Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Logi með 21 stig í tapi fyrir Norrköping Logi Gunnarsson skoraði 21 stig þegar lið hans Solna Vikings tapaði 81-91 í framlenginu á móti sænsku meisturunum í Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Þetta var sjöundi leikurinn í vetur þar sem Logi brýtur tuttugu stiga múrinn í vetur en hann hitti úr 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. 29.11.2010 20:15
Drogba þolir ekki að elta Það gengur illa hjá Chelsea þessa dagana og liðið varð að sjá á eftir toppsætinu um helgina í hendurnar á Man. Utd. Chelsea varð þá að sætta sig við jafntefli gegn Newcastle. 29.11.2010 19:45
Breiðablik komið í samstarf við Tottenham Breiðablik kynnti í dag samstarf við enska knattspyrnustórveldið Tottenham en samkomulagið felur meðal annars í sér að Tottenham starfrækir knattspyrnuskóla hér á landi næsta sumar. Á kynningarfundinn mætti einnig Charlotte Lade, sem er freestyle fótboltakona frá Álasundi í Noregi en hún hefur verið hjá Tottenham í hálft ár. 29.11.2010 19:15
Tipsbladet segir Ronaldo vera betri en Messi Danska Tipsbladet tók sig til í tilefni af risaleiknum í spænska fótboltanum í kvöld og bar saman snillingana Lionel Messi og Cristiano Ronaldo sem eru í huga margra tvær bestu fótboltamenn heims í dag. 29.11.2010 19:00
Eitt sinn kallaður Saddam en nú er það Skröggur Felix Magath, þjálfari Schalke, er umdeildur maður og hefur meðal annars verið kallaður Saddam og öðrum álíka vinsælum nöfnum. Hann hefur fengið nýtt nafn þetta árið eftir að hann ákvað að stytta jólafrí leikmanna liðsins. 29.11.2010 18:15
Munurinn á Ronaldo og Messi - hvað segir tölfræðin Það er ekki aðeins Barcelona og Real Madrid sem eigast við í El Clasico á Nývángi í kvöld því flestir líta á þennan leik sem uppgjör á milli tveggja stærstu knattspyrnustjarna heimsins, Lionel Messi hjá Barcelona og Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid. 29.11.2010 17:30
Rummenigge: Van Buyten fær að borga fyrir þessi mistök Forráðamenn FC Bayern eru þekktir fyrir allt annað en að spara stóru orðin. Það fékk Daniel van Buyten, varnarmaður liðsins, að reyna um helgina. 29.11.2010 16:45
Real Madrid gegn Barcelona er stærsti leikur heims Steve McManaman, fyrrum leikmaður Real Madrid og Liverpool, segir að hann myndi velja Lionel Messi fram yfir Cristiano Ronaldo ef hann þyrfti að velja. Hann býst þó við sigri Real Madrid á Camp Nou í kvöld. 29.11.2010 16:00
Allegri kemur fram við Ronaldinho eins og barn Fyrrum æðsti prestur hjá Juventus, Luciano Moggi, er ekki hrifinn af því hvernig þjálfari AC Milan, Massimiliano Allegri, fer með Brasilíumanninn Ronaldinho. 29.11.2010 15:30
Wenger hættir þegar hungrið hverfur Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á líklega nóg eftir í boltanum. Sjálfur segist hann ekki hafa neinn áhuga á því að hætta fyrr en honum verði sama um leikinn. 29.11.2010 15:00
Horner: Vonbrigði fyrir Webber að ná ekki takmarkinu Christian Horner hjá Red Bull telur að Mark Webber, liðsmaður Red Bull endurhlaði batteríin í vetur og mæti klár í titilslaginn 2011, eftir að hafa misst af titlinum í ár. Liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð meistari í ár og tryggði titilinn í lokamótinu. 29.11.2010 14:53
