Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framtíð Saviola ennþá óljós Yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona er ekki að flýta sér að bjóða Argentínumanninum Javier Saviola nýjan samning hjá félaginu þrátt fyrir að framherjinn hafi staðið sig einstaklega vel í síðustu leikjum liðsins. 29.1.2007 12:37
Hvað er málið með Materazzi? Marco Materazzi, ítalski varnarmaðurinn hjá Inter Milan, hefur enn einu komið sér í sviðsljósið en í gærkvöldi varð hann þess valdur að Gennaro Delvecchio, leikmaður Sampdoria, fékk að líta rauða spjaldið í viðureign liðanna. Atvikið þykir minna óþarflega mikið á uppákomu hans og Zinedine Zidane á HM síðastliðið sumar. 29.1.2007 12:23
Inter vann 14. leikinn í röð Inter Milan er áfram með 11 stiga forystu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu eftir að hafa unnið sinn 14. sigur í röð í gærkvöldi. Liðið vann þá Sampdoria, 2-0, en helstu keppinautarnir í Roma gera það sem þeir geta til að halda í við Inter og unnu 1-0 sigur á Siena um helgina. 29.1.2007 12:08
McLeish tekur við Skotum Skoska knattspyrnusambandið hefur staðfest að það hefur ráðið Alex McLeish sem þjálfara skoska landsliðsins í knattspyrnu. McLeish tekur við starfinu af Walter Smith, eftir að sá síðarnefndi tók við liði Rangers fyrir skemmstu. 29.1.2007 12:01
Búist við að McLeish taki við skoska landsliðinu Reiknað er með að tilkynnt verði um það nú klukkan ellefu að Alex McLeish taki við sem landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnu en skoska knattspyrnusambandið hefur þá boðað til blaðamannafundar. 29.1.2007 10:04
Arsene Wenger: Vorum ekki góðir í dag Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var óánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Bolton í dag en þá náði liðið aðeins 1-1 jafntefli á heimavelli. Liðin þurfa því að mætast öðru sinni á heimavelli Bolton í leik sem Wenger kvíður þó ekki fyrir. 28.1.2007 20:26
Werder Bremen aftur á toppinn í Þýskalandi Schalke sat sat um sólarhring í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en Werder Bremen endurheimti sætið með öruggum 3-0 sigri á Hanover í sínum fyrsta leik eftir vetrarfrí í dag. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahóp Hanover. 28.1.2007 20:18
Barcelona aftur á toppinn eftir sigur gegn Celta Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Celta Vigo í kvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í lið Barcelona þegar tæpar 10 mínútur voru eftir. 28.1.2007 19:50
Pearce tekur líklega við U-21 árs liði Englands Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur samþykkt að taka við stjórn enska U-21 árs landsliðsins í fótbolta. Hins vegar er ekki orðið endanlega ljóst hvort hann taki við liðinu þar sem forráðamenn Man. City og enska knattspyrnusambandsins þurfa að ná samkomulagi. 28.1.2007 19:45
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Argentínumaðurinn Javier Saviola byrjar inn á hjá meisturunum í þriðja leiknum í röð. Leikurinn hófst nú kl. 18 og er í beinni útsendingu á Sýn. 28.1.2007 18:09
Arsenal og Bolton skildu jöfn í hörkuleik Arsenal og Bolton þurfa að eigast við öðru sinni til að skera úr um hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Liðin skildu jöfn, 1-1, á Emirates-vellinumí dag en mætast að nýju á Reebook-vellinum þann 14. febrúar næstkomandi. 28.1.2007 17:53
Kolo Toure búinn að jafna fyrir Arsenal Eftir þunga pressu Arsenal í langan tíma hefur varnarmaðurinn Kole Toure loksins náð að jafna metin fyrir lið sitt gegn Bolton í ensku bikarkeppninni. Toure skoraði markið með góðum skalla af stuttu færi. Áður hafði Kevin Nolan komið gestunum í Bolton yfir en ennþá eru rúmar 10 mínútur til leiksloka. 28.1.2007 17:41
