Fleiri fréttir

Galliani fundar með Ancelotti

Chelsea vann 5-0 sigur á AC Milan á æfingamóti sem fram fór um helgina. Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, hefur boðað þjálfarann Carlo Ancelotti á fund í dag þar sem ræða á leikinn.

Leto lánaður til Grikklands

Sebastian Leto hefur verið lánaður frá Liverpool til grísku meistarana í Olympiakos. Lánssamningurinn er til tveggja ára.

Corluka til Tottenham?

Tottenham hefur lagt fram tilboð í króatíska varnarmanninn Vedran Corluka hjá Manchester City. Corluka er talinn meðal betri hægri bakvarða ensku úrvalsdeildarinnar.

Bellamy missti stjórn á skapi sínu

Breska lögreglan mun yfirheyra Craig Bellamy hjá West Ham vegna atviks sem átti sér stað í æfingaleik gegn Ipswich í gær. Bellamy missti stjórn á skapi sínu eftir að hafa farið af velli vegna meiðsla.

Skoskir dómarar í verkfall?

Óttast er að skoska úrvalsdeildin geti ekki hafist á réttum tíma vegna hugsanlegs verkfalls dómara. Skoska knattspyrnusambandið á enn eftir að ná samningum varðandi laun dómara.

Nistelrooy hættur með landsliðinu

Tilkynnt var í gær að sóknarmaðurinn Ruud van Nistelrooy hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna og hætta að leika með Hollandi. Hann ætlar að einbeita sér að félagsliði sínu, Real Madrid á Spáni.

Wenger vill fá meira frá Walcott í vetur

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist reikna með því að Theo Walcott muni spila stærra hlutverk í liði Arsenal á komandi leiktíð en hann gerði í fyrra.

Beckham gerir það gott í Bandaríkjunum

Ameríkuævintýri knattspyrnumannsins David Beckham virðist ætla að lukkast fullkomlega. Hann var á dögunum kjörinn íþróttamaður ársins á Teen Choice verðlaunaafhendingunni í Bandaríkjunum.

Simpson lánaður til Blackburn

Blackburn gekk í dag frá lánssamningi við bakvörðinn unga Danny Simpson frá Manchester United út leiktíðina. Simpson hefur verið í láni hjá Antwerpen, Sunderland og nú síðast Ipswich, en hann hafði verið orðaður við Aston Villa undanfarið.

Eduardo klár fyrir jól?

Enska dagblaðið Daily telegraph greindi frá því í morgun að Króatinn Eduardo Da Silva hjá Arsenal gæti verið orðinn leikfær á ný fyrir jól.

Bobby Moore heiðraður hjá West Ham

Enska knattspyrnufélagið West Ham ætlar að taka treyju númer sex formlega úr umferð til minningar um goðsögnina Bobby Moore sem var fyrirliði enska landsliðsins þegar það varð heimsmeistari árið 1966.

Sneijder úr leik í þrjá mánuði

Hollenski landsliðsmaðurinn Wesley Sneijder mun ekki geta leikið með liði sínu Real Madrid næstu þrjá mánuðina svo. Þetta kom í ljós þegar kappinn fór í myndatöku í dag eftir að hafa orðið fyrir tæklingu frá Arsenal-manninum Abou Diaby í leik liðanna í gær.

Van der Vaart segist vera á leið til Real

Hollenski landsliðsmaðurinn Rafael van der Vaart hjá Hamburg í Þýskalandi segist á heimasíðu sinni vera búinn að samþykkja að ganga í raðir Real Madrid á Spáni.

Wenger útilokar tilboð í Barry

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir ekki koma til greina að félagið geri tilboð í miðjumanninn Gareth Barry eins og haldið hefur verið fram í enskum fjölmiðlum.

West Ham fær markvörð

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur fengið markvörðinn Jan Lastuvka frá Shakhtar Donetsk að láni út leiktíðina með möguleika á því að kaupa hann að samningstímanum loknum.

