Fleiri fréttir

Van Gundy segir af sér

Samkvæmt heimildum frá ESPN í Bandaríkjunum hefur Stan Van Gundy, þjálfari Miami Heat, sagt starfi sínu lausu hjá félaginu og er hættur. Búist er við að formleg tilkynning frá félaginu berist síðar í kvöld, en þetta leiðir líkum að því að forseti félagsins, Pat Riley, ætli sjálfur að setjast í þjálfarastólinn og taka við liðinu en hann gerði LA Lakers að meisturum oftar en einu sinni á sínum tíma.

Redknapp vill ná stigi

Harry Redknapp, nýráðinn stjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, segir að stefnan sé að ná í eitt stig þegar lið hans sækir Tottenham Hotspurs heim í leik kvöldsins. Þetta verður fyrsti leikur liðsins undir stjórn Redknapp, en liðin eru á mjög ólíku róli í deildinni.

Viðurkenna áhuga sinn á Keane

Forráðamenn Real Madrid á Spáni hafa nú viðurkennt að hafa mikinn áhuga á að fá Roy Keane í sínar raðir, en spænskir fjölmiðlar voru í gær uppfullir af fregnum um að hann væri að undirgangast læknisskoðun hjá Real. Talsmenn félagsins hafa nú slegið þónokkuð á þær vangaveltur.

Kosinn þjálfari ársins af BBC

Jose Mourinho var í gærkvöld útnefndur þjálfari ársins af BBC fyrir að gera Chelsea að meisturum í fyrsta skipti í hálfa öld í fyrra, en hann tók við verðlaununum við sérstaka athöfn þar sem breskt íþróttafólk var heiðrað fyrir framúrskarandi árangur. Þá fékk brasilíska knattspyrnugoðið Pele sérstök verðlaun fyrir ævistarf sitt og það var einmitt Mourinho sjálfur sem afhenti honum verðlaunin.

Sjötti sigur Detroit í röð

Detroit Pistons heldur fast í toppsætið í NBA deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið góðan útisigur á spútnikliði LA Clippers, þrátt fyrir stórleik frá Elton Brand. Shaquille O´Neal sneri aftur úr meiðslum hjá Miami Heat og hjálpaði liðinu að ná sigri gegn Washington í framlengingu.

Fótbolti er karlmannsíþrótt

Michael Essien, miðjumaður Chelsea segist í viðtali við People í dag ekki vera grófur leikmaður en hann liggur þessa dagana undir harðri gagnrýni vegna ljótrar tæklingar á Dietmar Hamann í leiknum gegn Liverpool í Meistaradeildinni í vikunni.

Jafnt hjá Man Utd og Everton

Man Utd mistókst að endurheimta 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu nú undir kvöldið þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Everton á Old Trafford. Stuðningsmenn Man Utd bauluðu á sína leikmenn þegar dómarinn flautaði til leiksloka.

Stefán skoraði fyrir Lyn

Stefán Gíslason skoraði eitt mark norska liðsins Lyn sem vann sænska liðið Gautaborg, 3-1 Royal League eða skandinavísku meistaradeildinni í fótbolta í dag. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn í liði Start sem gerði 3-3 jafntelfi við Vålerenga í sömu keppni.

Frábær endurkoma Els

Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els vann sigur á Dunhill meistaramótinu í golfi í Evrópumótaröðinni í Suður Afríku í dag með þriggja högga forystu. Els átti frábæran lokadag í dag og lék á 68 höggum. Hann fékk 5 fugla og einn skolla og lauk keppni á samtals 274 höggum eða samtals 14 höggum undir pari.

1-1 í hálfleik hjá Man Utd og Everton

Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Manchester United og Everton eigast við á Old Trafford. Þar er nýbúið að flauta til hálfleiks og er staðan 1-1. Everton komst yfir strax á 7. mínútu með marki James McFadden en Ryan Giggs jafnaði metin fyrir heimamenn á 15. mínútu eftir sendingu frá Paul Scholes.