Moyes opinn fyrir því að lána Bjarna Þór David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, íhugar nú að lána unglingalandsliðsmanninn Bjarna Þór Viðarsson til að láta hann öðlast meiri reynslu. Moyes fór fögrum orðum um Bjarna eftir frammistöðu hans fyrir Everton í æfingaleik gegn Bournemouth í gær. Bjarni skoraði mark Everton í 1-1 jafntefli. 28.1.2007 17:28
Bolton komið yfir gegn Arsenal Kevin Nolan er búinn að koma Bolton yfir gegn Arsenal í ensku bikarkeppninni sem nú fer fram á Emirates-leikvanginum í London. Markið skoraði hann þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Mikið fjör er í leiknum sem verið er að sýna í beinni útsendingu á Sýn. 28.1.2007 17:15
Davids fer frítt til Ajax Fjölmiðlar í Hollandi greindu frá því fyrir stundu að Ajax hefði náð samkomulagi við miðjumanninn Edgar Davids um 18-mánaða samning sem skrifað verður undir um leið og leikmaðurinn hefur staðist læknisskoðun. Davids fer á frjálsri sölu frá Tottenham. 28.1.2007 16:12
Chelsea komið áfram í bikarnum Chelsea er komið í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir öruggan 3-0 sigur á 1. deildar liði Nottingham Forest á Stamford Bridge í dag. Segja má að Chelsea hafi gengið frá leiknum í fyrri hálfleik en þá skoraði liðið öll mörkin. 28.1.2007 16:01
Chelsea í stuði gegn Nottingham Forest Englandsmeistarar Chelsea hafa farið hamförum í fyrri hálfleik í viðureign sinni gegn Nottingham Forest í ensku bikarkeppninni. Staðan er 3-0, Chelsea í vil, þar sem Andrei Shevchenko, Didier Drogba og John Obi Mikel hafa skorað mörkin. 28.1.2007 14:59
Hefnd er efst í huga Wenger Arsene Wenger hefur í huga að hefna fyrir ófarir Arsenal gegn Bolton upp á síðkastið þegar liðin mætast í ensku bikarkeppninni kl. 16 í dag. Arsenal hefur gengið bölvanlega gegn Bolton og aðeins unnið einn af síðustu sjö leikjum liðanna. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 28.1.2007 14:00
Frank Rijkaard: Látið Ronaldinho í friði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, hefur skipað fjölmiðlum á Spáni að láta Ronaldinho í friði, en brasilíski snillingurinn hefur verið harðlega gagnrýndur að undanförnu fyrir slaka frammistöðu. Rijkaard segir það ekki einum leikmanni að kenna að Barcelona sé ekki að spila eins það best getur. 28.1.2007 13:08
AZ upp í annað sætið í Hollandi AZ Alkmaar skaust upp í 2. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær með öruggum 3-0 sigri á Sparta Rotterdam í gær. Grétar Rafn Steinsson spilaði allan leikinn fyrir AZ. 28.1.2007 12:57
Eiður Smári: Saviola á tækifærið skilið Eiður Smári Guðjohnsen segist ekki vera bitur út í þjálfara sinn Frank Rijkaard fyrir að hafa tekið Javier Saviola fram yfir sig í síðustu leikjum Barcelona. Eiður Smári segir í ítarlegu viðtali við spænska dagblaðið Marca að það sé eðlilegt að Saviola sé tekinn fram yfir sig eins og hann er að spila um þessar mundir. 28.1.2007 12:15
Svona gera aðeins snillingar Sir Alex Ferguson og Harry Redknapp, knattspyrnustjórar Manchester United og Portsmouth, hrósuðu Wayne Rooney í hástert eftir viðureign liðanna í ensku bikarkeppninni í dag. Rooney skoraði bæði mörk Man. Utd. í 2-1 sigri liðsins eftir að hafa komið inn á sem varamaður þegar hálftími var til leiksloka. 27.1.2007 23:11
Real tapaði fyrir Villareal Real Madrid mátti þola 1-0 tap fyrir Villareal í öðrum af tveimur leikjum kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og mistakast þannig að komast á topp deildarinnar um stundarsakir. Í hinum leik kvöldsins skildu Atletico Madrid og Racing Santanter jöfn, 1-1. 27.1.2007 23:02
Schalke á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni Schalke er komið með þriggja stiga forystu í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á Frankfurt í dag. Helstu keppinautarnir í Werder Bremen eiga þó leik til góða á móti Hanover á morgun en Bayern Munchen er sex stigum á eftir Shalke eftir tap gegn Dortmund í gærkvöldi. 27.1.2007 20:00
