Birgir lék vel áður en keppni frestað vegna veðurs í lokaumferðinni Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 29. nóvember 2010 11:59 Birgir Leifur Hafþórsson.
Keppni var frestað í morgun á Spáni á lokakeppnisdegi á 2. stigi úrtökumótsins í golfi fyrir Evrópumótaröðina vegna úrkomu og hvassviðris. Birgir Leifur Hafþórsson hafði leikið 8 holur í morgun þegar keppni var frestað og var hann einu höggi undir pari í dag og samtals á -3. Birgir er því í vænlegri stöðu að halda sér í hópi 23 efstu á þessu úrtökumóti þar sem að 80 kylfingar keppa um 23 laus sæti á lokaúrtökumótinu. Birgir notaði aðeins 10 pútt á 8 fyrstu holunum og er því að finna sig vel á flötunum. Fyrir lokakeppnisdaginn var Íslandsmeistarinn í 7.-8. sæti á -2 höggum undir pari. Veðurspáin er ekki góð fyrir daginn í dag og er óljóst hvort keppni hefst að nýju í dag. Lokaúrtökumótið hefst þann 4. desember í Katalóníu á Spáni þar sem að um 160 kylfingar keppa á tveimur völlum. Aðeins 30 efstu á því móti öðlast keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.
Golf Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira