Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun: Srjdan landaði sigrinum Þórsarar unnu virkilega góðan sigur á ÍBV á heimavelli sínum á Akureyri í kvöld. Þeir geta þakkað Srjdan Rajkovic markmanni sínum fyrir stigin þrjú en hann átti magnaðan leik í 2-1 sigrinum. 7.6.2011 18:15
Umfjöllun: Jafnt hjá Breiðabliki og Fram Breiðablik og Fram gerðu 1-1 jafntefli á Kópavogsvelli í kvöld í leik sem óttalega bragðdaufur þar til liðin höfðu skorað sitt hvort markið. 7.6.2011 18:15
Petrov búinn að jafna sig eftir óhapp í mótinu í Mónakó Vitaly Petrov hjá Renault liðinu er búinn að jafna sig eftir óhapp sem hann varð fyrir í keppninni í Mónakó á dögunum. Stöðva þurfti keppnina á meðan hugað var að Petrov, sem varð fyrir hnjaski og bíll hans stöðvaðist í brautinni, auk fleiri bíla. Petrov segir að hann hafi verið í slag um fjórða sætið í Mónakó, áður en að óhappinu kom. 7.6.2011 17:50
Crouch: Mun ekki leggja landsliðsskóna á hilluna Enski landsliðsmaðurinn Peter Crouch gefur lítið fyrir sögusagnir þess efnis að hann ætli að hætta að gefa kost á sér í landsliðið. Crouch segist hafa orðið pirraður að hafa ekki verið í hópnum gegn Sviss um helgina. Hann elski þó að spila fyrir þjóð sína og muni halda því áfram. 7.6.2011 17:45
Kovalainen telur mótið í Kanda einn af hápunktum keppnistímabilsins Heikki Kovalainen hjá Lotus liðinu telur að Formúlu 1 mótið í Kanada sé einn af hápunktum keppnistímabilsins, en keppt verður í Montreal um næstu helgi. Liðsfélagi hans Jarno Trulli segist alltaf hafa verið óheppinni á mótssvæðinu í Montreal. 7.6.2011 17:07
Formenn knattspyrnusambanda í karabíska hafinu yfirheyrðir Siðanefnd FIFA hefur boðað formenn knattspyrnusambandanna 25 í karabíska hafinu til yfirheyrslu. Rannsaka á hvort formönnunum hafi verið boðnar mútugreiðslur fyrir atkvæði sitt í forsetakosningum FIFA í síðustu viku. 7.6.2011 17:00
Opnunarhollið í Blöndu með 11 laxa Opnunin í Blöndu endaði í 11 löxum, 10 þeirra voru á bilinu 10 - 14 pund en eitt örverpi var í hópnum. Auk þessara 11 settu menn í og misstu svipaðan fjölda við erfið skilyrði. Engu að síður eru menn sáttir við opnunina, enda einungis veitt á 4 stangir. 7.6.2011 16:44
Henderson og Doni orðaðir við Liverpool Enski landsliðsmaðurinn Jordan Henderson er sterklega orðaður við Liverpool. Liverpool eru sagðir hafa gert tvö tilboð, síðast upp á 16 milljón pund en báðum tilboðum var hafnað af Sunderland. Talið er að Sunderland vilji 20 milljón pund fyrir leikmanninn. 7.6.2011 16:30
Öqvist hefur valið sinn fyrsta landsliðshóp Svíinn Peter Öqvist, sem nýverið var ráðinn þjálfari A-landsliðs karla í körfuknattleik hefur valið sinn fyrsta æfingahóp ásamt aðstoðarmönnum sínum. Alls eru 22 leikmenn í hópnum sem mun æfa fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Sundsvall í sumar. 7.6.2011 16:00
Veiðihelgi framundan, loksins hlýindi í kortunum Það er víst að veiðimenn landsins eru orðnir langþreyttir á þessu kuldaveðri sem hefur legið yfir landinu undanfarnar vikur. Hitinn í kortunum þessa vikuna er til dæmis hvergi mikið yfir 9 gráðum og víða fyrir norðan og inná hálendi á að frysta í nótt og jafnvel snjóa. Þetta gerir það að verkum að lífríkið er ekki almennilega farið af stað og vötnin ennþá mjög köld. 7.6.2011 15:38
Opnunarhollið í Norðurá hefur tekið saman stangirnar Opnunarhollið í Norðurá endaði í tólf löxum. Einn lax fékkst í morgun á svæðinu Norðurá II, grálúsugur 80 cm fiskur í Skeifunni að austanverðu. 7.6.2011 15:32
