Fleiri fréttir

Kylfusveinn Kristins verður í dómarabúningnum í dag

Körfuboltadómarinn Kristinn Óskarsson hefur slegið í gegn á fyrstu tveimur dögunum á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Kristinn hefur leikið fyrstu tvo hringina á einu höggi undir pari og er aðeins einu höggi á eftir efsta manni þegar keppni er hálfnuð.

Michael Phelps rétt slapp inn í úrslitin í einni sinn bestu grein

Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps var áttundi og síðastur inn í úrslitin í 400 metra fjórsundi þegar undarrásirnar fóru fram í morgun á fyrsta degi sundkeppni Ólympíuleikanna í London. Það var ekki það eina óvænta í morgun því Ólympíumeistarinn í 400 metra skriðsundi, Park Tae-hwan, var dæmdur úr leik og Heimsmethafinn í sömu grein, Paul Biedermann, komst ekki í úrslitin.

Hamilton verður á ráspól í Ungverjalandi

Lewis Hamilton á McLaren mun ræsa á ráspól í ungverska kappakstrinum á morgun. Hamilton var heilum fjórum tíundu úr sekúndu á undan Romain Grosjean á Lotus. Romain hefur aldrei ræst ofar í Formúlu 1.

Ásgeir Örn: Ræst mjög snemma

Íslenska landsliðið reif sig snemma á fætur í gærmorgun til að fara á æfingu í æfingahöllinni sem handboltalandsliðin hafa aðgang að hér í Lundúnum.

23 ára kínversk kona vann fyrstu gullverðlaunin á ÓL í London

Yi Siling, 23 ára kona frá Kína, vann fyrstu gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í London þegar hún tryggði sér sigur í keppni í tíu metra loftriffli. Sigur hennar kom ekki á óvart því hún er efst á heimslistanum, heimsmeistari og heimsmethafi.

Villas-Boas: Ekkert nógu gott tilboð í Modric

Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, segir að félaginu hafi ekki borist nein frekari tilboð í Króatann Luka Modric sem hefur verið orðaður við spænsku meistarana í Real Madrid í allt sumar. Tottenham vill fá mun meira fyrir leikmanninn en Real var tilbúið að borga.

Jakob Jóhann ekki nálægt sínu besta

Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi, varð fimmti í sínum riðli í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London og var ekki nálægt sínu besta.

Fréttaskýring: Áhrif dekkjanna á keppnina í F1

Það er ekki tekið út með sældinni að vera ökuþór í Formúlu 1 í sumar því Pirelli-dekkin hafa gert leikinn enn flóknari en hann var. Dekkin eru hönnuð þannig að þau endast skemur og árangurinn sem kreista má úr nýjum dekkjum er mun meiri en úr notuðum dekkjum. Þannig hefur leikurinn verið gerður jafnari með því að kasta öllum liðum og starfsfólki þeirra á byrjunarreit.

Sarah Blake: Maður vill alltaf meira

Sarah Blake Bateman var vitanlega ánægð og glöð með nýja Íslandsmetið sem hún setti í 100 m flugsundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í morgun.

Sarah Blake setti nýtt Íslandsmet

Sarah Blake Bateman, 22 ára sundkona úr Ægi, setti Íslandsmet í sínu fyrsta sundi á Ólympíuleikunum í London og er hún fyrst af íslenska sundfólkinu til að setja Íslandsmet.

Anton Sveinn: Ótrúlegt að heyra fagnaðarlætin

Anton Sveinn McKee var fyrsti Íslendingurinn sem keppti á Ólympíuleikunum í Lundúnum en það gerði hann í 400 m fjórsundi í morgun. Hann var þó nokkuð frá sínu besta í greininni en var glaðbeittur í viðtali við blaðamann eftir að hann kom upp úr lauginni.

Ásgeir: Fórnaði glaður sumarfríinu

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson er næstur í röðinni en hann keppir í loftskammbyssu af 10 m færi í dag.

