Fleiri fréttir

Santa Cruz fáanlegur á 20 milljónir punda

Framherjinn Roque Santa Cruz á ekki von á öðru en að vera áfram í herbúðum Blackburn þrátt fyrir yfirlýstan vilja sinn að yfirgefa félagið. Þannig er mál með vexti að leikmaðurinn er samningsbundinn Blackburn en klausa í samningi hans gerir það að verkum að áhugasöm félög geta keypt upp samning hans á 20 milljónir punda.

Pirlo blæs á sögusagnirnar um Chelsea

Miðjumaðurinn Andrea Pirlo er á meðal þeirra leikmanna AC Milan sem undanfarið hafa verið sterklega orðir við endurfundi við fyrrum þjálfara sinn Carlo Ancelotti hjá Chelsea. Raunar var haft eftir Pirlo í írska dagblaðinu Independent að hann hefði mikinn áhuga á að fara til Chelsea.

Blackburn á höttunum eftir Ivan de la Pena

Knattspyrnustjórinn Sam Allardyce býr sig nú undir að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum og breskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Ivan de la Pena hjá Espanyol væri á meðal þeirra leikmanna sem kæmu fyrir á óskalistanum.

Coyle framlengir við Burnley

Owen Coyle hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Burnley til loka tímabilsins 2013.

Villa búinn að ákveða sig

David Villa segist þegar búinn að ákveða sig hvert hann vilji fara nú í sumar en hann hefur verið orðaður við mörg stórlið að undanförnu.

Wilkins efins um að Maldini komi

Ray Wilkins, aðstoðarstjóri Chelsea, segist efast um að Paolo Maldini muni fylgja Carlo Ancelotti og taka að sér þjálfarastarf hjá Chelsea.

Bassong leitar sér að nýju félagi

Sebastien Bassong, varnarmaður hjá Newcastle, er nú að leita sér að nýju félagi eftir að Newcastle féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Real ekki búið að gefast upp á Ribery

Zinedine Zidane, einn aðstoðarmanna Florentino Perez, forseta Real Madrid, segir að félagið hafi ekki gefist upp á að kaupa Franck Ribery frá Bayern München.

Dossena vill vera áfram hjá Liverpool

Ítalski bakvörðurinn Andrea Dosssena segist vilja vera áfram hjá Liverpool og ætlar að berjast fyrir sínu sæti í byrjunarliði félagsins.

Norður-Kórea á HM

Norður-Kórea tryggði sér sæti í úrslitum heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í dag í fyrsta skipti síðan árið 1966. Liðið gerði jafntefli við Sádi Arabíu í dag og stigið nægði til að koma liðinu á HM.

Fram marði Njarðvík

Úrvalsdeildarlið Fram skreið inn í sextán liða úrslit Visa-bikarkeppninnar í kvöld með naumum sigri á Njarðvík, 2-1.

Drogba í sex leikja bann

Didier Drogba var í dag dæmdur í sex leikja bann fyrir framkomu sína að loknum leik Chelsea og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í vor.

Enn samið um ímyndarétt Ronaldo

Enska götublaðið The Daily Mail greinir frá því í dag að snuðra sé hlaupin á þráðinn í samningaviðræðum Cristiano Ronaldo við Real Madrid.

Whelan: Ekki möguleiki að Owen kom til Wigan

Dave Whelan, stjórnarformaðurinn málglaði hjá Wigan, hefur þverneitað því að félagið sé tilbúið að bjóða Michael Owen risasamning til þess að freistast til þess að fá hinn 29 ára gamla framherja á JJB-leikvanginn.

Ferguson orðaður við Birmingham

Barry Ferguson, leikmaður hjá skoska liðinu Glasgow Rangers, hefur verið orðað við Birmingham í ensku úrvalsdeildinni.

Lescott efstur á óskalista Man. City

Knattspyrnustjórinn Mark Hughes hjá Manchester City er sagður vera tilbúinn að mæta 20 milljón punda verðmiða Everton á varnarmanninum Joleon Lescott sem kom til Liverpoolborgarfélagsins á aðeins 4 milljónir punda árið 2006.

Ástralía og Suður-Kórea taplaus

Ástralía og Suður-Kórea léku í dag sína síðustu leiki í undankeppni HM 2010 í Asíu. Bæði lið komust taplaus í gegnum lokaumferð undankeppninnar.

Beckenbauer: Ribery má fara ef hann vill

Forráðamenn Bayern München hafa til þessa verið tregir til að sleppa hendinni af Franck Ribery og jafnan sagt að hann sé ekki til sölu, en flest af stærstu félögum Evrópu eru nú talin vera á höttunum eftir franska landsliðsmanninum.

