Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Barcelona - Villarreal í beinni á Sýn Nú er að hefjast leikur Barcelona og Villarreal í spænska boltanum og er hann sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona. Klukkan 20:50 verður svo leikur Atletico Madrid og Real Sociedad sýndur beint. 25.11.2006 18:58
Rooney framlengir samning sinn við United Framherjinn Wayne Rooney hefur skrifað undir sex ára framlengingu á samningi sínum við Manchester United og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2012. Rooney gekk í raðir United fyrir 27 milljónir punda frá Everton fyrir tveimur árum og segist hlakka til þess að vinna titla með félaginu á komandi árum. 25.11.2006 18:41
Gerrard bjargaði Liverpool Fyrirliðinn Steven Gerrard kom sínum mönnum í Liverpool til bjargar í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, en þetta var fyrsta mark kappans í deildinni í vetur. 25.11.2006 17:28
West Ham lagði Sheffield United Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hóf nýjan kafla í sögu sinni með 1-0 sigri á Sheffield United í dag. Hayden Mullins skoraði sigurmark liðsins á 36. mínútu og hlaut lof í lófa frá Eggerti Magnússyni og félögum í stúkunni. Ekki er hægt að segja að sigur West Ham hafi verið sérlega glæsilegur, en þar á bæ taka menn hverju stigi feginshendi þessa dagana. 25.11.2006 16:55
Ég er betri en Thierry Henry Didier Drogba, leikmaður Chelsea, segist eiga skilið að njóta meiri virðingar á knattspyrnuvellinum og heldur því fram að hann sé betri leikmaður en Thierry Henry hjá Arsenal. 25.11.2006 15:05
Charlton og Everton skildu jöfn Botnilið Charlton gerði 1-1 jafntefli við Everton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hermann Hreiðarsson var að venju í liði Charlton, en hann varð fyrir því óláni að koma gestunum yfir með sjálfsmarki. Írski landsliðsmaðurinn Andy Reid náði þó að jafna metin fyrir Charlton og þar við sat. 25.11.2006 14:48
Látum United ekki taka okkur í bólinu aftur Frank Lampard, leikmaður Chelsea, segir að Englandsmeistararnir verði að mæta eins og öskrandi ljón inn á völlinn þegar þeir mæta Manchester United á sunnudaginn. Hann segir leikmenn Chelsea hafa fylgst vel með gangi mála hjá United í vetur, en þrjú stig skilja toppliðin að og verður því hart barist um helgina. 24.11.2006 20:45
West Ham gerir tilboð í Wright-Phillips Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gert Chelsea formlega fyrirspurn í kantmanninn Shaun Wright-Phillips. Forráðamenn Chelsea staðfestu þetta við breska sjónavarpið og talið er að West Ham sé tilbúið að greiða allt að 10 milljónir punda fyrir Phillips, sem gekk í raðir Chelsea frá Manchester City fyrir 21 milljón punda árið 2005 og verða það að teljast einhver glórulausustu kaup í sögu enskrar knattspyrnu. 24.11.2006 17:19
Upphitun fyrir enska boltann um helgina Það verður mikið fjör í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem hápunkturinn verður viðureign Manchester United og Chelsea á sunnudag. Hér fyrir neðan eru nokkrir punktar um leiki helgarinnar. 24.11.2006 15:55
Baulið eins og þið viljið Framherjinn El Hadji-Diouf hjá Bolton segist fastlega búast við því að stuðningsmenn Arsenal muni baula á sig þegar Lundúnaliðið sækir Bolton heim í úrvalsdeildinni á morgun. Hann segist fagna því að baulað sé á sig, því stuðningsmenn bauli ekki á lélega leikmenn. 24.11.2006 15:45
Henry verður ekki með gegn Bolton Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal verður ekki með liði sínu gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni á morgun vegna meiðsla á hálsi. Arsene Wenger á þó von á að fyrirliðinn verði orðinn klár í slaginn gegn Fulham á miðvikudag. Henry mun einnig missa af leik Arsenal og Porto eftir tvær vikur, en þá verður kappinn í leikbanni. 24.11.2006 15:41
Sálfræðistríðið hafið Sálfræðistríðið fyrir leik Manchester United og Chelsea er nú komið vel af stað og Alex Ferguson svaraði í dag ummælum Peter Kenyon þess efnis að Chelsea myndi taka fram úr United fljótlega og verða stærsti klúbburinn á Englandi. 24.11.2006 14:30