Fær Isiah Thomas tækifæri hjá Detroit Pistons? Joe Dumars, framkvæmdastjóri NBA liðsins Detroit Pistons, er í leit að þjálfara fyrir liðið og þarf eitthvað mikið að gerast á þeim vígstöðvum þar sem að gengi liðsins hefur verið afleitt. Dumars mun ræða formlega við þrjá aðila á næstunni, Mike Woodson, Kelvin Sampson og Bill Laimbeer sem var liðsfélagai Dumars á árum áður þegar Detroit vann fyrstu NBA titla félagsins. 7.6.2011 15:00
Aron Pálmarsson ekki með gegn Lettlandi Aron Pálmarsson er á leið heim til Íslands í meðferð á meiðslum sínum. Hann verður því fjarri góðu gamni þegar landsliðið mætir Lettum í lykilleik í undankeppni EM 2012 í handknattleik á morgun. Ólafur Bjarki Ragnarsson leikmaður HK hefur verið kallaður inn í hópinn í stað Arons. 7.6.2011 14:52
Blatter vill ráðleggingar frá Placido Domingo Sepp Blatter nýkjörinn forseti FIFA vill fá spænska óperusöngvarann Placido Domingo í lið með sambandinu. Domingo á að sitja í einskonar ráðgjafarráði sem er nýjasta hugmynd Blatter til þess að hreinsa til innan sambandsins. Auk Domingo hefur hann óskað eftir því að Henry Kissinger og knattspyrnugoðsögnin Johann Cruyff taki sæti í ráðinu. 7.6.2011 14:30
Heiðar og Brynjar Björn framlengja samninga sína Heiðar Helguson skrifaði í morgun undir eins árs samning við QPR. Liðið mun leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta ári eftir að hafa sigrað Championship-deildina með nokkrum yfirburðum. Heiðar þótti spila mjög vel á tímabilinu og legið í loftinu að samningur hans yrði framlengdur. 7.6.2011 14:00
Hiddink vill fá Sneijder til Chelsea Guus Hiddink hefur enn ekki verið ráðinn sem knattspyrnustjóri Chelsea en flest bendir til þess að hann taki við liðinu. Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Hiddink hafi nú þegar óskað eftir því að forráðamenn Chelsea reyni að fá hollenska landsliðsmanninn Wesley Sneijder frá Inter á Ítalíu. Er talið að Chelsea sé tilbúið að greiða um 30 milljónir punda fyrir Sneijder – eða um 5,6 milljarða kr. 7.6.2011 13:30
NBA: Chris Bosh er klár í slaginn gegn Dallas í kvöld Chris Bosh leikmaður Miami Heat er klár í slaginn í kvöld þegar fjórði leikurinn í úrslitum NBA deildarinnar fer fram en Miami er 2-1 yfir gegn Dallas Mavericks. Bosh meiddist í þriðja leiknum þegar hann fékk putta í vinstra augað en hann kláraði samt leikinn og skoraði hann mikilvæga körfu undir lok leiksins sem reyndist vera sigurkarfan í 88-86 sigri liðsins. 7.6.2011 13:00
Íslandsvinurinn Jon Dahl Tomasson leggur skóna á hilluna Hollenskir fjölmiðlar greina frá því að sanski landsliðsframherjinn Jon Dahl Tomasson hafi lagt fótboltaskóna á hilluna og mun Tomasson greina frá ákvörðun sinni á fundi með fréttamönnum í dag. Tomasson á ættir að rekja til Íslands en hann er 34 ára gamall og hefur ekkert leikið með Feyenoord í Hollandi á þessu tímabili vegna meiðsla. 7.6.2011 12:30
Þórir samdi við pólska stórliðið Kielce Þórir Ólafsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur gert tveggja ára samning við Pólska stórliðið Kielce. Þórir sem leikið hefur með þýska 1.deildarliðinu Lübbecke síðastliðin ár er fyrsti Íslendingurinn sem semur við Kielce. 7.6.2011 12:00
Jackson mun þjálfa Golden State Golden State Warriors hefur ráðið Mark Jackson sem þjálfara NBA liðsins en hann hefur aldrei þjálfað NBA lið áður. Jackson lék í 17 ár sem leikstjórnandi í deildinni með New York, Clippers, Indiana, Denver, Toronto, Utah og Houston. Á undanförnum árum hefur hann starfað sem körfubolta sérfræðingur í sjónvarpi. Jackson er þriðji á lista yfir stoðsendingahæstu leikmenn NBA deildarinnar frá upphafi en hann var valinn nýliði ársins vorið 1988. 7.6.2011 11:45
