Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiður ekki í hópnum hjá Stoke Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Stoke í dag en liðið mætir Sunderland á útivelli nú klukkan 15.00. 6.11.2010 14:43
Grétar skoraði í sigri Bolton á Tottenham Grétar Rafn Steinsson skoraði eitt marka Bolton í 4-2 sigri á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. 6.11.2010 14:40
Kubica fljótastur á blautri lokaæfingunni Robert Kubica á Renault reyndist fljótastur á lokaæfingu keppnisliða fyrir tímatökuna á Formúlu 1 brautinni við Sao Paulo í Brasilíu í dag. Hann varð 0.309 sekúndum á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji. 6.11.2010 14:23
Gylfi á bekknum hjá Hoffenheim Gylfi Þór Sigurðsson er á bekknum þegar að lið hans, Hoffenheim, mætir Hamburg á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í dag. 6.11.2010 13:56
Ferguson heldur upp á 24 ára starfsafmæli í dag Þann 6. nóvember árið 1986 var Alex Ferguson ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United og heldur hann því upp á 24 ára starfsafmæli í dag. 6.11.2010 13:30
Stuðningsmenn Cleveland svara Nike-auglýsingu LeBron Stuðningsmenn Cleveland eru enn hundfúlir út í LeBron James fyrir að fara frá liðinu og ganga til liðs við Miami Heat. 6.11.2010 13:00
Grétar Rafn glímir við Bale Grétar Rafn Steinsson fær það verkefni í dag að hafa gætur á heitasta leikmanni ensku úrvalsdeildarinnar, Gareth Bale. 6.11.2010 12:29
FC United vann óvæntan bikarsigur FC United vann í gær óvæntan 3-2 sigur á Rochdale í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. 6.11.2010 12:00
Henry: Óánægðir leikmenn mega fara John Henry, eigandi Liverpool, segir að óánægðum leikmönnum sé frjálst að fara frá félaginu. 6.11.2010 11:30
NBA í nótt: New Orleans vann stjörnulið Miami New Orleans hefur byrjað frábærlega á tímabilinu í NBA-deildinni í haust og gerði sér lítið fyrir og vann stjörnum prýtt lið Miami í nótt, 96-93. 6.11.2010 11:00
Ekkert breyst eftir dauða Enke Það er liðið tæpt ár síðan þýski markvörðurinn Robert Enke tók sitt eigið líf er hann kastaði sér fyrir lest. Landsliðsmarkvörðurinn Rene Adler segir ekkert hafa breyst á þessu ári þrátt fyrir gífuryrði um annað. 5.11.2010 23:30
Ribery verður klár eftir helgi Það styttist loksins í það að Frakkinn Franck Ribery spili aftur með FC Bayern. Það er búist við honum á fullri ferð í næstu viku en hann er byrjaður að iðka léttar æfingar. 5.11.2010 22:45
Danskir handboltamenn voru fullir á Ólympíuleikunum Danski handboltamarkvörðurinn Kasper Hvidt gefur út ævisögu sína á morgun og þar fjallar hann meðal annars um ástæður þess af hverju hann sé hættur að spila fyrir danska landsliðið eftir 14 ára feril. 5.11.2010 22:00
LeBron vill spila á ÓL í London eins og Kobe Kobe Bryant braut ísinn fyrir NBA-stjörnurnar í vikunni þegar hann sagðist vera tilbúinn að gefa kost á sér í bandaríska körfuboltalandsliðið fyrir Ólympíuleikana í London árið 2012. 5.11.2010 21:15
Rakel hafnaði Jitex - verður áfram á Akureyri Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er greinilega mjög heimakær því hún hefur ákveðið að spila áfram með Þór/KA í Pepsi-deildinni í stað þess að fara utan til Svíþjóðar í atvinnumennsku. Þetta er staðfest á heimasíðu Þórs í dag. 5.11.2010 20:42
Andersson gæti misst af HM Alfreð Gíslason er í vandræðum með stöðu hægri skyttu hjá Kiel. Svíinn Kim Andersson hefur verið meiddur í hálft ár og á enn langt í land og svo var Þjóðverjinn Christian Zeitz að meiðast líka. 5.11.2010 20:30