Atli: Ég vil að menn hafi gaman af því sem þeir eru að gera Atli Hilmarsson, þjálfari toppliðs Akureyrar í N1-deild karla, var í dag valinn besti þjálfarinn í fyrstu sjö umferðum deildarinnar. Akureyri vann alla þá leiki og er reyndar búið að vinna áttunda leikinn líka. 29.11.2010 14:30
Kubica fjórði í frönsku rallmóti Pólski Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica, sem ekur með Renault náði fjórða sæti í rallmóti í Frakklandi á sunnudaginn. Hann keppti á Renault Clio S16. Aðstoðarökumaður Kubica var Jakub Gerber. 29.11.2010 14:10
Nýbakaður DTM-meistari vonast eftir Formúlu 1 sæti Bretinn Paul di Resta vann meistaratitilinn í DTM mótaröðinni með Mercedes, en lokamót ársins fór fram í Sjanghæ í Kína á sunnudaginn. Flest mót í þessari mótaröð fara fram í Þýskalandi. Paul di Resta varð í öðru sæti á eftir landa sínum Gary Paffett í mótinu í Sjanghæ og það dugði til að hann hreppti titilinn. Di Resta hefur verið varaökumaður Force India liðsins á þessu ári og í frétt á autosport.com í dag segist hann áhugasamur um að komast að sem keppnisökumaður í Formúlu 1. "Force India hefur gefið mér gott tækifæri á þessu ári. Það hefur alltaf verið draumur minn að vera hluti af Formúlu 1 liði og ég hef getað gert frábæra hluti með þeim á þessu ári", sagði di Resta um í frétt autosport. "Augljóslega er ég að vonast eftir sæti hjá liðinu og að byggja upp langvarandi samvinnu. F1 er draumur minn og ég mun vinna að því að láta hann rætast." "Mercedes hefur reynst mér vel og ég vil ekki gleyma því. Ég er bara ánægður að vinna titilinn í DTM með þeim", sagði di Resta. Adrian Sutil og Viantonio Liuzzi voru ökumenn Force India í ár. 29.11.2010 13:58
Ólafur Bjarki: Við vinnum Akureyri næst HK-ingurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson var í hádeginu valinn besti leikmaður fyrstu sjö umferðanna í N1-deild karla. Ólafur Bjarki hefur leikið virkilega vel með HK það sem af er vetri og er vel að nafnbótinni kominn. 29.11.2010 13:20
Ancelotti: Ef það á að reka mig þá frétti ég það síðastur Orðrómurinn um að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, muni taka við Chelsea næsta sumar flýgur enn hátt. Hreinsanir eru í gangi á Stamford Bridge og Frank Arnesen íþróttastjóri mun hætta næsta sumar. Ray Wilkins aðstoðarþjálfari hætti á dögunum. 29.11.2010 13:00
Elmander orðaður við Liverpool Sænski framherjinn hjá Bolton Wanderers, Johan Elmander, er í dag orðaður við Liverpool. Samningur leikmannsins við Bolton rennur út næsta sumar. 29.11.2010 12:30
Ólafur Bjarki bestur í umferðum eitt til sjö í N1-deild karla HK-ingurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson var nú í hádeginu valinn besti leikmaður umferða 1-7 í N1-deild karla. Ólafur Bjarki hefur farið mikinn í liði HK sem hefur komið verulega á óvart með frábærri frammistöðu. 29.11.2010 12:00
Birgir lék vel áður en keppni frestað vegna veðurs í lokaumferðinni Keppni var frestað í morgun á Spáni á lokakeppnisdegi á 2. stigi úrtökumótsins í golfi fyrir Evrópumótaröðina vegna úrkomu og hvassviðris. Birgir Leifur Hafþórsson hafði leikið 8 holur í morgun þegar keppni var frestað og var hann einu höggi undir pari í dag og samtals á -3. 29.11.2010 11:59
