Fleiri fréttir

Hafa aðeins mæst einu sinni áður

England og Ekvador hafa aðeins einu sinni áður mæst. Það var vináttuleikur, fyrir HM 1970, sem England sigraði 2-0. Liðin leika í 16 liða úrslitum HM í dag og hefst leikurinn klukkan 15. Sýnt verður beint frá viðureigninni í Sýn.

Argentína áfram

Argentínumenn eru komnir í 8-liða úrslit HM eftir 2-1 sigur á Mexíkóum í kvöld. Rafael Marquez kom Mexíkó yfir strax í byrjun leiks, en Argentínumenn jöfnuðu á 9. mínútu með sjálfsmarki. Staðan var jöfn að loknum venjulegum leiktíma, en aðeins þrumufleygur Maxi Rodriguez í upphafi framlengingar skildi liðin að þegar upp var staðið.

Rodriguez kemur Argentínu yfir

Hinn skæði Maxi Rodriguez hefur komið Argentínu yfir 2-1 gegn Mexíkó eftir aðeins átta mínútur í framlengingunni. Markið var stórglæsilegt, þar sem Rodriguez fékk háa sendingu frá Juan Pablo Sorin, tók boltann á kassann og þrumaði honum efst í markhornið fyrir utan vítateig. Stórglæsilegt mark og nú er á brattann að sækja fyrir Mexíkóa.

Framlengt í Leipzig

Leikur Argentínumanna og Mexíkóa í 16-liða úrslitum HM er farinn í framlengingu eftir að staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma. Heldur dofnaði yfir leiknum í síðari hálfleik, en Mexíkóarnir ætla greinilega að selja sig dýrt. Þeir Pablo Aimar, Lionel Messi og Carlos Tevez eru allir komnir inn í lið Argentínu, sem vill eflaust reyna að blása til sóknar og forðast vítakeppni.

Fimmti ráspóllinn í röð hjá Alonso

Heimsmeistarinn Fernando Alonso verður á ráspól í kanadíska kappakstrinum í Montreal á morgun eftir að hann náði besta tímanum í tímatökunum í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem hann er á ráspól í þessari keppni, en í fimmta skipti í röð á þessu keppnistímabili sem hann ræsir fyrstur.

Ég hef aldrei séð skemmtilegra þýskt lið

Jurgen Klinsmann segir að Þjóðverjar séu nú að endurskoða þau markmið sem þeir settu sér fyrir HM. Klinsmann hafði vonast til að koma liðinu í fjórðungsúrslit keppninnar, en segir lið sitt nú setja stefnuna enn hærra. Hann segist jafnframt aldrei hafa séð skemmtilegri spilamennsku hjá þýska landsliðinu en það sýndi í leiknum gegn Svíum í dag.

Jafnt í hálfleik hjá Argentínu og Mexíkó

Staðan í leik Mexíkó og Argentínu er 1-1 í hálfleik. Rafael Marquez kom Mexíkó yfir snemma leiks, en jöfnunarmark Argentínu var að því er virðist sjálfsmark Jared Borgetti. Leikurinn hefur verið mjög fjörugur, þó eilítið hafi dregið af mönnum eftir mörkin tvö strax í upphafi. Mexíkóar eru þó sannarlega að sýna að þeir verða ekki auðveld hindrun á vegi hærra skrifaðra frænda sinna frá Argentínu.

Nesta ekki með gegn Ástralíu

Alessandro Nesta, varnarmaður ítalska landsliðsins, verður ekki með í 16 liða úrsltum á móti Ástralíu á mánudaginn. Nesta fór meiddur útaf í leiknum gegn Tékkum og hefur læknisskoðun leitt í ljós að hann verði ekki klár fyrir leikinn gegn Áströlum.

Lagerback mjög ósáttur við rauða spjaldið

Lars Lagerback, þjálfari sænska landsliðsins, var afar ósáttur við rauða spjaldið sem Teddy Lucic fékk að líta eftir aðeins rúmlega hálftíma leik gegn Þjóðverjum í dag og sagði þá ákvörðun dómarans hafa gert út um leikinn fyrir lið sitt.

