Fleiri fréttir

Búið að velja úrvalslið leikmanna á HM

Aðeins einn leikmaður úr enska landsliðinu er í 23-manna úrvalsliði HM sem tilkynnt var nú áðan, en það er varnarmaðurinn John Terry frá Chelsea. Sjö leikmenn úr ítalska landsliðinu eru í úrvalinu, fjórir Frakkar, en enginn Afríku- eða Asíumaður.

Materazzi segir að Gattuso pakki Zidane saman

Marco Materazzi miðvörður Ítalska landsliðsins er kokhraustur fyrir úrslitaleikinn á HM sem að fram fer á sunnudaginn. Hann segir að lítið mál sé fyrir Gennaro Gattuso að pakka Zinidine Zidane saman og koma í veg fyrir að hann beri franska liðið uppi.

Grosso byrjaði ekki í alvörufótbolta fyrr 2001

Fabio Grosso, leikmaður Ítalíu segir að hann hafi ekki byrjað að spila alvöru fótbolta fyrr en fyrir fimm árum síðan þegar Perugia fékk hann á frjálsri sölu frá fjórðu deildar liðinu Chieti.

Klismann fær frest fram í ágúst

Þýska knattspyrnusambandið ætlar að gefa Jurgen Klinsmann, frest til 16 ágúst á að ákveða sig hvort hann hafi áhuga að vera áfram með þýska landsliðið.

Kahn verður í markinu

Oliver Kahn mun verja mark Þjóðverja er þeir mæta Portúgölum í leik um bronsið á HM á laugardaginn. Það er Þýska blaðið Bild sem segir frá þessu og hefur þetta eftir Jurgen Klinsmann, þjálfara liðsins.

Hefur engar áhyggjur af gömlu mönnunum

Raymond Domenech hefur orðið fyrir talsverðri gagnrýni fyrir að velja fremur gamla leikmenn í flestar stöður í franska landsliðið, en hann hefur nú varið þá ákvörðun sína og segir þá alla klára í slaginn þegar kemur að úrslitaleiknum á sunnudag.

Zidane er besti leikmaður síðustu 20 ára

Marcello Lippi, landsliðsþjálfari Ítala, segir að frábær leikur fyrirliðans Zinedine Zidane sé lykillinn að frábærum spretti franska landsliðsins í úrsláttarkeppninni á HM. Frakkarnir voru alls ekki sannfærandi í riðlakeppninni og um tíma leit út fyrir að liðið færi aftur heim með skottið á milli lappanna líkt og á síðasta HM.

Ætlar ekki að taka við Bandaríkjamönnum

Jurgen Klinsmann hefur farið þess á leit við fjölmiðla sem aðra, að vera ekki settur undir pressu til að ákveða framtíð sína. Klinsmann hefur mikið verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, en öfugt við almenningsálitið fyrir HM, virðist hann nú njóta stuðnings bæði þýsku þjóðarinnar og landsliðsins um að halda áfram í starfi.

Podolski besti ungi leikmaðurinn

Sóknarmaðurinn Lukas Podolski hjá þýska landsliðinu var í dag kjörinn besti ungi leikmaðurinn á HM og hafði naumlega betur en Portúgalinn Cristiano Ronaldo í kjörinu. Podolski er aðeins tvítugur og hefur skorað þrjú mörk í þeim sex leikjum sem hann hefur spilað á mótinu til þessa, en Þjóðverjar mæta einmitt Portúgölum í leik um þriðja sætið á morgun.

FH lagði KR 2-0

Íslandsmeistarar FH halda sínu striki í titilvörninni eftir að liðið vann góðan 2-0 sigur á KR-ingum á heimavelli sínum í Kaplakrika í kvöld. Fyrra mark FH var sjálfsmark Bjarnólfs Lárussonar á 61. mínútu og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson innsiglaði svo sigur Hafnfirðinga með marki skömmu fyrir leikslok. Varamanninum Tryggva Bjarnasyni var svo vikið af velli í uppbótartíma fyrir glórulausa tæklingu.

Keflavík mætir ÍA

Það verða Keflvíkingar sem mæta Skagamönnum í 8-liða úrslitum Visa-bikars karla í knattspyrnu eftir 3-0 sigur liðsins á Leikni í Breiðholtinu í kvöld. Stefán Örn Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Suðurnesjamenn og Guðmundur Steinarsson skoraði eitt mark úr vítaspyrnu. Jafnræði var með liðnum í fyrri hálfleik, en gestirnir voru sterkari í síðari hálfleiknum og nýttu færin sín betur.

FH-ingar komnir yfir

Íslandsmeistarar FH hafa náð forystu gegn KR í Kaplakrika. Mark FH var sjálfsmark Bjarnólfs Lárussonar, en knötturinn hrökk af honum og í markið eftir að Hafnfirðingarnir höfðu átt bylmingsskot í þverslána á marki KR. Skömmu áður höfðu KR-ingar átt skot í stöngina á marki FH.

Jafnt í Kaplakrika í hálfleik

Fyrsti leikurinn í 10. umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu stendur nú yfir í Kaplakrika í Hafnarfirði. Þar taka Íslandsmeistarar FH á móti KR og skemmst er frá því að segja að ekkert mark hefur litið dagsins ljós í fyrri hálfleiknum. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Hefur fulla trú á stjörnunum

Fabio Capello hefur þegar hafið störf hjá nýja félaginu sínu Real Madrid og segist standa fullkomlega við bakið á leikmönnum á borð við Raul, David Beckham og Ronaldo.

Breyta á reglum um styrkleikalistann

Vegna fjölda áskorana hefur Alþjóða knattspyrnusambandið ákveðið að breyta reglum sem notast hefur verið við til að raða þjóðum á styrkleikalista sambandsins. Helstu áherslubreytingar verða þær að þegar raðað verður á listann verður framvegis tekið mið af árangri liða fjögur ár aftur í tímann í stað átta ára áður.

Birgir Leifur á pari í Skotlandi

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði ágætlega á Áskorendamótaröðinni í Skotlandi í dag þegar hann lauk fyrsta hringnum á 71 höggi, sem er par vallarins.

Keisarinn vill taka á leikaraskap

"Keisarinn" Franz Beckenbauer hefur óskað eftir fundi með dómurum, leikmönnum og forráðamönnum þeirra þar sem umræðuefnið verður leikaraskapur á knattspyrnuvellinum. Nokkuð hefur borið á því á HM að leikmenn reyni að fiska gul spjöld hver á annan með því að ýkja viðbrögð sín við minniháttar brotum og þetta þykir Beckenbauer afar neikvæð þróun.

Mido sagði nei við Blackburn

Framherjinn Mido hjá Roma, sem lék með enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham á síðustu leiktíð, neitaði að ganga til liðs við Blackburn í dag ef marka má fregnir í ítölskum fjölmiðlum í dag. Roma samþykkti 3 milljón punda tilboð enska félagsins í framherjann í gær, en Mido á að hafa neitað að fara til Blackburn og segist staðráðinn í að vinna sér sæti í liði Roma í vetur.

Navratilova lýkur keppni

Martina Navratilova náði ekki að slá metið yfir flesta sigra á Wimbledon mótinu í tennis í dag þegar ljóst var að hún væri úr leik í bæði tvíliða- og tvenndarleiknum. Þetta er síðasta Wimbledon mótið sem hin nær fimmtuga Navratilova tekur þátt í, en hún vann síðast titil þar árið 2003 sem var hennar 20. titill á mótinu á ferlinum.

Emile Heskey til Wigan

Enska úrvalsdeildarliðið Wigan hefur fengið 5,5 milljón punda kauptilboð sitt í framherjann Emile Heskey samþykkt. Birmingham féll sem kunnugt er úr úrvalsdeildinni í vor, en Wigan ætlar sér stóra hluti á sínu öðru ári á meðal þeirra bestu. Emile Heskey er fyrrum enskur landsliðsmaður og er nú í viðræðum við Wigan um kaup og kjör. Wigan hefur einnig verið að reyna að lokka til sín miðjumanninn Robbie Savage frá Blackburn, en hefur ekki haft árangur sem erfiði í þeim efnum.

Mauresmo í úrslit í fyrsta sinn

Tenniskonan Amelie Mauresmo tryggði sér nú síðdegis sæti í úrslitaleiknum á Wimbledon mótinu í fyrsta sinn á ferlinum. Þessi stigahæsta tenniskona heims vann baráttusigur á Mariu Sharapovu í undanúrslitunum 6-3, 3-6 og 6-2 og mætir belgísku stúlkunni Justine Henin Hardenne í úrslitaleiknum.

Lehmann vill að Kahn spili lokaleikinn

Markvörðurinn Jens Lehmann sem varið hefur mark Þjóðverja á HM, segist ekkert hafa á móti því þó Jurgen Klinsmann landsliðsþjálfari leyfi Oliver Kahn að standa í markinu í leiknum um þriðja sætið á HM á laugardag. Lehmann segir að það yrði vel við hæfi að Kahn fengi að spila sinn síðasta HM leik með landsliðinu um helgina.

Elizondo dæmir úrslitaleikinn

Argentínski dómarinn Horacio Elizondo mun dæma úrslitaleik Frakka og Ítala á HM á sunnudaginn. Elizondo hefur dæmt fjóra leiki í keppninni til þessa, þar af opnunarleikinn milli Þjóðverja og Kosta Ríka og þá var það Elizondo sem rak Wayne Rooney nokkuð umdeilt af velli í leiknum gegn Portúgal í átta liða úrslitunum.

