Fleiri fréttir

Einn með gítarinn

Tónlistarmaðurinn Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi, heldur tónleika á Kaffi Hljómalind í kvöld. Þar mun hann spila einn með kassagítarinn lög af fyrstu sólóplötu sinni, Id, og gömul lög með Maus.

Playstation 3 ekki í góðum málum

Margir markaðssérfræðingar segja að fá fyrirtæki í ár hafi klúðrað málunum jafn gróflega og Sony. Sony átti stærstu hlutdeildina í tölvuleikjamarkaðnum fyrir stuttu, en þar réði Playstation 2 ríkjum.

Rammíslensk rödd ráðherrans

„Já, hélstu kannski að einhver væri að herma eftir mér?“ spyr Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. Margir þeir sem fylgdust með heimildarmynd Egils Eðvarðssonar um ferð Frummanna til Bandaríkjanna, til að taka upp plötu sína, í Ríkisútvarpinu á mánudagskvöld, ráku upp stór eyru þegar þulurinn tók til máls.

Lay Low fær afhenta gullplötu í dag

Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, fær afhenta gullplötu til marks um sölu á 5.000 eintökum af frumburði hennar "Please Don´t Hate Me". Afhending gullplötunnar fer fram á vinnustað hennar í Skífunni á Laugavegi kl. 17:00 í dag.

Fyrstur með Platínupötu

Vinsældir tónleika Björgvins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands virðast engan endi ætla að taka. Aðsóknarmet var slegið þegar 9.000 manns keyptu miða á tónleikana í september og nú er Björgvin á góðri leið með að stinga samferðarmenn sína af í plötusölunni fyrir jólin og slá fleiri met.

Biggi einn með kassagítarinn

Á fimmtudaginn 21. desember ætlar tónlistamaðurinn Biggi að koma fram einn með kassagítarinn sinn á Kaffi Hljómalind. Þar mun hann leika lög af nýju plötunni "id" auk nokkurra laga Maus. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og aðgangur er ókeypis.

Ekki þetta, strákar

Karlmenn lenda stundum í vandræðum með hvað þeir eiga að segja, ef þeir sjá konu sem þá langar til að kynnast nánar, á veitingastað. Þá er náttúrlega gríðarlega mikilvægt að komast vel að orði. Hér eru nokkrar línur sem karlmönnum væri best að forðast.

Bardukha með útgáfuteiti á Súfistanum

Bardukha heldur útgáfuteiti á Súfistanum í Hafnarfirði Fimmtudag 21.desember og í Reykjavík Föstudag 22.desember í tilefni af útgáfu sínum fyrsta geisladisk.

ROMM TOMM TOMM

Sjö manna latínsveit Tómasar R. Einarssonar heldur tónleika á Café Rósenberg í Lækjargötu fimmtudagskvöldið 21. desember og hefjast þeir kl. 22.

Yoko Ono verst fjárkúgun

Einkabílstjóri listakonunnar Yoko Ono kom fyrir rétt í New York í dag, sakaður um að hafa reynt að kúga fé út úr vinnuveitanda sínum.

Hvernig verða menn ríkir ?

Hafið þið einhverntíma velt því fyrir ykkur hvernig hinir ríku verða ríkir ? Eitt svarið er að þeir eru útsjónarsamir. Eins og bandaríski verðbréfamiðlarinn John Huntington, sem var að fara í hálfsmánaðar ferð til Evrópu. Hann ók á Rolls Royce bifreið sinni að banka í Manhattan, og bað um fimmþúsund dollara lán.

Árita bækur sínar

Eiríkur Guðmundsson og Steinar Bragi árita bækur sínar í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan sex miðvikudaginn 20. desember.

Heilög Jóhanna af mjá ?

Aska sem talin er vera jarðneskar leifar heilagrar Jóhönnu af Örk, kann að vera af ketti. Askan fannst árið 1867 og hefur verið geymd á safni í Chinon í vesturhluta Frakklands. Jóhanna af Örk er ein helsta þjóðhetja Frakka, eftir að hafa hrundið innrás Englendinga árið 1431.

Ojj

Victoria Beckham geimvera

Kryddpían Victoria Beckham er sögð munu leika stórt hlutverk í nýrri kvikmynd sem Tom Cruise er að gera, um Vísindakirkjuna svonefndu, sem hann tilheyrir. Beckham mun eiga að leika brúði utan úr geimnum.

Tíu þúsund eintök seld

Safnplatan „100 íslensk jólalög fyrir alla fjölskylduna á 5 geislaplötum“ hefur selst í tíu þúsund eintökum hjá útgefandanum Senu. Platan hefur setið á toppi Tónlistans sem er sölulisti yfir söluhæstu plötur landsins síðustu þrjár vikurnar.