Klinsmann og co

Hvílík sýning! Þjóðverjar áttu 26 skot á mark Svía í leiknum í 16 liða úrslitum, segir þetta ekki alla söguna um hverskonar lið þetta er? Þetta var stórkostlegur leikur framan af, 2-0 eftir tólf mínútur, og ef Isaksson hefði ekki varið einsog skepna, þá er trúlegt að leikurinn hefði verið 14-2 niðurlæging Svía.

Argentína jafnar á sjálfsmarki

Það tók Argentínumenn ekki nema þrjár mínútur að jafna metin gegn Mexíkó, en þar var að verki framherjinn Jared Borgetti hjá Mexíkó. Borgetti var svo óheppinn að skalla boltann í eigið net eftir 9 mínútna leik eftir að Argentínumenn fengu hornspyrnu og Hernan Crespo þjarmaði að honum.

Mexíkóar komnir yfir gegn Argentínu

Mexíkóar eru óvænt búnir að ná 1-0 forystu gegn Argentínumönnum í leik liðanna í 16-liða úrslitunum á HM. Það var varnarjaxlinn Rafael Marquez sem spilar með Barcelona sem skoraði markið eftir aukaspyrnu á 6. mínútu leiksins. Leikurinn hefur byrjað mjög fjörlega og ljóst að nú fá áhorfendur Sýnar að sjá úr hverju argentínska liðið er gert.

Í viðræðum við Houllier

Ástralska knattspyrnusambandið er nú í viðræðum við Gerald Houllier, þjálfara frönsku meistaranna í Lyon og fyrrum stjóra Liverpool, um að taka við stjórn landsliðsins eftir að Guus Hiddink hættir í sumar. Hiddink tekur við landsliði Rússa eftir HM og talið er að ástralska knattspyrnusambandið vilji tryggja sér stórt nafn til að taka við landsliðinu þegar Hiddink hættir. Mikið knattspyrnufár ríkir nú í Ástralíu í kjölfar góðs gengis landsliðsins og er mikil uppsveifla í boltanum þar í landi um þessar mundir.

Leikur Argentínu og Mexíkó að hefjast

Nú klukkan 19 er röðin komin að síðari leik dagsins í 16-liða úrslitunum á HM. Fastlega má reikna með skemmtilegum leik þegar Argentínumenn og Mexíkóar leiða saman hesta sína. Javier Saviola og Hernan Crespo koma inn í lið Argentínumanna á ný og Jared Borgetti verður í framlínu Mexíkóa eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Neville úr leik?

Svo gæti farið að enski bakvörðurinn Gary Neville kæmi ekki meira við sögu á HM eftir að hann meiddist á ný á kálfa á æfingu í dag. Neville hafði verið á þokkalegum batavegi en hefur nú slegið niður á ný og því er Sven-Göran Eriksson svartsýnn á að leikmaðurinn verði meira með liðinu á mótinu. Talið er að Owen Hargreaves taki stöðu hans í leiknum gegn Ekvador í 16-liða úrslitunum á morgun.

Liðið vex með hverjum leik

Markaskorarinn Lukas Podolski þakkaði öflugri liðsheild sigurinn á Svíum í 16-liða úrslitum HM í dag, en Podolski skoraði bæði mörk þýska liðsins eftir undirbúning frá Miroslav Klose. Þýska liðið var harðlega gagnrýnt fyrir frammistöðu sína allar götur þar til mótið hófst, en hefur sýnt allar sínar bestu hliðar og er komið í 8-liða úrslit.

Þjóðverjar í átta liða úrslitin

Þjóðverjar unnu auðveldan 2-0 sigur á Svíum í fyrsta leik 16-liða úrslitanna á HM í dag. Það var hinn ungi Lukas Podolski sem skoraði bæði mörk þýska liðsins á fyrstu 12. mínútum leiksins eftir góðan undirbúning Miroslav Klose og eftir það var sigur þýska liðsins vart í hættu. Svíar léku manni færi frá 35. mínútu þegar Teddy Lucic var vikið af leikvelli.

