Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Anton Ferdinand ákærður fyrir líkamsárás Varnarmaðurinn Anton Ferdinand hjá enska úrvalsdeildarliðinu West Ham hefur verið kærður fyrir líkamsárás á næturklúbbi í London í síðasta mánuði. Breska sjónvarpið greinir frá þessu í dag. 22.11.2006 14:27
Mourinho ætlar að spila til sigurs Jose Mourinho segir sína menn í Chelsea ætla að sækja til sigurs gegn Werder Breen í Meistaradeildinni í kvöld, þó sigur gæti í raun orðið til þess að hjálpa erkifjendunum Barcelona að komast áfram upp úr riðlinum. 22.11.2006 13:43
Áfall að tapa þessum leik Sir Alex Ferguson segir að það hafi verið algjört áfall fyrir sig og sína menn í Manchester United að tapa fyrir Celtic í Meistaradeildinni í kvöld, en enska liðið hafði tögl og haldir áður en frábær aukaspyrna Japanans Nakamura tryggði Celtic sigurinn. 21.11.2006 23:20
Nakamura tryggði Celtic sigur á Man Utd Manchester United tapaði öðrum leik sínum í röð í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Glasgow Celtic í Skotlandi. Enska liðið var mun betri aðilinn í leiknum en eins og til að kóróna slæmt kvöld hjá liðinu, misnotaði Louis Saha vítaspyrnu á lokamínútum leiksins. Það var japanski aukaspyrnusérfræðingurinn Nakamura sem tryggði Celtic sigur með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu, en hann skoraði einnig beint úr aukaspyrnu í fyrri leik liðanna í haust. 21.11.2006 21:48
Hamburg yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Þýska liðið Hamburg hefur yfir 1-0 gegn Arsenal á Emirates þar sem Rafael van der Vaart skoraði strax á 4. mínútu og Lyon hefur yfir 2-1 gegn Real Madrid á Bernabeu. Enn er markalaust í baráttunni um Bretland á Celtic Park, en stöðuna í leikjum kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á Vísi og svo eru þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar. 21.11.2006 20:39
Porto tók CSKA Moskvu í kennslustund Einum leik er lokið í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Porto vann öruggan og sannfærandi útisigur á CSKA Moskvu 2-0 með mörkum frá Ricardo Quaresma og Lucho Gonzalés og er liðið fyrir vikið komið í toppsætið í G-riðli. 21.11.2006 19:45
Platini situr ekki á skoðunum sínum Michel Platini, fyrrum landsliðsmaður Frakka sem þrisvar var sæmdur Gullskónum sem leikmaður, segir að Fabio Cannavaro eigi alls ekki skilið að verða sæmdur verðlaununum í ár. Víst þykir að Cannavaro muni verða sæmdur verðlaununum í lok mánaðarins, en fréttir þess efnis hafa lekið í fjölmiðla að undanförnu. 21.11.2006 17:28
Of mikil pressa á útlendingunum Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að útlenskum leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni sé ekki sýnd næg þolinmæði og bendir á að stuðningsmenn geri óraunhæfar væntingar til manna sem eru að rífa fjölskyldu sína upp og flytja búferlum til landa með gjörólíka menningu. 21.11.2006 16:16
Áfrýjunum Tottenham og Blackburn vísað frá Ensku úrvalsdeildarfélögin Tottenham og Blackburn höfðu ekki erindi sem erfiði í áfrýjunum sínum á rauðu spjöldin sem þeir Hossam Ghaly og Tugay fengu að líta í viðureign liðanna á sunnudaginn. Stjórar beggja liða gagnrýndu dómgæslu Phil Dowd harðlega eftir leikinn, enda má færa rök fyrir því að bæði rauðu spjöldin hafi verið ansi vafasöm. 21.11.2006 15:05
