Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grönholm á enn veika von Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á enn veika von um að verða heimsmeistari í rallakstri eftir að þessi magnaði ökumaður vann sig upp í 7. sæti á öðrum keppnisdegi Ástralíurallsins í dag með því að vinna fimm sérleiðir. 28.10.2006 16:39
Rooney skoraði þrennu í stórsigri United Manchester United er komið aftur á toppinn í ensku úrvalsdeildinni eftir frábæran 4-0 útisigur á Bolton í dag þar sem Wayne Rooney undirstrikaði endurkomu sína með þrennu. Liverpool vann 3-1 sigur á Aston Villa og Arsenal varð að gera sér að góðu jafntefli við Everton á heimavelli sínum. 28.10.2006 15:48
Með annað augað á leiknum við Barcelona Jose Mourinho viðurkenndi að hann hefði verið ánægður með sigurinn á Sheffield United í dag í ljósi þess að hann hefði gert nokkrar breytingar á liði sínu vegna leiksins við Barcelona í Meistaradeildinni í næstu viku. 28.10.2006 15:31
Chelsea á toppinn Chelsea vann 2-0 útisigur á nýliðum Sheffield United í dag og skaust þar með á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Danny Webber misnotaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik og það reyndist heimamönnum dýrt, því Frank Lampard og Michael Ballack tryggðu meisturunum sigur með mörkum sitt hvoru megin við hálfleikinn. 28.10.2006 14:30
Hammarby ræður þjálfara til starfa Sænska úrvalsdeildarliðið Hammarby réð í gær hinn 33 ára gamla Tony Gustavsson sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Hann tekur við starfinu að tímabilinu loknu en tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Tveir Íslendingar eru hjá liðinu, þeir Pétur Marteinsson og Gunnar Þór Gunnarsson. 28.10.2006 14:16
Loksins mark hjá Rooney Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur yfir 2-0 gegn Bolton á útivelli þar sem gestirnir hafa verið með frumkvæðið lengst af leik og þar er Wayne Rooney loksins kominn á blað fyrir United. Liverpool er að bursta Aston Villa og Everton hefur yfir gegn Arsenal á útivelli. 28.10.2006 14:00
Æfingatímabilinu lauk í nótt Síðustu leikirnir á æfingatímabilinu í NBA fóru fram í nótt en deildarkeppnin hefst með látum næsta þriðjudagskvöld. Í sjónvarpsleiknum á NBA TV í nótt vann San Antonio öruggan sigur á Dallas 100-79, en þessi lið mætast einmitt á þriðjudagskvöldið í fyrsta deildarleik sínum. 28.10.2006 12:00
Dómurinn enn mildaður Refsing þriggja ítalskra knattspyrnufélaga sem gert var að sæta refsingu fyrir hlut sinn í knattspyrnuskandalnum þar í landi í sumar var í kvöld mildaður enn einu sinni. Átta stiga refsing AC Milan mun standa áfram, en Lazio, Juventus og Fiorentina fá refsingar sínar mildaðar og er þessu ljóta máli nú formlega lokið þar sem ekki verður um frekari áfrýjun að ræða. Nánari upplýsinga er að vænta innan skamms. 27.10.2006 21:05
Tindastóll lagði ÍR Lið Tindastóls gerði góða ferð í Breiðholtið í kvöld og lagði ÍR 93-78 í úrvalsdeild karla í körfubolta. Lamar Karim skoraði 29 stig og Svavar Birgisson 19 fyrir Stólana, en LaMar Owen skoraði 30 stig og Ólafur Sigurðsson 14 fyrir ÍR. Þetta var annar sigur nýliða Tindastóls í deildinni í þremur leikjum. Þá vann Fjölnir góðan sigur á Keflavík á heimavelli 110-108 eftir framlengdan leik. 27.10.2006 20:47
Lotina tekinn við Real Sociedad Spænska knattspyrnufélagið Real Sociedad gekk í dag frá ráðningu Miguel Angel Lotina sem taka mun við starfi þjálfara liðsins í kjölfar þess að Jose Mari Bakero var látinn taka pokann sinn í gær. Hinum 49 ára gamla Baska verður falið það erfiða verkefni að rétta við skútuna hjá Sociedad, en hann verður fjórði þjálfari liðsins á síðustu 14 mánuðum. 27.10.2006 19:29
Fá 150 milljónir evra í tekjur frá Nike Forráðamenn Barcelona tilkynntu í dag að nýr samningur félagsins við ameríska íþróttavöruframleiðandann Nike ætti eftir að skila félaginu um 150 milljónum evra í tekjur á næstu fimm árum. Barcelona hefur spilað í treyjum Nike frá árinu 1998 og verður núverandi samningur framlengdur til ársins 2013. 27.10.2006 18:50
