Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Adriano þakkar samherjum sínum Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano tileinkaði liðsfélögum sínum hjá Inter markið sem hann skoraði gegn Atalanta á laugardag. Markið var hans fyrsta í átta mánuði fyrir félagið, en Adriano hefur verið í mikilli lægð á þessu ári eftir frábært tímabil í fyrra. 25.12.2006 17:45
Redknapp ekki stressaður yfir leikmannamálum Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, segist ekki hafa sett niður neinn óskalista af leikmönnum sem hann vill fá til síns liðs í janúar, en að hann muni ábyggilega fá einhverja leikmenn til að styrkja liðið. Redknapp segir markmið félagsins hafa breyst eftir gott gengi það sem af er leiktíð. 25.12.2006 17:15
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. 25.12.2006 16:30
Orðastríð Mourinho og Ferguson heldur áfram Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur varað kollega sinn hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson, við því að meistararnir verði mun sterkari á síðari hluta keppnistímabilsins en þeir hafi verið á þeim fyrri. Enn fremur segir Mourinho Man. Utd. hafa verið heppna því ”allt hafi gengið upp hjá þeim.” 25.12.2006 14:30
Aston Villa vill fá Defoe Samkvæmt fregnum frá Englandi í morgun er Aston Villa að undirbúa 12 milljón punda tilboð í Jermain Defoe, framherja Tottenham, um leið og leikmannaglugginn opnar í byrjun janúar. 25.12.2006 13:54
Pardew tekur við Charlton Alan Pardew hefur verið ráðinn þjálfari Charlton í ensku úrvalsdeildinni og tekur hann við starfi Les Reed, sem var sagt upp síðdegis á aðfangadag. Pardew er þriðji knattspyrnustjórinn hjá Charlton á þessari leiktíð. 25.12.2006 13:24
Benitez ánægður með Gerrard á miðjunni Rafael Benitez, stjóri Liverpool, gaf sterklega í skyn í viðtali við enska dagblaðið The Mirror fyrir helgi að hann hyggist nota fyrirliða sinn Steven Gerrard á miðjunni, en ekki hægri kantinum eins og hann gerði framan af tímabilinu. Gerrard hefur skorað fjögur mörk í sex leikjum frá því að hann fór á miðja miðjuna. 25.12.2006 12:30
Ferguson: Það má ekki hlusta á Mourinho Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, skaut léttum skotum að kollega sínum hjá Chelsea, Jose Mourinho, eftir sigurinn gegn Aston Villa í fyrradag og sagði stöðuna í deildinni sanna að ekki mætti taka mark á ummælum Portúgalans. Mourinho hafði áður sagt að Chelsea yrði í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar þegar jólin gengju í garð. 25.12.2006 10:00
Abramovich ætlar að minnka við leikmannakaup Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich segir í viðtali við hið virta dagblað The Observer í Bretlandi að hann hyggist draga úr fjárveitingum til leikmannakaupa hjá félaginu á næstunni og leggja traust sitt á ungu leikmennina hjá félaginu. Rússinn kemur víða við í viðtalinu og greinir einnig frá sambandi sínu við Jose Mourinho. 24.12.2006 20:00
Wenger: Við spiluðum magnaðan fótbolta Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var virkilega ánægður með frammistöðu sinna manna í 6-2 sigurleiknum á Blackburn í gær. Wenger sagði að áhorfendum á Emirates-leikvanginum hefði verið skemmt. 24.12.2006 18:00
Jólasveinninn hlýtur að halda með Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, þakkaði jólasveininum fyrir sigurinn á Wigan í gærkvöldi. Portúgalski stjórinn sagði lið sitt ekki hafa átt skilið að hirða öll stigin þrjú. Arjen Robben skoraði sigurmarkið í 3-2 sigri á 93. mínútu leiksins. 24.12.2006 15:45
