Fleiri fréttir

Roma enn með fullt hús stiga | Emil byrjaði gegn Juventus

Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Hellas Verona sem tapaði 2-1 á útvelli fyrir Juventus í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag. Á sama tíma vann Roma nágranaslaginn við Lazio 1-0 og er enn með fullt hús stiga.

Gill: Kom aldrei til greina að selja Rooney

David Gill fyrrum yfirmaður knattspyrnumála hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United segir að aldrei hafi komið til greina að selja framherjann Wayne Rooney til Chelsea í sumar.

Eriksen: Ég valdi rétt

Danski leikstjórnandinn Christian Eriksen segist hafa valið rétt þegar hann valdi að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham sem Gylfi Þór Sigurðsson leikur með í ágúst.

Van Persie: Get vel spilað með Rooney

Hollenski framherjinn Robin van Persie hjá Englandsmeisturum Manchester United er hæst ánægður með að hafa Wayne Rooney ennþá sér við hlið eftir óvissuna með framtíð enska sóknarmannsins í sumar.

Nýr Kani í Stjörnuna

Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við bandarískan leikmanninn Nasir Robinson og mun hann því spila með liðinu á komandi leiktíð í Dominos-deild karla.

Umfjöllun, einkunnir og myndir: Valur - KR 1-2 | KR Íslandsmeistari 2013

KR varð í dag Íslandsmeistari í Pepsi-deild karla eftir, 2-1, sigur á Val á Vodafone-vellinum. Liðið hefur því tryggt sér titilinn fyrir lokaumferðina en mikil fagnaðarlætin brutust eftir leikinn. Gary Martin gerði bæði mörk KR í leiknum en þau komu bæði í fyrri hálfleik.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍBV 4-2 | Sex mörk í seinni hálfleik

Keflavík tryggði veru sína í úrvalsdeild karla í knattspyrnu með sigri á Eyjamönnum í leik sem fram fór á Nettó-vellinum í Keflavík í dag. ÍBV er þessar mundir að spila upp á stoltið en fyrir leik var orðið ljóst að liðið endar í fimmta eða sjötta sæti deildarinnar.

Paulinho hetja Tottenham

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff máttu sætta sig við grátlegt tap, 0-1, gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var Brasilíumaðurinn Paulinho sem skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.

City niðurlægði Englandsmeistarana

Manchester City rúllaði fyrir nágrana sína, Englandsmeistara Manchester United, 4-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag á heimavelli City. Staðan í hálfleik var 2-0.

Stoðsendingar Özil skutu Arsenal á toppinn

Arsenal lagði Stoke City að velli 3-1 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum tyllti Arsenal sér á topp deildarinnar en Tottenham getur náð liðinu að stigum seinna í dag. Mesut Özil lagði upp öll mörk Arsenal í leiknum.

Rodgers: Við byrjuðum aldrei leikinn

Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, var að vonum ekki sáttur með frammistöðu sinna manna í dag en liðið tapaði á heimavelli fyrir Sunderland 1-0.

KV upp í 1. deild | Myndir

KV komst í dag upp í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið gerði 1-1 jafntefli við Gróttu í hreinum úrslitaleik um sætið.

Mourinho hefur litla trú á Mata

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur virðist ekki hafa mikla trú á Juan Mata hjá Chelsea og hefur leikmaðurinn ekki fengið að spreyta sig mikið á tímabilinu.

Ofursunnudagur á Englandi

Manchester City tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á morgun en leikir þessara liða hafa oft sett mikinn svip á borgina. Aron Einar Gunnarsson fær Gylfa Þór Sigurðsson í heimsókn.

Hvaða lið fara upp í dag?

Lokaumferð 1. deildar karla í fótbolta fer fram í dag og hefjast allir leikirnir klukkan 14.00. Það er gríðarlega mikil spenna í loftinu enda toppbaráttan eins jöfn og hún getur verið. Það munar bara einu stigi á liðunum í fyrsta (Fjölni) til fjórða sæti (Víkingi, Grindavík og Haukum). BÍ/Bolungarvík er síðan aðeins tveimur stigum á eftir og því eiga enn fimm félög möguleika á því að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni 2014.

Aston Villa með flottan útisigur.

Aston Villa vann flottan sigur á Norwich á útivelli,1-0, og er liðið því komið með tíu stig í deildinni og situr í 10. sæti.

Sjá næstu 50 fréttir