Enski boltinn aftur á Sýn 365 hafði betur í keppni við Skjásport í baráttu um sýningarrétt frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tímabilinu 2007 til 2010. Ari Edwald, forstjóri 365, staðfesti þetta við fréttastofu NFS rétt í þessu. Skjár einn og Skjásport hafa haft réttinn síðastliðin þrjú ár en þar áður hafði Sýn sýningarréttinn. 24.11.2006 14:27
Stuðningsmaður skotinn til bana í Frakklandi Stuðningsmaður franska liðsins Paris St Germain var skotinn til bana og annar særðist þegar ólæti brutust út eftir tapleik liðsins gegn Hapoel Tel Aviv í Evrópukeppni félagsliða í gær. Óeinkennisklæddur lögreglumaður þurfti þar að grípa til vopna eftir að sauð uppúr eftir leikinn. 24.11.2006 14:12
Newcastle og Blackburn áfram Ensku úrvalsdeildarliðin Newcastle og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í 32-liða úrslitum Evrópumóts félagsliða í kvöld. Newcastle sigraði spænska liðið Celta Vigo 2-1 á heimavelli með mörkum Antoine Sibierski og Steven Taylor eftir að spænska liðið hafði náð forystu í leiknum. Blackburn gerði markalaust jafntefli við hollenska liðið Feyenoord á útivelli. 23.11.2006 22:25
Tottenham með fullt hús stiga Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham er með fullt hús stiga í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða eftir góðan 1-0 útisigur á Bayer Leverkusen í kvöld og er liðið fyrir vikið öruggt með sæti í 32-liða úrslitum. Það var fyrrum leikmaður Leverkusen, Dimitar Berbatov, sem gerði sigurmark enska liðsins í fyrri hálfleik. Bæði lið fengu fjölda marktækifæra og fóru þeir Robbie Keane og Berbatov til að mynda oftar en einu sinni mjög illa með dauðafæri. 23.11.2006 21:29
Wayne Bridge framlengir við Chelsea Enski varnarmaðurinn Wayne Bridge hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea um fjögur ár. Bridge er 23 ára gamall og gekk í raðir Chelsea frá Southampton árið 2003. Hann nýtti sér meiðsli Asley Cole til hins ítrasta í haust og hefur staðið sig ágætlega í þeim sjö deildarleikjum sem hann hefur spilað á leiktíðinni. Bridge eignaðist lítinn dreng með unnustu sinni fyrir aðeins nokkrum dögum. 23.11.2006 20:45
Patrick Berger til Stoke City Enska 1. deildarliðið Stoke City hefur fengið Patrick Berger að láni frá Aston Villa næstu sex vikurnar. Berger er fyrrum landsliðsmaður Tékklands en hefur lítið fengið að spreyta sig með Villa síðan hann gekk í raðir liðsins. 23.11.2006 19:15
Okkas fer til Blackburn Umboðsmaður framherjans Yannakis Okkas hjá Olympiakos í Grikklandi hefur staðfest að skjólstæðingur hans sé búinn að ná samkomulagi við enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn. Okkas gengst undir læknisskoðun og verður til reynslu hjá liðinu í næsta mánuði og ef það kemur vel út mun hann líklega ganga frá samningi við félagið í janúar. 23.11.2006 18:45
Aragones rekinn í næsta mánuði? Spænsk útvarpsstöð greindi frá því í gær að knattspyrnusambandið þar í landi væri þegar búið að ákveða að reka landsliðsþjálfarann Luis Aragones og sagði að fyrrum landsliðsþjálfarinn Jose Antonio Camacho yrði ráðinn sem eftirmaður hans á fundi sem fyrirhugaður væri þann 14. desember nk. 23.11.2006 18:15
HM timburmenn í Þýskalandi Stærsti knattspyrnuviðburður sögunnar endaði með glæsibrag í Berlín í Þýskalandi þann 9. júlí í sumar þegar HM lauk með sigri Ítala. Þó þýsk knattspyrna megi ef til vill muna fífil sinn fegurri, var afkoman af keppnishaldinu mjög góð. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvað gera eigi við rekstrarafkomuna. 23.11.2006 17:30
Gerrard á að spila á miðjunni Framherjinn Peter Crouch hjá Liverpool telur að það sé heppilegast fyrir félaga sinn Steven Gerrard að spila alltaf inni á miðri miðjunni líkt og hann gerði í leiknum gegn PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í gær. Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að tefla Gerrard fram á hægri kanti líkt og Steve McClaren hefur stundum gert hjá enska landsliðinu. 23.11.2006 17:15
Írönum vísað úr keppni Knattspyrnulandsliði Írana hefur verið vísað úr keppni á alþjóðlegum vettvangi um óákveðinn tíma vegna sífelldra afskipta stjórnvalda í landinu af störfum knattspyrnusambandsins. Alþjóða Knattspyrnusambandið tilkynnti þetta í dag og tók fram að Íranar ættu ekki möguleika á því að snúa aftur til keppni fyrr en búið væri að koma málum knattspyrnusambandsins á hreint, en fresturinn sem FIFA hafði gefið Írönum rann út fyrir viku. 23.11.2006 17:05
Chelsea stendur í stað Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur nú sent Englandsmeisturum Chelsea góða pillu fyrir stórleik liðanna á Old Trafford á sunnudaginn, en hann segir að lið Chelsea hafi staðið í stað í vetur þrátt fyrir að eyða stórum fjárhæðum í stjörnuleikmenn í sumar. 23.11.2006 16:45
Leverkusen - Tottenham í beinni á Sýn í kvöld Fjöldi leikja fer fram í riðlakeppni Evrópumóts félagsliða í knattspyrnu í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá viðureign Bayer Leverkusen og Tottenham sem hefst klukkan 19:20. 23.11.2006 16:10
Wenger gengst við ákæru sinni Arsene Wenger hefur gengist við ákæru sinni frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins í kjölfar þess að uppúr sauð milli hans og Alan Pardew í leik Arsenal og West Ham á dögunum. Pardew hefur ekki vilja gangast við sinni kæru og heldur fram sakleysi sínu í málinu. 23.11.2006 15:49
Stjórar ósáttir við undanþágu Southgate Samtök knattspyrnustjóra á Englandi hafa gagnrýnt ákvörðun stjórnar úrvalsdeildarinnar að veita Gareth Southgate undanþágu til að stýra liði Middlesbrough út leiktíðina án þess að hafa til þess tilskilin réttindi. 23.11.2006 14:48
Mourinho hefur ekki áhyggjur af meiðslum Jose Mourinho segist ekki hafa teljandi áhyggjur af meiðslunum sem þeir Michael Ballack og Didier Drogba urðu fyrir í tapinu gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í gærkvöld og á von á því að þeir verði klárir í slaginn gegn Manchester United um næstu helgi. 23.11.2006 14:39
Argentínumennirnir eiga framtíð á Upton Park Alan Pardew, stjóri West Ham, segir Argentínumennina Javier Mascherano og Carlos Tevez báða eiga framtíð fyrir sér hjá félaginu þrátt fyrir að þeim hafi gengið illa að fóta sig hjá liðinu og bendir á að þeir hafi verið gagnrýndir full harkalega. 23.11.2006 14:22
Kári orðaður við Álasund Landsliðsmaðurinn Kári Árnason hefur verið orðaður við norska úrvalsdeildarliðið Álasund sem Haraldur Freyr Guðmundsson leikur með. Kári er samningsbundinn sænska liðinu Djurgården til 2008. 23.11.2006 00:01
Tottenham leiðir í hálfleik Tottenham hefur yfir 1-0 gegn Bayer Leverkusen þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi. Það var fyrrum leikmaður Leverkusen, Búlgarinn Dimitar Berbatov, sem skoraði mark gestanna skömmu fyrir leikhlé. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og á VefTV hér á Vísi. 23.11.2006 20:25
Chelsea tapaði fyrir Bremen Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir þýska liðinu Werder Bremen. Á sama tíma vann Barcelona 2-0 sigur á Levski Sofia með mörkum frá Giuly og Iniesta, en Eiður Smári Guðjohnsen náði ekki að koma sér á blað þrátt fyrir að eiga nokkur ágæt færi í leiknum. Chelsea og Bremen eru jöfn í efsta sæti riðilsins með 10 stig en Barcelona hefur 8 stig. 22.11.2006 21:37
Bremen hefur yfir gegn Chelsea Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þýska liðið Werder Bremen hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og þá hefur Barcelona yfir 1-0 gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Ekkert mark er komið í leik Liverpool og PSV, en markaskorara kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis. 22.11.2006 20:44
Liverpool að landa ungum Argentínumanni Fréttir frá Englandi í kvöld herma að Liverpool sé við það að ganga frá lánssamningi við unga bakvörðinn Emiliano Insua frá Boca Juniors í Argentínu. Insua þessi ku vera á Anfield í kvöld þegar Liverpool mætir PSV í Meistaradeildinni þar sem þessi 17 ára leikmaður mun fá stemminguna beint í æð. 22.11.2006 20:30