Henrik Stenson í forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins högg forskot þegar tveimur hringjum er lokið á Volvo Masters mótinu sem fram fer í Valderrama á Spáni. Stenson er á fjórum höggum undir pari eftir að hafa leikið á 68 höggum í dag og er höggi á undan Lee Westwood. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu á morgun og sunnudag. 27.10.2006 18:13
Tap fyrir Ungverjum í æfingaleik Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tapaði 39-31 fyrir Ungverjum í æfingaleik ytra í dag. Mikil meiðsli eru í herbúðum íslenska liðsins og fengu því nokkrir leikmenn sem ekki hafa verið mikið í sviðsljósinu með liðinu að spreyta sig í dag. 27.10.2006 17:58
Tveir leikir í kvöld Tveir síðustu leikirnir í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta fara fram í kvöld. Fjölnir tekur á móti Keflavík í Grafarvogi og ÍR tekur á móti Tindastól í Seljaskóla. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 27.10.2006 17:20
Segir stjóra öfunda Sam Allardyce Sir Alex Ferguson segir að þeir stjórar sem gagnrýni leikstíl Sam Allardyce og Bolton liðsins séu einfaldlega öfundsjúkir og bitrir af því þeim takist sjaldan að vinna sigur á Bolton. Rafa Benitez hjá Liverpool er einn þeirra sem hefur verið hvað duglegastur við að gagnrýna Allardyce. 27.10.2006 17:12
Enn meiðist Kieron Dyer Óheppni miðjumannsins Kieron Dyer ríður ekki við einteyming og í dag tilkynnti Glenn Roeder knattspyrnustjóri Newcastle að leikmaðurinn yrði frá í tvær vikur vegna óhapps sem Dyer varð fyrir á æfingasvæði liðsins. Hann ku vera meiddur á auga en ekki hefur verið greint frá því hvað kom fyrir hann. 27.10.2006 16:34
Romanov hótar að selja leikmenn ef þeir tapa Mikil ólga ríkir nú í herbúðum skoska liðsins Hearts eftir að meirihlutaeigandi félagsins, Vladimir Romanov, hótaði að setja alla leikmenn liðsins á sölulista ef þeir vinna ekki sigur á Dunfermilne um helgina. Þessi skilaboð hafa skiljanlega vakið hörð viðbrögð leikmanna, sem segja upplausnarástand í herbúðum liðsins. 27.10.2006 16:15
Kirkland semur við Wigan Enska úrvalsdeildarfélagið Wigan hefur nú formlega fest kaup á markverðinum Chris Kirkland frá Liverpool, en leikmaðurinn gekk í raðir Wigan sem lánsmaður í sumar. Þessi 25 ára gamli markvörður hefur staðið sig vel með Wigan það sem af er leiktíðinni og hefur átt fast sæti í liðinu. Hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning. 27.10.2006 16:00
George Byrd í Hamar Miðherjinn George Byrd sem lék við góðan orðstír með Skallagrími í Borgarnesi á síðustu leiktíð, gengur í raðir Hamars/Selfoss um helgina. Þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is í gærkvöld. Byrd verður Hamarsmönnum eflaust mikill styrkur, en hann fær það hlutverk að fylla skarð Lewis Monroe sem var látinn fara frá liðinu á dögunum. 27.10.2006 15:20
Denver skellti LA Lakers Denver lagði LA Lakers örugglega 126-108 í æfingaleik liðanna í nótt sem sýndur var beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Carmelo Anthony skoraði 32 stig á aðeins 31 mínútu fyrir Denver og Andre Miller skoraði 14 stig, gaf 11 stoðsendingar og hirti 8 fráköst, en Andrew Bynum skoraði 23 stig og hirti 7 fráköst fyrir Lakers. Kobe Bryant var ekki með liði Lakers og er enn tæpur að ná fyrsta deildarleik liðsins eftir helgina. 27.10.2006 14:58
Titilvonir Grönholm úr sögunni? Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á nú litlar vonir um að ná heimsmeistaranum Sebastien Loeb að stigum á heimsmeistaramótinu í rallakstri eftir að Finninn velti bíl sínum í dag. 27.10.2006 14:44
