Fleiri fréttir

HM í dag: Kalt er það Klara
Það var þungt í þeim hljóðið þegar þeir Stefán Árni Pálsson og Henry Birgir Gunnarsson gerðu upp leik Íslands og Ungverjalands á HM í handbolta.

Nokkrir dómarar á HM í handbolta bendlaðir við veðmálasvindl
Átta handboltadómarar, sem dæma alþjóðlega leiki á hæsti stigi íþróttarinnar, liggja undir grun um að hafa tekið hátt í að hagræða úrslitum. Nokkrir þeirra eru að dæma á heimsmeistaramótinu í handbolta karla sem fram fer í Póllandi og Svíþjóð þessa dagana.

Ótrúlegt sjálfsmark leikmanns Svartfellinga á heimsmeistaramótinu
Svartfjallaland vann þriggja marka sigur á Íran á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær. Eitt marka Íran í leiknum var óvenjulegra en flest handboltamörk.

Ýmir Örn: „Náum einfaldlega ekki að stoppa þá“
Ýmir Örn Gíslason fékk heldur betur að finna fyrir því í leiknum í kvöld gegn Ungverjalandi. Hann fór mikinn í vörninni en var svekktur í leikslok.

Skýrsla Stefáns: Martraðarmínútur í Kristianstad
Kvöldið fór sannarlega vel af stað í Kristianstad Arena í kvöld þegar Íslendingar mættu Ungverjum í 4700 manna höll í Svíþjóð.

Guðmundur: „Uppstilling sem var að svínvirka og þá heldur maður í það“
„Við erum sársvekktir, það er vart hægt að lýsa því með orðum eftir stórkostlegan leik í 52-53 mínútur að minnsta kosti. Það sem mér finnst sárgrætilegast er að það erum við sem köstum þessu frá okkur,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari eftir tap Íslands gegn Ungverjum í kvöld.

Twitter um leikinn: „Spyrjið Gumma krefjandi spurninga og hættið þessari meðvirkni“
Eins og venjulega voru margir sem tjáðu sig um íslenska landsliðið á Twitter á meðan á landsleiknum gegn Ungverjum stóð. Hér má sjá allt það helsta.

Aron: Ætla ekki að kenna því um
Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins var svekktur eftir tapið gegn Ungverjum í kvöld. Hann sagði tapaða bolta og dauðafæri hafa verið dýr.

„Allt sem hrunið gat hrundi og ég get ekki lýst því hvað ég er svekktur“
Bjarki Már Elísson var að vonum niðurlútur eftir tveggja marka tap Íslands fyrir Ungverjalandi, 28-30. Íslendingar voru yfir nánast allan leikinn en Ungverjar voru sterkari undir lokin og skoruðu síðustu fim mörk leiksins.

Topparnir í tölfræðinni á móti Ungverjum: Draumur í fyrri breyttist í martröð í lokin
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með tveggja marka mun á móti Ungverjum, 28-30, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi.

Umfjöllun: Ísland - Ungverjaland 28-30 | Ungverjagrýlan lifir enn
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilaði rassinn all svakalega úr buxunum þegar það tapaði fyrir Ungverjalandi, 28-30, í öðrum leik sínum í D-riðli á HM í handbolta.

Þrjú mörk Söndru í stórsigri Metzingen
Sandra Erlingsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Metzingen sem vann 38-24 sigur á Waiblingen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.

Neitaði að svara spurningu blaðamanns Vísis um heyrnartólin
Paulo Fidalgo, aðstoðarþjálfari Portúgal, neitaði að svara spurningum Stefáns Árna Pálsssonar, blaðamanns Vísis, um heyrnartólin margfrægu sem hann var með í leiknum gegn Íslandi.

Guðmundur breytir ekki íslenska liðinu á milli leikja
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, breytir ekki sigurliði og ekki sigurhóp.

Stórsigur hjá Frökkum en Portúgal lenti í vandræðum með Suður-Kóreu
Portúgal lenti í vandræðum með Suður-Kóreu í riðli Íslendinga á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag. Frakkar unnu hins vegar stórsigur gegn Sádi Arabíu.

Heyrnartólin hvergi sjáanleg hjá þeim portúgalska
Það vakti mikla athygli þegar Ísland mætti Portúgal á HM á þriðjudagskvöldið og aðstoðarþjálfari liðsins Paulo Fidalgo var með heyrnartól í öðru eyrunu.

Amma Bjarka Más meðal Íslendinga í ótrúlegri stemningu í Kristianstad
Það var gríðarleg stemning hjá stuðningsfólki strákanna okkar í Kristianstad en Henry Birgir Gunnarsson var á staðnum í beinni útsendingu á Vísi.