Nesta missir af úrslitaleiknum

Varnarmaðurinn sterki Alessandro Nesta verður ekki í leikmannahópi Ítala í úrslitaleiknum gegn Frökkum á sunnudaginn vegna meiðsla. Nesta er meiddur á nára og hefur misst af síðustu leikjum ítalska liðsins. Vonir stóðu til um að hann næði sér fyrir úrslitaleikinn en læknar hafa nú ráðlagt honum að taka ekki áhættu á að spila leikinn.

Tyson Chandler á leið til New Orleans

Undanfarna daga hafa lið í NBA-deildinni verið dugleg að skoða leikmannamarkaðinn. Lið Chicago Bulls og New Orleans Hornets hafa þar verið fremst í flokki. Chicago fékk miðherjann Ben Wallace frá Detroit til liðs við sig á dögunum og hefur nú skipt framherja sínum Tyson Chandler til New Orleans fyrir þá PJ Brown og JR Smith. Ekki er langt síðan serbneska skyttan Peja Stojakovic gekk í raðir New Orleans frá Indiana.

Nadal í undanúrslitin

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal komst nú áðan í undanúrslitin á Wimbledon mótinu í tennis þegar hann lagði Jarkko Nieminen frá Finnlandi 6-3, 6-4 og 6-4. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs. Nadal mætir því spútnikspilaranum Marcos Baghdatis frá Kýpur í undanúrslitunum á morgun.

Zidane þykir líklegur

Gamla kempan Zinedine Zidane þykir einn þeirra leikmanna sem líklegast er talið að gætu hreppt Gullboltann á HM í þetta sinn, en viðurkenningin er veitt fyrir mikilvægasta leikmanninn í keppninni. Það var Oliver Kahn sem hlaut þennan heiður í keppninni fyrir fjórum árum og þar áður var það brasilíski framherjinn Ronaldo.

Dómarinn var hlutdrægur

Cristiano Ronaldo, leikmaður Portúgal, sagðist aðeins hafa eflst við það þegar áhorfendur bauluðu á hann í leiknum gegn Frökkum í gær en vill meina að dómarinn hafi alls ekki verið starfi sínu vaxinn.

Henin-Hardenne í úrslit

Hin belgíska Justine Henin-Hardenne tryggði sér nú áðan sæti í úrslitum Wimbledon mótsins í tennis þegar hún lagði löndu sína Kim Clijsters í undanúrslitaleik 6-4 og 7-6(7-4). Þetta var þriðji sigur Hardenne á löndu sinni í röð og þessi þriðja stigahæsta tenniskona heims því annað hvort Emelie Mauresmo eða Mariu Sharapovu í úrsitaleik mótsins. Sá leikur stendur yfir þessa stundina.

Ólafur Kristjánsson tekur við Blikum

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur gengið frá samningi við Ólaf Kristjánsson um að taka að sér þjálfun liðsins út leiktíðina. Ólafur tekur við af Bjarna Jóhannessyni sem hætti störfum hjá félaginu á dögunum. Fyrsti leikur Ólafs við stjórnvölinn verður útileikur við Val á sunnudaginn. Ólafur var áður á mála hjá Fram. Þetta kemur fram í íþróttafréttum á NFS nú í kvöld.

Thuram telur að Frakkar þurfi að varast Ítalina

Lilian Thuram miðvörður franska landsliðsins sem að leikur einnig með ítalska liðinu Juventus telur að Frakkar verði að passa sig á samheldnu og sterku liði Ítala í úrslitaleiknum.

Undanúrslit-upprifjun

Nú eru undanúrslitin á HM að baki og bara tveir leikir eftir, leikurinn um þriðja sætið og sjálfur úrslitaleikurinn. Þá er kominn tími á að gera upp undanúrslitin.

„Stórkostlegt!“

Frönsku blöðin voru í sjöunda himni eftir sigur Frakka í gær, Le Figaro sagði, „Vinnan skilaði úrlitaleiknum“. „Stórkostlegt!“, birtist á forsíðu Le Parisien og á síðum L'Equipe, „Markmið lífsins“. Liberation var hógvært í morgun og sagði, „Sunnudagur í Berlín“.

Gullboltinn kynntur í morgun

Angela Merkel kanslari Þýskalands og Franz Beckenbauer, forseti framkvæmdanefndar, kynntu boltann sem notaður verður í úrslitaleiknum á HM.

Með hverjum heldur þú?