Carlos og Guti framlengja hjá Real Madrid Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos og spænski miðjumaðurinn Guti skrifuðu báðir undir framlengingu á samningi sínum við Real Madrid í dag. Carlos 33 ára og er nú samningsbundinn Real fram til 2008 og Guti, sem er þrítugur, hefur framlengt til ársins 2010. Þeir verða væntanlega báðir í eldlínunni í kvöld þegar Real fær Lyon í heimsókn í Meistaradeildinni en sá leikur verður sýndur beint á Sýn Extra 2 klukkan 19:30. 21.11.2006 14:51
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeildinni í dag. Hátíðin hefst með leik CSKA Moskvu og Porto klukkan 17:15 á Sýn. Klukkan 19:30 hefst svo leikur Celtic og Manchester United á Sýn og á sama tíma verða leikir Arsenal og HSV á Sýn Extra og leikur Real Madrid og Lyon á Sýn Extra 2. 21.11.2006 14:37
Celtic ætti fullt erindi í ensku úrvalsdeildina Gordon Strachan og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Celtic mæta Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld og á blaðamannafundi fyrir leikinn sagði Strachan að ekki væri jafn mikill munur á ensku úrvalsdeildinni og þeirri skosku og margir héldu. 21.11.2006 14:28
Greiða rúma 14 milljarða fyrir West Ham Eggert Magnússon og félagar sömdu í dag um kaup á meirihluta í breska knattspyrnufélaginu West Ham United. Kaupverðið er 108 milljónir punda eða um 14 milljarðar króna. 21.11.2006 13:38
Geir verður eftirlitsmaður í Meistaradeildinni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á leik Benfica og FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu á morgun. Leikurinn er liður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en liðin eru í F-riðli keppninnar. 20.11.2006 20:03
Gallas verður frá í nokkrar vikur Arsenal verður án liðskrafta varnarmannsins William Gallas næstu vikurnar eftir að leikmaðurinn meiddist á æfingu á mánudag. Þetta er mikið áfall fyrir Arsenal en Gallas hefur spilað mjög vel síðustu vikur. 20.11.2006 18:15
Real Madrid býður í táning frá Argentínu River Plate í Argentínu hefur hafnað 7 milljón punda tilboði frá Real Madrid í táninginn Gonzalo Higuain, sem þykir eitt mesta efnið í Argentínu um þessar mundir. Huguin er til sölu, en aðeins fyrir rétt verð. 20.11.2006 16:30
Sao Paulo meistari í Brasilíu Sao Paulo varð í gær brasilískur meistari í knattspyrnu í fjórða sinn. Liðið gerði þá jafntefli við Atletico Paranense og nægði stigið til að gulltryggja titilinn þrátt fyrir að tvær umferðir séu ennþá óleiknar. 20.11.2006 15:00
Engar væntingar skiluðu okkur HM-titlinum Marcello Lippi, ítalski þjálfarinn sem stýrði þjóð sinni til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, segir að litlar væntingar hafi átt stærstan þátt í að Ítalir urðu heimsmeistarar. “Það var engin pressa á okkur og það hjálpaði gríðarlega,” sagði Lippi við ítalska fjölmiðla í gær. 20.11.2006 14:30
Tevez segist ekki vera á förum frá West Ham Argentínski sóknarmaðurinn Carlos Tevez kveðst ekki vera á leið úr herbúðum West Ham, þrátt fyrir að allt bendi til þess að Eggert Magnússon og félagar gangi frá kaupum á félaginu í dag. 20.11.2006 12:45
Liverpool spilar ljótan fótbolta Jan Kromkamp, hollenski bakvörðurinn sem yfirgaf Liverpool og gekk í raðir PSV í sumar, segir að hans fyrrum félagar á Anfield spili ljótan fótbolta sem gangi út á að gefa langar sendingar á Peter Crouch. Liverpool og PSV mætast í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. 20.11.2006 11:00
Eiði Smára líkt við Romario Eiður Smári Guðjohnsen, eða “Guddy” eins hann er kallaður á Spáni, segir að mörkin tvö sem hann skoraði gegn Mallorca í gær komi til með að veita honum mikið sjálfstraust. Eiði Smára er líkt við Romario í spænskum fjölmiðlum í dag. 20.11.2006 09:15
