Formúla 1

Alonso mjög fljótur á fyrstu æfingu

Fernando Alonso sést hér aka nýja McLaren bílnum í fyrsta sinn.
Fernando Alonso sést hér aka nýja McLaren bílnum í fyrsta sinn. MYND/AFP

Ónefndur bifvélaverki úr herbúðum McLaren segir að Spánverjinn Fernando Alonso hafi litið mjög vel út á sinni fyrstu æfingu á nýjum bíl. Hinn tvöfaldi heimsmeistari yfirgaf herbúðir Renault í sumar og mun keppa fyrir McLaren á næsta tímabili.

"Hann leit mjög vel út og var hraður á bílnum - gríðarlega hraður," sagði bifvélavirkinn í samtali við spænska blaðið Diario. "Hann gerði engin mistök í þetta fyrsta skipti sem hann keyrði bílnum og þessi frammistaða fór fram úr okkar væntingum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×