Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Carlo Ancelotti: Ashley Cole mun spila á HM í sumar Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, er viss um að Ashley Cole verði orðinn góður af ökklabroti sínu fyrir HM í Suður-Afríku í sumar en Cole meiddist á móti Everton í vikunni og verður frá í þrjá mánuði. 12.2.2010 23:45
Tvenna Huntelaar kom AC Milan á sigurbraut á nýjan leik Hollendingurinn Klaas Jan Huntelaar skoraði tvö mörk í 3-2 sigri AC Milan á Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en þetta var fyrsti sigur AC Milan í fimm leikjum og kom á góðum tíma fyrir fyrri leikinn á móti Manchester United í Meistaradeildinni í næstu viku. 12.2.2010 23:21
Of mikil refsing að dæma víti og reka manninn líka útaf Reglunefnd alþjóðafótboltans, International Football Association Board, sem er sú nefnd sem ákveður reglurnar í knattspyrnunni, hefur fengið áskorun um að breyta reglunni sem fjallar um það þegar leikmaður fær bæði á sig víti og rautt spjald. 12.2.2010 22:30
Önnur þáttaröð af áskorendakeppni Shaquille O'Neal Sjónvarpsstöðin ABC hefur ákveðið að gera aðra þátttaröð með körfuboltamanninum Shaquille O'Neal en þættirnir sem heita "Shaq Vs." sýna NBA-tröllið skora á fræga íþróttamenn í þeirra íþróttagrein. 12.2.2010 21:45
KFÍ komið með annan fótinn í Iceland Express deildina KFÍ steig stórt skref í átt að úrvalsdeildarsæti eftir 77-76 sigur á Skallagrími í Borgarnesi í 1. deild karla kvöld. Ísfirðingar þurfa núna bara að vinna einn af síðustu þremur leikjum sínum til þess að tryggja sér sæti í Iceland Express deildinni. 12.2.2010 21:00
Semaj byrjaði með látum hjá Haukum - skoraði 46 stig á 28 mínútum Semaj Inge sýndi mátt sinn á körfuboltavellinum á Ásvöllum í kvöld þegar hann fór mikinn í 52 stiga sigri Hauka á ÍA, 131-79 í 1. deild karla. Semaj skoraði 46 stig á 28 mínútum í leiknum en þetta var fyrsti leikur hans með Hafnarfjarðarliðinu. 12.2.2010 20:33
21. Vetrarólympíuleikarnir settir í Vancouver í nótt Opnunarhátíð 21. vetrarólympíuleikanna fer fram í Vancouver í Kanada í nótt og verður hún í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Útsendingin hefst klukkan tvö í nótt en þá munu keppendur frá 82 þjóðum ganga inn á BC Place leikvanginn. 12.2.2010 20:15
Björn Bergmann skoraði fyrir Lilleström í kvöld Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður og skoraði þriðja mark Lilleström í 3-2 sigri á Zenit St Petersburg á La Manga æfingamótinu á Spáni. Björn Bergmann kom norska liðinu í 3-1 aðeins tíu mínútum eftir að hann hafði komið inn á sem varamaður. 12.2.2010 19:30
Rauða spjaldið hans Boateng dregið til baka Enska knattspyrnusambandið hefur dregið til baka rauða spjaldið sem George Boateng, miðjumaður Hull, fékk í leik á móti Blackburn í vikunni. George Boateng sleppur því við þriggja leikja bann. 12.2.2010 18:45
Valencia: Þetta verða stærstu leikir á ferli mínum Vængmaðurinn Antonio Valencia hjá Manchester United kveðst vart geta beðið eftir leikjunum gegn AC Milan í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. 12.2.2010 18:00
Formaður og framkvæmdastjóri KKÍ verða á stjörnuleiknum Íslendingar munu eiga í það minnsta þrjá fulltrúa á stjörnuleik NBA-deildarinnar sem fram fer í Dallas á sunnudag. 12.2.2010 17:15
Heimamaðurinn Alugersuari fljótastur á Spáni Spænski ökumaðurinn Jamie Alguersuari á Torro Rosso var fljótastur allra á Jerez brautinni í dag, þar sem væta gerði vart við sig annað slagið. Alguersuari er aðeins 19 ára gamall og með nýjan samning við liðið sem hann byrjaði með í fyrra 12.2.2010 16:46
Ronaldo: Menn mega ekki vanmeta ítölsku félögin Stórstjarnan Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid er bjartsýnn á gott gengi spænska félagsins í Meistaradeildinni en liðið mætir franska félaginu Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 12.2.2010 16:30
Hóf vikuna með KR en endar hana með Haukum í kvöld Semaj Inge fór ekki langt þegar KR-ingar ráku hann á miðvikudagskvöldið því þessi bandaríski bakvörður hefur gert samning við 1.deildarlið Hauka og ætlar að reyna að hjálpa Hafnarfjarðarliðinu að komast upp í Iceland Express deildina. 12.2.2010 15:45