Rijkaard ánægður með Eið Smára Eiður Smári Guðjohnsen fær mikið hrós frá stjóra sínum Frank Rijkaard fyrir frammistöðu sína með Barcelona gegn Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona sigraði 4-1 og skoraði Eiður Smári tvö markanna. 20.11.2006 08:30
Eiður Smári skoraði tvö í sigri Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen átti mjög góðan leik og skoraði tvö fyrstu mörk Barcelona þegar Spánar- og Evrópumeistararnir unnu Mallorca, 4-1, á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. 19.11.2006 20:08
Áhorfendur ruddust inn á völlinn Leikur ADO Den Haag og Vitesse Arnhem í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag var flautaður af um miðjan síðari hálfleik eftir að hundruðir stuðningsmanna ADO ruddust inn á völlinn og létu öllum illum látum. 19.11.2006 19:00
Markvarsla ársins hjá Sörensen? Martin O´neill, knattspyrnustjóri Celtic, segist sjaldan hafa séð eins góða markvörslu og þegar Thomas Sörensen varði skalla frá Lee McCullogh strax á 2. mínútu leiks Aston Villa og Wigan í dag. 19.11.2006 19:00
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Mallorca á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn hófst kl. 18:00 og er í beinni útsendingu á Sýn. 19.11.2006 18:13
Blackburn og Tottenham gerðu jafntefli Blackburn og Tottenham skildu jöfn, 1-1, í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tveir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum. 19.11.2006 17:52
Inter með þriggja stiga forystu Inter Milan er með þriggja stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta eftir leiki dagsins. Hernan Crespo tryggði liðinu 1-0 sigur á Reggina en Roma burstaði Catania, 7-0. 19.11.2006 16:45
Eiður Smári: Mörkin munu koma Eiður Smári Guðjohnsen kveðst handviss um að hann muni vera duglegri við að skora mörk fyrir Barcelona á næstu vikum heldur en hann hefur verið það sem af er leiktíð. Barcelona mætir Mallorca kl. 18 og er leikurinn í beinni útsendingu á Sýn. Eiður Smári verður að öllum líkindum í byrjunarliðinu. 19.11.2006 16:00
Wigan og Aston Villa skildu jöfn Einum leik er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wigan og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í leik sem reyndist ekki mikið fyrir augað. Kl. 16 hefst leikur Blackburn og Tottenham. 19.11.2006 15:45
Við getum unnið allt Cristiano Ronaldo segir að Man. Utd. hafi burði til að standa uppi sem sigurvegarar ensku úrvalsdeildarinnar og Meistaradeildar Evrópu þegar núverandi tímabili lýkur um mitt næsta ári. 19.11.2006 15:15
Robben varar Mourinho við að kaupa Malouda Arjen Robben, hollenski sóknarmaðurinn hjá Chelsea, hefur varað forráðamenn Chelsea við því að kaupa Florent Malouda frá Lyon. Robben nánast hótar því að fara frá félaginu ef franski landsliðsmaðurinn verður keyptur í janúar. 19.11.2006 14:45
Barcelona þarf ekki nýjan sóknarmann – þeir eiga annan Messi Mikið hefur rætt og skrifað um nauðsyn þess að Barcelona fái til sín nýjan sóknarmann í fjarveru Samuel Eto´o og Lio Messi. En færri vita að með spænskum ríkisborgararétt Rafel Marques hafa opnast dyr fyrir 17 ára undrabarn í herbúðum liðsins – hinn 17 ára gamla Giovani. 19.11.2006 00:01
Gengið frá kaupunum á mánudag Fjárfestingarhópur Eggerts Magnússonar mun ganga formlega frá kaupum á West á mánudag, að því er breska blaðið Independent heldur fram í morgun. Eggert verður stjórnarformaður, Björgólfur Guðmundsson verður ekki í stjórn og Argentínumennirnir Javier Mascherano og Carlos Tevez fara frá félaginu. 18.11.2006 20:00
