Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Newcastle lagði Everton Newcastle færði Everton fyrsta tapið á árinu í ensku úrvalsdeildinni í dag með 2-0 sigri á heimavelli sínum. Það var Nolberto Solano sem skoraði bæði mörk Newcastle. Bjarni Þór Viðarsson var á varamannabekk Everton í dag en kom ekki við sögu í leiknum. 25.2.2006 19:52
Zaragoza - Barcelona í beinni á Sýn Leikur Real Zaragoza og Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 20:50 í kvöld. Zaragoza mun eflaust reyna að endurtaka leikinn frá því liðin mættust í spænska bikarnum fyrir mánuði, þegar Zaragoza sigraði 4-2 í hörkuleik en það var stærsta tap Barca á leiktíðinni. 25.2.2006 19:36
Herbragð Chelsea heppnaðist Steve Clarke, aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Chelsea, viðurkenndi að hans menn hefðu tekið nokkra áhættu með sókndjörfum taktískum breytingum gegn Porstmouth í dag, en það var einmitt Eiður Smári Guðjohnsen sem átti stóran þátt í að Chelsea sneri leiknum sér í hag með því að eiga stóran þátt í báðum mörkum liðsins. 25.2.2006 19:25
Wenger ósáttur við tapið Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var ekki sáttur við tap sinna manna gegn Blackburn í úrvalsdeildinni í dag og taldi sitt lið eiga meira skilið úr leiknum. Blackburn komst upp fyrir Arsenal í fimmta sæti deildarinnar með sigrinum. 25.2.2006 18:36
Bjarni Þór á bekknum hjá Everton Leikur Newcastle og Everton er nú nýhafinn í ensku úrvalsdeildinni, en þetta er lokaleikur dagsins. Bjarni Þór Viðarsson er á varamannabekk Everton, en liðið er í miklum vandræðum með að ná í lið í dag vegna meiðsla og leikbanna. 25.2.2006 17:30
Stjarnan bikarmeistari 2006 Stjarnan lagði Hauka 24-20 í úrslitaleik SS bikarsins í handknattleik karla í dag. Roland Valur Eradze var maður dagsins og varði 27 skot í marki Stjörnunnar. Haukar höfðu frumkvæðið framan af leik og voru yfir í hálfleik 11-9, en sá síðari var eign Stjörnunnar. 25.2.2006 17:23
Reading eykur forskotið Reading heldur sínu striki í toppbaráttunni í ensku 1. deildinni og í dag vann liðið sigur á Preston 2-1. Á sama tíma tapaði Sheffield United 3-2 á heimavelli og því hefur Reading nú 12 stiga forskot á toppi deildarinnar. Ívar Ingimarsson var að vanda í vörn Reading og Brynjar Björn Gunnarsson kom inná sem varamaður síðustu 30 mínúturnar í leiknum. 25.2.2006 17:04
Chelsea lagði Portsmouth Chelsea lagði Portsmouth 2-0 og heldur sínu striki á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki dagsins. Arjen Robben og Frank Lampard skoruðu mörk meistaranna. Arsenal tapaði enn einum leiknum, að þessu sinni fyrir Blackburn á Ewood Park 1-0, þar sem Norðmaðurinn Morten Gamst Pedersen skoraði mark heimamanna. 25.2.2006 16:56
Haukar leiða í hálfleik Haukar hafa yfir 11-9 gegn Stjörnunni þegar flautað hefur verið til hlés í úrslitaleik liðanna í SS bikarnum sem fram fer í Laugardalshöll. Landsliðsmarkverðirnri Birkir Ívar og Roland Valur hafa verið í aðalhlutverki fram að þessu og eru í miklu stuði. 25.2.2006 16:25
Blackburn leiðir gegn Arsenal Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Blackburn hefur yfir 1-0 gegn Arsenal á heimavelli sínum, þar sem hinn norski Morten Gamst Pedersen skoraði mark Blackburn. Þá hefur Emile Heskey komið Birmingham yfir gegn Sunderland, en markalaust er hjá Chelsea og Portsmouth og Charlton og Aston Villa. 25.2.2006 16:21
Ívar, Jóhannes og Hannes í byrjunarliðunum Ívar Ingimarsson er í byrjunarliðinu og Brynjar Björn Gunnarsson á bekknum hjá Reading sem mætir Preston í ensku 1. deildinni í fótbolta en fjölmargir leikir í deildinni hófust kl. 15. Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester sem mætir Ipswich og Hannes Sigurðsson er í byrjunarliði Stoke sem mætir Millwall. Þá er Gylfi Einarsson á varamannabekk Leeds sem heimsækir Luton. 25.2.2006 15:15