Jakob Jóhann: Ríó 2016 er lokkandi

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Jakob Jóhann Sveinsson þarf þó varla kynningu enda að keppa á sínum fjórðu Ólympíuleikum.

Lygilegur veiðidagur feðga í Hofsá

Feðgar lentu í ævintýri í Hofsá . Á morgunvaktinni veiddi sonurinn 100 sentímetra lax en síðdegis gerði pabbinn betur og veiddi 101 sentímetra lax.

Sarah Blake: Betra en í Peking

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Hin hálfbandaríska Sarah Blake Bateman er nú að keppa sínum öðrum leikum fyrir Íslands hönd.

Íslandsmótið í höggleik: Þriðji dagurinn í beinni á Vísi

Þriðji dagur á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi. Það er mikil spenna í bæði karla- og kvennaflokki og það stefnir því í skemmtilegan dag í blíðunni á Hellu.

Boris Johnson skaut á Mitt Romney

Boris Johnson, borgarstjórinn í London, nýtti tækifærið í Hyde Park í gærkvöldi og svaraði fyrir gagnrýni Mitt Romney, forsetaframbjóðanda Repúblikana, á dögunum.

Sigmundur efstur á Hellu | gríðarleg spenna á toppnum

Sigmundur Einar Másson úr GKG er efstur þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik í golfi á Strandarvelli á Hellu. Íslandsmeistarinn frá árinu 2006 er með eitt högg í forskot á Kristinn Óskarsson sem er úr GS. Sigmundur er samtals á 3 höggum undir pari en hann lék á 69 höggum í dag eða einu höggi undir pari. Kristinn, sem er betur þekktur sem körfuknattleiksdómari, hefur leikið báða hringina á 69 höggum. Rúnar Arnórsson úr Keili, sem var í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn er í þriðja sæti á einu höggi undir pari vallar.

LeBron sammála Kobe: Við myndum vinna draumaliðið frá 1992

LeBron James er mættur til London ásamt bandaríska körfuboltalandsliðinu og á möguleika á að vinna sitt annað Ólympíugull. Hann er sammála Kobe Bryant með það að bandaríska liðið í dag sé betra en draumaliðið frá 1992.

Raikkönen hefur fundið það sem vantaði

Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1 segist nú hafa fundið það sem uppá vantaði svo að hann gæti kreist það besta úr bíl sínum. Kimi hefur staðið sig vel það sem af er tímabilinu og staðið þrisvar sinnum á verðlaunapalli.

Leiknismenn sluppu úr botnsæti 1.deildar

Leiknir vann 2-1 sigur á KA fyrir norðan í kvöld í 13. umferð 1. deildar karla og lærisveinar Willums Þórs Þórssonar komust fyrir vikið upp úr botnsæti deildarinnar og hoppuðu alla leið upp í 9. sætið.

Julio Cesar ekki í Evrópudeildarhópi Inter

Julio Cesar og Giampaolo Pazzini voru ekki valdir í leikmannahóp Inter í Evrópudeildinni í vetur. Flest bendir til þess að þeirra tími sem lykilmenn í liði Inter sé liðinn.

Aron: Mjög mikill léttir

Aron Pálmarsson er kominn aftur á fullt skrið með íslenska landsliðinu - ekki seinna vænna enda aðeins tveir daga í fyrsta leik þess á Ólympíuleikunum í Lundúnum.

Sigmundur Einar ætlar sér að landa titlinum á Hellu

Sigmundur Einar Másson úr GKG er til alls líklegur á lokadögunum tveimur á Íslandsmótinu í höggleik. Sigmundur, sem sigraði á Íslandsmótinu árið 2006, lék á 69 höggum í dag eða -1 og er hann samtals á -3 og er hann þessa stundina í efsta sæti mótsins.

