Tinda­stóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi

Arnar Skúli Atlason skrifar
1J8A5766 (2)
Vísir/Diego

Tindastóll sigraði Stjörnuna 103-88 í hörkuleik í kvöld. Leikurinn var þriðji leikur liðana í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta, risaleikur í Síkinu, og Stólarnir með bakið upp við vegg því með sigri Stjörnunnar hefðu þeir farið í sumarfrí.

Tindastóll byrjaði betur í kvöld og komst yfir strax og virtist ætla að hlaupa með þetta í upphafi. En Stjörnumenn ætluðu ekki að gefast upp og Hilmar Smári Henningsson kom þeim inn í þetta aftur. Tindastóll reif sig aftur frá Stjörnunni og leiddi eftir fyrsta leikhluta 30-23.

Stjarnan byrjaði annan leikhluta miklu betur en Tindastóll og minnkuðu muninn niður í þrjú stig en þá var staðan 31-28. Tindastóll skoraði næstu 17 stig og kom þessu upp í 20 stiga mun. Dedrick Basile var frábær og Júlíus Orri kom með helling að borðinu. Tindastóll refsaði Stjörnunni ítrekað eftir klikkuð skot eða tapaða bolta. Tindastóll leiddu í hálfleik 57-36.

Tindastóll hélt forystunni í þriðja leikhluta. Stjarnan reyndi að finna leið til að koma til baka en Tindastóll hélt áfram að koma með svör við því sem Stjarnan var að gera. Þriðji leikhlutinn fór í gegn án þess að munurinn minnkaði en eftir hann var staðan 79-61.

Stjarnan byrjaði fjórða leikhlutann betur en Stjólarnir en Giannis Agravanis var að koma með helling að borðinu og Bjarni Guðmann setti tvo þrista og munurinn kominn niður í 11 stig og þá var farið að fara um fólkið í Síkinu því Tindastóll hafði tapað niður forystu í leikjum 1 og 2. En allt kom fyrir ekki Taiwo Badmus og Dedrick Basile slitu Stólana aftur frá Stjörnunni og þetta varð til þess að Tindastóll kláraði þennan leik nokkuð þægilega 103-88.

Tindastóll minnkaði því muninn í einvíginu í 2-1. Næsti leikur verður í Stjörnuheimilinu á Sunnudaginn klukkan 20:15. Þar reyna Tindastólsmenn að jafna seríuna og knýja fram oddaleik á meðan Stjörnumenn freista þess að henda Tindastól í sumarfrí.

Atvik leiksins

17-0 sprettur Tindastóls í 2 leikhluta skóp þennan sigur og bjuggu þar til forskot sem Stjarnan kom aldrei undir 11 stiga mun aftur.

Stjörnur

Hjá Tindastól var Dedrick Basile bestur með 26 stig og 10 stoðsendingar, Taiwo Badmus bætti við 19 stigum, Júlíus og Drungilas sitthvor 15 stig.

Hjá Stjörnunni var Hilmar Smári mjög öflugur með 20 stig og 7 fráköst. Giannis Agravanis skilaði 16 stigum og 7 fráköstum.

Dómararnir

Þetta var mjög erfiður leikur að dæma en þeir komust vel frá þessu í dag.

Stemmingin og umgjörð

Það var mjög gaman að vera í Síkinu í kvöld. Grettismenn og Silfurskeiðin gjörsamlega frábær.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira