Fleiri fréttir

Carlton Cole á leið til Tottenham

Nú er útlit fyrir að framherjinn ungi Carlton Cole hjá Chelsea gangi í raðir grannliðsins Tottenham á næstu dögum, en hann ræddi við forráðamenn liðsins í gær. Cole er á sölulista hjá Chelsea og talið er að Tottenham muni borga um 2 milljónir punda fyrir hann og bjóða honum fjögurra ára samning.

Auðveldur sigur Þjóðverja

Þjóðverjar burstuðu Luxemburg 7-0 í æfingaleik þjóðanna í knattspyrnu í Freiburg í dag, en leikurinn var sá fyrsti af þremur í lokaundirbúningi gestgjafanna á HM í sumar. Lukas Podolski, Miroslav Klose og Oliver Neuville skoruðu tvö mörk hver og Torsten Frings skoraði eitt mark úr vítaspyrnu.

Drykkfeldar mæður stjörnuleikmanna til vandræða

Mæður stjörnuleikmannanna LeBron James hjá Cleveland og Amare Stoudemire hjá Phoenix eru sonum sínum ekki góðar fyrirmyndir, en þær hlutu báðar dóma fyrir óspektir og ölvunarakstur fyrir helgina. Móðir James slapp með sekt og félagsþjónustu, en móðir Stoudemire þarf að dúsa í fangelsi í þrjú ár eftir ítrekaðan ölvunarakstur.

Birgir Leifur í vandræðum í dag

Birgir Leifur Hafþórsson náði sér alls ekki á strik á þriðja degi áskorendamótsins í Marokkó í dag. Birgir lék á fimm höggum yfir pari í dag og er því á fjórum höggum yfir pari samanlagt á mótinu.

Guðjón Valur fór á kostum

Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum og skoraði 10 mörk fyrir lið sitt Gummersbach í dag þegar liðið gerði jafntefli 31-31 við Flensburg. Róbert Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Gummersbach í leiknum, en liðið er í öðru sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina.

England mætir heimsliðinu

Góðgerðaleikur til styrktar Barnahjálp Sameinuðuþjóðanna verður sýndur í beinni á Sýn klukkan 18:15 í kvöld. Þar mætast úrvalslið Englands og heimsins og í sviðsljósinu verða menn á borð við Maradona, Lothar Matthaus og popparann Robbie Williams.

Samningur Boateng tilbúinn

Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough bíður nú aðeins eftir því að miðjumaðurinn sterki George Boateng undirriti nýjan samning sem liggur á borðinu fyrir hann. Talið er víst að hinn þrítugi hollenski leikmaður skrifi undir samninginn á næstunni, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. Samningaviðræðurnar hafa gengið erfiðlega fram til þessa, en nú vonast félagið til að landa undirskrift hans innan skamms.

Ráðist inn á æfingasvæði Brassa

Fimm stuðningsmenn brasilíska landsliðsins í knattspyrnu ruddust inn á æfingasvæði liðsins þar sem það er við æfingar í Sviss í gær. Þeir voru fljótlega handsamaðir eftir að hafa fengið faðmlag frá stórstjörnunni Ronaldinho, en landsliðsþjálfarinn Parreira hafði daginn áður hrósað stuðningsmönnunum fyrir prúðmannlega framkomu á meðan á æfingum liðsins stóð.

Ungur Belgi á leið til Tottenham

Forráðamenn Tottenham Hotspur eru nú nálægt því að ganga frá kaupum á hinum 18 ára gamla varnarmanni Sven Verdonck frá Genk í Belgíu. Viðræður félaganna hafa staðið yfir í rúman mánuð, en leikmaðurinn hafnaði tækifæri til að fara til Englands fyrir nokkrum mánuðum. Talið er víst að Verdonck muni ganga í raðir Tottenham innan tíðar, en stefna Tottenham hefur verið að sanka að sér ungum og efnilegum leikmönnum.

Morientes semur við Valencia

Spænski framherjinn Fernando Morientes hefur náð samkomulagi um kaup og kjör við forráðamenn Valencia og er því formlega orðinn leikmaður liðsins. Morientes var keyptur frá Liverpool á dögunum og var kaupverðið sagt vera um 3 milljónir punda.