Stuðningsfólk íslenska liðsins hefur tekið yfir Kristianstad: Myndir
Það er mikil gleði meðal íslensku stuðningsmannanna sem hafa fjölmennt til Svíþjóðar til að hvetja strákana okkar áfram á móti Ungverjum í kvöld.

Áttundi sigur ÍBV í röð sem er nú jafnt Val á toppnum
ÍBV vann 30-28 sigur á Haukum þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í dag. Þá vann KA/Þór þægilegan sigur á HK á heimavelli sínum á Akureyri.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 25-25 | Valskonur komu til baka og náðu í stig gegn Stjörnunni
Stjarnan og Valur skildu jöfn, 25-25, þegar liðin áttust við í æsispennandi og kaflaskiptum leik í 12. umferð Olísdeildar kvenna í handbolta í Mýrinni í Garðabænum í dag.

„Einstök stemning og orka sem Íslendingar búa til í stúkunni“
„Þetta er með þeim bestu,“ segir Bjarki Már Elísson um stemninguna í Kristianstad Arena sem var algjörlega mögnuð í fyrsta leik strákanna á HM. Hún verður enn betri í kvöld enda fleiri komnir á svæðið.

„Þetta getur verið vel pirrandi og dregur kraft úr manni“
Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður íslenska landsliðsins segir að það geti stundum verið erfitt að vera leikmaður eins og hann.

HM í dag: Rólegt og rómantískt á leikdegi
Félagarnir Henry Birgir Gunnarsson og Stefán Árni Pálsson eru orðnir mjög spenntir fyrir leik kvöldsins gegn Ungverjum.

Sveinn fer loksins til Þýskalands
Handboltamaðurinn Sveinn Jóhannsson er farinn frá Skjern í Danmörku og genginn í raðir Minden í Þýskalandi.

Elvar Örn: Ungverjar eru með heimsklassalínumenn
„Ég var gríðarlega ánægður með vörnina hjá liðinu. Þetta var frábær vörn. Svo vörðu Bjöggi og Viktor vel,“ sagði Elvar Örn Jónsson sem var magnaður í vörninni gegn Portúgal.

„Við vitum hvað er að fara koma á okkur“
„Varnarleikurinn hjá okkur var stórkostlegur og markvarslan góð. Sóknarleikurinn var köflóttur, hann byrjaði mjög vel en síðan gerum við of mikið af mistökum í fyrri hálfleik. Það breyttist algjörlega í seinni hálfleiknum. Svo var ég rosalega ánægður að skora tólf mörk úr hraðaupphlaupum í gær,“ segir Guðmundur Guðmundsson fyrir æfingu landsliðsins í handbolta í gær.

Stórsigrar hjá Danmörku og Noregi | Egyptaland valtaði yfir Króatíu
Síðari fjórum leikjum dagsins á HM í handbolta er nú lokið. Egyptaland vann níu marka sigur á Króatíu á meðan Danmörk og Noregur unnu örugga sigra. Þetta voru fyrstu leikir liðanna á mótinu.

Myndasyrpa: Hart barist í fótboltanum á æfingu landsliðsins
Íslenska landsliðið í handbolta æfði í Kristianstad Arena í dag. Fyrir æfinguna hélt Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari fund í miðjuhringnum og svo var farið beint í fótbolta.

„Ert ekki með einhvern jólajeppa sem vinnur á á bílaverkstæði“
Í nýjasta hlaðvarpsþætti HM Handkastsins var eðlilega farið yfir sigur Íslands á Portúgal. Þrátt fyrir góðan sigur hafa menn nú þegar áhyggjur af spiltíma sumra leikmanna Íslands og veltu fyrir sér af hverju fleiri leikmenn fengu ekki mínútur gegn Portúgal.

„Eini sénsinn var að setja hann svona á milli lappanna á honum“
Ómar Ingi Magnússon skoraði stórkostlegt mark gegn Portúgal í gær sem verður lengi í minnum haft. Henry Birgir Gunnarsson hitti Ómar í dag og spurði hann út í þetta ótrúlega mark.

Lærisveinar Alfreðs lögðu Katar á meðan lærisveinar Arons misstigu sig eftir góða byrjun
Tveir íslenskir þjálfarar voru í eldlínunni þegar fyrstu fjórir leikir dagsins á HM í handbolta fóru fram. Um var að ræða fyrstu leiki liðanna á mótinu.

Harðverjar bjóða reyndan Frakka velkominn til handboltabæjarins Ísafjarðar
Annan föstudaginn í röð hefur Hörður kynnt nýjan erlendan leikmann til leiks.

„Frábær saga sem hann var búinn að æfa fyrir framan spegilinn“
Bjarki Már Elísson átti erfitt með sig á blaðamannafundi í gær er portúgalski landsliðsþjálfarinn reyndi að telja viðstöddum trú um að hann hafi ekki verið að svindla með heyrnartól í eyranu.

Nauðsynlegt að vera algjör proffi á svona stórmótum
„Það er frábært að byrja mótið á þessum tveimur punktum og þessi fjögur mörk sem við náum að vinna leikinn með eru mjög mikilvæg,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður íslenska landsliðsins, á æfingu liðsins í Kristianstad í Svíþjóð í dag.

HM í dag: Í spennufalli eftir sigurleik á heimavelli í Svíþjóð
Það var einstök stemning á leik Íslands og Portúgals í fyrsta leik liðanna á HM í Kristianstad í gærkvöldi. Íslendingarnir eru mættir á mótið með látum, bæði innan og utan vallar.

Eftirminnilegasti leikur Óla Stef kom í gini úlfsins: „Datt í eitthvað sturlað flæði“
Besti leikur Ólafs Stefánssonar á ferlinum kom þegar liðið hans var með bakið upp við vegg gegn nær ósigrandi liði á þeirra heimavelli.

Svíar gagnrýndir heima fyrir: „Ég vil helst ekki tjá mig“
Svíar hófu leik á HM karla í handbolta í gær er þeir lögðu Brasilíu örugglega, 26-18, á heimavelli í Scandinavium-höllinni í Gautaborg. Það er hins vegar koma liðsins í höllina sem hefur sætt gagnrýni.

Myndir frá mögnuðu kvöldi í Kristianstad
Íslendingar hófu heimsmeistaramótið í handbolta 2023 af fítonskrafti og unnu Portúgali í fyrsta leik sínum, 30-26.

Sigfús hæstánægður með Elliða: „Ég var rosa hrifinn af honum í leiknum“
Eftir að hafa gagnrýnt Elliða Snæ Viðarsson fyrir frammistöðu hans í leikjunum gegn Þýskalandi var Sigfús Sigurðsson hæstánægður með Eyjamanninn eftir sigurinn á Portúgal.

Elliði Snær um stuðningsmenn Íslands: „Vissi að þeir væru bilaðir en ekki svona bilaðir“
„Í fyrsta lagi takk, get ekki lýst því. Geðveikt, gjörsamlega geðveikt að fá að spila á heimavelli í Svíþjóð,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir sigur Íslands á Portúgal í fyrsta leik liðanna á HM í handbolta. Eftir að Elliða var óskað til hamingju með sigurinn var hann spurður hversu skemmtilegt það hefði verið að spila þennan leik.

Skýrsla Henrys: Eurovision-stemningin heldur áfram af fullum krafti
Ég er á mínu sextánda stórmóti í handbolta en gæsahúðin sem ég fékk fyrir leik í Kristianstad í kvöld er ekki mjög algeng. Þvílík umgjörð og stemning sem Íslendingarnir í stúkunni buðu upp á. Við vorum svo sannarlega á heimavelli.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Portúgal 30-26 | Strákarnir okkar hófu HM loks á sigri
Í fyrsta sinn frá 2011 byrjaði íslenska karlalandsliðið í handbolta HM með sigri. Strákarnir okkar unnu Portúgal, 30-26, í hörkuleik í Kristianstad í kvöld.

Twitter fór mikinn: „Björgvin varði aftur! ÓMÆGOD! VIÐ ERUM AÐ FARA AÐ VERÐA HEIMSMEISTARAR!“
Ísland hóf HM í handbolta með fjögurra marka sigri á Portúgal, lokatölur 30-26. Staðan var jöfn 15-15 í hálfleik og spennustigið mjög hátt, bæði innan vallar sem og á Twitter þar sem Íslendingar fóru mikinn eins og svo oft áður.

„Maður felldi tár yfir þessum stórkostlegu stuðningsmönnum“
„Þetta er búið að vera erfiður aðdragandi. Ég skal alveg játa það,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, aðspurður hvort sigurinn gegn Portúgal í kvöld hafi tekið á taugarnar. Ísland vann fjögurra marka sigur, 30-26, í fyrsta leik sínum á HM og Guðmundi var mjög létt enda andstæðingur kvöldsins ekkert lamb að leika sér við.

Einkunnir strákanna á móti Portúgal: Björgvin fær sexuna og þrír með fimmu
Íslenska handboltalandsliðið vann frábæran fjögurra marka sigur á Portúgal í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta í Svíþjóð og Póllandi.