Juventus í 10 stiga forystu

Juventus náði í dag 10 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta þegar liðið valtaði yfir Cagliari, 4-0. David Trezeguet skoraði tvö mörk fyrir Juve og Pavel Nedved eitt en fjórða markið var sjálfsmark. 7 leikjum er lokið í Serie A í dag.

Keane og Wenger til Real?

Nú virðist fara að draga til tíðinda hjá Real Madrid sem er í þjálfaraleit. Fréttir frá Spáni herma nú að Madridarfélagið ætli að bjóða Arsene Wenger, stjóra Arsenal, 15 milljónir punda fyrir að taka við liðinu. Þá herma fregnir einnig að Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Man Utd hafi gengist undir læknisskoðum hjá Real Madrid í gær og gengið verði frá samningi við hann eftir helgina.

Fótbolta eða júdó?

Knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger segir að Alan Shearer, fyrirliði Newcastle komist upp með meira en aðrir leikmenn. Wenger er ósáttur við frammistöðu dómarans Dermot Gallagher þegar Arsenal tapaði 1-0 fyrir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gær en Arsenal lék manni færri eftir að Gilberto fékk rauða spjaldið eftir 57 mínútna leik liðanna á St James Park.

Hræddur við Ástrala

Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í fótbolta segist vera guðs lifandi feginn því að hafa ekki dregist í riðil með Áströlum á HM sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Hann segist óttast Ástrala sérstaklega vegna þess hve mikill rígur er á milli þjóðanna í íþróttagreinum.

Íslendingarnir úr leik

Íslenska sundfólkið, Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir eru úr leik á Evrópumeistaramótinu í Trieste á Ítalíu en þau luku keppni í morgun. Jakob hafnaði í 19. sæti af 34 keppendum í undanrásum í 200 metra bringusundi en hann synti á 2 mín og 12.45 sek í morgun. Ragnheiður varð í 24. sæti af 41 keppanda í undanrásum í 50 metra skriðsundi en hún synti á 25.93 sek.

KA úr leik í Evrópu

KA er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta karla en norðanmenn töpuðu með 10 marka mun gegn Steaua Bucharest, 31-21 í Rúmeníu í morgun. Þetta var í síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum en þeim fyrri lauk með sigri KA á Akureyri.

LeBron með 52 stig

Það urðu heldur betur óvænt úrslit í NBA körfuboltanum í nótt þegar Atlanta Hawks unnu meistarana í San Antonio Spurs, 94-84 eftir sjö tapleiki í röð. Hinn tvítugi LeBron James gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem tapaði fyrir Milwaukee.

Hlakkar til að mæta Svíþjóð

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, er sáttur við riðil Englands á heimsmeistaramótinu sem fram fer á næsta ári. Enska landsliðið er með Svíþjóð, Paragvæ og Trinidad og Tobago í B-riðli.

Kominn með skjöld og byssu

Krimmarnir í Miami mega gæta sín því lögreglan í Miami var að útskrifa stærsta lögregluþjón heimsins, Shaquille O"Neal. Shaq neitaði að sverja eiðinn með hinum lögreglumönnunum sem voru að útskrifast þar sem hann vildi ekki skyggja á stóra daginn þeirra.

Segist ráða við Kahn

Jens Lehmann, markvörður Arsenal, er bjartsýnn á að geta slegið Oliver Kahn út úr þýska landsliðinu fyrir HM næsta sumar. Jurgen Klinsmann, þjálfari Þjóðverja, er ekki búinn að velja aðalmarkvörð en valið stendur á milli Kahns og Lehmanns.

Týndu synirnir komnir heim

Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarson skrifuðu í gær undir nýja samninga við Víking Reykjavík til ársloka 2007. "Það er mjög ánægjulegt að búið sé að ganga frá málum varðandi þessa leikmenn og ljóst að nú styrkist leikmannahópurinn til muna en hann var ágætur fyrir. Víkingur gerði rétt með því að lána þá síðasta sumar, nú er liðið komið aftur upp og fær leikmennina sterkari til baka," sagði Magnús Gylfason, þjálfari Víkinga, með bros á vör eftir undirskriftina.