Keflvíkingar áfram

Keflvíkingar mæta norska liðinu Lilleström í næstu umferð Intertoto keppninnar í knattspyrnu eftir að gera 0-0 jafntefli við norður-írska liðið Dungannon á útivelli í dag. Keflvíkingar unnu auðveldan 4-1 sigur í fyrri leiknum og eru því komnir áfram í keppninni.

Larsson brenndi af vítaspyrnu

Henrik Larsson fékk kjörið tækifæri til að koma Svíum aftur inn í leikinn gegn Þjóðverjum þegar hann fékk vítaspyrnu á 53. mínútu leiksins. Larsson tók spyrnuna sjálfur, en hún fór hátt yfir markið og því er staðan óbreytt - Þjóðverjar hafa yfir 2-0 gegn aðeins tíu Svíum. Michael Ballack hefur verið hvað atkvæðamestur í þýska liðinu í síðari hálfleik og átti meðal annars þrumuskot sem Isaksson varði í stöng og út.

Renault í sérflokki á lokaæfingum í Montreal

Renault-ökumennirnir Fernando Alonso og Giancarlo Fisichella náðu bestum tíma allra á lokaæfingunum fyrir tímatökurnar í Montreal-kappakstrinum. Heimsmeistarinn Alonso hefur aldrei komist á verðlaunapall í Kanada, en hefur verið í fantaformi á æfingunum og er til alls líklegur í þetta sinn.

Agassi hættir eftir opna bandaríska

Bandaríski tennisleikarinn Andre Agassi hefur tilkynnt að hann ætli að leggja spaðann á hilluna eftir opna bandaríska meistaramótið í ágúst. Agassi er 36 ára gamall og hefur í áraraðir verið einn allra besti tennisleikari heims. Hann hefur unnið átta risatitla á ferlinum og er aðeins einn af fimm spilurum í sögunni sem hafa unnið öll fjögur alslemmumótin. Agassi hefur verið atvinnumaður í 20 ár.

Þjóðverjar með þægilega stöðu

Þjóðverjar hafa yfir 2-0 gegn Svíum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í 16-liða úrslitunum á HM. Lukas Podolski skoraði mörk þýska liðsins á 4. og 12. mínútu og til að bæta gráu ofan á svart eru Svíarnir einum leikmanni færri eftir að Teddy Lucic var vikið af leikvelli þegar hann fékk sitt annað gula spjald á 35. mínútu.

Podolski skorar aftur

Lukas Podolski er búinn að koma Þjóðverjum í 2-0 gegn Svíum. Markið kom eftir laglegan undirbúning frá Miroslav Klose alveg eins og fyrsta markið, en vörn sænska liðsins er í molum. Mörkin komu á 4. og 11. mínútu.

Podolski kemur Þjóðverjum yfir

Þjóðverjar eiga sannkallaða draumabyrjun í leiknum gegn Svíum í Munchen, en Lukas Podolski kom þeim yfir strax á 4. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Miroslav Klose. Þetta er annað mark hins unga Podolski í keppninni og fer leikurinn afar fjörlega af stað.

Senderos er úr leik vegna meiðsla

Svissneski varnarmaðurinn Philippe Senderos leikur ekki meira með liðinu á HM eftir að hann fór úr axlarlið í leiknum gegn Suður-Kóreu í gær. Senderos byrjaði á því að hljóta ljótan skurð í andliti þegar hann skoraði annað marka liðsins í gær og datt svo illa á öxlina með fyrrgreindum afleiðingum. Þetta er svissneska liðinu mikið áfall, en talið er að hann verði engu að síður klár í slaginn með Arsenal þegar leikur hefst í ensku úrvalsdeildinni.

Leikur Þjóðverja og Svía að hefjast

Fyrsti leikurinn í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins er nú að hefjast í beinni útsendingu á Sýn og er þar um að ræða viðureign gestgjafanna Þjóðverja og Svía. Hvort lið gerði eina breytingu fyrir leikinn. Christoph Metzelder kemur inn í byrjunarlið Þjóðverja og Zlatan Ibrahimovic er kominn aftur inn í sænska liðið, sem hefur ekki unnið það þýska síðan árið 1978.

Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum

Nú áðan varð endanlega ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitunum á HM, en þau hefjast strax á morgun með leik Þjóðverja og Svía klukkan 15:00. Allir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn.

