Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar fékk úr litlu að moða Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Vísi nú áðan að hann hefði fengið úr litlu að moða í Evrópuleiknum gegn Hertha Berlin áðan, en lið hans Halmstad tapaði 1-0 á heimavelli fyrir þýska liðinu. 20.10.2005 00:01
Middlesbrough sigraði Middlesbrough sigraði svissneska liðið Grasshoppers með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni UEFA bikarsins í kvöld. Mark liðsins skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink snemma leiks. Bolton varð hinsvegar að sætta sig við jafntefli 1-1 við Besiktas. Ailton skoraði fyrir Tyrkina, en Borgetti fyrir Bolton. 20.10.2005 00:01
Hópbílabikarinn í kvöld Þremur leikjum er lokið í Hópbílabikarnu í körfubolta í kvöld. ÍRingar lögðu Tindastól 90-80 á Sauðárkróki, KR vann Hamar/Selfoss á útivelli 92-72 og Þór á Akureyri lagði Skallagrím 95-91. Úrslit úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur verða tilkynnt fljótlega. 20.10.2005 00:01
Tap hjá Haukastúlkum Kvennalið Hauka spilaði sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld og máttu þola slæmt tap á heimavelli fyrir Caja Canarias, 97-58. Kesha Tardy skoraði 20 stig fyrir Haukaliðið og Helena Sverrisdóttir skoraði 15 stig og átti 9 stoðsendingar. 20.10.2005 00:01
Ísland í 92. sæti á FIFA listanum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á nýja styrkleikalistanum frá FIFA, sem gefinn var út í morgun. Brasilíumenn eru enn í efsta sæti listans en Hollendingar koma þar á eftir og Tékkar eru í þriðja sætinu. Svíar eru efstir Norðurlandaþjóðanna á listanum og sitja í fjórtánda sæti, einu sæti fyrir ofan Dani. 19.10.2005 00:01
Fimm æfingaleikir í NBA í nótt Átta æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt, þar sem liðin sem mættust í úrslitunum í fyrra, San Antonio Spurs og Detroit Pistons, töpuðu bæði leikjum sínum. 19.10.2005 00:01
Ballack lofar ákvörðun fyrir jól Miðjumaðurinn sterki, Michael Ballack hjá Bayern Munchen, hefur lofað félaginu að hann tilkynni ákvörðun um framtíð sína fyrir jól, en hann hefur mikið verið orðaður við Manchester United eftir að samningi hans hjá þýska liðinu lýkur. 19.10.2005 00:01
Gunnlaugur Jónsson til KR Knattspyrnumaðurinn Gunnlaugur Jónsson hefur gengið frá þriggja ára samningi við KR, en hann var áður fyrirliði Skagamanna. Gunnlaugur sagði ákvörðun sína ekki síst byggða á því að þjálfarinn Teitur Þórðarsson væri tekinn við stöðu þjálfara hjá félaginu. 19.10.2005 00:01
Kerr ósáttur við uppsögnina Brian Kerr, fráfarandi landsliðsþjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu, sakar stjórn knattspyrnusambandsins um skammsýni eftir að honum var sagt upp störfum á dögunum og bendir á að uppsögn hans sé á skjön við stefnu sem sett hafi verið árið 2002. 19.10.2005 00:01
Dregið í SS bikarnum Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum SS-bikarsins í handknattleik karla, en leikirnir fara fram dagana 8. og 9. nóvember næstkomandi. Hér fyrir neðan má sjá liðin sem mætast í 16-liða úrslitum: 19.10.2005 00:01
Magnús Gylfason til Víkings Magnús Gylfason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Víkings, sem leikur í Landsbankadeildinni næsta sumar eftir að hafa náð öðru sætinu í fyrstu deild í sumar. Samningurinn er til þriggja ára og er óuppsegjanlegur fyrstu tvö árin. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. 19.10.2005 00:01
Ronaldo handtekinn Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu vegna gruns um nauðgun. Forráðamenn Manchester United hafa enn ekki tjáð sig um málið, sem er í rannsókn. 19.10.2005 00:01
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Átta leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn er viðureign Chelsea og Real Betis, síðar um kvöldið verður svo leikur Anderlecht og Liverpool á dagskrá, en sá leikur verður í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18:30, en þar á undan verður upphitun með Guðna Bergs. 19.10.2005 00:01
Þrír leikir í DHL deildinni Þrír leikir eru á dagskrá DHL-deildar karla og kvenna í kvöld. í Karlaflokki mætast Haukar og ÍBV á Ásvöllum, en í kvennaflokki mætast HK og Stjarnan í Digranesi og Framstúlkur taka á móti Haukum í Framhúsinu. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 19.10.2005 00:01
