Fleiri fréttir

Terry vill niðurlægja Arsenal aftur

John Terry, fyrirliði Chelsea, vonast til þess að hans lið nái að endurtaka leikinn frá síðasta tímabili og leggja Arsenal sannfærandi í kvöld. Þegar liðin áttust við síðasta vetur vann Chelsea þægilegan 3-0 sigur.

Rooney-hjónin eyddu jóladegi í Liverpool

Árið hefur verið stormasamt hjá Rooney-hjónunum en þau komust í gegnum fárviðrið og eru nánari en nokkru sinni fyrr. Þau blésu til mikillar fjölskylduveislu í gær.

Ashley sendi Cheryl hjartnæmt jólakort

Ashley Cole skildi við Cheryl Cole í september síðastliðnum eftir að upp komst um framhjáhald hans. Mikið fjölmiðlafár var á Bretlandi vegna málsins enda Cheryl mikils metinn listamaður í heimalandinu.

Birmingham vill fá Keane

Það er forgangsatriði hjá Alex McLeish, knattspyrnustjóra Birmingham, að fá írska sóknarmanninn Robbie Keane frá Tottenham. West Ham vill einnig fá leikmanninn.

Sir Alex skoðar markverði og arftaka Giggs

Sir Alex Ferguson ætlar sér að kaupa markvörð fyrir næsta tímabil en Edwin van der Sar er að fara leggja hanskana á hilluna. United hefur þegar tryggt sér danska markvörðinn Anders Lindegaard en ætlar að fá annan til að berjast um stöðuna við hann.

Redknapp til í að lána Woodgate

Harry Redknapp, stjóri Tottenham. er opinn fyrir því að lána varnarmanninn Jonathan Woodgate sem hefur verið á meiðslalistanum í meira en ár. Redknapp segir að það gæti hjálpað honum að finna taktinn á ný ef hann fer á láni.

Tíu Tottenham-menn lögðu Houllier og lærisveina

Í kvöld hitnaði enn frekar undir Gerard Houllier, stjóra Aston Villa. Liðið tapaði þá 1-2 á heimavelli sínum fyrir Tottenham þrátt fyrir að hafa verið einum fleiri stærstan hluta leiksins.

Markaþurrð Rooney veldur Sir Alex engum áhyggjum

Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist ekki hafa miklar áhyggjur þó Wayne Rooney gangi illa að finna leiðina að netinu. Rooney hefur ekki skorað fyrir United úr opnum leik síðan í mars og hann komst ekki á blað í dag þegar United vann 2-0 sigur á Sunderland.

Hughes skilur gremju þeirra sem heimta hann burt

„Þú veist ekkert hvað þú ert að gera," og „Út með Hughes," var meðal þess sem stuðningsmenn Fulham hrópuðu að knattspyrnustjóranum Mark Hughes í dag. Þeir þurftu að horfa upp á sína menn tapa niður 1-0 forystu gegn botnlið West Ham en Hamrarnir unnu á endanum 3-1 sigur.

Öruggt hjá United - Tevez bjargaði City

Manchester United er sem fyrr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir afar sannfærandi sigur á Sunderland. Lokatölur 2-0 en United hefði átt að vinna leikinn með mun meiri mun.

Coventry tapaði án Arons Einars

Fimm leikir fóru fram í ensku 1. deildinni (B-deildinni) í dag en helming leikja dagsins var frestað vegna veðurs. Leeds fór illa að ráði sínu gegn Leicester á útivelli. Eftir að hafa komist í 2-0 misstu þeir leikinn niður í jafntefli 2-2. Max Gradel og Robert Snodgrass skoruðu mörk Leeds.

Meðalaldur áhorfenda á Old Trafford er 47 ár

Ensk úrvalsdeildarfélög gætu þurft að lækka miðaverð á heimaleik sína umtalsvert á næstu árum en ungir Englendingar velja frekar þann kost að horfa á beinar útsendingar á krám – í stað þess að mæta á leiki.

West Ham upp úr botnsætinu

West Ham komst í dag upp af botni ensku úrvalsdeildarinnar er liðið vann góðan útisigur á Fulham, 1-3. Avram Grant heldur því enn vinnunni.

Búið að fresta hjá Liverpool og Everton

Það er ekki bara skítaveður á Íslandi heldur er veðrið á Englandi líka frekar dapurt og þegar er búið að fresta tveimur leikjum í dag í ensku úrvalsdeildinni.

Ekki lengur Gudjohnsen heldur Pudjohnsen

Það gengur afar hægt hjá Eiði Smára Guðjohnsen að koma sér í form þó svo hann hafi það að atvinnu að vera í formi og spila fótbolta. Tony Pulis, stjóri Stoke, segir að Eiður sé enn ekki kominn í nógu gott form.

Owen verður ekki seldur í janúar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir það ekki koma til greina af sinni hálfu að selja Michael Owen í janúarglugganum en einhverjir fjölmiðlar hafa haldið því fram að Owen færi frá Old Trafford í janúar.

Ferguson: Þriggja hesta hlaup

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur enga trú á því að Man. City og Tottenham muni blanda sér í slaginn um enska meistaratitilinn og spáir því að baráttan verði þriggja hesta hlaup.

Lið vetrarins hjá goal.com

Strákarnir á vefsíðunni goal.com fylgjast vel með Evrópuboltanum og þeir hafa nú valið úrvalslið sitt fyrir fyrri hluta leiktíðarinnar í ár.

Almeida ákvað að fara til Tyrklands

Portúgalski framherjinn Hugo Almeida hefur ákveðið að skipta um félag þessi jólin því tyrkneska liðið Besiktas er búið að kaupa hann frá þýska liðinu Werder Bremen. Kaupverðið er 2 milljónir evra.