Bothroyd í enska landsliðið? Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, er sagður velta fyrir sér hvort hann eigi að velja framherjann Jay Bothroyd í liðið fyrir vináttuleikinn gegn Frökkum síðar í mánuðinum. 5.11.2010 19:45
ÍBV krækti í Guðmund Selfyssingurinn efnilegi. Guðmundur Þórarinsson, skrifaði í kvöld undir eins árs samning við spútniklið síðasta sumars, ÍBV. Frá þessi er greint á fótbolti.net í kvöld. 5.11.2010 19:01
Sneijder: Fer aldrei aftur til Real Wesley Sneijder, leikmaður Evrópumeistara Inter, segir að það komi ekki til greina að hann muni einn daginn snúa aftur til Real Madrid á Spáni. 5.11.2010 19:00
Hodgson: Chelsea er ekki óstöðvandi Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segir að topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Chelsea, sé ekki óstöðvandi þrátt fyrir gott gengi á tímabilinu. 5.11.2010 18:15
Osman frá í sex vikur Leon Osman, leikmaður Everton, verður frá næstu sex vikurnar eftir að hann gekkst undir aðgerð á ökkla. 5.11.2010 18:15
Vettel 0.104 sekúndu á undan Webber Sebastain Vettel var enn og aftur á undan liðsfélaga sínum Mark Webber á Red Bull á seinni æfingu keppnisliða á Interlagos brautinni í Brasilíu í dag. 5.11.2010 18:01
Renault hugsanlega að hætta sem keppnislið Renault liðið sem vörumerki gæti verið að hætta í Formúlu 1 samkvæmt frétt á autosport.com í dag, en liðið er í meirihlutaeigu sjálfstæðs fyrirtækis sem heitir Genii Capital. Renault virðist ætla útvega liðum vélar á næsta ári, en hætta með keppnislið undir eigin merkjum. Í fréttinni segir að möguleiki sé að Lotus bílaframleiðandinn breski verði styrktaraðili hjá liði sem myndi þá kallast Lotus Renault og nota Renault vélar eins og Red Bull og annað lið sem kallast í dag Lotus. Áhöld er um hvort það lið hefur rétt á notkun nafnsins, en það lið er í eigu malasíkra aðila og liðið kallast Lotus Racing. Þó hefur þetta lið samið við Renault um notkun á vélum fyrirtækisins á næsta ári og í tilkynningu frá Renault í dag, þá kallaði fyrirtækið þetta keppnislið 1 Malaysia Racing Team. Team Lotus var viðfrægt vörumerki í kappakstri á síðustu öld og ef marka má frétt autosport.com, þá virðist Lotus bílaframleiðandinn vilja endurreisa það nafn undir eigin formerkjum með samvinnu við Renault. 5.11.2010 17:44
Frei ætlar að hætta að spila með landsliði Sviss Sóknarmaðurinn Alexander Frei ætlar að hætta að gefa kost á sér í svissneska landsliðið eftir tímabilið. 5.11.2010 16:45
Alex vill klára ferilinn hjá Chelsea Brasilíumaðurinn Alex er ánægður hjá Chelsea og vill vera hjá félaginu þar til að ferli hans lýkur. Hann átti aldrei von á því að fá að spila með svo stóru félagi. 5.11.2010 16:15
Bale: Maicon er herramaður Gareth Bale lofaði Brasilíumanninn Maicon sem hann fór illa með í leik Tottenham og Inter í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið. 5.11.2010 15:45
Holloway hélt snókermót fyrir leikmenn Ian Holloway, stjóri Blackpool, brá á það ráð að halda snókermót fyrir leikmenn sína þegar hvassviðri gerði það að verkum að þeir gátu ekki æft. 5.11.2010 15:15
Cech: Pressan er á Liverpool Petr Cech, markvörður Chelsea, segir að öll pressan sé á Liverpool fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. 5.11.2010 14:45
Van der Vaart tæpur fyrir helgina Rafael van der Vaart er tæpur fyrir leik Tottenham gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni sem fer fram í hádeginu á morgun. 5.11.2010 14:15
Willum ráðinn landsliðsþjálfari í Futsal Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í Futsal eða innanhússknattspyrnu. 5.11.2010 13:45
