Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ranieri sáttur þrátt fyrir tap Þjálfari Parma, Claudio Ranieri, var sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir tap á móti Sporting Braga í UEFA bikarkeppninni í gærkvöldi 1-0. Tap Parma og Livorno í gær þýðir að Ítalir eru án fulltrúa en 16 lið eru eftir í keppninni. 23.2.2007 13:04
Vörnin hjá Munchen í ólagi Bayern Munchen, sem er tólf stigum á eftir Schalke í kapphlaupinu um þýska meistaratitilinn, gæti átt erfitt með að manna vörn sína fyrir leik helgarinnar þar sem þeir mæta Wolfsburg. Tveir leikmenn eru í leikbanni þeir Willy Sagniol og Martin Demichelis, Valerien Ismael er meiddur og Daniel van Buyten er ekki talinn geta leikið vegna meiðsla. 23.2.2007 11:41
Fullkomið kvöld hjá spænskum liðum Öll spænsku liðin í UEFA bikarkeppninni komust áfram í gærkvöldi. 23.2.2007 11:25
Pardew myndi verða kurteis Fyrrverandi stjóri West Ham og núverandi stjóri Charlton, Alan Pardew, segir að hann myndi vera kurteis við Eggert Magnússon ef þeir myndu mætast út á götu. Pardew var sem kunnugt er rekinn úr starfi sínu sem knattspyrnustjóri West Ham eftir að Eggert kom til félagsins. 23.2.2007 11:07
Óánægður með leik Leverkusen Mark Hughes, knattspyrnustjóri Blackburn, var ekki ánægður með leik Leverkusen á Ewood Park í gærkvöld. Liðin skildu jöfn en fyrri leikur liðanna lyktaði með 3-2 sigri þjóðverjanna. 23.2.2007 10:39
Snocross á Vaðlaheiði Önnur umferð í WPSA Snocross verður austan Akureyrar,nánar tiltekið upp á Vaðlaheiði núna um helgina og hefst keppninn kl 14:00. Þar munu allir helstu snocross ökumenn leiða hesta sína og verður víst hrikaleg barátta á milli manna. 23.2.2007 10:11
Naumur sigur Wizards á Kings Þrír leikir voru í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld þar sem Washington Wizards unnu meðal annars mjög nauman sigur á Sacramento Kings, 109-106. Nokkrar deilur urðu í lok leiksins þar sem Kings töldu að John Salmons hefði jafnað leikinn með flautukörfu. 23.2.2007 09:17
Tímabilið í versta falli búið hjá Wade Dwyane Wade, besti leikmaður NBA meistara Miami Heat í körfubolta, gæti í versta falli þurft að sætta sig við að spila ekki meira með liði sínu á leiktíðinni. Þetta eru niðurstöður fundar hans við lækna liðsins í kvöld, en Wade fór úr axlarlið í fyrrakvöld. 23.2.2007 01:31
LA Lakers hársbreidd frá að landa Jason Kidd Mikið var búið að ræða um lokun félagaskiptagluggans í NBA deildinni nú í kvöld en þá rann út frestur liðanna í deildinni til að skipta á leikmönnum. Svo fór að lokum að aðeins tvenn skipti fóru fram á síðustu stundu, en heimildir herma að tilboð LA Lakers um að fá til sín leikstjórnandann Jason Kidd hafi strandað á elleftu stundu. 22.2.2007 22:04
Roma tapaði fyrir Tel Aviv Jón Arnór Stefánsson og félagar í ítalska liðinu Lottomatica Roma töpuðu í kvöld fyrir Maccabi Tel Aviv á heimavelli í Meistaradeildinni í körfubolta 71-69. Jón Arnór spilaði 14 mínútur í leiknum og skoraði 4 stig. 22.2.2007 22:01