Guardiola: Við ætlum að sækja af krafti Rétt eins og aðrir Katalóníubúar þá bíður Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, spenntur eftir leiknum gegn Real Madrid í kvöld. Þó svo andstæðingurinn sé sterkur mun Barcelona spila sóknarbolta eins og alltaf. 29.11.2010 11:15
Mark Davies skoraði fallegasta markið í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar Mark Davies leikmaður Bolton skoraði fallegasta markið í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar en fimm bestu mörk umferðarinnar er að finna á visir.is. 29.11.2010 11:00
Hodgson hefur enn trú á Torres Roy Hodgson, stjóri Liverpool, segist enn hafa tröllatrú á framherjanum Fernando Torres sem hefur verið fjarri sínu besta í vetur. Hann var slakur á móti Spurs í gær og klúðraði þó nokkrum fínum færum. 29.11.2010 10:30
Mourinho: Heimurinn er að bíða eftir þessum leik Spánn nötrar því í kvöld fer fram fyrsti El Clásíco-leikurinn síðan José Mourinho tók við Real Madrid. Hann fer með lærisveina sína á Camp Nou í kvöld í rosalegum toppslag í spænsku deildinni. 29.11.2010 10:00
NBA: Lakers búið að tapa tveim leikjum í röð Indiana Pacers er á fínni siglingu í NBA-deildinni þessa dagana en liðið hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Þeir hafa ekki verið auðveldir því Pacers skellti Miami um daginn og svo meisturum LA Lakers í nótt og það í Staples Center. 29.11.2010 09:00
Kasi-Jesper vill láta AG spila á Parken Jesper Nielsen, eigandi AG Kaupmannahafnar, vill láta liðið spila úrslitaleikinn í dönsku úrvalsdeildinni fyrir framan 45 þúsund áhorfendur á Parken komist liðið í leikinn. 29.11.2010 08:00
Benzema farið að líða betur með hjálp Mourinho Karim Benzema segir að sér sé farið að líða mun betur í herbúðum Real Madrid með hverri vikunni. Hann skoraði gegn Ajax í Meistaradeildinni í síðustu viku og lífið orðið léttara. 29.11.2010 07:00
Andy Carroll: Ég og Rooney værum flottir saman Hinn ungi en grjótharði sóknarmaður Newcastle, Andy Carroll, hefur heldur betur slegið í gegn á tímabilinu. Hann hefur verið iðinn við kolann og skoraði meðal annars gegn Chelsea í dag. 29.11.2010 06:00
Mikið um meiðsli í herbúðum Kiel Alfreð Gíslason á í nokkrum vandræðum þessa dagana vegna mikilla meiðsla í leikmannahópi Þýskalandsmeistara Kiel. 28.11.2010 23:30
McDonald leggur flautuna á hilluna Dougie McDonald er hættur að dæma í Skotlandi en atvik sem kom upp í leik sem hann dæmdi fyrr í haust átti stóran þátt í því að dómarar ákváðu að fara í verkfall nú um helgina. 28.11.2010 23:00
Lindegaard mætir ekki á Old Trafford til að sitja á bekknum Danski markvörðurinn Anders Lindegaard verður orðinn leikmaður Manchester United í janúar. Hann segist ekki vera á leið á Old Trafford til að verma varamannabekkinn. 28.11.2010 22:30
Terry og Lampard gætu snúið aftur í næstu umferð Chelsea hefur saknað þeirra John Terry og Frank Lampard sárt að undanförnu. Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, sagði þó eftir leikinn að þeir myndu líklega snúa aftur til æfinga í þessari viku. 28.11.2010 22:00
Stóri Sam biður stuðningsmenn afsökunar Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn, hefur beðið stuðningsmenn félagsins sem horfðu á leikinn gegn Manchester United í gær afsökunar. 28.11.2010 21:30
Snæfell lagði Stjörnuna Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld. Íslandsmeistarar Snæfells komust á topp deildarinnar með sigri á Stjörnunni á heimavelli, 114-96. 28.11.2010 21:03