Juventus býður Saviola samning Juventus hefur boðið argentínska sóknarmanninnum Javier Saviola fimm ára samning en núverandi samningur Saviola við Barcelona rennur út í sumar. Saviola stendur frammi fyrir erfiðu vali þar sem hann hefur átt fast sæti í liði Spánar- og Evrópumeistaranna að undanförnu. 27.1.2007 19:20
Rooney tryggði Man. Utd. sigur gegn Portsmouth Wayne Rooney sá um að tryggja Man. Utd. sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar með því að skora bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Portsmouth. Það tók Man. Utd. langan tíma að brjóta ísinn á Old Trafford í kvöld því mörk Rooney komu ekki fyrr en á 77. og 83. mínútu, en sjálfur kom hann inn á sem varamaður á þeirri 60. 27.1.2007 19:05
West Ham úr leik í enska bikarnum Íslendingaliðið West Ham er úr leik í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu eftir að hafa beðið 1-0 ósigur gegn Watford á heimavelli sínum í dag. Lítið var um óvænt úrslit í bikarnum í dag en Bristol City, sem leikur í 2. deild, náði að knýja fram annan leik gegn Middlesbrough með því að gera 2-2 jafntefli við liðið á heimavelli í dag. 27.1.2007 16:53
West Ham undir í hálfleik Íslendingaliðið West Ham er undir, 1-0, þegar flautað hefur til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Watford í ensku bikarkeppninni. Leikurinn fer fram á Upton Park, heimavelli West Ham. Nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks í 11 leikjum bikarkeppninnar virðast flest úrvalsdeildarliðin vera á leið í 16-liða úrslit. 27.1.2007 15:41
Eggert í ítarlegu viðtali við tímarit UEFA Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham og fráfarandi formaður KSÍ, er í ítarlegu viðtali við opinbert tímarit evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, sem kom út í gær. Eggert stiklar á stóru í viðtalinu og ræðir meðal annars um sína framtíðarsýn með West Ham, hina "ótrúlegu" stuðningsmenn félagsins og drauminn um sæti í Meistaradeildinni. 27.1.2007 15:09
Ívar fær að hvíla sig Ívar Ingimarsson er á varamannabekk Reading sem heimsækir topplið ensku 1. deildarinnar, Birmingham, í ensku bikarkeppninn í dag. Reading stillir upp hálfgerðu varaliði í leiknum en Ívar er eini Íslendingurinn sem kemur við sögu í leikjum dagsins. Leikur Tottenham og Southend er sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 15. 27.1.2007 14:39
Öruggt hjá Blackburn Blackburn varð í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar með auðveldum sigri á Luton á útivelli í dag, 4-0. Það var hinn ungi en bráðefnilegi framherji Matt Derbyshire sem stal senunni, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. 27.1.2007 14:32
Eggert vill burt frá Upton Park Framtíð West Ham liggur frá Upton Park, núverandi heimavelli liðsins, að því er Eggert Magnússon, stjórnarformaður félagsins, segir í samtali viðLondon Evening Standard í morgun. Eggert vonast til að félagið fái afnot af væntanlegum Ólympíuleikvangi borgarinnar en ef að þær áætlanir gangi ekki eftir muni félagið einfaldlega leita eitthvert annað. 27.1.2007 13:56
Beckham gæti spilað fyrir Real Fabio Capello, þjálfari Real Madrid, hefur dregið úr þeim ummælum sem hann lét falla fyrir nokkrum vikum um að David Beckham myndi ekki spila aftur fyrir félagið þar sem hann hefur samið við LA Galaxy í Bandaríkjunum. Capello segir nú að ef Beckham sé í góðu formi og sýni rétt viðhorf eigi hann möguleika á að komast í liðið. 27.1.2007 13:43
Blackburn með örugga forystu Blackburn hefur 2-0 forystu í leik sínum gegn Luton í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu þegar flautað hefur til hálfleiks. Það voru Matt Derbyshire og Benni McCarthy sem skoruðu mörk Blackburn en úrvalsdeildarliðið hefur verið mun sterkari aðilinn það sem af er. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 27.1.2007 13:14