Chelsea í viðræðum við Feyenoord

Englandsmeistarar Chelsea eru nú í viðræðum við hollenska liðið Feyenoord um hugsanleg kaup á hinum tvítuga sóknarmanni Salomon Kalou frá Fílabeinsströndinni. Forráðamenn hollenska liðsins gáfu Chelsea grænt ljós á að ræða við leikmanninn, en nokkuð ku vera í land með að samningar náist milli félaganna um kaup á Kalou.

Umdeildur ráspóll hjá Schumacher

Michael Schumacher varð hlutskarpastur í tímatökum fyrir Mónakókappaksturinn í Formúlu 1 í dag, en sigur hans var mjög umdeildur. Schumacher er sakaður um að hafa viljandi snúið bíl sínum á brautinni í síðasta hringnum til að hindra Fernando Alonso og fleiri sem voru að reyna að bæta tíma hans og rannsókn er hafin á atvikinu.

Baros á skotskónum

Milan Baros var á skotskónum er Tékkland hitaði upp fyrir Heimsmeistarekeppnina. Tékkar sigruðu Sádí Arabíu 2 - 0. Allar þær þjóðir sem hafa tryggt sér sæti á Heimsmeistarakeppninni hafa spilað nokkra vináttuleiki undanfarið til að slípa allt saman fyrir lokaátökin.

AC Milan vill Gallas

Að því er fréttir herma þá vilja AC Milan menn fá William Gallas upp í Andriy Schechenko. Talið er að vermiðinn á Schechenko sé um 35 milljónir punda, og er það nokkuð víst að nóg er til í gullkistu Abramovich til þess að reiða þá upphæð fram.

Rooney verður að vera þolinmóður segir Ferguson

Alex Ferguson hefur sagt Wayne Rooney að hann þurfi að vera varkár nú á meðan að hann reynir að ná fullum bata svo hann geti spilað á HM í næsta mánuði. Rooney mun örugglega missa af riðlakeppninni HM, eftir að skönnun leiddi í ljós að hann getur ekki hafið æfingar fyrr en eftir þrjár vikur í það minnsta.

Töltmótaröð Freyfaxa

Hans Kjerúlf og Júpíter frá Egilsstaðabæ eu efstir með 20 stig í opnu töltmótaröð Freyfaxa eftir tvö mót af þremur, Sigurður Sveinbjörnsson er í öðru sæti með 13. stig.

Forkeppni í A-flokki hjá Fáki

Sigurbjörn Bárðarson og Kolskeggur frá Oddhóli hafa nauma forustu eftir forkeppnina í A- flokki gæðinga á MEST gæðingamóti Fáks í gær.

Dallas jafnaði gegn Phoenix

Dallas Mavericks náði að rétta sinn hlut í öðrum leik úrslitaeinvígis Vesturdeildarinnar í nótt þegar liðið lagði Phoenix Suns 105-98 á heimavelli sínum og hafa liðin því unnið sitt hvorn leikinn í einvíginu. Dirk Nowitzki fór fyrir sínum mönnum á lokasprettinum í nótt, en það var umfram allt bættur varnarleikur heimamanna sem tryggði þeim sigurinn.

Ákveður sig eftir HM

Hinn magnaði framherji Dirk Kuyt gaf það út í dag að hann tæki ákvörðun um framtíð sína ekki fyrr en eftir HM í sumar. Kuyt er mjög eftirsóttur af liðum í ensku úrvalsdeildinni, en hann segist feginn því að vera kominn úr sviðsljósinu og í æfingabúðir hollenska landsliðsins.

Stoudemire fetar í fótspor Bryant

Framherjinn öflugi Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns þarf að sætta sig við að sitja á bekknum spariklæddur þegar félagar hans spila í úrslitum Vesturdeildarinnar þessa dagana, en þessi efnilegi leikmaður hefur verið meiddur á hné í allan vetur.

Andriy Shevchenko fer frá Milan

AC Milan mun hefja viðræður við Chelsea eftir að Andriy Shevchenko staðfesti að hann myndi fara frá Milan. Shevchenko hitti forseta Milan, Adriano Galliani, í dag til þess að ræða framtíð sína. Eftir fundinn sagði Shevchenko, "Ég er að fara vegna fjölskylduaðstæðna, þetta er ekki vegna neinna annarra vandamála og ekki vegna peningamála."

Zidane segir Frakka geta náð langt á HM

Zinedine Zidane segir að Frakkar geti náð langt á HM í næsta mánuði. "Við getum náð langt," sagði Zidane sem mun leika sinn 100. leik fyrir Frakka á móti Mexíkó á laugardag.