Atli baðst afsökunar

Kristinn Einarsson, formaður Þróttar, greindi frá því á heimasíðu félagsins í gær að Atli Eðvaldsson, þjálfari félagsins, hefði beðist afsökunar á seinni yfirlýsingu sinni um Pál Einarsson sem bar heitið "leikmaðurinn Páll Einarsson" og birtist í Fréttablaðinu í vikunni.

Fylgist með ungum Svía

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er þessa dagana með í skoðun hinn 18 ára gamla Svía, Daniel Larsson, sem leikur með Hacken. Hann hefur tvisvar farið til Chelsea og gengið ágætlega.

Bíður eftir svari frá Keane

David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, er enn að bíða eftir því að Roy Keane svari tilboði þeirra um að koma til Liverpool og spila fótbolta fyrir Everton.

Hengir upp treyju númer 33

Chicago Bulls heiðraði framlag Scottie Pippens til félagsins þegar það ákvað að hengja treyju númer 33 upp í rjáfur og verður hún þar af leiðandi ekki notuð aftur. Treyjan var hengd upp í leikhléi á leik Bulls og Lakers og Pippen átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann ávarpaði áhorfendur.

Fórum illa með dauðafærin

Magdeburg er úr leik í Meistaradeildinni í handbolta. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, segir að slæm nýting á færum hafi fellt hans menn í gær.

Haukastúlkur með gott tak á Keflavík

Haukar urðu í gær Powerade-bikarmeistarar í körfuknattleik kvenna með því að leggja Keflavík 77-63 í skemmtilegum úrslitaleik sem háður var í Kópavogi.

Jafntefli í kaflaskiptum leik

Það var mikil spenna í Kópavogi í gær þegar HK tók á móti Fylki í DHL-deild karla í handbolta en leiknum lauk með jafntefli 27-27.

Jakob með íslandsmet

Jakob Jóhann Sveinsson setti Íslandsmet í 50 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug á Ítalíu í gær. Jakob kom í mark á tímanum 28,22 sekúndur en gamla metið var 28,33 frá því á fimmtudaginn og er þetta í þriðja skipti á þremur vikum sem Jakob bætir metið í þessari grein.

Fengu á sig mark á lokamínútunni

Notts County, lið Guðjóns Þórðarson í ensku 2. deildinni missti naumlega af mikilvægum sigri í dag þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wrexham á útivelli. County komst yfir þegar 6 mínútur voru til leiksloka en heimamenn jöfnuðu á 90. mínútu. Notts County er í 13. sæti deildarinnar en er þó aðeins 5 stigum frá sjöunda sætinu sem gefur rétt til umspils.

Magdeburg og Århus úr leik

16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta lauk í dag þar sem Íslendingaliðin Magdeburg og Århus féllu úr keppni. Sturla Ásgeirsson var hins vegar markahæstur danska liðsins Århus GF sem féll úr keppni með tapi fyrir ungverska liðinu Veszprém, 28-31. Sturla gerði 7 mörk í dag.

Reading enn efst eftir stórsigur

Reading stefnir hraðbyri upp í ensku úrvalsdeildina í fótbolta en liðið valtaði yfir Brighton, 5-1 í 1. deild í dag. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í vörn Reading og Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á af varamannabekknum á 73. mínútu en þetta er í fyrsta sinn sem hann leikur með Reading í talsverðan tíma eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Chelsea heldur áfram að vinna

Chelsea endurheimti 12 stiga forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 1-0 heimasigri á Wigan en 6 leikjum var að ljúka í deildinni rétt í þessu. John Terry skoraði eina mark leiksins á 67. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 30 mínúturnar með Chelsea.

Grétar og Viktor framlengja hjá Víkingi

Víkingur sem leikur í Landsbankadeild karla í fótbolta á næsta tímabili sendi í dag frá sér fréttatilkynningu sem í segir að félagið hafi gert nýja samninga við leikmennina Viktor Bjarka Arnarsson og Grétar Sigfinn Sigurðsson.