Houston - Við erum í vanda Miðherjinn Yao Ming hjá Houston Rockets í NBA deildinni leikur ekki með liðinu næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að risinn meiddist á hné í tapleik liðsins gegn LA Clippers í nótt og því er útlit fyrir að liðið verði enn og aftur að finna leið til að sigra án ofurstjarna sinna, Ming og Tracy McGrady. 24.12.2006 13:52
Benitez ánægður með Bellamy Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, fannst lið sitt eiga sigurinn skilinn gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni í gær. Liverpool sigraði 2-0 þrátt fyrir að hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit. Benitez hrósaði Craig Bellamy sérstaklega. 24.12.2006 13:45
Inter jafnaði metið Inter Milan jafnaði í gær met í ítölsku A-deildinni í fótbolta þegar liðið vann sinn 11 sigur í röð. Þá lagði liðið Atalanta af velli, 2-1, en Roma náði samskonar sigurgöngu á síðustu leiktíð. Inter er langefst á Ítalíu þegar farið er í jólafrí, eða með sjö stiga forystu. 24.12.2006 12:30
Gummersbach upp í þriðja sæti Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu sjö mörk hvor þegar Gummerbach bar sigurorð af Minden í viðureign liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Með sigrinum komst Gummersbach upp að hlið Hamburg í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliðum Flensburg og Kiel. 24.12.2006 10:55
Mikil bæting í spretthlaupum er vel möguleg Heimsmetið í 100 metra hlaupi karla getur verið bætt umtalsvert, eða allt niður í 9,29 sekúndur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri rannsókn háskóla í Þýskalandi. Núverandi heimsmet Asafa Powell er 9,77 sekúndur. 23.12.2006 21:45
Mikið áfall fyrir Seattle Rashard Lewis, framherji og lykilmaður Seattle í NBA-deildinni í körfubolta, verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á hendi á föstudag. 23.12.2006 21:00
Colin Jackson er harðstjóri Tim Benjamin, fremsti 400 metra hlaupari Bretlands, segir að hann hafi aldrei kynnst öðru eins æfingaálagi eins og undir stjórn síns nýja þjálfara. Sá er enginn annar en Colin Jackson, fyrrum heimsmeistari og heimsmethafi í 110 metra grindahlaupi. 23.12.2006 20:00
Robben tryggði Chelsea sigur Enn einu sinni tryggði Chelsea sér sigur í ensku úrvalsdeildinni á elleftu stundu og gegn Wigan í dag var það Hollendingurinn Arjen Robben sem reyndist hetjan. Hann skoraði þriðja og síðasta markið í 3-2 sigri Chelsea þegar þrjár mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma. 23.12.2006 19:11
Kewell á erfitt Harry Kewell, ástralski miðjumaðurinn hjá Liverpool, hefur viðurkennt að eilíf meiðsli geri tilveruna afar erfiða og að hann hafi í nokkurn tíma átt mjög erfitt. Kewell er á hægum batavegi eftir aðgerð á fæti og er ekki sérlega bjartsýnn upp á framhaldið að gera. 23.12.2006 18:45
Yoon var óstöðvandi Suður-Kóreu maðurinn Kyung-Shin Yoon átti magnaðan leik fyrir Hamburg gegn Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og skoraði alls 18 mörk. Hamburg sigraði í leiknum á útivelli, 37-33. 23.12.2006 18:30
Wycombe dróst á móti Englandsmeisturunum Spútniklið enska deildabikarsins í ár, Wycombe Wanderes, mætir Chelsea í undanúrslitum keppninnar, en dregið var í dag. Tottenham mætir sigurvegaranum í viðureign Liverpool og Arsenal. 23.12.2006 18:00
Powell og Richards best Spretthlaupararnir Asafa Powell og Sanya Richards frá Jamaíku voru í gær valin frjálsíþróttafólk ársins af tímaritinu Track & Fields, því virtasta og útbreiddasta innan frjálsíþróttaheimsins. 23.12.2006 17:30