Kelly framlengir

Írski bakvörðurinn Stephen Kelly hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham um eitt ár. Kelly lék sinn fyrsta landsleik fyrir Íra fyrir skömmu, en talið var líklegt að hann færi frá félaginu í sumar eftir að samningi hans lyki. Kelly getur spilað báðar bakvarðarstöðurnar á vellinum og hefur staðið sig vel þegar hann hefur fengið tækifæri með aðalliði félagsins.

Kauptilboð Wigan í Robert Huth samþykkt

Fréttavefur BBC greinir frá því nú síðdegis að Englandsmeistarar Chelsea hafi samþykkt 5,5 milljón punda tilboð Wigan í þýska varnarmainninn Robert Huth. Leikmaðurinn er búinn að fá nóg af því að sitja á varamannabekknum hjá Chelsea og vill sjálfur fara til annars liðs á Englandi eða snúa aftur til heimalandsins. Jose Mourinho segir að framtíð hans komist ekki á hreint fyrr en eftir HM í sumar.

Everton hækkar tilboð sitt í Johnson

Everton hefur nú fetað í fótspor Bolton og Wigan með því að leggja fram 8,5 milljón punda kauptilboð í framherjann Andy Johnson hjá Crystal Palace. Tilboð Everton er þó sagt háð frammistöðu leikmannsins að einhverju leiti og því frábrugðið beinum tilboðum Bolton og Wigan, en ljóst er að baráttan um framherjann er að harðna verulega. Forráðamenn Palace hafa enn ekki samþykkt tilboðið, en hafa þegar samþykkt tilboð hinna tveggja liðanna.

Nýr stjóri tilkynntur hjá Charlton eftir helgi

Forráðamenn úrvalsdeildarliðs Charlton ætla að tilkynna nýjan knattspyrnustjóra og þjálfarateymi hans þann 30. maí næstkomandi. Fjöldi stjóra hafa nú mætt í viðtal til félagsins og eins og staðan er í dag þykir líklegast að Ian Dowie, fyrrum stjóri Crystal Palace, verði næsti stjóri Lundúnaliðsins.

Ólöf úr leik í Frakklandi

Ólöf María Jónsdóttir úr GKG er úr leik á franska meistaramótinu í golfi eftir að hún leik annan hringinn í dag á 8 höggum yfir pari. Hún var því samtals á 11 höggum yfir pari á mótinu og komst ekki í gegn um niðurskurðinn.

Heiðar Davíð náði fjórða sætinu

Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason hafnaði í fjórða til sjötta sæti á Kinnaborg-mótinu í golfi sem lauk í Svíþjóð í dag. Heiðar lék lokadaginn á tveimur höggum yfir pari og lauk því keppni á einu höggi undir pari.

Morientes ekki orðinn leikmaður Valencia

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia tók það fram í dag að þó félagið hefði náð samkomulagi við Liverpool um kaup á spænska framherjanum Fernando Morientes, sé hann ekki orðinn leikmaður Valencia ennþá, því enn sé nokkuð í land með að semja um kaup og kjör við leikmanninn sjálfan.

Mido fer frá Tottenham

Tottenham hefur ákveðið að festa ekki kaup á framherjanum Mido sem verið hefur í láni hjá félaginu frá Roma í rúmt ár. Mido byrjaði vel hjá Tottenham og var orðinn algjör lykilmaður í liðinu áður en hann lenti í erfiðum meiðslum í lok leiktíðar.

Staðfestir brottför sína frá Milan

Úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko staðfesti í dag að hann færi frá liði AC Milan á Ítalíu af fjölskylduástæðum sem hann hafði greint frá fyrir nokkru og mun hann því væntanlega fara á fullu í viðræður við Englandsmeistara Chelsea á næstu dögum.

Kveður Arsenal með söknuði

Franski miðjumaðurinn Robert Pires, sem leikið hefur með Arsenal síðustu ár en hefur nú gengið til liðs við spænska liðið Villarreal, segist eiga eftir að sakna andrúmsloftsins hjá Arsenal.

Rooney ekki með í riðlakeppninni

Eftir að hafa látið skanna á sér ökklann í gær hefur komið í ljós að Wayne Rooney getur ekki byrjað að æfa fyrr en í fyrsta lagi eftir 3 vikur. Þetta þýðir að hann mun að minnsta kosti missa af fyrstu þremur leikjum Englands í keppninni sem eru í riðlakeppninni. Skanna á ökkla Rooney´s á ný 14. júní og þá kemur í ljós hvort hann getur verið með.