Mutombo ósáttur við kynþáttafordóma Miðherjinn Dikembe Mutombo hjá Houston Rockets lenti í orðaskaki við einn stuðningsmanna Orlando Magic í æfingaleik liðanna í NBA í fyrrakvöld eftir að hafa orðið fyrir kynþáttaníð í lok þriðja leikhlutans. 27.10.2006 03:18
Silkeborg rekur þjálfarann Viggo Jensen hefur verið rekinn úr starfi þjálfara hjá danska úrvalsdeildarliðinu Silkeborg. Með liðinu leika þrír Íslendingar; þeir Bjarni Ólafur Eiríksson, Hólmar Örn Rúnarsson og Hörður Sveinsson. 27.10.2006 00:01
Tindastóll yfir í Seljaskóla Tindastóll hefur góða 54-41 forystu gegn ÍR þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í úrvalsdeildinni sem fram fer í Seljaskóla. Lamar Karim hefur skoraði 18 stig fyrir Tindastól og Svavar Birgisson 12, en hjá ÍR er LMar Owen kominn með 15 stig og Ólafur Sigurðsson 12. Í hinum leik kvöldsins höfðu Fjölnismenn yfir 33-24 forystu gegn Keflavík þegar síðast fréttist. 27.10.2006 20:05
LA Lakers - Denver í beinni í nótt Leikur LA Lakers og Denver Nuggets á undirbúningstímabilinu í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland klukkan tvö eftir miðnætti í nótt. Kobe Bryant á enn við meiðsli að stríða og óljóst er hvort hann verður klár í byrjun tímabils eftir helgina. 26.10.2006 21:45
Skallagrímur lagði KR Skallagrímur úr Borgarnesi gerði góða ferð í höfuðborgina í kvöld þegar liðið færði KR fyrsta tap sitt í úrvalsdeildinni með 88-81 sigri. Gestirnir höfðu undirtökin lengst af leik og unnu verðskuldaðan sigur. 26.10.2006 20:43
Lerner hafði ekki áhuga á Newcastle eða Everton Doug Ellis, fyrrum aðaleigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa, segir að eftirmanni sínum, ameríska milljarðamæringnum Randy Lerner, hafi verið gert tilboð um að kaupa hlut í Everton og Newcastle. Ellis segir Lerner hafa hafnað þessum tilboðum vegna skulda félaganna. 26.10.2006 20:30
Fylkir fær góðan liðsstyrk Fylkismenn hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin næsta sumar en í dag gekk félagið frá samningi við þrjá nýja leikmenn, þá David Hannah, Kristján Valdimarsson og Frey Guðlaugsson. Hörður Magnússon greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. 26.10.2006 19:15
Pressan er öll á Milan Framherjinn Hernan Crespo segir að pressan sé öll á liði AC Milan fyrir risaslag grannliðanna AC og Inter í ítölsku A-deildinni á laugardaginn. Inter er á toppi deildarinnar með 18 stig úr 8 leikjum, en AC er þar 11 stigum á eftir í 12. sæti og þá á eftir að reikna með stigarefsinguna úr skandalnum í sumar. 26.10.2006 18:30
Stern vill að leikmenn gangi um óvopnaðir David Stern, forseti NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú farið þess á leit við leikmenn í deildinni að þeir skilji skotvopn sín eftir heima hjá sér og gangi ekki með þau á sér úti á götu og á keppnisferðalögum. 26.10.2006 18:11
Steven Thomas leikmaður 2. umferðar Bandaríkjamaðurinn Steven Thomas var besti leikmaður 2. umferðar úrvalsdeildar karla í körfubolta samkvæmt töfræðigrunni KKÍ. Thomas fór mikinn í leik gegn Haukum á dögunum, skoraði 24 stig, hirti 23 fráköst og varði 4 skot - en þessi tölfræði skilaði honum 43 stigum fyrir frammistöðuna á leikvarpinu hjá KKÍ. 26.10.2006 17:45
Varnarmaður Wisla Krakow í fimm leikja bann Aganefnd evrópska knattspyrnusambandsins dæmdi varnarmanninn Nikola Mijailovic hjá pólska liðinu Wisla Krakow í fimm leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Benni McCarthy hjá Blackburn í leik liðanna á dögunum. 26.10.2006 17:27
Stórleikur í vesturbænum í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta með fjórum leikjum. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Skallagríms í DHL höllinni. Njarðvík tekur á móti Hamri í Njarðvík, Haukar mæta Snæfelli og Þór Þorlákshöfn fær Grindavík í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. 26.10.2006 17:07