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea í dag þegar liðið tekur á móti Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni. Hermann Hreiðarsson er að venju í byrjunarliði Charlton sem tekur á móti Aston Villa. Þá eigast við Birmingham og Sunderland og Blackburn og Arsenal mætast á Ewood Park. 25.2.2006 15:05
Pearce samningslaus Stuart Pearce, stjóri Manchester City hefur gefið það upp að hann hafi enn ekki undirritað starfssamning hjá liðinu og segist fá greitt eftir munnlegu samkomulagi sem hann hafi gert við stjórn félagsins. "Ég trúi ekki á eitthvað pappírsrusl og vænti þess að menn standi við það sem þeir segja," segir Pearce. 25.2.2006 14:31
Finnar og Svíar leika til úrslita Það verða Norðurlandanágrannarnir Finnar og Svíar sem leika til úrslita í íshokkí á Ólympíuleikunum í Tórínó á Ítalíu. Bæði liðin unnu örugga sigra í undanúrslitunum í gær en þetta er í fyrsta skipti í sögu leikanna sem Finnar komast í úrslit. 25.2.2006 13:56
Clippers vann grannaslaginn Los Angeles Clippers vann í nótt góðan sigur á grönnum sínum í Los Angeles Lakers 102-93 í NBA deildinni í körfubolta. Kobe Bryant skoraði 39 stig fyrir Lakers, en Elton Brand skoraði 32 stig og hirti 11 fráköst en hann skoraði megnið af stigum sínum í síðari hálfleik. 25.2.2006 13:44
Memphis - San Antonio í beinni Það verður sannkallaður hörkuslagur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt þegar Memphis Grizzlies tekur á móti meisturum San Antonio Spurs og hefst leikurinn klukkan eitt eftir miðnætti. 24.2.2006 19:45
Jewell hefur ekki áhuga á Newcastle Paul Jewell, knattspyrnustjóri Wigan, hlær að orðrómi sem verið hefur á kreiki um að hann verði næsti knattspyrnustjóri Newcastle. "Ég hugsa alrei neitt um svona slúðursögur, því slúður er bara slúður. Ég er ánægður hjá Wigan og ætla að einbeita mér að því sem ég er að gera hérna," sagði Jewell. 24.2.2006 18:15
Hauge dómara hótað Forráðamenn Chelsea hafa lofað að hrinda af stað rannsókn vegna morðhótana á hendur norska dómarans Terje Hauge á spjallborðum á heimasíðu félagins, en dómarinn á fáa vini þar eftir að hann vísaði Asier del Horno af velli í leiknum gegn Barcelona í vikunni. 24.2.2006 17:30
Sissoko spilar ekki meira á leiktíðinni Rafa Benitez segist óttast að Mohamed Sissoko spili ekki meira með liðinu á þessari leiktíð vegna augnmeiðslanna sem hann hlaut í Meistaradeildinni á dögunum, en segir að mestu máli skipti að leikmaðurinn nái sér að fullu. "Ég er viss um að hann nær sér og muni geta spilað aftur," sagði Benitez, en Sissoko mun hitta sérfræðinga eftir viku þar sem ástand hans verður metið á ný. 24.2.2006 17:26
Earl Watson kominn aftur til Seattle Nokkur lið notuðu tækifærið í gærkvöldi og sópuðu til í herbúðum sínum áður en félagaskiptaglugginn lokaði. Þar bar hæst að bakvörðurinn Earl Watson fór frá Denver til Seattle þar sem hann lék áður og þá fékk Denver til sín framherjann Ruben Patterson frá Portland. 24.2.2006 17:13
Spáir Smith skjótum bata Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist búast við að Alan Smith snúi aftur úr meiðslum sínum eftir 6-7 mánuði og hefur fulla trú á að leikmaðurinn nái sér að fullu eftir ljótt fótbrot á dögunum. 24.2.2006 16:57
Messi tekur við af mér Knattspyrnugoðið Diego Maradona er ekki í vafa um að eftirmaður sinn í argentínska landsliðinu sé fundinn eftir að hann sá Lionel Messi fara á kostum með liði Barcelona gegn Chelsea í Meistaradeildinni. 24.2.2006 16:08