KR lagði ÍR Fjórir leikir fóru fram í karlakörfunni í kvöld og einn í kvennaflokki. Í úrvalsdeild karla vann KR góðan sigur á ÍR 89-81, Snæfell lagði Hamar 83-60, Grindavík lagði Tindastól 109-99 og Fjölnir lagði Þór 102-91 í framlengingu. Í kvennaflokki völtuðu Íslandsmeistarar Hauka yfir Breiðablik 116-74. 22.2.2007 21:56
Newcastle í 16-liða úrslit Enska liðið Newcastle tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með 1-0 sigri á belgíska liðinu Zulte-Waregem á heimavelli. Það var Obafemi Martins sem skoraði sigurmark Newcastle, sem mætir Grétari Steinssyni og félögum í AZ Alkmaar í næstu umferð. AZ gerði 2-2 jafntefli við Fenerbahce í kvöld og fór áfram á útimörkum. 22.2.2007 21:48
Dennis Johnson látinn Fyrrum NBA leikmaðurinn Dennis Johnson sem gerði garðinn frægan með Seattle Supersonics og Boston Celtics á níunda áratugnum er látinn. Johnson var þjálfari Austin Toros í æfingadeildinni í NBA og var bráðkvaddur á æfingu liðsins í dag. Hann var aðeins 52 ára gamall. 22.2.2007 21:30
Blackburn úr leik í Evrópukeppninni Enska liðið Blackburn er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir 0-0 jafntefli gegn Leverkusen í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum keppninnar á Ewood Park í kvöld. Leverkusen vann fyrri leikinn 3-2 og er komið í 16-liða úrslit. Blackburn fékk nokkur ágæt færi í síðari hálfleiknum en náði ekki að nýta þau og er fallið úr leik. 22.2.2007 19:56
Græddu vel á golftilþrifum Bellamy Það er sannarlega ekkert nýtt undir sólinni þegar kemur að veðbönkum í Bretlandi og nokkrir stuðningsmanna Liverpool högnuðust vel í gærkvöldi þegar þeir veðjuðu á leik Barcelona og Liverpool í Meistaradeildinni. 22.2.2007 19:12
Markalaust á Ewood Park í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í leik Blackburn og Bayer Leverkusen á Ewood Park, en leikurinn er sýndur beint á Sýn. Þetta er síðari leikur liðanna í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða og hefur þýska liðið 3-2 forystu frá fyrri leiknum. Blacburn nægir því 1-0 sigur á heimavelli til að komast áfram í keppninni. 22.2.2007 18:54
Fyrsta kvenkyns dómaraparið dæmir í kvöld Sá sögulegi viðburður á sér stað í fyrsta sinn á Íslandi í kvöld að konur verða dómarapar í leik í efstu deild. Þetta eru þær Indíana Sólveig Marquez og Georgía Olga Kristiansen. Báðar hafa þær dæmt leiki með körlum í vetur en þetta mun vera í fyrsta sinn sem tvær konur dæma sama leikinn. Þær dæma leik Hauka og Breiðabliks í kvennadeildinni. 22.2.2007 18:38
Beletti verður frá í tvær vikur Spánarmeistarar Barcelona fengu ekki að njóta þess lengi að vera með fullskipaðan hóp eftir meiðsli lykilmanna í vetur, því brasilíski varnarmaðurinn Juliano Belletti meiddist í leiknum í Liverpool í Meistaradeildinni í gær og verður frá í tvær vikur. Hann missir því af deildarleikjum gegn Bilbao og Sevilla og verður væntanlega tæpur fyrir síðari leikinn gegn Liverpool þann 6. mars. 22.2.2007 18:32
Wenger ætlar að halda sig við sama hóp Arsene Wenger segist ekki ætla að gera neinar breytingar á leikmannahóp sínum fyrir úrslitaleikinn í deildarbikarnum á sunnudaginn, en þangað er liðið komið þrátt fyrir að spila mikið á minni spámönnum alla keppnina. Það kom ekki að sök í undanúrslitunum þar sem margar af varaskeifum liðsins unnu sannfærandi sigur á Liverpool. 22.2.2007 18:27
