Sport

Auðveldur sigur Keflvíkinga á Grindavík

Keflvíkingar unnu í kvöld öruggan sigur á grönnum sínum í Grindavík 109-84 í toppslag í Iceland Express deild karla í körfubolta. Grindvíkingar voru án Páls Axels Vilbergssonar, Helga Jónasar Guðfinnssonar og Hjartar Harðarsonar í leiknum, en þeir eru allir meiddir.

Snæfell vann mikinn baráttusigur á Njarðvík í leik sterkra varna 54-51. Skallagrímur lagði ÍR á útivelli 95-85, Höttur vann mjög óvæntan sigur á Fjölni 89-86, Hamar/Selfoss vann sömuleiðis óvæntan sigur á KR 94-86, en leik Þórs og Hauka er ekki lokið þar sem framlengja þurfti leikinn.

Í kvennaflokki var einn leikur á dagskrá, Haukastúlkur höfðu betur gegn ÍS á heimavelli sínum Ásvöllum 72-56.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×