Ánægður með Eið Smára Frank Rijkaard var mjög ánægður með frammistöðu Eiðs Smára Guðjohnsen í gær þegar hann skoraði bæði mörk Barcelona í 2-1 sigri á smáliði Badalona í fyrri viðueign liðanna í spænska bikarnum. Evrópumeistararnir þóttu ekki sýna nein glæsitilþrif í leiknum, en það var Eiður Smári sem gerði gæfumuninn með mörkum sínum. 26.10.2006 16:42
George Best á peningaseðil Knattspyrnugoðið George Best hefur nú fengið þann mikla heiður að vera prentaður á peningaseðla á Norður-Írlandi sem gefnir verða út þegar eitt ár verður liðið frá andláti hans. Hér verður um að ræða takmarkað upplag af fimm punda seðlum þar sem mynd verður af honum í búningi Manchester United og Norður-Írlands. 26.10.2006 16:38
Honduras vill ráða Maradona Knattspyrnusambandið í Honduras átti fund með argentínska knattspyrnugoðinu Diego Maradona í gær þar sem þess var farið á leit við kappann að gerast landsliðsþjálfari. Maradona hefur ekki riðið feitum hesti frá þjálfarastörfum til þessa, en talsmaður knattspyrnusambandsins í Honduras telur að það myndi auka veg og virðingu landsins að fá jafn þekktan landsliðsþjálfara. 26.10.2006 16:31
Southend - Man Utd verður í beinni á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn verður áfram með beinar útsendingar frá leikjum í ensku deildarbikarkeppninni og næsti leikur á dagskrá verður viðureign Southend og Manchester United þriðjudaginn 7. nóvember og daginn eftir verður leikur Birmingham og Liverpool sýndur beint. 26.10.2006 16:25
Mikil spenna í fyrstu umferðunum Það er óhætt að segja að fyrstu tvær umferðirnar í úrvalsdeild karla í körfubolta lofi góðu um framhaldið í vetur, því aldrei áður hefur verið eins mikil spenna á jafnmörgum vígstöðvum eftir tvær umferðir á miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag. 26.10.2006 15:58
Segir leikmönnum að sýna meiri hörku Harðjaxlinn Dennis Wise er nú þegar farinn að setja svip sinn á lið Leeds United og er farinn að taka til í herbúðum liðsins, sem hefur gengið afleitlega í deildinni að undanförnu. Wise er búinn að skipta um fyrirliða og óskar eftir því við leikmann að þeir sýni sömu hörku og leikmenn liðsins voru þekktir fyrir hér áður fyrr. 26.10.2006 15:49
Houston burstaði Miami Átta leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en nú er smátt og smátt að færast meiri alvara í æfingaleikina þar sem deildarkeppnin byrjar eftir helgina. Houston Rockets burstaði meistara Miami Heat á útivelli í sjónvarpsleiknum á NBA TV. 26.10.2006 15:32
Kewell spilar ekki á árinu Meiðslaharmsaga miðjumannsins Harry Kewell hjá Liverpool virðist ekki ætla að taka enda, en þessi 28 ára gamli ástralski landsliðsmaður hefur sagt að hann reikni ekki með því að geta spilað á ný fyrr en snemma á næsta ári eftir að hafa gengist undir aðgerð á fæti og nára. 26.10.2006 15:27
Er ekki að taka við West Ham Umboðsmaður knattspyrnuþjálfarans Sven-Göran Eriksson segir ekkert hæft í þeim fréttum að Sven-Göran Eriksson verði næsti knattspyrnustjóri West Ham ef íranski milljarðamæringurinn Kia Joorabchian kaupi félagið á næstunni. 26.10.2006 15:21
Chelsea og Aston Villa mætast í 4. umferð Í gærkvöld var dregið í 4. umferð enska deildarbikarsins, þar sem næstu leikir fara fram 7.-8. nóvember nk. Englandsmeistarar Chelsea fengu heimaleik gegn Aston Villa og núverandi bikarmeistarar Manchester United sækja Southend heim. 26.10.2006 15:15
Liðum fjölgað árið 2008? Sænska knattspyrnusambandið hefur borið fram tillögu um að liðum í sænsku úrvalsdeildinni verði fjölgað úr fjórtán í sextán árið 2008. Málið hefur verið víða rætt og vill stór meirihluti innan hreyfingarinnar sem fjölgun. 26.10.2006 00:01
Loftpúðanum var stolið úr nýja bílnum Knattspyrnumaðurinn ungi, Ari Freyr Skúlason, er hægt og sígandi að aðlagast lífinu í Svíþjóð en hann gekk í raðir Häcken frá Val í sumar. Ari Freyr hefur ekki fengið mikið að spreyta sig í liði Häcken frá því að hann kom til liðsins en strákurinn er þó ekki að örvænta. 26.10.2006 00:01