Dunká komin til SVFR Tilboð voru opnuð fyrir fáum dögum í tilboð í Dunká. Alls bárust tilboð frá um 10 aðilum í Dunká sem er tveggja stanga perla þar sem veiðimenn sjá um sig sjálfur en mikil eftirspurn hefur verið eftir leyfum í ár þar sem ekki er skylda á fæði og gistingu. 7.6.2011 11:27
Þormóður endaði í sjöunda sæti á heimsbikarmóti í Búkarest Júdómaðurinn Þormóður Jónsson varð í sjöunda sæti á Heimsbikarmóti í Búkarest um helgina í +100 kg flokki en þangað fór hann strax að loknum Smáþjóðaleikunum ásamt Hermanni Unnarssyni sem keppti í -81 kg flokki. 7.6.2011 11:00
Ashley Young líklega á leiðinni til Man Utd Ashley Young leikmaður Aston Villa mun að öllum líkindum ganga í raðir enska meistaraliðsins Manchester United í sumar. Samkvæmt frétt DailyMail er Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Man Utd tilbúinn að borga 20 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn eða sem nemur um 3,7 milljarða kr. 7.6.2011 10:15
Zlatan Ibrahimovich með enn eitt gullkornið Zlatan Ibrahimovich, þarf ekki að berja í sig sjálfstraust á hverjum einasta degi, því hann fullyrðir að hann sé besti fótboltamaður heims. Nýjasta útspil sænska landsliðsframherjans hefur vakið mikla athygli og flestir fótboltasérfræðingar hafa einfaldlega hlegið þegar þeir hafa heyrt af þessari skoðun framherjans. 7.6.2011 09:30
Martin Jol tekur við Fulham Enska úrvalsdeildarliðið Fulham sem Eiður Smári Guðjohnsen lék með á síðustu leiktíð hefur ráðið Hollendinginn Martin Jol sem knattspyrnustjóra og tekur hann við af Mark Hughes. Jol gerir tveggja ára samning við Fulham en hann þekkir ensku úrvalsdeildina vel eftir að hafa verið knattspyrnustjóri hjá Tottenham. Jol, sem er 55 ára gamall, gerir tveggja ára samning við félagið. 7.6.2011 09:00
Fylkismenn fögnuðu í Fossvoginum - myndir Fylkismenn menn fara í EM-fríið með tvo sigra í röð á bakinu eftir að þeir unnu 3-1 sigur á Víkingum í Víkinni í gærkvöldi. Fylkir verður því í hópi efstu liða deildarinnar þegar mótið hefst á nýjan leik í lok mánaðarins. 7.6.2011 08:30
Fyrsti sigur Stjörnumanna á teppinu í sumar - myndir Mörk frá Garðari Jóhannssyni og Halldóri Orra Björnssyni með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik tryggðu Stjörnumönnum 2-1 sigur á Grindavík á teppinu í Garðabænum í gær. 7.6.2011 08:00
Miðstöð Boltavaktarinnar - allt á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. 7.6.2011 18:15
Burress sleppur úr steininum í dag Vandræðagemsinn Plaxico Burress sleppur úr steininum í dag en hann hefur mátt dúsa þar síðustu 20 mánuði fyrir að skjóta af byssu á næturklúbbi í New York. 6.6.2011 23:30
Ólafur: Flottur leikur Ólafur Þórðarson þjálfari Fylkis var ákaflega ánægður og stoltur af sínu liðið eftir glæsilegan 3-1 sigur á Víkingum í kvöld á Víkingsvellinum. 6.6.2011 22:46
Jóhann Helgason: Menn stressaðir á boltann Jóhann Helgason var besti leikmaður Grindavíkur í 2-1 tapi gegn Stjörnunni í kvöld. Þrátt fyrir að hafa verið með vindinn í bakið allan síðari hálfleikinn í leit að marki tókst Grindvíkingum ekki að skapa sér nógu góð færi. 6.6.2011 22:45
Andri: Mætum af krafti eftir frí Andri Marteinsson þjálfari Víkings var ekki í neinum vafa um það hver vendipunkturinn í tapinu gegn Fylki í kvöld var. Það var glæsimark Baldurs Bett aðeins mínútu eftir að Víkingar höfðu jafnað metin í upphafi seinni hálfleiks. 6.6.2011 22:44
Daníel Laxdal: Kominn tími á þetta Daníel Laxdal fyrirliði Stjörnunnar fór fyrir sínum mönnum í Garðabænum í kvöld. Hann var sáttur með fyrsta sigurinn á heimavelli í sumar. 6.6.2011 22:35