Drogba missir af fyrsta leik Chelsea

Luiz Felipe Scolari, stjóri Chelsea, segir að framherjinn Didier Drogba muni líklega missa af fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni þann 17. ágúst og mögulega öðrum leik liðsins gegn Wigan.

Leto fékk ekki atvinnuleyfi

Argentínumaðurinn Sebastian Leto verður að öllum líkindum lánaður frá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool eftir að honum var synjað um atvinnuleyfi á Englandi. Leto er 21 árs og gekk í raðir Liverpool á síðustu leiktíð.

Bröndby steinlá

Fjórir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Stefán Gíslason var að venju í liði Bröndby sem steinlá 3-0 heima fyrir Randers.

Adebayor tryggði Arsenal sigur á Real Madrid

Emirates mótinu í knattspyrnu lauk í Lundúnum í dag. Þýska liðið Hamburg stóð uppi sem sigurvegari mótsins eftir 3-0 sigur á Juventus í dag en Arsenal vann 1-0 sigur á Real Madrid þar sem Emmanuel Adebayor stakk upp í áhorfendur sem bauluðu á hann í gær og skoraði sigurmarkið úr víti.

Chelsea burstaði Milan

Nicolas Anelka skoraði fjögur mörk í dag þegar enska liðið Chelsea burstaði AC Milan frá Ítalíu á æfingamóti í Moskvu í Rússlandi. Frank Lampard kom enska liðinu á bragðið á þriðju mínútu en Anelka setti svo tvö mörk í sitt hvorum hálfleiknum.

Pavlyuchenko afhuga Tottenham

Nú virðist sem ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum Tottenham á rússneska framherjanum Roman Pavlyuchenko eins og komið hefur fram í breskum fjölmiðlum undanfarna daga.

Nýr samningur í smíðum fyrir Drogba

Framherjinn Didier Drogba mun væntanlega skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við Chelsea sem mun binda enda á vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu.

Wenger sér ekki eftir að hafa selt Bentley

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki sjá eftir því að hafa látið David Bentley fara frá Arsenal til Blackburn á sínum tíma. Bentley er nú genginn í raðir erkifjenda Arsenal í Tottenham og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið í gærkvöld.

Barry gæti enn farið til Liverpool

Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, viðurkenndi í dag að ekki væri útilokað að miðjumaðurinn Gareth Barry gengi í raðir Liverpool fyrir lokun félagaskiptagluggans á Englandi.

Ólafur Örn skoraði í sigri Brann

Ólafur Örn Bjarnason skoraði fyrsta mark Brann úr vítaspyrnu í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Ham Kam í norsku úrvalsdeildinni. Birkir Már Sævarsson og Kristján Örn Sigurðsson voru einnig í byrjunarliði Brann í leiknum og spiluðu allar 90 mínúturnar.

Trezeguet tryggði Juve sigur á Arsenal

Juventus vann 1-0 sigur á Arsenal í síðari leik dagsins á Emirates mótinu í knattspyrnu sem fram fer í Lundúnum. Það var franski markahrókurinn David Trezeguet sem tryggði Juventus sigurinn með marki skömmu fyrir leikhlé, en var reyndar augljóslega rangstæður þegar hann blakaði aukaspyrnu Vincenzo Iaquinta í netið.

Solskjær kvaddi með sigri

Manchester United vann í dag 1-0 sigur á spænska liðinu Espanyol í leik sem sérstaklega var komið á til að hylla norsku goðsgögnina Ole Gunnar Solskjær sem lagði skóna á hilluna fyrir nokkrum misserum.

Gautaborg lagði Malmö

Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson voru á sínum stað í byrjunarliði Gautaborgar í dag þegar liðið vann 2-0 sigur á Malmö í úrvalsdeildinni. Meistararnir létu finna vel fyrir sér í leiknum sem sýndi sig best á því að tveir leikmanna Malmö voru fluttir alblóðugir af velli til aðhlynningar. Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar.