Ballack þarf að sanna sig upp á nýtt

Oliver Bierhoff, sem er framkvæmdastjóri þýska landsliðsins, segir að það sé ekkert sjálfgefið að Michael Ballack verði valinn í þýska landsliðið á nýjan leik.

Maradona ætlar að kæra Grondona

Diego Armando Maradona hefur ekki sagt sitt síðasta orð við Julio Grondona, formann argentínska knattspyrnusambandsins, því Maradona ætlar að stefna formanninum.

Ronaldinho fær ekki að fara í janúar

Brasilíumaðurinn Ronaldinho mun líklega klára tímabilið með AC Milan þó svo hann sé búinn að semja við brasilíska félagið Gremio og Milan sé búið að kaupa Antonio Cassano frá Sampdoria.

Silva: Enska deildin skemmtilegri en sú spænska

Spænski landsliðsmaðurinn David Silva virðist njóta lífsins í ensku úrvalsdeildinni því hann segir hana vera skemmtilegri en spænska úrvalsdeildin. Silva segist njóta þess mun meira að spila í ensku deildinni.

Messi. Ég verð ekki valinn bestur

Lionel Messi er einstaklega hógvær maður og man Vísir ekki eftir því að það hafi verið birt neikvæð frétt um þennan geðuga Argentínumann sem virðist vera algjörlega til fyrirmyndar innan vallar sem utan.

Cole: Við munum koma til baka

Bakvörðurinn Ashley Cole segir að hann og félagar hans hjá Chelsea séu ekki af baki dottnir þrátt fyrir dapurt gengi síðustu vikur. Hann segir að það sé aðeins tímaspursmál þangað til Chelsea verður aftur komið í toppform.

Leonardo tekur við Inter

Leikfléttan í kringum þjálfaramál Inter kom engum á óvart. Brasilíumaðurinn Leonardo tók við liðinu af Rafa Benitez en þessu hafa fjölmiðlar verið að spá í margar vikur.

Wenger kreisti fram bros í jólakveðju Arsenal

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, verður seint sakaður um að brosa of mikið. Hann losar þó um bindið í jólakveðju Arsenal og býður upp á eitt bros í tilefni jólanna.

Neuer orðaður við FC Bayern og Man. Utd

Þýski markvörðurinn Manuel Neuer virðist vera á förum frá Schalke en hann hefur hingað til ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið en núverandi samningur rennur út árið 2012. Það þýðir að Schalke verður helst að selja hann næsta sumar ef hann fæst ekki til þess að skrifa undir nýjan samning.

Balotelli mætti vera hressari

Margir myndu eflaust segja að það rigni upp í nefið á Mario Balotelli, leikmanni Man. City, en hann lét hafa eftir sér á dögunum að hann væri næstbesti leikmaður heims á eftir Lionel Messi.

Ferguson efast stundum um sjálfan sig

Þrátt fyrir að vera með ólíkindum farsæll knattspyrnustjóri þá segist Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, stundum efast um hæfileika sína í starfi.

Tevez ætti kannski að biðjast afsökunar

Þar sem búið er að afgreiða öll mál Man. City og Carlos Tevez er stjóri liðsins, Roberto Mancini, loksins farinn að gagnrýna leikmanninn til tilbreytingar.

Ferguson vill ekki semja við Beckham

Draumur David Beckham um að spila aftur fyrir Man. Utd hefur endanlegaverið eyðilagður því Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur engan áhuga á því að semja við eins gamlan leikmann og Beckham.

Allt lagt undir um hátíðirnar

Eins og ávallt í ensku úrvalsdeildinni er mikið um annir hjá liðum deildarinnar um hátíðirnar. Framundan eru fjórar umferðir sem fara fram á aðeins tólf dögum en ballið byrjar með níu leikjum á sunnudag, öðrum degi jóla.

Mourinho: Ég er besti þjálfari ársins en ekki del Bosque

Jose Mourinho segist eiga skilið að vera kosinn þjálfari frekar en Vicente del Bosque sem á árinu gerði Spánverja að heimsmeisturum í fyrsta sinn í sögunni. Mourinho tjáði sig frjálslega um verðlaunin í viðtali við ítalska blaðið Gazzetta dello sport.

Loforð Mourinho kveikti í leikmönnum Real Madrid í gær

Real Madrid fór á kostum í síðasta leik sínum á árinu í gær og vann þá 8-0 sigur á Levante í spænska Konungsbikarnum. José Mourinho, þjálfari Real Madrid, sagði að loforð sitt fyrir leikinn hafði kveikt í sínum mönnum en bæði Cristiano Ronaldo og Karim Benzema skoruðu þrennu í þessum stórsigri.

Ajax sló AZ Alkmaar út úr hollenska bikarnum

Ajax Amsterdam vann 1-0 sigur á AZ Alkmaar í sextán liða úrslitum hollenska bikarsins í kvöld og hefndi þar með fyrir 2-0 tap á móti AZ í deildarleik liðanna á dögunum. Kolbeinn skoraði annað marka AZ í deildarsigrinum en fékk samt aðeins að spila í 17 mínútur í kvöld.

Hodgson: Jovanovic enn leikmaður Liverpool

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, gefur lítið fyrir þær sögusagnir að félagið ætli sér að selja Milan Jovanovic þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Wenger: Nani hlýtur þá að vera 1600 sinnum gáfaðari en ég

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, skaut svolítið kaldhæðnislega á Nani, leikmann Manchester United, á blaðamannafundi í dag . Frakkinn var þá að svara Portúgalanum fyrir að segja að Arsenal ætti enga möguleika á því að vinna enska meistaratitilinn í ár.

Sjá næstu 50 fréttir