Staða HK versnar enn eftir tap á Selfossi - markalaust í Ólafsvík Selfyssingar fögnuðu langþráðum heimasigri í kvöld þegar þeir unnu 4-2 sigur á HK í 5. umferð 1. deildar karla. Selfyssingar höfðu ekki fengið stig í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í sumar a móti Fjölni og ÍA en tryggðu sér mikilvægan sigur í kvöld. 6.6.2011 22:19
Stelpurnar unnu stærsta sigurinn í umspilinu Íslenska kvennalandsliðið vann stærsta sigurinn í öllum átta umspilsleikjunum sem fóru fram um helgina í undankeppni HM handbolta kvenna. Úrslitakeppnin fer fram í Brasilíu í desember næstkomandi og aðeins stórslys kemur í veg fyrir að íslenska liðið verði þar eftir 19 marka sigur á Úkraínu. Næststærsti sigurinn var 16 marka sigur Svartfellinga á Tékkum. 6.6.2011 20:30
Geir: Ólafur búinn að læra þessa hegðun af þeim stóru í útlöndum Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, var í viðtali við Ásgeir Erlendsson í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem hann fór yfir gengi íslenska karlalandsliðsins og stöðu Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara. 6.6.2011 19:55
Íranska kvennalandsliðinu meinað að spila vegna keppnisbúnings Möguleikar íranska kvennalandsliðsins í knattspyrnu að spila á ólympíuleikunum í London að ári virðast að litlu orðnir. Gengi liðsins í undankeppninni hefur verið með ágætum en það er keppnisbúningur landsliðsins sem alþjóða knattspyrnusambandið FIFA sættir sig ekki við. 6.6.2011 19:45
Alfreð sektaður um rúmar 400 þúsund krónur og dæmdur í bann Alfreð Gíslason, þjálfari þýska liðsins Kiel, var dæmdur í eins leiks bann og til þess að greiða 2500 evrur í sekt af aganefnd evrópska sambandsins vegna ummæla sinna eftir leik Kiel og Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í vetur. Sektin nemur um 416 þúsund íslenskum krónum. 6.6.2011 19:15
Umfjöllun: Fylkir áfram á góðri siglingu Fylkir gerði góða ferð á Víkingsvöll í kvöld þar sem liðið lagði heimamenn í Víking sannfærandi 3-1. Fylkir var betra liðið nær allan leikinn og þegar Víkingar komu sér inn í hann með jöfnunarmarki svöruðu gestirnir jafnharðan í tvígang og gerðu út um leikinn. 6.6.2011 19:00
Ancelotti ætlar að læra af öðrum þjálfurum Carlo Ancelotti fyrrverandi þjálfari Chelsea ætlar að taka sér ársleyfi frá þjálfarastörfum. Hann ætlar að nota tímann til þess að heimsækja aðra knattspyrnuþjálfara. 6.6.2011 17:45
O'Hara til Wolves fyrir 5 milljónir punda Enski miðvallarleikmaðurinn Jamie O'Hara hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Wolves frá Tottenham. O'Hara skrifaði undir fjögurra ára samning við Wolves en hann var á láni hjá liðinu í vetur. Kaupverðið er fimm miljónir punda. 6.6.2011 17:15
Ung aflakló með stórfisk úr Þingvallavatni Hún Helga Kristín sendi okkur eftirfarandi veiðifrétt og mynd af ungum veiðimanni sem má klárlega kalla aflakló. 6.6.2011 17:00
Arna Sif skiptir um lið í dönsku deildinni Landsliðslínumaðurinn Arna Sif Pálsdóttir er búin að finna sér nýtt lið í dönsku úrvalsdeildinni en hún er búin að semja við Aalborg DH liðið eftir að hafa spilað með Team Esbjerg á síðasta tímabilið. 6.6.2011 16:30
Veiði að glæðast í Meðalfellsvatni Við fengum þær fréttir frá Einari Sigurðssyni sem var við veiðar á laugardaginn við Meðalfellsvatn að veiðin væri loksins að glæðast. Einar var við veiðar ásamt syni sínum og lönduðu þeir 12 fiskum fyrir hádegið en urðu lítið varir eftir hádegi. 6.6.2011 16:23
Lagt til að alfriða stórlax í veiðiánum sumarið 2011 Líkt og í fyrra, þá leggur Veiðimálastofnun til algjört bann við drápi á stórlaxi í sumar. Stangaveiðimenn og veiðifélög eru hvött til að fylgja þessum tillögum. Á heimasíðu stofnunarinnar segir; 6.6.2011 16:13