Liverpool vann auðveldan sigur á Rangers

Liverpool vann í dag auðveldan 4-0 sigur á skoska liðinu Rangers í æfingaleik liðanna í Glasgow. Fernando Torres, Yossi Benaoyon, David Ngog og Xabi Alonso skoruðu mörk Liverpool í leiknum.

Real Madrid lagði Hamburg

Spænska liðið Real Madrid vann 2-1 sigur á Hamburg frá Þýskalandi í opnunarleik Emirates mótsins í knattspyrnu sem fram fer á heimavelli Arsenal í Lundúnum um helgina.

Lampard vildi koma til Inter

Massimo Moratti, forseti Inter Milan á Ítalíu, heldur því fram að Frank Lampard hjá Chelsea hafi ólmur viljað ganga í raðir ítalska liðsins í sumar, en fjölskylduástæður hafi gert það að verkum að hann ákvað að vera áfram á Englandi.

Tottenham hætt við Arshavin

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur hætt við áform sín um að reyna að krækja í rússneska landsliðsmanninn Andrei Arshavin frá Zenit í Pétursborg ef marka má frétt BBC.

Blackburn fær miðjumann að láni

Blacburn hefur gengið frá eins árs lánssamningi við miðjumanninn Carlos Villanueva frá Audax Italiano í Chile. Þessi 22 ára og hæfileikaríki leikmaður var kjörinn leikmaður ársins í heimalandinu og er í miklu uppáhaldi hjá Paul Ince, stjóra Blackburn.

Ole Gunnar er öðrum innblástur

Sir Alex Ferguson fór fögrum orðum um Ole Gunnar Solskjær í dag, daginn fyrir sérstakan heiðursleik til handa Norðmanninum markheppna.

Bentley skoraði fyrir Tottenham

Vængmaðurinn David Bentley var á skotskónum í kvöld þegar hann lék sinn fyrsta leik með Tottenham eftir að hann gekk í raðir liðsins frá Blackburn. Bentley skoraði síðara mark Tottenham í 2-0 sigri liðsins á Celtic í kvöld, en hitt markið skoraði Darren Bent.

Adebayor ætlar ekki að fara frá Arsenal

Framherjinn Emmanuel Adebayor hefur nú tekið af allan vafa með framtíð sína hjá Arsenal ef marka má ummæli hans í viðtali á heimasíðu félagsins í dag.

Thuram leggur skóna á hilluna

Franski varnarmaðurinn Lilian Thuram tilkynnti í dag að hann væri hættur að leika knattspyrnu. Þessi magnaði 36 ára gamli bakvörður á að baki glæsilegan feril sem atvinnumaður.

Eto´o þarf að ákveða sig

Txiki Begiristain hjá Barcelona segir að fjögur eða fimm stór félög í Evrópu hafi áhuga á að fá Kamerúnann Samuel Eto´o í sínar raðir í sumar.

Hamilton sprækastur á æfingum

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren ók manna best á æfingum fyrir Ungverjalandskappaksturinn í dag. Hann náði aðeins fjórða besta tíma á fyrri æfingunum í morgun en náði besta tíma dagsins síðari partinn.

Blatter: Sagði aldrei að Ronaldo væri þræll

Sepp Blatter, forseti FIFA, segir að fræg ummæli hans um þrælahald í fótboltaheiminum hafi verið mistúlkuð í fjölmiðlum um daginn. Hann segist aldrei hafa beint þessum orðum beint að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United.

Eiður Smári: Guardiola hefur trú á mér

Eiður Smári Guðjohnsen segist reikna með að hann eigi framtíð fyrir sér í herbúðum Barcelona og segir þjálfarann Pep Guardiola hafa fulla trú á sér.

FH mætir Aston Villa

FH-ingar duttu sannarlega í lukkupottinn þegar dregið var í aðra umferð Uefa keppninnar í knattspyrnu í dag. FH mætir enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa og verður fyrri leikur liðanna þann 14. ágúst nk á Englandi.

Sjá næstu 50 fréttir