Þetta verður löng helgi, strax er byrjað að velta vöngum yfir næstu heimsmeisturum, hvorir verða það, hvað þarf til, og svo framvegis. Ég flýg til Berlínar í fyrramálið og við sendum 442 á laugardag og sunnudag út frá Reykjavík og Berlín, þetta snýst ekki lengur að halda með einhverjum, heldur halda hátíð.

Frakkar og Ítalar leika til úrslita á HM

Zinedine Zidane skoraði sigurmark Frakka gegn Portúgölum úr vítaspyrnu á 33. mínútu undanúrslitaviðureignar liðanna í Munchen í dag. Leikurinn var hinn fjörugasti á köflum, en eins og svo oft áður var það reynt og þaulskipulagt lið Frakka sem stóð uppi sem sigurvegari. Það verða því Frakkar og Ítalar sem leika til úrslita á HM í Berlín á sunnudaginn.

Frakkar leiða í hálfleik

Frakkar hafa yfir 1-0 gegn Portúgölum í leik liðanna í undanúrslitunum á HM. Zinedine Zidane skoraði mark Frakka úr vítaspyrnu eftir um 30 mínútna leik. Portúgalar hafa færst heldur í aukana eftir að þeir fengu á sig markið með Cristiano Ronaldo fremstan í flokki. Áhorfendur eru þó ekki jafn hrifnir af kappanum og baula á hann í hvert sinn sem hann fær boltann. Sigurvegarinn í kvöld mætir Ítölum í úrslitaleik mótsins.

Frakkar komnir yfir

Frakkar hafa náð forystu gegn Portúgölum í undanúrslitaleiknum á HM í Munchen. Ricardo Carvalho felldi Thierry Henry innan teigs og dæmd var vítaspyrna eftir rúmlega hálftíma leik. Spyrnuna tók gamla kempan Zinedine Zidane sem steig á punktinn og lét ekki vítabanann Ricardo hafa áhrif á sig og skoraði af öryggi.

Federer gerði andstæðing sinn orðlausan

Tenniskappinn Roger Federer er kominn í undanúrslitin á Wimbledon mótinu í tennis eftir að hann valtaði yfir Króatann Mario Ancic 6-4, 6-4 og 6-4. Federer þótti leika ótrúlega í dag og það virtist ekki hafa nein áhrif á hann að fresta þurfti leiknum um tíma vegna rigninga.

Fabio Aurelio til Liverpool

Liverpool hefur fengið til sín vinstri bakvörðinn Fabio Aurelio á frjálsri sölu frá spænska liðinu Valencia, en Aurelio þessi varð einmitt spænskur meistari undir stjórn Rafa Benitez þegar hann stýrði liðinu á sínum tíma. Þá hefur Liverpool einnig gert samning við tvítuga miðvörðinn Gabriel Paletta frá argentínska liðinu Atletico Banfield og fyrr í dag fékk Mark Gonzalez loks atvinnuleyfi hjá félaginu eftir að það keypti hann fyrir ári síðan.

West Ham kaupir Carlton Cole

Enska úrvalsdeildarliðið West Ham hefur fest kaup á framherjanum Carlton Cole frá Englandsmeisturum Chelsea. Cole er 22 ára gamall og hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Chelsea, þrátt fyrir að leika á tíðum vel fyrir enska U-21 árs liðið. Hjá West Ham mun hann keppa við þá Dean Ashton, Teddy Sheringham, Bobby Zamora og Marlon Harewood um stöðu í framlínunni.

Figo og Ronaldo í byrjunarliði Portúgala

Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Frakka og Portúgala fyrir leik liðanna í undanúrslitunum á HM. Leikurinn hefst klukkan 19 og er í beinni útsendingu á Sýn. Þeir Luis Figo og Cristiano Ronaldo verða báðir í byrjunarliði Portúgala eftir að hafa vera tæpir vegna meiðsla. Frakkar mæta til leiks með óbreytt lið.

Dreymir um að vinna tvisvar í röð

Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgala, getur heldur betur skrifað nafn sitt í sögubækur ef hann gerir Portúgala að heimsmeisturum í knattspyrnu. Hann segir að takmark sitt með liðið fyrir HM í ár hafi verið að ná í átta liða úrslitin, en nú sé hver leikur eins og draumur sem verði að veruleika fyrir liðið.

Bolton og Arsenal sýna áhuga

Umboðsmaður Argentínumannsins Javier Saviola segir að Arsenal og Bolton í ensku úrvalsdeildinni hafi sýnt leikmanninum áhuga, sem og lið Pananthinaikos í Grikklandi. Saviola er samningsbundinn Barcelona, en umboðsmaður hans segir ekkert koma til greina fyrir leikmanninn nema að spila á Spáni eða Englandi.

Sjá næstu 50 fréttir