Leikmenn í Englandi í jólaskapi Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar eru komnir í jólaskap, ef eitthvað má lesa úr öllum þeim fjölda marka sem leit dagsins ljós í umferð dagsins. Engar breytingar urðu í toppslag deildarinnar þar sem öll helstu liðin unnu leiki sína. 23.12.2006 16:57
Tap hjá Viggó í síðasta leiknum Viggó Sigurðsson mátti þola tap í sínum síðasta leik sem þjálfari Flensburg í þýska handboltanum í dag. Lið hans sótti þá meistara Kiel heim og lá naumlega, 36-34. Með sigrinum komst Kiel að hlið Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. 23.12.2006 16:51
Wenger: Walcott verður landsliðsmaður Arsene Wenger, stjóri Arsenal, spáir því að árið 2007 eigi eftir að verða Theo Walcott, 17 ára leikmanni liðsins, einstaklega gæfuríkt. Wenger gengur svo langt að spá Walcott landsliðssæti á árinu. 23.12.2006 16:30
Drogba: Essien er ótrúlegur Michael Essien hefur átt einn stærsta þáttinn í velgengni Chelesa það sem af er leiktíð, að sögn Didier Drogba, framherja liðsins. Drogba ausar lofi yfir Essien og segir hann jafn mikilvægan liðinu og John Terry og Frank Lampard. 23.12.2006 15:45
Ferguson ánægður með Saha Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, telur að Louis Saha hafi fyllt skarðið sem Ruud van Nistelrooy skildi eftir í framlínu liðsins í sumar og gott betur. Saha hefur skorað átta mörk í þeim 15 leikjum sem hann hefur byrjað inn á í ár. 23.12.2006 14:45
Inter fær ekki aðstoð frá dómurum Roberto Mancini, þjálfari Inter á Ítalíu, hlær að öllum samsæriskenningum þess efnis að leikmenn liðsins njóti friðhelgi hjá dómurum deildarinnar. Nokkur umræða hefur verið á Ítalíu þess efnis að Inter sé í náðinni hjá hinum ýmsu dómurum, einhverra hluta vegna. 23.12.2006 14:00
Tap hjá Iverson í fyrsta leik 22 stig og tíu stoðsendingar frá Allen Iverson dugðu ekki fyrir Denver í nótt þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Sacramento í NBA-deildinni, 101-96. Þetta var fyrsti leikur Iverson fyrir sitt nýja lið. 15 leikja sigurhrinu Pheonix lauk ennfremur í nótt. 23.12.2006 13:15
Cisse lætur vita af sér Djibril Cisse, franski sóknarmaðurinn sem er í láni hjá Marseille frá Liverpool, hefur jafnað sig eftir fótbrot og er strax byrjaður að minna á sig. Í gærkvöldi skoraði hann sigurmark Marseille í 2-1 sigri á St. Etienne í frönsku úrvalsdeildinni. Þetta var fyrsta mark Cisse á tímabilinu. 23.12.2006 12:16
Vilmundur hæstur í Bluppinu Stóðhesturinn Vilmundur frá Feti stendur allra hesta hæst í nýju kynbótamati en hann hlýtur þar 131 stig og er efstur í flokki stóðhesta með 122 stig og færri en 15 dæmd afkvæmi. Fjöldi hrossa frá Feti stendur ofarlega á listum kynbótamatsins, en einna mesta athygli vekur að hryssan Ásdís frá Neðra-Ási, ein helsta ræktunarhryssa Fet búsins er komin inn á listann yfir hryssur sem ná 1. verðlaunum fyrir afkvæmi. 23.12.2006 09:15
Curbishley: Við erum ekki áhugavert félag Alan Curbishley, sem Eggert Magnússon réð sem knattspyrnustjóra West Ham fyrir skemmstu, óttast að félagið muni eiga erfitt með að sannfæra leikmenn um að ganga til liðs við það þegar leikmannamarkaðurinn opnar að nýju í janúar, vegna slakrar spilamennsku liðsins í ár. 22.12.2006 21:30
Wie fer í háskóla Kvennakylfingurinn Michelle Wie hefur tilkynnt að hún hafi fengið inngöngu í Stanford-háskólann í Bandaríkjunum og hefji þar nám næsta haust, eftir að hún útskrifast úr menntaskóla. Margir bjuggust við því að Wie myndi einbeita sér að golf-íþróttinni eftir menntaskóla en hún ákvað sjálf að setja menntun í fyrsta sætið. 22.12.2006 21:00