Óvíst hvað Wade verður lengi frá keppni Dwyane Wade hjá Miami Heat fór í nótt úr axlarlið þegar meistararnir töpuðu fyrir Houston Rockets. Enn hefur ekki verið staðfest hvað leikmaðurinn verður lengi frá keppni, en þess má geta að Vladimir Radmanovic hjá LA Lakers hlaut sömu meiðsli fyrir nokkru og hann verður frá í tvo mánuði, svo útlitið er ekki gott hjá meisturunum. 22.2.2007 18:22
Falsaðir miðar ollu troðningi Forráðamenn franska liðsins Lille halda því fram að troðningurinn sem varð í áhorfendastæði liðsins í leiknum við Manchester United hafi orðið vegna þess að stuðningsmenn enska liðsins hafi falsað aðgöngumiða og því verið of margir í stæðinu. 22.2.2007 17:59
Blackburn - Leverkusen í beinni á Sýn Fjöldi leikja er á dagskrá í Evrópukeppni félagsliða í kvöld en þar verða spilaðir síðari leikirnir í 32-liða úrslitum keppninnar. Leikur Blackburn og Bayer Leverkusen verður sýndur beint á Sýn klukkan 18 en þar hefur þýska liðið 3-2 forskot úr fyrri leiknum í Þýskalandi. 22.2.2007 16:48
Fjórir leikir í úrvalsdeild karla í kvöld Fjórir áhugaverðir leikir verða á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og einn leikur í kvennakörfunni. Grindavík tekur á móti Tindastól, KR fær ÍR í heimsókn, Snæfell tekur á móti Hamri og þá tekur Fjölnir á móti Þór frá Þorlákshöfn. Í kvennaflokki geta Haukastúlkur farið langleiðina með að tryggja sér efsta sætið í deildinni með sigri á Breiðablik. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 22.2.2007 16:44
Cole spilaði með varaliði Chelsea Bakvörðurinn Ashley Cole átti vel heppnaða endurkomu með varaliði Chelsea í gærkvöld en hann hafði ekki spilað síðan hann meiddist á hné í leik gegn Blackburn í síðasta mánuði. Ekki er talið útilokað að Cole geti verið með Chelsea í úrslitaleik deildarbikarsins gegn fyrrum félögum sínum í Arsenal á sunnudaginn. 22.2.2007 15:15
Lille kærir mark Man Utd. Franska knattspyrnufélagið Lille hefur kært mark Ryan Giggs í leik Lille og Manchester United í Meistarkeppni Evrópu í fyrrakvöld til UEFA. Giggs skoraði markið beint úr aukaspyrnu án þess að dómarinn hefði flautað til spyrnunnar sérstaklega. 22.2.2007 14:53
Verðlaunafé á Wimbledon jafnað Verðlaunafé á hinu sögufræga Wimbledon móti í tennis verður jafnt í karla- og kvennaflokki í fyrsta sinn í sögunni þegar mótið fer fram í sumar og verður það í fyrsta sinn sýnt í beinni útsendingu á Sýn. Nú eru öll stórmótin búin að jafna verðlaunafé í karla- og kvennaflokki nema opna franska meistaramótið, en þar er aðeins jafnt verðlaunafé fyrir sigurvegarana. 22.2.2007 13:59
Reyes gagnrýnir Capello Jose Antonio Reyes hefur nú fetað í fótspor félaga síns Robinho hjá Real Madrid með því að væla yfir vinnuaðferðum þjálfara síns í fjölmiðlum. Reyes er lánsmaður frá Arsenal og í gær sagðist hann hvorki skilja upp né niður í vinnubrögðum þjálfara síns. 22.2.2007 09:15
Ginobili skoraði 24 stig í röð gegn Atlanta Argentínumaðurinn Manu Ginobili var heldur betur í stuði í nótt þegar San Antonio lagði Atlanta 103-96 á útivelli. Ginobili skoraði 40 stig í leiknum og þar af 24 stig San Antonio í röð á kafla í fyrri hálfleiknum. Tim Duncan átti einnig fínan leik og skoraði 30 stig, líkt og Joe Johnson hjá Atlanta. 22.2.2007 03:30