Vettel fljótari en Webber á fyrstu æfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var sneggstur um Interlagos brautina í Brasilíu í dag, en næst síðasta mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Vettel varð tæplega hálfri sekúndu á undan Mark Webber á samskonar bíl. 5.11.2010 13:41
Baldur Ingimar til Víkings Víkingar hafa styrkt sig enn frekar fyrir átök næsta sumars í Pepsi-deild karla og fengið Baldur Ingimar Aðalsteinsson frá Val. 5.11.2010 13:15
Red Bull áfram í samtarfi með Renault Red Bull liðið tilkynnti formlega í dag að það hefur framlengt samning sinn við Renault vélaframleiðandann. Renault hefur séð liðinu fyrir vélum og gerir það áfram árið 2011 og 2012. 5.11.2010 13:04
Carragher: Gerrard besti leikmaður Liverpool frá upphafi Jamie Carragher, leikmaður Liverpool, segir að Steven Gerrard sé besti leikmaðurinn í sögu félagsins. Gerrard skoraði öll þrjú mörkin í 3-1 sigri liðsins á Napoli í gær eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik er staðan var 1-0 fyrir Ítalina. 5.11.2010 12:45
Kuyt gæti spilað um helgina Svo gæti farið að Dirk Kuyt spili með Liverpool gegn Chelsea þegar að liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 5.11.2010 12:15
Rooney sendur til Bandaríkjanna Manchester United hefur ákveðið að senda Wayne Rooney til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir stífa endurhæfingu vegna ökklameiðsla sinna. 5.11.2010 12:15
Xavi ætlar ekki að hætta með landsliðinu Spánverjinn Xavi, leikmaður Barcelona, segir ekkert hæft í þeim orðrómi að hann ætli sér að hætta að gefa kost á sér í spænska landsliðið. 5.11.2010 11:45
Grant heldur starfinu þó svo að West Ham falli David Gold, eigandi West Ham, segir að Avram Grant verði áfram knattspyrnustjóri liðsins þó svo að liðið muni falla úr ensku úrvalsdeildinni í vor. 5.11.2010 11:15
Gylfi veit ekki hvað þorpið sitt heitir Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Hoffenheim, er sagður hafa viðurkennt um helgina að vita ekki hvað þorpið heitir þar sem hann á heima. 5.11.2010 10:45
Redknapp vongóður um að halda Bale Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er vongóður um að halda stórstjörnunni Gareth Bale hjá félaginu þó svo að liðinu myndi ekki takast að tryggja sér þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu fyrir næstu leiktíð. 5.11.2010 10:15
Webber og Vettel ekki mismunað í titilslagnum Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins segir að Mark Webber og Sebastian Vettel hafi ekki verið mismunað hjá liðinu á keppnistímabilinu og báðir fái fullan stuðning liðsins. Horner segir að ummæli Mark Webber, ef rétt túlkuð í fjölmiðlum gætu sært menn innan liðsins, en Webber lét í veðri vaka í gær að Vettel væri í uppáhaldi hjá liðinu að sögn autosport.com. 5.11.2010 10:01
Harper meiddist í fagnaðarlátum Steve Harper, markvörður Newcastle, gerði axlarmeiðsli sín enn verri þegar hann var að fagna einu marka sinna manna í grannaslagnum gegn Sunderland um síðustu helgi. 5.11.2010 09:45
Mancini ætlar ekki að hætta hjá City Roberto Mancini segir að það komi ekki til greina hjá honum að hætta sjálfviljugur hjá Manchester City - félagið verði að reka hann vilji það hann burt. 5.11.2010 09:15
NBA í nótt: Durant og Oklahoma aftur á beinu brautina Eftir tvo tapleiki í röð tókst Kevin Durant og félögum í Oklahoma City Thunder aftur að komast á beinu brautina með naumum sigri á Portland í framlengdum leik í NBA-deildinni í nótt, 107-106. 5.11.2010 09:00
Benitez vill fá Lucas til Inter Fæstir búast við því að Brasilíumaðurinn Lucas Leiva verði mikið lengur í herbúðum Liverpool en hann hefur engan veginn staðið undir væntingum. 4.11.2010 23:30