Félagsmet hjá Dallas Dallas setti í nótt félagsmet þegar liðið vann Memphis 97-87, en þetta var 13. sigurleikur liðsins í röð á heimavelli. Dirk Nowitzki skoraði 31 stig fyrir Dallas, en Pau Gasol og Bobby Jackson skoruðu 18 stig hvor fyrir Memphis. 24.2.2006 15:56
Boro áfram - Bolton úr leik Bolton féll úr keppni í Evrópukeppni félagsliða í kvöld þegar liðið tapaði 2-1 fyrir franska liðinu Marseille á útivelli, en sigurmark Marseille var sjálfsmark frá Tal Ben Haim varnarmanni Bolton. Middlesbrough er því eina enska liðið sem nær í 16-úrslit keppninnar þrátt fyrir að liðið hafi tapað 1-0 fyrir Stuttgart á heimavelli sínum. 23.2.2006 21:42
Auðveldur sigur Keflvíkinga á Grindavík Keflvíkingar unnu í kvöld öruggan sigur á grönnum sínum í Grindavík 109-84 í toppslag í Iceland Express deild karla í körfubolta. Grindvíkingar voru án Páls Axels Vilbergssonar, Helga Jónasar Guðfinnssonar og Hjartar Harðarsonar í leiknum, en þeir eru allir meiddir. 23.2.2006 21:25
Jafnt hjá Marseille og Bolton í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í síðari leik Marseille og Bolton og er staðan í 1-1. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Það var Stelios Giannakopoulos sem skoraði mark enska liðsins, en Franck Ribery jafnaði á lokamínútu hálfleiksins. Stuttgart 1-0 yfir gegn Middlesbrough á Riverside og AZ Alkmaar hefur yfir 2-0 gegn Real Betis. 23.2.2006 20:35
KR tapaði fyrir Odd Grenland KRingar höfnuðu í neðsta sæti á LaManga mótinu í knattspyrnu eftir að liðið tapaði 1-0 fyrir norska liðinu Odd Grenland í dag. KRingar gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur leikjum á mótinu. 23.2.2006 20:23
Tökum Arsenal engum vettlingatökum Mark Hughes, stjóri úrvalsdeildarliðs Blackburn, segir að sínir menn muni ekki taka Arsenal sömu vettlingatökum og Real Madrid þegar liðin mætast í deildinni um helgina. 23.2.2006 19:45
Hringurinn kostar 1300 dollara Breskt bílablað heldur því fram í vikunni að hver hringur í Formúlu 1 kosti keppnisliðin um sem nemur 1300 dollurum, eða í kring um 100.000 krónur og þá sé aðeins talinn kostnaður við eldsneyti, bremsubúnað og hjólbarða. Könnun þessi var gerð með það fyrir augum að sýna fram á að of mikill kosnaður fylgi æfingaakstri hjá liðunum. 23.2.2006 19:15
Brown ráðleggur Heinze að taka því rólega Wes Brown, varnarmaður Manchester United, hefur ráðlagt félaga sínum Gabriel Heinze að flýta sér ekki um of að byrja að spila aftur eftir erfið hnémeiðsli. Brown hefur sjálfur mikla reynslu á því sviði, en Heinze hefur sett stefnuna á að vera með liði Argentínu á HM í sumar. 23.2.2006 18:15
Marseille - Bolton í beinni í kvöld Fótboltaveislan heldur áfram á Sýn í kvöld þegar síðari leikur Marseille og Bolton verður sýndur í beinni útsendingu, en liðin gerðu markalaust jafntefli á Reebok um daginn og því verður leikið til þrautar í kvöld. 23.2.2006 17:45
Keflvíkingar leita hefnda í kvöld Heil umferð er á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og einn leikur er á dagskrá í kvennaflokki. Stórleikur kvöldsins er viðureign Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík, en þar munu heimamenn eflaust vilja hefna ófaranna í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. 23.2.2006 17:00
Messi og Mourinho skiptast á pillum Ungstirnið Lionel Messi hjá Barcelona hlær að ásökunum Jose Mourinho um að hann hafi sýnt leikræna tilburði til að fiska Asier del Horno af velli með rautt spjald í leik liðana í gærkvöldi. Jose Mourinho er þó hvergi nærri hættur að láta í ljós skoðanir sínar á leiknum. 23.2.2006 16:45
Ólæti stuðningsmanna fordæmd Úrvalsdeildarlið Manchester United og Liverpool hafa gefið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau harma viðbrögð stuðningsmanna Liverpool sem veittust að sjúkrabifreiðinni sem flutti Alan Smith á sjúkrahús eftir að hann meiddist mjög alvarlega í leik liðanna. 23.2.2006 15:15