Vafasamt met hjá Spartak Bayern Munchen fór langt með að tryggja sér efsta sætið í B-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Spartak í Moskvu á gervigrasvelli liðsins. Spartak setti vafasamt met með jafnteflinu, því liðið hefur nú spilað 22 leiki án sigurs í Meistaradeildinni. 22.11.2006 19:47
Fimm leikmenn tilnefndir sem knattspyrnumenn Afríku Þrír af þeim fimm leikmönnum sem tilnefndir hafa verið sem knattspyrnumenn Afríku spila í ensku úrvalsdeildinni. Nígeríumaðurinn Kanu hjá Portsmouth hefur tvisvar unnið til þessara verðlauna og er tilnefndur að þessu sinni. Auk hans eru þeir Didier Drogba og Michael Essien hjá Chelsea tilnefndir, en þeir koma frá Fílabeinsströndinni og Gana. 22.11.2006 19:22
Ancelotti hefur miklar áhyggjur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hafa miklar áhyggjur af slöku gegni liðs síns á leiktíðinni. Þessi ummæli lét hann falla eftir að Milan tapaði 1-0 fyrir AEK frá Aþenu í Meistaradeildinni í gær. Milan hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum, en það dregur ekki úr áhyggjum þjálfarans. 22.11.2006 19:13
Uwe Rosler tekinn við Viking Þýski þjálfarinn Uwe Rosler var í dag ráðinn þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Vikings í Stavangri, en hann var rekinn frá Lilleström nokkrum dögum og varð þar með áttundi þjálfarinn í deildinni tila ð taka pokann sinn á leiktíðinni. Rosler hefur skrifað undir þriggja ára samning við Viking. 22.11.2006 18:44
Southgate fær að halda áfram Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu tilkynnti í dag að Gareth Soutgate hefði verið veitt undanþága til að sinna starfi knattspyrnustjóra Middlesbrough út keppnistímabilið þó hann hafi enn ekki aflað sér fullra réttinda til þess. 22.11.2006 18:25
Mikil pressa á Eiði Smára í kvöld Útlit er fyrir að pressan sé mikil á Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona í kvöld þegar liðið sækir Levski Sofia í Búlgaríu í Meistaradeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda og á heimasíðu félagsins í dag stendur að liðið muni treysta á að íslenski framherjinn sýni aðra eins frammistöðu og þegar hann skoraði tvö mörk gegn Mallorca í spænsku deildinni á dögunum. 22.11.2006 18:15
Kennum okkur sjálfum um tapið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, segir að tap liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni í gærkvöld sé engum öðrum að kenna en leikmönnunum sjálfum, sem hafi fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færin sín. Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að mæta Benfica í lokaleiknum í riðlakeppninni. 22.11.2006 17:10
Aðgerðin á Ameobi heppnaðist vel Forráðamenn Newcastle hafa gefið það út að sóknarmaðurinn Shola Ameobi hafi nú lokið við aðgerð vegna meiðsla á mjöðm og hafi hún heppnast með miklum ágætum. Aðgerðin var framkvæmd í Colorado fylki í Bandaríkjunum, en þar á bæ eru menn ekki óvanir því að eiga við meidda leikmenn Newcastle. 22.11.2006 17:06
Ísland upp um tvö sæti Í morgun var birtur nýr styrkleikalisti Alþjóða Knattspyrnusambandsins FIFA en þar hefur íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hækkað sig um tvö sæti síðan síðasti listi var gefinn út og situr í 93. sæti. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, heimsmeistarar Ítalíu í öðru og Argentínumenn í því þriðja. 22.11.2006 17:02
Benitez vill hirða toppsætið Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur lagt ríka áherslu á það við leikmenn sína að reyna að ná toppsætinu í C-riðli Meistaradeildarinnar í undirbúningi liðsins fyrir leikinn við PSV á Anfield í kvöld. 22.11.2006 16:56
Þrír leikir í beinni á Sýn í kvöld Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram með miklum látum í kvöld og sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með þrjá leiki í beinni útsendingu. Leikur Werder Bremen og Chelsea verður í beinni á Sýn klukkan 19:30, Liverpool - PSV verður í beinni á Sýn Extra og Levski - Barcelona verður í beinni á Sýn Extra 2 á sama tíma. 22.11.2006 15:04