Æfingalaus körfuboltadómari stimplaði sig inn í toppbaráttuna

Kristinn Óskarsson hefur komið skemmtilega á óvart á fyrstu tveimur keppnisdögunum á Íslandsmótinu í höggleik í golfi. Kristinn, sem er betur þekktur sem einn reyndasti körfuknattleiksdómari landsins er þegar þetta er skrifað í efsta sæti mótsins ásamt fleiri kylfingum. Kristinn, sem leikur fyrir GS, er með 1,3 í forgjöf, hefur leikið báða hringina á Strandarvelli á Hellu á 1 höggi undir pari vallar.

Enska knattspyrnusambandið ákærir Terry | Neitar sök

Enska knattspyrnusambandið hefur ákært John Terry, miðvörð Chelsea, fyrir orðbragð sitt í garð Antons Ferdinand, leikmanns QPR, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í október. Terry hefur neitað sök og óskað eftir fundi með aganefnd sambandsins.

Mascherano búinn að gera nýjan samning við Barcelona

Argentínumaðurinn Javier Mascherano hefur samþykkt að gera nýjan samning við Barcelona og mun nýi samningurinn ná til ársins 2016. Mascherano lék áður með Liverpool en kom til Barca fyrir tveimur árum.

Hnífjafnt á Hellu | Anna og Valdís deila efsta sætinu

Anna Sólveig Snorradóttir, 17 ára kylfingur úr Keili, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni Akranesi deila efsta sætinu þegar keppni er hálfnuð á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Anna Sólveig og Valdís eru samtals á 6 höggum yfir pari vallar en tveimur höggum þar á eftir kemur Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO.

Snorri: Ég verð með

Snorri Steinn Guðjónsson er enn að glíma við sinaskeiðabólgu sem hefur haldið honum á hliðarlínunni undanfarna daga. Hann segist þó ætla að vera með í fyrsta leik Íslands á Ólympíuleikunum.

Strákarnir tóku æfingu í morgunsárið | Myndir

Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu voru mættir út í æfingahöll sína í Lundúnum í morgunsárið og tóku hraustlega á því. Ekki furða því fyrstu tveir leikir Íslands eru klukkan 9.30 að staðartíma.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Valur - 0-2 | Valur í úrslit fimmta árið í röð

Valsarar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum Borgunarbikarsins í knattspyrnu kvenna með sigri á KR, 2-0, í Frostaskjólinu. Johanna Rasmussen gerði fyrra mark Vals í leiknum en það síðara kom í uppbótartíma þegar Rakel Logadóttir skoraði glæsilegt mark. Þetta er fimmta árið í röð sem Valur kemst í úrslit bikarsins.

Fimmtán ára gengið stendur sig vel á Hellu

Það vekur athygli að fimm kylfingar sem taka þátt á Íslandsmótinu í golfi eru aðeins fimmtán ára gamlir en þau er öll fædd árið 1997. Þrír drengir eru karlaflokknum og tvær stúlkur. Árangur þeirra er með ágætum og það er greinilegt að ný kynslóð afrekskylfinga bíður handan við hornið.

Íslenska sveitin ekki fullskipuð í kvöld

Nokkrir af íslensku keppendunum á Ólympíuleikunum í Lundúnum verða fjarri góðu gamni þegar íslenska sveitin gengur inn á Ólympíuleikvanginn í setningarhátíðinni í kvöld.

Axel stimplaði sig inn í baráttuna með frábærum hring

Axel Bóasson, Íslandsmeistari í höggleik, lét verkin tala í dag á öðrum keppnisdegi Íslandsmótsins þar sem hann lék á 66 höggum eða 4 höggum undir pari vallar. Axel var í miklu stuði í dag og fékk hann alls sjö fugla á hringnum. Axel er samtals á pari Strandarvallar en hann hóf titilvörnina frekar illa í gær þar sem hann lék á 74 höggum.

Manchester City vann Arsenal á Ólympíuleikvanginum í Peking

Englandsmeistarar Manchester City unnu Arsenal 2-0 í æfingaleik liðanna á Ólympíuleikvanginum í Peking í dag en bæði félögin eru á æfingaferðalagi í Asíu. Pablo Zabaleta og Yaya Touré skoruðu mörk City-liðsins í leiknum.

Sjá næstu 50 fréttir