Hópbílabikarinn í kvöld Tveir leikir verða á dagskrá í Hópbílabikarnum í körfubolta í kvöld, en þeir eru báðir í karlaflokki. Valur og Snæfell mætast klukkan 19:00 í íþróttahúsi Kennaraháskólans, en klukkan 21 hefst leikur Hauka og Grindavíkur að Ásvöllum. Fyrri leikir í 16-liða úrslitunum klárast annað kvöld, en síðari leikirnir verða allir á sunnudag. 19.10.2005 00:01
Owen meiddur á læri Framherjinn Michael Owen hjá Newcastle er tæpur fyrir grannaslag Newcastle og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í æfingaleik í fyrrakvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kappinn meiðist á læri, en Shola Ameobi mun líklega taka stöðu hans um helgina. 19.10.2005 00:01
Liðin sváfu á verðinum Bob Bell, tæknistjóri Renault í Formúlu 1, segir að gömlu toppliðin Ferrari og McLaren hafi sofnað á verðinum á afstöðnu tímabili og vill meina að þau hafi ekki tekið Renault-liðið alvarlega í toppbaráttunni. 19.10.2005 00:01
Rio tippar á Tottenham Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segir að kannski sé tími Tottenham kominn í ensku úrvalsdeildinni og bendir á að liðið virðist loksins að ná þeim stöðugleika sem það hafi skort á undanförnum árum. Manchester United og Tottenham mætast á Old Trafford um helgina. 19.10.2005 00:01
Reyes verður ekki lengi frá Spánverjinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal verður ekki eins lengi frá keppni og óttast var, eftir að hann meiddist í leiknum gegn Sparta Prag í fyrrakvöld. Talið var að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur, en meiðslin eru ekki eins alvarleg og talið var. Hann verður þó tæplega með Arsenal gegn Manchester City á laugardaginn. 19.10.2005 00:01
Rosenborg er yfir gegn Real Madrid Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Real Betis, þar sem Drogba og Carvalho skoruðu mörkin, en Real Madrid er undir 1-0 gegn Rosenborg á heimavelli. 19.10.2005 00:01
Auðveldur sigur Chelsea Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik. 19.10.2005 00:01
Sigur hjá Stjörnunni og Haukum Tveir leikir voru á dagskrá í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Stjörnustúlkur lögðu HK í Digranesi með 35 mörkum gegn 31 og Íslandsmeistarar Hauka sigruðu Fram á útivelli, 29-18. 19.10.2005 00:01
Auðveldur sigur Hauka á ÍBV Haukar unnu auðveldan sigur á ÍBV í DHL-deild karla í handknattleik að Ásvöllum í kvöld, 41-32, eftir að hafa forystu í hálfleik 21-13. Jón Karl Björnsson var markahæstur í liði Hauka og skoraði 10 mörk. Haukar skutust í annað sæti deildarinnar með sigrinum. 19.10.2005 00:01
Keflavík kjöldró KR Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir stöllur sínar í KR í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld 130-36. Þá unnu Grindavíkurstúlkur auðveldan 91-48 sigur á Breiðablik. 19.10.2005 00:01
Wenger saknar Vieira Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að kannski hafði það ekki verið mjög góð hugmynd að selja Patrick Vieira til Juventus í sumar, en bendir á að liðið hafi verið einstaklega óheppið með meiðsli. 18.10.2005 00:01
Ferguson vill hafa Keane í liðinu Sir Alex Ferguson sagði í viðtali í gær að hann vildi hafa Roy Keane í liði sínu eins lengi og hann gæti reimað á sig skóna og hefur ekki gefið upp alla von um að halda fyrirliða liðsins hjá félaginu lengur en út þessa leiktíð. 18.10.2005 00:01
Verða að sætta sig við fallbaráttu Phil Neville, leikmaður Everton, segir að leikmenn liðsins verði nú að sætta sig við það að liðið sé í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni, því þrátt fyrir að allir hafi beðið eftir að liðið rétti úr kútnum og færi að vinna, hefur það enn ekki gerst. 18.10.2005 00:01
Fjórir æfingaleikir í NBA í nótt Fjórir æfingaleikir fóru fram í NBA í nótt, en áskrifendur Sportpakkans á Digital Ísland fengu einmitt að sjá skemmtilegan leik Houston Rockets og Seattle Supersonics í beinni útsendingu. Houston var án þeirra Yao Ming og Tracy McGrady, en það kom ekki að sök, því liðið hafði sigur, 93-85. 18.10.2005 00:01
O´Leary kærður Enska knattspyrnusambandið hefur kært David O´Leary, stjóra Aston Villa, fyrir óviðeigandi hegðun eftir að lið hans vann sigur á grönnum sínum í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. 18.10.2005 00:01
Melchiot meiddur Varnarmaðurinn Mario Melchiot hjá Birmingham verður frá keppni í þrjár vikur í viðbót vegna hnémeiðsla, en hann missti af leik liðsins við grannaliðið Aston Villa um helgina. Fyrir eru þeir Stephen Clemence og David Dunne meiddir og verða frá í nokkurn tíma. 18.10.2005 00:01
Cissé líklegur gegn Anderlecht Rafael Benitez segir vel koma til greina að nýta hungur franska framherjans Djibril Cissé með því að gefa honum tækifæri í byrjunarliðinu gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld, en liðin eigast við í G-riðli. 18.10.2005 00:01
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Nokkrir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn verður stórleikur Bayern Munchen og Juventus, en útsending hefst klukkan 18:30. Þá verður leikur Manchester United og Lille sýndur klukkan 21:20, en hann er sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. 18.10.2005 00:01
Henry á bekknum hjá Arsenal Thierry Henry verður á varamannabekknum hjá Arsenal í leiknum gegn Sparta Prag í Meistardeildinni á eftir, en Pascal Cygan og Kolo Toure verða vörninni. Þá koma þeir Robin van Persie og Gilberto aftur inn í liðið. 18.10.2005 00:01
Giggs verður fyrirliði Ryan Giggs er kominn inn í byrjunarlið Manchester United á ný og verður fyrirliði liðsins í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni nú á eftir. Manchester United mun spila kerfið 4-3-3 í leiknum og Darren Fletcher mun taka stöðu Park Ji-Sung á miðjunni. 18.10.2005 00:01
Henry kom Arsenal yfir Thierry Henry er búinn að koma liði Arsenal yfir gegn Sparta Prag í Tékklandi, en liðin eigast við í Meistaradeildinni. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum fyrir nokkrum mínútum, var Henry á varamannabekk liðsins í kvöld, en hann kom inná fyrir Jose Antonio Reyes eftir aðeins fimmtán mínútna leik og skoraði mark sex mínútum síðar. 18.10.2005 00:01
Essien sleppur Michael Essien, leikmaður Chelsea, sleppur við frekari refsingu frá enska knattspyrnusambandinu eftir að farið var yfir myndbandsupptökur af broti hans í leiknum gegn Bolton um helgina. Brot hans þótti ljótt og var hann talinn sleppa vel með gult spjald, en sambandinu þótti ekki fótur fyrir frekari aðgerðum í málinu. 18.10.2005 00:01
Hálfleikur í Meistaradeildinni Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Aðeins fjögur mörk hafa litið dagsins ljós til þessa og þar af eru tvö þeirra í leik Bayern Munchen og Juventus, sem fyrirfram hefði ef til vill ekki verið talinn markaleikur umferðarinnar. 18.10.2005 00:01
Ótrúleg endurkoma Henry Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið og óhætt að segja að Thierry Henry hjá Arsenal hafi verið maður kvöldsins, en hann tryggði liði sínu 2-0 sigur í Prag með tveimur mörkum, eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir aðeins fimmtán mínútna leik. 18.10.2005 00:01
Samningur Kerr ekki endurnýjaður Stjórn írska knattspyrnusambandsins ákvað á fundi í gær að samningur landsliðsþjálfarans Brian Kerr yrði ekki endurnýjaður og þar með er átta ára starfi hans með liðið senn lokið. Ákvörðunin kemur ekki á óvart í kjölfar þess að honum mistókst að koma írska liðinu á HM næsta sumar. 18.10.2005 00:01
Henry í metabækurnar Thierry Henry varð í gærkvöldi markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Arsenal á Sparta Prag í Meistaradeildinni. Hann hefur nú skorað alls 186 mörk fyrir félagið, eða einu meira en Ian Wright. 18.10.2005 00:01
KA vann öruggan sigur á Val KA-menn unnu öruggan sigur á Val í DHL-deild karla í handbolta í kvöld, 33-26, eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-11. Með sigrinum komst KA í annað sæti deildarinnar, en Valur er í þriðja sætinu og á leik til góða. 18.10.2005 00:01
Giggs verður frá í nokkrar vikur Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni. 18.10.2005 00:01
Ferguson ekki kátur með jafnteflið Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur. 18.10.2005 00:01
Wenger hrósaði Henry Arsene Wenger er yfir sig ánægður með gengi sinna manna í Arsenal í Meistaradeildinni í ár og þá ekki síður með framherja sinn Thierry Henry, sem í gærkvöld varð markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Sparta Prag. 18.10.2005 00:01
Divac formlega hættur Serbneski miðherjinn Vlade Divac hjá Los Angeles Lakers tilkynnti í gærkvöldi formlega að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hann mun þó ekki hætta afskiptum sínum af körfuknattleik, því hann hefur verið ráðinn útsendari Lakers í heimalandi sínu. 18.10.2005 00:01