Ronaldo: Real Madrid var helvíti Það er ekki hægt að segja að brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo kveðji herbúðir Real Madrid með söknuði, því í samtali við ítalska fjölmiðla hefur hann lýst spænska stórveldinu sem helvíti og þjálfaranum Fabio Capello sem martröð. Fastlega er búist við því að Ronaldo skrifi undir samning við AC Milan um helgina. 27.1.2007 13:02
Drogba gagnrýnir Shevchenko Didier Drogba, framherji Chelsea, segir að Andrei Shevchenko þurfa að hugsa minna um sjálfan sig og meira um lið sitt, ætli hann sér að skapa sér nafn í ensku úrvalsdeildinni. Shevchenko hefur engan veginn staðið undir væntingum í vetur og verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína. 27.1.2007 12:25
Liverpool í viðræðum við Gillett Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að ameríski viðskiptajöfurinn George Gillett hafi gert fyrirspurnir um hugsanleg kaup á félaginu, sem þegar á í viðræðum við Dubai International Capital. Gillett er eigandi Montreal Canadians liðsins í NHL deildinni. Talið er að Liverpool fáist ekki fyrir minna en 450 milljónir punda. 26.1.2007 22:00
Dýrt tap hjá meisturum Bayern Þýska úrvalsdeildin hófst aftur í kvöld eftir vetrarhlé með stórleik Dortmund og Bayern Munchen á Westfallenstadion. Heimamenn höfðu mikilvægan 3-2 sigur og því sitja meistarar Bayern enn í þriðja sæti deildarinnar. Alexander Frei skoraði tvívegis fyrir Dortmund og Tinga eitt, en þeir Daniel van Buyten og Roy Makaay fyrir Bayern. 26.1.2007 21:32
Davids á heimleið Fjölmiðlar í Hollandi slá því föstu í dag að miðjumaðurinn Edgar Davids hjá Tottenham sé á leið til Ajax í heimalandi sínu þar sem hann hóf frábæran feril sinn á sínum tíma. Davids hefur lítið komið við sögu hjá enska liðinu í vetur enda virðist vera farið að síga á seinni hlutann á ferlinum hjá hinum 33 ára gamla leikmanni sem spilaði 106 leiki með Ajax áður en hann gekk í raðir AC Milan fyrir tíu árum. 26.1.2007 21:19
Ég er Wenger hinn mikli Sir Alex Ferguson var ekki lengi að svara fyrir sig í dag þegar hann frétti að Arsene Wenger hefði kallað lið Manchester United "70 mínútna lið." Mathieu Flamini sagði eftir leik Arsenal og United að Wenger hafi notað þessi orð til að lýsa liði United. 26.1.2007 21:00
Terry á batavegi Svo gæti farið að fyrirliðinn John Terry kæmi aftur inn í leikmannahóp Englandsmeistara Chelsea í bikarleiknum gegn Nottingham Forest á sunnudaginn. Terry hefur verið frá keppni síðan 13. desember vegna kálfameiðsla en æfði með aðalliðinu í dag. 26.1.2007 19:13
Skiptar skoðanir á áformum Platini Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur skorað á nýkjörinn forseta evrópska knattspyrnusambandsins að gera ekki breytingar á keppnisfyrirkomulagi í Meistaradeildinni. Michel Platini boðaði breytingar í stefnuskrá sinni fyrir forsetakosningarnar hjá UEFA og nú er útlit fyrir að þær gætu náð fram að ganga í kjölfar sigurs Platini. Stjórar í ensku úrvalsdeildinni taka misvel í hugmyndir Frakkans. 26.1.2007 18:08
Tekjur Man Utd að aukast verulega Forráðamenn Manchester United spá því að hagnaður félagsins á næstu tveimur árum eigi eftir að rjúka upp í kjölfar þess að hagnaður félagsins jókst um 20 milljónir punda á síðasta fjárhagsári og stóð í 30,8 milljónum punda. Þá á félagið von á vænlegum summum í kassann á næstu mánuðum. 26.1.2007 17:00
Beckhenbauer í stjórn FIFA Franz Beckenbauer, forseti Bayer Munchen, varð í dag önnur knattspyrnugoðsögnin sem nældi sér í góða stöðu í alþjóðaknattspyrnunni þegar hann var kosinn í stjórn FIFA. Beckenbauer fékk sæti í stjórninni í gegn um autt sæti sem myndaðist eftir forsetakosningar hjá UEFA. 26.1.2007 16:00
Bolton kaupir tvo Slóvaka Sam Allardyce hefur gengið frá samningi við tvo knattspyrnumenn frá liði FC Senec í Slóvakíu. Bolton hefur þegar gengið frá kaupum á 23 ára gömlum varnarmanni, Lubomir Michalik, og hefur gert við hann þriggja og hálfs árs samning. Þá fékk félagið til sín 19 ára gamla framherjann Zoltan Harsanyi frá sama liði á lánssamningi til vorsins. 26.1.2007 15:01