Áhyggjur af formi Ronaldo´s

Brasilía krossleggur fingurna í von um að Ronaldo verði orðinn 100% leikfær fyrir HM. Ronaldo hefur verið að finna fyrir vöðvaverkjum á æfingum Brasilíska liðsins, en Ronaldo segir að smá verkir séu ekki nóg til að stöðva hann í að leggja sig allan fram fyrir landsliðið.

Dirk Kuyt ætlar ekki að ákveða sig fyrr en eftir HM

Dirk Kuyt sem er eftirsóttur af Liverpool, Newcastle og Tottenham ætlar ekki að ákveða hvert hann mun fara eða hvort hann fari fyrr en eftir HM. Kuyt vill einbeita sér að HM með hollenska landsliðinu og ætlar ekki að láta vangaveltur um framtíð sína spilla fyrir því verkefni.

Benites stefnir á að halda Luis Garcia

Rafa Benítez kann að hafa selt Fernando Morientes aftur til Spánar og minnkað þar með hóp hinna spænsku leikmanna hjá Liverpool, en hann stefnir á að halda Luis Garcia þrátt fyrir yfirlýsingar spænskra fjölmiðla um að Luis Garcia muni fylgja Morientes til Spánar og verða næsti spænski leikmaðurinn sem Benítez ætli að losa sig við.

Richard Dunne semur við City

Miðvörðurinn Richard Dunne hefur gert nýjan þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City. Dunne gekk til liðs við félagið árið 2000 og hefur verið lykilmaður þess allar götur síðan. Hann er 27 ára gamall og er í írska landsliðinu.

Fyrsti stöðulisti í tölti fyrir LM 2006

Fyrsti stöðulisti vegna þátttökuréttar í tölti á LM 2006 birtist hér. Athugið að listinn er birtur með fyrirvara um breytingar og hann er eingöngu byggður á þeim mótum sem skilað hefur verið inn í tölvukerfið Mótafeng.

Alonso reiknar með óvæntum úrslitum

Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault reiknar fastlega með því að óvænt nöfn gætu orðið á meðal efstu manna í Mónakókappakstrinum um helgina.

Stojakovic ekki með Serbum á HM

Stórskyttan Peja Stojakovic hjá Indiana Pacers verður ekki í landsliðshópi Serba á HM í körfubolta í sumar. Þetta staðfesti landsliðsþjálfarinn Dragan Sakota við ESPN sjónvarpsstöðina í gær. Þjálfarinn segist ætla að tefla fram yngri landsliðsmönnum í sumar til að veita þeim aukna reynslu, en bendir á að allir sterkustu leikmenn liðsins verði kallaðir inn í hópinn fyrir EM árið 2007.

Lennon fór á kostum

Vængmaðurinn ungi Aaron Lennon frá Tottenham þótti vera eini leikmaðurinn sem stóð sig virkilega vel í leik B-liðs Englendinga og Hvít-Rússa í gær. Lennon segist sjálfur vera tilbúinn ef hann honum verði gefið tækifæri á HM í sumar og félagar hans Michael Carrick og Jermaine Jenas hjá Tottenham eru sammála.

Dickov kominn aftur heim

Skoski framherjinn Paul Dickov hefur gert tveggja ára samning við gamla félagið sitt Manchester City eftir að hann var látinn fara frá Blackburn á dögunum. "Ég er í skýjunum yfir að vera kominn aftur í City og ég veit að menn segja alltaf svona hluti þegar þeir ganga til liðs við nýtt félag, en ég er í raun stuðningsmaður City og börnin mín líka, svo að þetta er sannkallaður draumur fyrir mig," sagði Dickov.

Rooney missir af riðlakeppninni á HM

Eftir myndatöku í dag kom í ljós að framherjinn Wayne Rooney verður örugglega ekki með enska landsliðinu í riðlakeppninni á HM sem hefst 9. júní, en hann mun fara í aðra læknisskoðun þann 14. júní til að ganga endanlega úr skugga um hvort hann getur komið við sögu í síðustu leikjum liðsins í keppninni.

Líkir HM við jólin

Þorsteinn Joð líkir eftirvæntingunni fyrir HM við biðina eftir jólunum. Hann þekkir líka túlk þýska landsliðsins og spáir í æfingar liðanna í Sviss. Meira um þetta má lesa í nýju bloggi Þorsteins Joð.

Sjá næstu 50 fréttir