Sonko áhyggjufullur vegna morðhótana Ibrahima Sonko, félagi Ívars Ingimarssonar í vörn Reading í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið morðhótanir frá stuðningsmönnum Chelsea allt frá því að hann lenti í samstuði við markvörðinn Carlo Cudicini í leik liðanna í október sl. Sonko kveðst ekki standa á sama um hótanirnar, en liðin eigast við að nýju annan í jólum. 22.12.2006 20:00
Alonso mjög fljótur á fyrstu æfingu Ónefndur bifvélaverki úr herbúðum McLaren segir að Spánverjinn Fernando Alonso hafi litið mjög vel út á sinni fyrstu æfingu á nýjum bíl. Hinn tvöfaldi heimsmeistari yfirgaf herbúðir Renault í sumar og mun keppa fyrir McLaren á næsta tímabili. 22.12.2006 19:15
Kristinn þjálfari U-19 ára landsliðsins Kristinn R. Jónsson var í dag ráðinn þjálfari U-19 ára landsliðs karla í fótbolta. Kristinn tekur við starfi Guðna Kjartanssonar, sem nýlega var ráðinn aðstoðarmaður A-landsliðs kvenna. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í dag. 22.12.2006 18:42
Benitez: Crouch verður ekki seldur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Peter Crouch verði ekki seldur frá félaginu í janúar, en hinn hávaxni framherji hefur þráfaldlega verið orðaður við sölu frá Liverpool upp á síðkastið, eftir að hann missti byrjunarliðssæti sitt í hendur Craig Bellamy. 22.12.2006 18:30
Sjö leikmenn Sheffield Utd. á sölulista Sjö leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins Sheffield United hafa verið settir á sölulista af knattspyrnustjóra liðsins Neil Warnock, sem virðist hafa fengið þau skilaboð að hann fái sjálfur lítinn pening til leikmannakaupa í janúar. 22.12.2006 18:27
Woodgate er óákveðinn með framtíðina Jonathan Woodgate, varnarmaður hjá Middlesbrough, segist enn eiga eftir að sanna sig hjá Real Madrid og þess vegna vilji hann ekki útiloka þann möguleika að snúa aftur til spænska liðsins fyrir næsta tímabil. Woodgate verður í láni Middlesbrough út tímabilið og vilja forráðamenn enska félagsins ólmir festa kaup á varnarmanninum eftir þann tíma. 22.12.2006 17:45
Owen yrði mikill bónus Ef Michael Owen myndi spila með Newcastle á þessari leiktíð yrði það “ótrúlegur bónus” að sögn Glenn Roeder, stjóra liðsins. Roeder segir þó afar litlar líkur á að sú verði raunin. 22.12.2006 16:45
Wenger verður pirraður William Gallas, varnarmaður Arsenal, segir að slæm úrslit Arsenal í síðustu leikjum sínum fari í pirrurnar á stjóra liðsins, Arsene Wenger. Gallas segir að leikmenn liðsins verði að líta í eigin barm. 22.12.2006 16:15
Woosnam íhugaði að segja af sér Ian Woosnam, fyrirliði Evrópuliðsins í Ryder-keppninni fyrr á þessu ári, segist hafa íhugað að segja af sér eftir að danski kylfingurinn Thomas Bjorn gagnrýndi hann harðlega fyrir að velja sig ekki í lið Evrópu. 22.12.2006 15:15
Borgar stjórnarformaðurinn úr eigin vasa? Ljóst þykir að það verður mikið kapphlaup um Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea þegar leikmannamarkaðurinn opnast að nýju í janúar, fari svo að Chelsea ákveði að hlusta á tilboð í vængmanninn. Mörg lið hafa lýst yfir áhuga á Wright-Phillips og í morgun lýsti Stuart Pearce, stjóri Man. City, því yfir að stjórnarformaður félagsins gæti hugsanlega boðið í leikmanninn með eigin pening. 22.12.2006 14:15
Það þurfa fleiri en Drogba að skora Steve Clarke, aðstoðarþjálfari Chelsea, segir að Didier Drogba verði að fá meiri hjálp frá samherjum sínum við að skora mörk fyrir liðið. Drogba hefur farið á kostum á undanförnu og skorað ófá sigurmörkin fyrir Chelsea. Ljóst þykir að Clarke var fyrst og fremst að beina orðum sínum til Andrei Shevchenko. 22.12.2006 13:30