Woods í stuði Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, var heldur betur í stuði í gær á meistaramótinu í holukeppni sem fram fer í San Diego í Kaliforníu. Woods burstaði Stephen Ames með sögulegum mun þegar hann vann fyrstu níu holurnar og tryggði sér að lokum sigur eftir að jafnt varð á þeirri tíundu. 23.2.2006 15:15
Útlitið dökkt hjá Sissoko Mohamed Sissoko, leikmaður Liverpool sem fékk spark í augað í leiknum gegn Benfica í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöldið, gæti þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla sinna. Læknar sem hafa hann til meðhöndlunar segja að öruggt sé að sjón hans á hægra auga sé sködduð, en geta ekki metið skaðann fyrr en eftir 2-3 daga. 23.2.2006 14:30
Enn meiðist Dyer Miðjumaðurinn Kieron Dyer hjá Newcastle á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, því hann er meiddur á læri og verður frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur. Dyer var nýstiginn upp úr öðrum meiðslum sem hann hafði barist við í hálft ár, en eftir aðeins einn leik er hann nú kominn á meiðslalistann á ný. 23.2.2006 14:15
Við erum langt í frá hættir Alex McLeish segir að sínir menn séu langt frá því að hafa sagt sitt síðasta orð í Meistaradeildinni eftir að hafa tvisvar komið til baka eftir að hafa lent undir í viðureign sinni gegn Villareal í gær og náð jafntefli 2-2 á heimavelli sínum. 23.2.2006 13:45
Við getum komist áfram Thomas Schaaf, þjálfari Werder Bremen hefur fulla trú á að hans menn geti slegið sterkt lið Juventus út úr 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar er þeir sýna sömu baráttugleði og þeir gerðu á heimavelli sínum í gær, þegar þeir skoruðu 2 mörk á lokamínútum leiksins og sneru vonlausri stöðu sér í hag. 23.2.2006 13:15
Mark Chelsea hjálpaði okkur Frank Rijkaard var skiljanlega ánægður með sína menn eftir sigurinn á Chelsea á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í gær og sagði að markið sem Chelsea skoraði hefði hjálpað liði sínu á undarlegan hátt. 23.2.2006 12:45
Auðun Helgason ekki með FH í sumar Varnarjaxlinn Auðun Helgason hjá Íslandsmeisturum FH getur ekkert leikið með liðnu í sumar eftir að hann meiddist á hné á æfingu á dögunum og nú er ljóst að hann þarf í aðgerð vegna krossbandaslita. Þetta eru skelfileg tíðindi fyrir Íslandsmeistarana, enda var Auðun einn allra besti leikmaður Íslandsmótisins í fyrra. 23.2.2006 12:14
Ólafur með 3 mörk í sigri Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk þegar lið hans Ciudad Real bar sigurorð af Alcobendas í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 31-28. Ciudad er eftir sem áður í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Portland San Antonio. 23.2.2006 12:00
Róbert skoraði 7 fyrir Gummersbach Róbert Gunnarsson og Guðjón Valur Sigurðsson voru atkvæðamiklir fyrir lið sitt Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar liðið skellti Dusseldorf 32-22. Róbert skoraði 7 mörk og Guðjón gerði 5. 23.2.2006 11:45
Marion skoraði 44 stig fyrir Phoenix Framherjinn Shawn Marion hjá Phoenix setti persónulegt met í nótt þegar hann skoraði 44 stig í sigri liðsins á Boston 103-94. Marion var í miklu stuði í leiknum og auk þess að skora 44 stig, hitti hann úr 15 af 22 skotum sínum utan af velli, nýtti öll 10 vítaskot sín, hirti 15 fráköst, stal 4 boltum og varði 3 skot. 23.2.2006 11:27
Óhress með Messi Jose Mourinho var ekki par hrifinn af rauða spjaldinu sem leikmaður hans Asier del Horno fékk að líta í leiknum við Barcelona í Meistaradeildinni í gær og þótti Lionel Messi sýna full leikræna tilburði þegar atvikið átti sér stað. 23.2.2006 10:00