Sterk blanda styrkt um 37 milljónir

Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Zik Zak hefur fengið styrk upp á 400.000 evrur, tæpar 37 milljónir króna, vegna The Good Heart, næstu myndar leikstjórans Dags Kára.

Skotin í Pamelu

Leikkonan Cameron Diaz segist hafa verið nett skotin í kynbombunni Pamelu Anderson frá því hún sá hana fyrst, eða svo segir hún í viðtali við Gay Magazine.

Ólst upp á fósturheimili

Rapparinn The Game tjáði sig í fyrsta skipti um hvernig það er að alast upp á fósturheimili, en þangað var hann sendur aðeins fimm ára gamall, þegar systir hans ásakaði föður þeirra um kynferðisleg ofbeldi gegn sér. „Það er alveg hræðilegt að alast upp þannig.

Nostrað við hlustir

Hljóðlistamaðurinn Þóranna Dögg Björnsdóttir býður gestum til sætis í Gel galleríi við Hverfisgötu þar sem hún flytur persónulegt lifandi tónverk fyrir hvern og einn. Hún vill þannig beina athygli fólks á nýstárlegan máta að hljóðheiminum umhverfis okkur.

Nonni Quest vekur athygli ytra

Hárgreiðslumeistarinn Nonni Quest er í opnuviðtali í förðunarblaði sænska snyrtivöruframleiðandans Make Up Store. Hann fór ásamt Margréti R. Jónasdóttur, förðunarfræðingi og eiganda Make Up Store í Kringlunni, til Svíþjóðar í haust til að taka þátt í 10 ára afmælissýningu Make Up Store.

Morricone fær Óskar

Einn merkasti höfundur kvikmyndatónlistar undanfarna áratugi, hinn 78 ára gamli Ítali Ennio Morricone, mun hljóta heiðursverðlaun við afhendingu Óskarsverðlaunanna 25. febrúar.

Lucas í hjónaband

Matt Lucas úr gamanþáttunum Litla-Bretland, sem sýndir hafa verið á Íslandi við miklar vinsældir, gekk að eiga unnusta sinn, sjónvarpsframleiðandann Kevin McGee, við borgaralega athöfn í London á laugardag. Meðal gesta voru David Walliams, félagi Lucas úr þáttunum og grínistarnir Dale Winton og Rob Brydon.

Kviðslitinn á kaldri slóð

„Þetta gerðist reyndar bara undir lokin á tökunum og kom því ekki að sök,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson sem leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Köld slóð en hann kviðslitnaði og tábrotnaði á síðustu tökudögunum. „Ég var látinn hanga eitthvað undir lokin og þá kom þetta í ljós,“ bætir hann við.

Bræðralag blúsaranna

Undanfarinn mánuð hafa verið í gangi blúskvöld á mánudagskvöldum á Classic Rock. Bubbi Morthens ætlar að blúsa þar á næsta ári auk þess sem blúsarar frá Bandaríkjunum og Kanada eru væntanlegir.

Borat á ráðstefnu í Íran

Kvikmyndin um kasakska sjónvarpsmanninn Borat hefur fengið frábærar viðtökur og var í fyrradag tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna sem besta gamanmyndin. Auk þess fékk Sascha Baron Cohen tilnefningu fyrir besta leik í gamanmynd.

Afar órómantískur

Leikarinn Denzel Washington bað konunnar sinnar í gegnum síma eftir að hafa verið á föstu með henni í sex ár. Sjarmörinn mikli segir nefnilega að sér líði illa í aðstæðum sem eru of rómantískar.

Jóel djassaði á Domo

Saxófónleikarinn Jóel Pálsson hélt útgáfutónleika á Domo síðastliðið fimmtudagskvöld. Spilaði hann ásamt félögum sínum tónlist af nýrri plötu sinni, Varp. Voru tónleikarnir jafnframt hluti af tónleikaröð djassklúbbsins Múlans sem hefur nú hreiðrað um sig á Domo.

Jennifer ekki nakin

Þekktur lýtalæknir í Bandaríkjunum hefur óvænt komið leikkonunni Jennifer Aniston til bjargar. Aðdáendur Aniston hafa verið með böggum hildar síðustu vikuna eftir að myndband þar sem hún sést ganga berbrjósta á strönd hefur gengið um netið.

Hefði gifst öllum

Kynbomban Pamela Anderson sér mikið eftir fjögurra mánaða hjónabandi sínu við rokkarann Kid Rock, en eins og frægt er giftust þau í sumar en skildu núna í nóvember, eftir stutta samveru.

Ekki í vísindakirkjunni

Jim Carrey og Jennifer Lopez eru ekki gengin til liðs við Vísindakirkjuna, en Fréttablaðið greindi frá því fyrr í vikunni. Eftir að Carrey og Lopez mættu í brúðkaup Toms Cruise og Katie Holmes á Ítalíu töldu margir að þau hefðu gengið í Vísindakirkjuna, en áður höfðu þau ekki haft nein persónuleg samskipti við Katie og Tom.