Enn tapaði TCU Helena Sverrisdóttir skoraði tíu stig fyrir TCU sem tapaði fyrir Virginia á æfingamóti á bandarísku Jómfrúaeyjunum í gær. 28.11.2010 20:30
Júlíus: Við erum ósmeyk við Evrópumeistaramótið Júlíus Jónasson var ánægður með hvernig leikmenn íslenska landsliðsins brugðust við slæmu tapi fyrir Noregi á æfingamótinu þar í landi nú um helgina. 28.11.2010 19:42
Sigurganga FCK heldur áfram Það eru fá lið í Evrópu sem hafa jafn mikla yfirburði í sinni deild og FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni. 28.11.2010 19:01
Kári hafði betur í Íslendingaslag Kári Kristján Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Wetzlar sem vann nauman sigur á Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 24-23. 28.11.2010 18:40
Man Utd og Liverpool drógust saman í bikarnum Nú um kvöldmatarleytið var dregið í þriðju umferð ensku FA-bikarkeppninnar. Það eru nokkrir mjög athyglisverðar viðureignir en stærsti leikurinn er án nokkurs vafa milli Manchester United og Liverpool á Old Trafford. 28.11.2010 18:30
Albuquerque kátur að sjá við tveimur heimsmeisturum Portúgalinn Filipe Albuquerque var kampakátur með að vinna kappakstursmót meistaranna í Düsseldorf í dag. Hann lagði í Formúlu 1 heimsmeistarann Þjóðverjann Sebastian Vettel í undanúrslitum og Frakkann Sebastian Loeb, heimsmeistara í rallakstri í úrslitum. Albuquerque er ekki heimsþekktur ökumaður á borð við þá tvo sem hann sá við í mótinu á lokasprettinum. 28.11.2010 18:21
Lennon skoraði sigurmarkið gegn Liverpool í uppbótartíma Martin Skrtel skoraði fyrir bæði lið þegar Tottenham vann 2-1 sigur á Liverpool í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Skemmtanagildi leiksins var feykilega hátt en Aaron Lennon skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma. 28.11.2010 18:20
Karlsson sigraði Poulter í spennandi bráðabana – Kaymer efstur á peningalistanum Sænski kylfingurinn Robert Karlsson sigraði á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem lauk í dag í Dubai. Hann hafði betur í bráðabana gegn Englendingnum Ian Poulter en Poulter gerði afdrifarík mistök á 18. flöt í bráðabananum. 28.11.2010 17:30
Brotið blað - Öll liðin skoruðu um helgina Fimmtánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar 2010-2011 kemst í sögubækurnar. Öllum liðum deildarinnar tókst að skora í umferðinni en það er í fyrsta sinn í sögu deildarinnar sem það gerist. 28.11.2010 17:28
Ancelotti: Þurfum að gera betur fyrir framan markið Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að liðið þurfi að fara að skora meira á útivöllum ef það ætli sér að verja Englandsmeistaratitil sinn. Þeir bláklæddu hafa aðeins skorað eitt útivallamark í síðustu þremur deildarleikjum. 28.11.2010 17:15
Björgvin Páll tryggði Schaffhausen fyrsta sigurinn í Meistaradeild Evrópu Kadetten Schaffhausen vann í dag sinn fyrsta sigur í C-riðli Meistaradeildar Evópu gegn Dinamo Minsk á erfiðum útivelli í Hvíta-Rússlandi, 32-31. 28.11.2010 16:55
Sol Campbell sáttur með stigið Sol Campbell, varnarmaður Newcastle, var ánægður eftir að hafa leikið sinn fyrsta byrjunarliðsleik í ensku úrvalsdeildinni fyrir félagið. Hann stóð sig vel í 1-1 jafntefli gegn Englandsmeisturum Chelsea í dag. 28.11.2010 16:30