Robben ekki á leiðinni til Tottenham

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er talið vera eitt af þeim félögum sem hafa áhuga á að fá hollenska landsliðsmanninn Arjen Robben í sínar raðir og spænskir fjölmiðlar greindu reyndar frá því að viðræður væru þegar hafnar á milli Tottenham og Robben.

Hahnemann til Wolves

Enska úrvalsdeildarfélagið Wolves hefur ákveðið að semja við bandaríska markvörðinn Marcus Hahnemann sem lék síðast með Reading.

Gattuso spenntur fyrir Chelsea

Ítalinn Gennaro Gattuso hefur gefið í skyn að hann sé spenntur fyrir því að spila með Chelsea þar sem hann myndi hitta fyrir sinn gamla stjóra hjá AC Milan, Carlo Ancelotti.

Meistararnir byrja gegn Birmingham

Búið er að draga í leikjaröð ensku úrvalsdeildarinnar og munu meistarar Manchester United hefja titilvörn sína á heimavelli gegn nýliðum Birmingham.

Viljum vera við toppinn eins lengi og hægt er

Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, er leikmaður 7. umferðar Pepsi-deildarinnar að mati Fréttablaðsins. Hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Stjörnunnar á Fram á sunnudagskvöldið.

Pepsi-deild kvenna: Valur og Breiðablik með sigra

Valur og Breiðablik leiðast hönd í hönd á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir leiki kvöldsins. Bæði lið unnu örugga sigra í kvöld og eru með 19 stig í efsta sætinu. Valur á toppnum með betri markatölu.

60 þúsund manns mótmæltu eiganda Real Betis

Ef að Manuel Ruiz de Lopera, eigandi Real Betis, var í einhverjum vafa um hvaða hug stuðningsmenn félagsins bera til hans þá var þeim spurningum svarað í gær þegar hvorki meira né minna en 60 þúsund manns þustu út á götur Sevilla til þess að mótmæla honum.

Rio Ferdinand steggjaður

Rio Ferdinand vakti óskipta athygli gesta á lúxushóteli í Tel Aviv þegar hann mætti út á sundlaugarbakka í þröngum, litlum, aðsniðnum gallabuxum og topp.

Mowbray tekur við Celtic

Celtic staðfesti í dag að það hefði ráðið Tony Mowbray sem þjálfara félagsins í stað Gordon Strachan sem hætti störfum í lok síðustu leiktíðar.

Sagna hefur áhuga á Real

Bacary Sagna, leikmaður Arsenal, segist ekki vera mótfallinn þeirri hugmynd að ganga til liðs við Real Madrid nú í sumar.

Crouch á leið til Þýskalands?

Svo gæti farið að framherjinn stóri, Peter Crouch, leiki með Þýskalandsmeisturum Wolfsburg á næstu leiktíð.

Arsenal vill fá Hitzlsperger

Enska götublaðið The Sun segir að Arsenal sé nú að íhuga að gera tilboð í Þjóðverjann Thomas Hitzlsperger, leikmann og fyrirliða Stuttgart.

Björgólfur lagður inn á sjúkrahús

Björgólfur Takefusa, leikmaður KR, þurfti að dvelja á sjúkrahúsi eina nótt eftir að hann meiddist á æfingu með KR fyrir skemmstu.

Steinþór og Bjarni bestir

Steinþór Freyr Þorsteinsson og Bjarni Jóhannsson, báðir úr Stjörnunni, voru í dag valdir besti leikmaður og besti þjálfari fyrstu sjö umferðanna í Pepsi-deild karla.

Shearer líklega áfram með Newcastle

Talið er líklegt að Alan Shearer verði áfram knattspyrnustjóri Newcastle að því gefnu að þeir kaupendur sem hafa áhuga á félaginu samþykki það.

United vill fá Ribery

Karl-öHeinz Rummenigge, stjórnarformaður FC Bayern, segir að Manchester United hafi bæst í hóp þann liða sem hafa áhuga á að fá Franck Ribery í sínar raðir.

Gerrard íhugar að hætta árið 2013

Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, segir það vel koma til greina að leggja skóna á hilluna þegar að núverandi samningur hans við félagið rennur út í lok leiktíðar 2013.

Glen Johnson á leið til Liverpool

Allt útlit er fyrir að Glen Johnson sé á leið til Liverpool frá Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni eftir að félögin komust að samkomulagi um kaupverð.

Sjá næstu 50 fréttir