Kylfusveinarnir tryggðu Liverpool frábæran sigur Craig Bellamy og John Arne Riise hjá Liverpool komust í heimsfréttirnar á kolröngum forsendum í vikunni en í kvöld voru þeir hetjur liðsins þegar það bar sigurorð af Evrópumeisturum Barcelona á útivelli 2-1 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 21.2.2007 21:33
Riise: Þetta voru örlög okkar John Arne Riise segir að örlögin hafi gripið í taumana á Nou Camp í kvöld þegar hann og liðsfélagi hans Craig Bellamy skoruðu mörk Liverpool gegn Barcelona. Riise og Bellamy komust í heimsfréttirnar fyrir slagsmál í æfingabúðum liðsins fyrir nokkrum dögum, en eru nú hetjur enska liðsins. Bellamy tileinkaði syni sínum sigurinn á 10 ára afmælisdegi hans. 21.2.2007 23:42
Rijkaard: Þetta verður mjög erfitt Frank Rijkaard viðurkenndi í kvöld að hans menn ættu mjög erfitt verkefni fyrir höndum í síðari leiknum við Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir að spænska liðið tapaði fyrri leiknum 2-1 á heimavelli í kvöld. 21.2.2007 23:34
Benitez ánægður fyrir hönd Bellamy og Riise "Við eigum fína möguleika á að komast áfram en það er mikið eftir af þessu einvígi enn. Barcelona er með frábæra sóknarmenn og við verðum að eiga frábæran leik á Anfield til að klára dæmið, "sagði Rafa Benitez stjóri Liverpool eftir sigurinn á Barcelona í kvöld. 21.2.2007 23:30
Terry missir af úrslitaleiknum í deildarbikarnum Chelsea verður án fyrirliða síns John Terry í úrslitaleiknum í enska deildarbikarnum um næstu helgi. Þetta staðfesti knattspyrnustjórinn Jose Mourinho í kvöld eftir að Terry haltraði af velli meiddur af ökkla gegn Porto í Meistaradeildinni. Þetta þýðir að Chelsea er aðeins með einn leikfæran miðvörð í hóp sínum fyrir úrslitaleikinn gegn Arsenal. 21.2.2007 23:24
Mourinho: Meiðslin riðluðu öllu skipulagi Jose Mourinho sagði að meiðsli sinna manna hefðu gert þeim gríðarlega erfitt fyrir í leiknum gegn Porto í Meistaradeildinni í kvöld. John Terry meiddist á ökkla í byrjun leiks og þá þurfti Arjen Robben að fara meiddur af velli eftir að hafa komið inn sem varamaður. Mourinho sagðist ekki geta verið annað en sáttur við jafnteflið þegar tekið væri mið af þessu. 21.2.2007 22:34
Kronau burstaði Magdeburg Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kronau/Östringen vann þá nokkuð óvæntan sigur á Magdeburg 32-27 eftir að hafa leitt 20-11 í hálfleik. Pólverjinn magnaði Mariusz Jurasik skoraði 9 mörk fyrir Kronau og landi hans Karol Bilecki var atkvæðamestur hjá Magdeburg með 7 mörk. 21.2.2007 22:47
Fram í úrslitaleikinn Karlalið Fram tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleiknum í ss bikarnum með góðum sigri á Haukum á Ásvöllum 37-30 í undanúrslitum. Stjarnan lagði ÍR fyrr í kvöld og það verða því Fram og Stjarnan sem leika til úrslita í keppninni. Haukar og Grótta mætast í úrslitaleiknum í kvennaflokki. 21.2.2007 22:43