Haukastúlkur bikarmeistarar

Haukastúlkur unnu í dag Powerade bikar kvenna í körfubolta þegar þær unnu 14 stiga sigur á Keflavík 77-63 en leikið var í Digranesi. Þrátt fyrir jafnan leik voru Haukastúlkur sterkari aðilinn lengst af. Kesha Tardy var stigahæst Hauka með 28 stig og Helena Sverrisdóttir kom næst með 20 stig. Hjá Keflavík var Birna Valgarðsdóttir stigahæst með 20 stig.

Brynjar á bekknum hjá Reading

Ívar Ingimarsson er að vanda í byrjunarliði Reading sem er 1-0 yfir gegn Brighton í ensku 1. deildinni í fótbolta. Brynjar Björn Gunnarsson hefur jafnað sig af meiðslum og er á varamannabekk Reading eftir að hafa skorað fyrir varalið félagsins í vikunni.

Eiður á bekknum hjá Chelsea

Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea sem leikur nú etur kappi við Wigan í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en 8 leikir eru á dagskrá deildarinnar í dag. Athygli vekur að ítalski markvörðurinn Carlo Cudicini er í byrjunarliði Chelsea í fyrsta sinn í deildinni í vetur en Petr Cech vermir varamannabekkinn.

Liverpool í 2. sætið

Liverpool náði í dag 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta þegar liðið sigraði Middlesbrough 2-0. Fernando Morientes skoraði bæði mörk Liverpool með 5 mínútna millibili, á 72. og 77. mínútu leiksins. Liverpool er með 31 stig í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn, níu stigum á eftir toppliði Chelsea.

Jakob bætti eigið Íslandsmet

Jakob Jóhann Sveinsson bætti eigið Íslandsmet í 50 metra bringusundi um 11 sekúndubrot á Evrópumeistaramótinu í sundi í Trieste á Ítalíu í morgun. Hann synti á 28.22 sek. og varð í 28. sæti af 40 keppendum í undanrásum.

Iverson með 43 stig

Allen Iverson skoraði 43 stig og Kyle Korver jafnaði presónulegt stigamet með 26 stigum fyrir Philadelphia 76ers í NBA körfuboltanum í nótt þegar liðið batt enda á fjögurra leikja samfellda ósigurgöngu sína með 119-115 sigri á Charlotte Bobcats. 10 leikir fóru fram í deildinni í nótt.

Úrslitaleikur Hauka og Keflavíkur í Digranesi

Úrslitaleikurinn í Powerade-bikarkeppni kvenna fer fram klukkan tvö í dag á óvenjulegum stað en leikurinn fer fram í Digranesi þar sem fáir stórleikir í körfubolta hafa farið fram. Það eru Keflavík og Haukar sem mætast en það kemur ekki á óvart þar sem þetta eru sterkustu lið landsins ásamt Grindavík.

Stjórnin styður Atla

Það er óhætt að segja að yfirlýsing Atla Eðvaldsonar í Fréttablaðinu í gær hafi vakið mikil viðbrögð. Formaður Þróttar, Kristinn Einarsson, staðfesti að stjórn félagsins hefði ekki lesið yfirlýsingu Atla áður en hann sendi hana frá sér enda væri það ekki í hennar verkahring að stýra því hvað fólk segði.

Kemur til greina að hætta

Páll Einarsson, fyrrum fyrirliði Þróttar, íhugar það þessa dagana hvort hann ætli að halda áfram í fótbolta eða leggja skóna á hilluna.

Van Persie og Benitez bestir í nóvember

Framherjinn Robin Van Persie hjá Arsenal var nú í kvöld kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag samþykkti hann svo að framlengja samning sinn við Arsenal til ársins 2011. Persie skoraði þrisvar í úrvalsdeildinni í nóvember, en var einnig iðinn við kolann í bikarkeppninni og í Meistaradeildinni.

Sjá næstu 50 fréttir