Djúpstæð áhrif Íslands

Petter Winnberg, fyrrverandi bassaleikari Hjálma, gefur í dag út plötuna Easily Tricked með hljómsveit sinni The Pix. Freyr Bjarnason hringdi í hann til Svíþjóðar og spurði hann úti í gerð plötunnar.

Brynjólfsmessa í kvöld

Messa Gunnars Þórðarsonar sem helguð er minningu Brynjólfs biskups Sveinssonar verður flutt í kvöld í Grafarvogskirkju undir stjórn Hákons Leifssonar. Verkið er nýkomið út á geisladisk.

Þriðja konan í lífi Karls

Rannsóknarskýrslan um bílslys Díönu prinsessu og Dodi Al-Fayed hefur fengið misjöfn viðbrögð. Bresku götublöðin hafa keppst um að grafa eitthvað krassandi upp úr rúmlega átta hundruð síðna skýrslu Stevens lávarðs en meðal þess er meint þriðja konan í lífi Karls Bretaprins.

Þetta er mín jólagjöf

Rafeindavirkinn Guðbjörn Magnússon gaf á dögunum blóð í 150. skiptið á ævinni, sem er oftar en nokkur annar Íslendingur hefur gert.

Óvæntasti glaðningur ársins

Platan Þar sem malbikið svífur mun ég dansa (án efa besta plötuheiti sem heyrst hefur lengi) með Jónasi Sigurðssyni hefur svo sannarlega komið inn bakdyramegin í jólaplötuflóðinu. Skemmtilega naívt plötuumslag heillaði mig í fyrstu en nafnið kannaðist ég ekki við.

Ómþýðir tónar Amiinu

Hljómsveitin Amiina hélt á dögunum útgáfutónleika í Tjarnarbíói í tilefni af útkomu smáskífunnar Seoul. Fjöldi tónlistaráhugamanna mætti á staðinn til að hlýða á ómþýða tóna þessarar elskulegu sveitar.

Ólafur og Dagur Kári sættast

Á heimasíðu kvikmyndafyrirtækisins Poppoli er að finna nokkuð undarlegt viðtal við kvikmyndaleikstjóranna Dag Kára Pétursson og Ólaf Jóhannesson.

Myndavélasímar til vansa

Leikarinn George Clooney segir að með tilkomu nýrrar tækni, eins og myndavélasíma þurfi hann sífellt að hafa varann á og geti hann því ekki notið sín í frítíma sínum eins og forðum.

Listamaður í hverri ætt

Fjallað var ítarlega um íslensku tónlistarútrásina í breska dagblaðinu The Independent á dögunum. Greinarhöfundur var viðstaddur afmælistónleika Sykurmolanna í Laugardalshöll og furðar sig á hversu mikið af hæfileikafólki geti komið frá þessari litlu eyju.

Kántrýskotnir félagar

Hljómsveitin Sviðin jörð hélt á dögunum útgáfu tónleika á Grandrokk í tilefni af útkomu plötunnar Lög til að skjóta sig við. Sveitin er skipuð þeim Frey Eyjólfssyni og Magnúsi R. Einarssyni en um textagerð á plötunni sá Davíð Þór Jónsson.

Eitt sterkasta par heims

Gemma Taylor, sterkasta kona Bretlands, og Benedikt Magnússon, sterkasti maður Íslands kynntust á kraftakeppni í mars og felldu hugi saman. Nú búa þau saman á Íslandi og búa sig undir frekari stórræði í heimi kraftlyftinga.

Fótboltaæfing í frímó

„Krakkarnir eru bara svo rosalega hrein, bein og skemmtileg að mér dettur ekki í hug að hætta þessu,” segir Matthías Sigvaldason. Hann er einn margra knattspyrnumanna sem hafa starfað sem skólaliðar við Ísaksskóla á liðnum árum. Matthías er búinn að vera í þessu starfi frá 1995 en með smá hléum þó inn á milli.

Eigið jólatré útí skógi

Á aðventunni geta almenningur og fyritæki komið í Heiðmörk til að höggva sitt eigið jólatré. Þar getur fjölskyldan komið með krakkana og fundið sitt eigið jólatré í sameiningu. Síðan sagar fjölskyldan tréið sitt og dregur útúr skóginum.

Dansvæn nostalgía

DJ Curver og DJ Kiki-Ow halda 90’s partí á gamlárskvöld á skemmtistaðnum Nasa. 90’s kvöldin þeirra á Bar 11 hafa notið mikilla vinsælda þar sem hin ýmsu lög frá tíunda áratugnum hafa verið spiluð. Á meðal þeirra eru No Limits með 2Unlimited, It"d My Life með Dr. Alban, Out of Space með Prodigy og Informer með Snow.

Sjá næstu 50 fréttir