Atli fer ekki til Tromsö FH-ingurinn Atli Guðnason er á heimleið og mun ekki fá samningstilboð frá norska félaginu Tromsö. 12.2.2010 15:16
Hvað gerist ef Portsmouth verður hent úr úrvalsdeildinni? Enska fótboltaliðið Portsmouth, sem landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson spilar með, fékk í gær frest fram í næstu viku til þess að greiða um 12 milljóna punda skattaskuld. 12.2.2010 15:15
Umboðsmaður: AC Milan og Real Madrid á eftir Krasic Ef marka má nýlegt viðtal við umboðsmann serbneska landsliðsmannsins Milos Krasic hjá CSKA Moskvu þá mun leikmaðurinn vera undir smásjá stórliða á borð við AC Milan og Real Madrid. 12.2.2010 14:45
Daily Mail: Torres stefnir á endurkomu gegn City Samkvæmt heimildum Daily Mail þá hefur framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool sett stefnuna á að vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Manchester City 21. febrúar. 12.2.2010 14:00
Enn breytingar í vændum hjá QPR - Matthaus orðaður við félagið Daily Mail kveðst hafa heimildir fyrir því að enska b-deildarfélagið QPR sé enn og aftur að huga að breytingum og að staða knattspyrnustjórans Mick Harford hangi nú á bláþræði. 12.2.2010 13:30
Kobe og Iverson ekki með í stjörnuleiknum Kobe Bryant og Allen Iverson hafa báðir dregið sig úr stjörnuleik NBA sem fram fer um helgina en báðir voru þeir kosnir í byrjunarlið leiksins. 12.2.2010 12:45
Nani: Ferguson var reiður út í mig Portúgalinn Nani viðurkennir að Sir Alex Ferguson hafi ekki verið par sáttur er Nani lét reka sig af velli gegn Aston Villa. 12.2.2010 12:15
Capello líkir Rooney við Raul Landsliðsþjálfari Englands, Fabio Capello, segir að það sé margt sameiginlegt með Wayne Rooney og Spánverjanum Raul. 12.2.2010 11:30
Nektarmyndir af Ashley Cole í umferð Ashley Cole er afar skömmustulegur þessa dagana eftir að hann viðurkenndi að nektarmyndir af honum hafi óvænt komist í umferð. 12.2.2010 11:00
Webber: Red Bull með sigurbíll Ástralinn Mark Webber telur að nýi Red Bull bíllinn sé líklegur sigurvegari í Formúlu 1 mótum ársins, en hann keyrði bílinn eftir frumsýningu hans í vikunni og fór 99 hringi um Jerez brautina. Hann var þó aðeins með níunda besta tíma. 12.2.2010 10:56
Vaxmynd af Gerrard á Anfield Vaxmynd af Steven Gerrard kemur í hið fræga vaxmyndasafn Madame Tussaud í London á næstu dögum. Vaxmyndin var afhjúpuð á Anfield en þetta er í eitt af örfáum skiptum sem vaxmyndir af safninu eru frumsýndar utan London. 12.2.2010 10:30
Kubica ánægður með Renaultinn Pólverjinn Robert Kubica kveðst ánægður með veru sína hjá Renault, en hann gekk liðs við fyrirtækið frá BMW. Nýi bíll liðsins hefur komið vel út á æfingum. 12.2.2010 10:01
Ancelotti neitar að afskrifa Arsenal Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að Arsenal sé enn með í baráttunni um enska meistaratitilinn enda er félagið aðeins sex stigum á eftir Chelsea. 12.2.2010 10:00
Eriksson yfirgefur Notts County Sven-Göran Eriksson er hættur sem yfirmaður knattspyrnumála hjá enska liðinu Notts County. Hann verður engu að síður heiðursforseti hjá félaginu. 12.2.2010 09:30
NBA: Þrettán sigrar í röð hjá Cleveland LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers eru heitasta liðið í NBA-deildinni í dag. Liðið vann í nótt sinn þrettánda leik í röð. 12.2.2010 09:00
Frumraun Khan í Bandaríkjunum verður líklega á móti Malignaggi WBA-léttveltivigtarmeistarinn Amir Khan hefur staðfest að verið sé að vinna í því að setja upp bardaga á milli hans og Paulie Malignaggi í Madison Square Garden-höllinni í New York í Bandaríkjunum í maí. 11.2.2010 23:30
David Moyes efast um að Everton geti haldið Landon Donovan David Moyes, stjóri Everton, er allt annað en bjartsýnn um að félagið getið framlengt lánsamning Bandaríkjamannsins Landon Donovan en tíu vikna samningur við Galaxy rennur út um miðjan mars. Donovan hefur staðið sig frábærlega með Everton liðinu síðan hann kom frá Los Angeles Galaxy í janúar. 11.2.2010 23:00
Arshavin: Ég var að leita að fjarstýringunni þegar Diaby skoraði Rússinn Andrei Arshavin er ekkert búinn að gefa upp vonina á því að Arsenal verði enskur meistari. Arsenal er sex stigum á eftir toppliði Chelsea eftir 1-0 sigur á Liverpool í gærkvöldi á sama tíma og Chelsea tapaði fyrir Everton. 11.2.2010 22:30