Carrick í byrjunarliðinu gegn Ekvador?

Breska sjónvarpið greinir frá því í kvöld að Michael Carrick muni að öllum líkindum verða í byrjunarliði Englendinga í leiknum gegn Ekvador í 16-liða úrslitum HM sem leikinn verður í Stuttgart á sunnudaginn. Þá er talið að Owen Hargreaves muni taka stöðu Jamie Carragher í hægri bakverðinum og að enska liðið muni spila leikkerfið 4-5-1 með Wayne Rooney einn í framlínunni.

Frakkar áfram

Frakkar eru komnir í 16-liða úrslitin á HM eftir að liðið lagði Tógó 2-0 í kvöld með mörkum frá afmælisbarninu Patrick Vieira og Thierry Henry. Á sama tíma tryggðu Svisslendingar sér toppsætið í riðlinum með 2-0 sigri á Suður-Kóreu. Frakkar fá það erfiða verkefni að mæta Spánverjum í 16-liða úrslitunum, en Svisslendingar mæta Úkraínumönnum.

Vieira brýtur ísinn

Patrick Vieira var að koma Frökkum yfir í leiknum mikilvæga gegn Tógó. Vieira skoraði markið með góðu skoti úr vítateignum eftir snarpa sókn en þeir bláklæddu höfðu áður misst marks í fjölda dauðafæra. Frakkar verða að vinna leikinn til að komast áfram úr riðlinum, og allt stefnir í það miðað við stöðu mála.

Frakkar í miklum vandræðum

Nú er kominn hálfleikur í viðureign Frakka og Tógómanna í H-riðlinum á HM og enn hefur ekkert mark verið skorað. Það þýðir að franska liðið er á leið heim eftir riðlakeppnina ef staðan breytist ekki. Í hinum leiknum hafa Svisslendingar 1-0 forystu gegn Suður-Kóreu, þar sem varnarmaðurinn knái Philippe Senderos hjá Arsenal skoraði með skalla og er svissneska liðið því í fínum málum fyrir síðari hálfleikinn.

Claudio Reyna hættur

Claudio Reyna, leikmaður Manchester City og bandaríska landsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í dag að hann væri hættur að leika með landsliðinu. Reyna er almennt álitinn einn besti leikmaður bandaríska liðsins frá upphafi og hefur verið lykilmaður í landsliðinu frá því um miðjan síðasta áratug.

West Brom neitar tilboði Wigan í þrjá leikmenn

Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að enska 1. deildarliðið West Brom hafi í dag neitað um 10 milljón punda tilboði Wigan í þá Zoltan Gera, Curtis Davies og Nathan Ellington. Forráðamenn West Brom eiga að hafa sagt þvert nei og þvertaka fyrir að leikmenn félagsins séu til sölu þrátt fyrir fallið í fyrstu deild í vor.

Áhorf jókst verulega frá í fyrra

ABC-sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hefur gefið það út að áhorf á úrslitaeinvígið í NBA sem lauk á dögunum, hafi verið umtalsvert meira en það var í fyrra. Áhorf á úrslitakeppnina sjálfa jókst um 12% frá árinu í fyrra og 13% meira áhorf var að jafnaði á leikina í úrslitunum. Þrettán milljónir áhorfenda sáu að jafnaði hvern leik í rimmu Miami Heat og Dallas Mavericks.

Leikur Frakka og Tógó að hefjast á Sýn

Frakkar þurfa á sigri að halda í dag ef þeir ætla sér áfram í keppninni. Zinedine Zidane tekur út leikbann í dag og hefur Domenech þjálfari ákveðið að stilla upp leikkerfinu 4-4-2 með David Trezeguet og Thierry Henry í fremstu víglínu. Patrick Vieira er fyrirliði franska liðsins á 30. afmælisdegi sínum.

Varamennirnir nýttu tækifæri sitt vel

Spænski varnarmaðurinn Juanito var ánægður með frammistöðu félaga sinna í sigrinum á Sádum í lokaleiknum í riðlakeppninni í dag. Hann segir að þeir varamenn sem fengu tækifæri í leiknum hafi nýtt það vel og staðið fyllilega undir væntingum.