Tottenham lagði Everton Tottenham vann í kvöld sjaldgæfan útisigur í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Everton nokkuð óvænt 2-1 á Goodison Park. Dimitar Berbatov kom gestunum yfir í leiknum en Mikel Arteta jafnaði skömmu síðar með marki beint úr aukaspyrnu. Staðan var 1-1 í háfleik en það var svo Jermaine Jenas sem skoraði sigurmark Tottenham á 89. mínútu. 21.2.2007 22:10
Watford missti af gullnu tækifæri Fátt annað en fall í fyrstu deild virðist blasa við slöku liði Watford í ensku úrvalsdeildinni en í kvöld náði liðið aðeins 1-1 jafntefli við Wigan á heimavelli sínum þrátt fyrir að vera manni fleiri í 70 mínútur. Wigan lenti undir í leiknum en náði að koma til baka og jafna metin á 10 mönnum þrátt fyrir liðsmuninn. 21.2.2007 22:04
Haukastúlkur í vænlegri stöðu Aðeins kraftaverk getur nú komið í veg fyrir að deildarmeistarar Hauka verji titil sinn í kvennakörfunni eftir að Grindavík gerði sér lítið fyrir og lagði granna sína í Keflavík í kvöld 93-86. Haukastúlkur hafa fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og eiga leik til góða á Keflavík sem er í öðru sætinu. Grindavík er svo aðeins tveimur stigum frá Keflavík í þriðja sætinu. 21.2.2007 21:50
Valur skoraði 3 mörk í fyrri hálfleik Það verða Haukastúlkur sem leika til úrslita gegn Gróttu í úrslitum ss-bikars kvenna í handbolta. Haukar unnu öruggan sigur á Val 25-18 í kvöld eftir að hafa leitt í hálfleik 14-3. Sandra Stojkovic skoraði 7 mörk fyrir Hauka og Hanna Stefánsdóttir 5, en Drífa Skúladóttir skoraði 6 fyrir Val. 21.2.2007 20:56
Stjarnan í úrslit Stjarnan tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum ss-bikarsins í karlaflokki þegar liðið lagði ÍR á heimavelli sínum 27-24. Stjarnan mætir Haukum eða Fram í úrslitaleik keppninnar, en þessi lið eigast við í hinum undanúrslitaleiknum klukkan 21 í kvöld. 21.2.2007 20:53
Jafnt á báðum vígstöðvum í úrvalsdeildinni Tveir leikir standa yfir í ensku úrvalsdeildinni og er staðan jöfn í þeim báðum í leikhléi. Jafnt er hjá Watford og Wigan 1-1 þar sem Fitz Hall var vikið af leikvelli á 20. mínútu í liði Wigan og þá er sömuleiðis jafnt 1-1 í leik Tottenham og Everton á Goodison Park þar sem Berbatov og Arteta skoruðu mörkin. 21.2.2007 20:44
Bellamy skoraði og fagnaði með golfsveiflu Staðan í stórleik Barcelona og Liverpool er 1-1 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leikjunum fjórum í Meistaradeildinni. Deco kom spænska liðinu yfir eftir aðeins 14 mínútur en Craig Bellamy jafnaði fyrir baráttuglaða gestina og fagnaði marki sínu með golflátbragði að hætti hússins. 21.2.2007 20:32
Ólafur skrifar undir hjá Helsingborg Knattspyrnukappinn Ólafur Ingi Skúlason skrifaði í dag undir þriggja ára samning við sænska úrvalsdeildarliðið Helsingborg. Ólafur hefur verið á mála hjá enska liðinu Brentford undanfarin tvö ár en heldur nú til sænska liðsins þar sem meðal liðsfélaga hans verður enginn annar en Henrik Larsson sem nú er lánsmaður hjá Man Utd. 21.2.2007 19:22
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Liverpool í stórleik kvöldsins í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Leikurinn er sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn, en auk þessa leiks eru stöðvar sýnar með beina útsendingu frá viðureignum Porto - Chelsea og Inter - Valencia. 21.2.2007 19:06