Wenger óánægður með varnarleikinn Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kennir slökum varnarleik sinna manna um jafnteflið gegn Newcastle í dag. Enn einu sinni voru leikmenn Arsenal með skelfilega nýtingu í sókninni. 18.11.2006 20:00
Ferguson hrósar sínum mönnum Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd. hrósaði leikmönnum sínum í hástert eftir leikinn gegn Sheffield United í dag og sagði þá hafa sýnt mikinn karakter með því að tryggja sér sigur eftir að hafa lent undir. 18.11.2006 19:30
Markalaust hjá Middlesbrough og Liverpool Útivallagrýla Liverpool hélt áfram í dag þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Middlesbrough á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur nú hlotið tvö stig í sjö útileikjum tímabilsins og skorað í þeim eitt mark. 18.11.2006 19:08
Bayern lagði Stuttgart í toppslagnum Bayern Munchen unnu góðan sigur á Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2-1, eftir að hafa lent undir strax á 8. mínútu leiksins. Við tapið féll Stuttgart af toppi deildarinnar en þar situr nú Schalke eftir 4-2 sigur á Engergie Cuttbus. 18.11.2006 18:30
Einvígi Man. Utd. og Chelsea heldur áfram Manchester United heldur toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á nýliðum Sheffield United í dag þar sem Wayne Rooney skoraði bæði mörk Rauðu djöflanna. Meistarar Chelsea fylgja þeim rauðklæddu eins og skugginn en liðið lagði West Ham á Stamford Bridge, 1-0. 18.11.2006 17:10
Sama gamla sagan hjá Arsenal Ófarir Arsenal á hinum nýja heimavelli sínum, Emirates, halda áfram og í dag náði liðið aðeins jafntefli gegn Newcastle. Arsenal sótti án afláts í leiknum og hefði með réttu átt að skora nokkur mörk en eins og í síðustu leikjum gengur liðið herfilega að nýta marktækifærin. 18.11.2006 17:06
Getum vel unnið án Messi og Eto´o Ludovic Giuly, franski sóknarmaðurinn hjá Barcelona, segir að liðið þurfi ekki á auknum liðsstyrk að halda þótt að Lionel Messi og Samuel Eto´o séu frá næstu vikur vegna meiðsla. 18.11.2006 16:30
Messi hefði átt að fara í aðgerð í sumar Læknir argentínska landsliðsins í fótbolta segir nýlegt ristarbrot Lionel Messi ekki hafa komið sér á óvart þar sem hann hefði verið mjög tæpur í fætinum síðustu mánuði. Læknirinn segir Barcelona hafa hunsað ráð sín. 18.11.2006 16:30
Helgi mætir gömlu félögunum í fyrsta leik Örlögin létu til sín taka þegar dregið var í töfluröð fyrir næsta keppnistímabil í fótboltanum hér heima. Í Landsbankadeild karla mun Fram taka á móti Val í fyrsta leik, en sem kunnugt er fór Helgi Sigurðsson í fússi frá Fram til Vals í síðustu viku. Íslandsmeistarar FH mæta ÍA í fyrsta leik á Akranesi. 18.11.2006 16:15
Hermann og Ívar byrja - Brynjar á bekknum Þrír Íslendingar eru í eldlínunni í leik Reading og Charlton í ensku úrvalsdeildinni sem er nýhafinn. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er á bekknum. Hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson í byrjunarliðinu. 18.11.2006 15:14
Fulham steinlá gegn Manchester City Heiðar Helguson og félagar hans í Fulham réðu ekki feitum hesti frá heimsókn sinni til Manchester í dag og töpuðu 3-1 fyrir heimamönnum í City. Heiðar kom inn á í hálfleik og lagði upp mark Fulham. 18.11.2006 15:06
Þeir bestu (60.-51. sæti): Himnasending frá Skotlandi, Sölvi Helgason íslenska boltans og tíur af guðs náð Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 103-74 | Andlegt gjaldþrot gestanna í stjörnuleik Ægis Körfubolti