ákvað að sameina fermingu okkar systranna. Hún var nefnilega einstæð níu barna móðir og vildi með þessu móti spara pening.“ 17.3.2007 06:00
Siggi Pálmi Þriðja gráðan Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson er framkvæmdastjóri From Nowhere Records, plötuútgáfufyrirtækis sem hann setti á fót ásamt tónlistarmanninum Barða Jóhannssyni. Sigurður Pálmi hefur viðskiptavitið í blóðinu enda barnabarn Pálma í Hagkaupum. Fré 17.3.2007 00:01
Hanna Björk talar frá Teheran: Ananasgos, bananatyggjó og ís Þegar maður dvelur í útlöndum í lengri tíma þá fer maður alltaf að sakna fáránlegra hluta frá Íslandi eins og til dæmis SS-pylsna og ópals. En mér finnst reyndar ennþá skemmtilegra að vera í útlöndum og smakka mat sem mér finnst skrítinn. Í Íran er mikil matarmenning og ég hef verið mjög dugleg við að smakka allan mat sem mér er boðinn og yfirleitt er hann mjög góður, þótt Íranar séu óþarflega mikið fyrir að hafa súrsað grænmeti sem meðlæti. 17.3.2007 00:01
Góð tilfinning að þjóna Ég lít á starf mitt sem listrænt uppeldisstarf,“ segir Þorgerður. „Kennararstarf þar sem maður tekur á móti ómótuðum unglingum. Það að ná góðum árangri í tónlistinni er auðvitað takmarkið og oft tekst með prýði að ná listrænum hæðum í starfinu. 17.3.2007 00:01
Spartanskir magavöðvar Skotinn Gerard Butler er kannski ekki öllum kunnur eins og er. En eftir að heimurinn sér hann sem Leonidas konung höggva mann og annan í leðurbrók með rauða skikkju í myndinni 300 á hann eflaust eftir að grafa sig í minni manna. Þá sérstaklega kvenþjóðinni og samkynhneigðum. 17.3.2007 00:01
Cowell: Ég er meiri stjarna en Springsteen Ljúfmennið lítilláta Simon Cowell lýsti því yfir í sjónvarpsþættinum 60 mínútur að hann væri fimm sinnum meiri stjarna en Bruce Springsteen. Í spjallinu kom það til tals að Springsteen hefði gert nýjan samning við Sony, sem færði honum 100 milljónir dollara. Cowell sagði þá að hann hefði selt miklu fleiri albúm en Springsteen undanfarin ár. Hann ætti því skilið að fá 500 milljónir dollara. 16.3.2007 16:42
Jimmy Somerville á Hinsegin dögum Tónlistarmaðurinn Jimmy Somerville kemur fram á Hinsegin dögum 11. og 12. ágúst næstkomandi. Jimmi er líklega þekktastur fyrir lögin Smalltown Boy og Don´t Leave Me This Way. Hann náði hátindi frægðar sinnar á níunda áratugnum með hljómsveitunum Bronski Beat og The Communards. Síðan hefur Jimmy átt farsælan sólóferil. 16.3.2007 15:12
Módel á rassinum Það þykir spaugilegt þegar fyrirsætur detta í miðri tískusýningu. Það var einmitt það sem kom fyrir á tískusýningu MAX Factor á miðvikudagskvöld. Strandvarðaskvísan Carmen Electra var ein af fyrirsætunum. Gekk henni vel, allt þar til hún var að ljúka við að ganga eftir rananum, en þá rann hún til og datt á rassinn. 16.3.2007 14:32
Lykillinn að hjónabandinu er að tala saman Leikkonan Jada Pinkett Smith segir að lykillinn að góðu hjónabandi sé að eiga í góðum samskiptum við maka sinn. Hún tali ekki við neinn um vandamál sín nema eiginmann sinn, leikarann Will Smith. 16.3.2007 14:00
Sonur Angelinu grét við fyrstu kynni Leikkonan Angelina Jolie hefur ættleitt lítinn dreng frá Víetnam. Fyrstu kynni leikkonunnar við nýjan son sinn gengu ekki áfallalaust fyrir sig en hún sótti hann á munaðarleysingahæli í borginni Ho Chi Minh í gær. Drengurinn litli, sem er aðeins þriggja ára gamall, byrjaði að gráta hástöfum þegar Angelina beygði sig niður til að spjalla við hann. 16.3.2007 12:46
Ampop á iTunes Hljómsveitin Ampop hefur gert samning við iTunes um að þar verði fáanlegar þrjár síðustu plötur sveitarinnar. „Við vorum að reyna þetta fyrir ári. Þá þurftum við að hafa samning við plötufyrirtæki en við komumst einhvern veginn inn núna. Það er væntanlega vegna þess að við erum komnir með útgáfusamning í Frakklandi og höfum verið sýnilegir í Bandaríkjunum,“ segir Birgir Hilmarsson, söngvari Ampop. 16.3.2007 10:00
Berry aftur með REM Bill Berry, fyrrverandi trommari REM, spilaði með sínum gömlu félögum er þeir voru vígðir inn í Frægðarhöll rokksins í New York. Berry, sem hætti í hljómsveitinni árið 1997, spilaði með þeim Michael Stipe, Mike Mills og Peter Buck gömul REM-lög. 16.3.2007 09:45
Bílnúmerið hjá Eika Hauks var notað í leyfisleysi „Ég vissi varla hvaðan á mig stóð veðrið," segir Kristinn Gísli Guðmundsson. En á mánudagskvöldinu fékk hann símhringingu frá góðum félögum sem vinsamlegast bentu honum á að horfa á myndbandið við framlag Íslendinga í Eurovision, Valentines Lost. 16.3.2007 09:30
Bubbi sleginn úr hringnum Fyrstu óvæntu úrslitin eru fyrirliggjandi í Meistaranum. Kempan Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður – gjarnan kallaður Bubbi – var sleginn úr keppni af Birni Guðbrandi Jónssyni líffræðingi: 26 gegn 20 stigum Bubba. Ekki að Björn Guðbrandur sé einhver kettlingur þegar spurningar og svör eru annars vegar. 16.3.2007 09:15
Bítlarnir á netinu Netfyrirtækið Wippit býður nú dyggum aðdáendum Bítlanna að hlaða niður sjaldséðum myndum af hljómsveitinni og einstökum hljóðupptökum með viðtölum við hljómsveitarmeðlimina fjóra. 16.3.2007 09:00