Ægir Þór: Varnarleikurinn lagði grunninn að sigrinum „Þetta var bara frábær leikur og algjörlega sigur liðsheildarinnar hjá okkur. Það voru allir að leggja sig fram og margir leikmenn að stíga upp á réttum tímapunktum í leiknum. 11.2.2010 22:00
Ingi Þór: Vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim „Við vorum bara hræðilega lélegir. Leikurinn var spilaður mjög fast og fékk að fljóta þannig og við létum þá bara lemja okkur niður. Við vorum bara ekki tilbúnir að mæta baráttunni hjá þeim í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir 69-64 tap liðs síns gegn Fjölni í Iceland Express deild karla í kvöld en þetta var fyrsta tap Snæfells á árinu 2010. 11.2.2010 21:45
Bárður: Hlýtur bara að vera eitthvað í okkur spunnið „Við vorum góðir í kvöld. Varnarleikurinn hjá okkur var mjög massívur og við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir að mæta þeim og mér fannst okkur takast vel upp með að stoppa þeirra hættulegustu menn,“ sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, eftir 69-64 sigur liðs síns gegn Snæfelli í Iceland Express-deild karla í körfubolta í Dalhúsum í Grafarvogi í kvöld. 11.2.2010 21:30
Nýliðar Fjölnis fyrstir til að vinna Snæfell á árinu 2010 Nýliðar Fjölnis fylgdu eftir sigrum á Grindavík og Njarðvík á undanförnum vikum með því að vinna fimm stiga sigur á Snæfelli, 69-64, í Grafarvogi í kvöld. Fjölnismenn urðu þar með fyrstir til að vinna Hólmara á árinu 2010. 11.2.2010 20:17
Stjarnan og Keflavík minnkuðu forskot KR á toppnum Stjarnan og Keflavík minnkuðu bæði forskot KR í tvö stig á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta eftir heimasigri í kvöld. Stjarnan vann 80-71 sigur á ÍR en Keflavík burstaði botnlið FSu með 40 stigum, 136-96. 11.2.2010 20:16
Maradona: Valdano er helsti andstæðingur Argentínu Goðsögnin Diego Maradona, landsliðsþjálfari Argentínu, liggur sjaldan á skoðunum sínum en nú beinir hann spjótum sínum gegn landa sínum Jorge Valdano, íþróttatjóra Real Madrid. 11.2.2010 20:15
Jakob með átján stig í öruggum heimasigri Sundsvall Sundsvall Dragons komst aftur á sigurbraut í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld með 24 stiga heimasigri á næstneðsta liði deildarinnar, 08 Stockholm. Jakob skoraði 18 stig í leiknum og var annar stigahæsti leikmaður liðsins. 11.2.2010 19:45
Stephen Ireland kennir Mark Hughes um formleysið sitt Stephen Ireland, miðjumaður Manchester City, var ekki ánægður með störf Mark Hughes áður en hann var rekinn frá félaginu og kennir velska stjórann um formleysi sitt á þessu tímabili. 11.2.2010 19:00
Ashley Cole er ökklabrotinn og verður frá í þrjá mánuði Ashley Cole bakvörður Chelsea og enska landsliðsins verður frá keppni í þrjá mánuði eftir að hann ökklabrotnaði í tapleiknum á móti Everton í gær. Cole meiddist eftir samstuð við Everton-manninn Landon Donovan. 11.2.2010 18:15
Fletcher: Pressan okkar skilar öllum þessum sjálfsmörkum Darren Fletcher, miðjumaður Manchester United, segir ástæðuna fyrir öllum sjálfsmörkum mótherja Manchester United á tímabilinu vera pressuna sem United-liðið setur á andstæðinga sína. 10 af 62 mörkum United í ensku úrvalsdeildinni í vetur hafa verið sjálfsmörk mótherja. 11.2.2010 17:30
Umboðsmaður: Engin fyrirspurn borist í Joe Cole frá AC Milan Samningaviðræður Joe Cole og Chelsea halda áfram að því er fram kemur í viðtali við umboðsmanninn David Geiss við vefmiðilinn Calciomercato.it í dag en núgildandi samningur leikmannsins rennur út næsta sumar. 11.2.2010 16:45
Japaninn Kobayashi sneggstur á Sauber Japaninn Kamui Kobayashi sýndi hvers hann er megnugur í dag þegar hann náði besta tíma á Sauber á æfingum á Jerez brautinni á Spáni. Hann varð aðein s0.076 sekúndum á undan Sebastian Buemi á Torro Rosso. 11.2.2010 16:21
Ryan Giggs frá í fjórar vikur með brákaða hendi Meiðsli Ryan Giggs, í jafnteflisleiknum á móti Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær, reyndust vera það alvarleg að hann verður frá keppni í fjórar vikur. 11.2.2010 16:15