Thuram setur met í kvöld

Varnarmaðurinn sterki Lilian Thuram hjá franska landsliðinu, setur franskt met í kvöld þegar liðið mætir Tógó í lokaleik sínum í G-riðli. Thuram spilar þá sinn 117. landsleik og slær met fyrrum félaga síns Marcel Desailly í landsliðinu.

Ástralar eru vanmetnir

Markvörðurinn Gianluigi Buffon hjá ítalska landsliðinu segir að ástralska landsliðið sé vanmetið á HM og eigi eftir að reynast mjög erfiður andstæðingur í þegar liðin mætast í 16-liða úrslitunum á mánudag. Þjálfari Ástrala er sem kunnugt er Hollendingurinn Guus Hiddink, en undir hans stjórn náði lið Suður-Kóreu að slá það ítalska út í keppninni fyrir fjórum árum.

Úkraína fylgir Spánverjum í 16-liða úrslitin

Spánverjar og Úkraínumenn eru komnir í 16-liða úrslitin á HM eftir að hafa unnið lokaleiki sína í riðlakeppninni í dag. Spánverjar lögðu Sáda 1-0 með marki Juanito í fyrri hálfleik og vafasöm vítaspyrna Andriy Shevchenko tryggði Úkraínumönnum sigur á Túnis og sendi Afríkumennina heim úr keppninni.

Zlatan líklega með gegn Þjóðverjum

Zlatan Ibrahimovic verður í byrjunarliði Svía þegar liðið mætir Þjóðverjum í 16-liða úrslitum HM á morgun. Þetta segir Lars Lagerback, þjálfari Svía, sem undirbýr lið sitt nú fyrir mjög erfiðan leik á Allianz-Arena í Munchen.

Ecclestone hraunar yfir Bandaríkjamenn

Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone hefur nú kastað olíu á eldinn þegar kemur að keppnishaldi í Bandaríkjunum á heimsmeistaramótinu í Formúlu 1. Hin árlega keppni þar í landi fer fram 2. júlí, en það er síðasta keppnin þar í landi á gildandi samningi og miklar umræður hafa verið um að hún gæti orðið sú síðasta.

Spánverjar yfir gegn Sádum

Aðeins eitt mark er komið í leikjunum tveimur sem nú standa yfir í H-riðlinum á HM. Spánverjar hafa yfir 1-0 gegn Sádum, þar sem Juanito skoraði með laglegum skalla eftir aukaspyrnu frá Jose Antonio Reyes á 36. mínútu. Staðan í leik Túnisa og Úkraínumanna er enn 0-0, en bæði þessi lið eiga möguleika á að fylgja Spánverjum upp úr riðlinum. Túnisar verða manni færri allan síðari hálfleikinn eftir að Jaziri var vikið af leikvelli fyrir ljótt brot skömmu fyrir leikhlé.

Arsenal hreinsað af ásökunum

Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið út tilkynningu þar sem fram kemur að rannsókn á meintum peningaþvætti úrvalsdeildarfélagsins Arsenal sé lokið. Ekkert óeðlilegt kom í ljós í rannsókninni, sem leitaðist við að koma upp um meint ólögmætt samstarf enska félagsins við belgíska félagið Beveren.

Argentína, 12 stig

Í dag breytir HM um stefnu, sextán liða úrslit, búið að skilja lélegu liðin frá, sextán bestu eftir. Í Frankfurt eru menn harðir á því að Þjóðverjarnir séu með gott lið, samt er enginn sem ég hef talað við ánægður með leik sinna manna, sem er furðulegt, og Klinsmann fær trúlega ekki reista styttu af sér jafnvel þótt þeir taki dolluna.

Poll á heimleið?

Enski dómarinn Graham Poll gæti verið á heimleið frá HM eftir fremur dapra frammistöðu hans með flautuna í leik Króata og Ástrala í gær. Poll gaf til að mynda Josip Simunic þrjú gul spjöld í leiknum áður en hann rak hann loks af velli og þótti neita Áströlum um tvær vítaspyrnur í leiknum. Málið er í skoðun og mun Poll væntanlega fá að vita niðurstöðurnar um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir