Fleiri fréttir

Button ánægður með Honda

Ökuþórinn Jenson Button segir að kaup Honda-liðsins á BAR, gætu orðið til þess að gera sér kleift að verða heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 og segir að liðið verði í fremstu röð á næsta ári.

Fimm leikir í SS bikarnum í kvöld

Fimm leikir verða á dagskrá í 32-liða úrslitum SS bikarsins í handknattleik karla í kvöld. Á meðal athyglisverðra leikja má nefna að gömlu kempurnar Júlíus Jónasson og Geir Sveinsson verða í eldlínunni með Val 2 gegn Stjörnunni. í Laugardalshöllinni.

Synd að Ívar sé ekki í hópnum

Brynjar Björn Gunnarsson, hetja Reading í uppgjöri efstu liðanna í ensku fyrstu deildinni, segir að samherji sinn Ívar Ingimarsson eigi heima í landsliðinu.

Stór stund fyrir Daða

"Ég hef þurft að svitna dálítið fyrir þessu landsliðssæti. Þetta hefur verið ótrúlegt ár. Fyrst Íslandsmeistaratitillinn, svo var ég valinn í lið ársins og svo landsliðssætið. Þetta er enn ein rósin í hnappagatið. Þetta verður auðvitað töluvert púsluspil gagnvart vinnunni og fjölskyldunni enda átta daga ferðalag framundan," sagði Daði sem vonast til þess að fá að spreyta sig í einhverjar mínútur í landsleiknum gegn Pólverjum

Gunnar Heiðar meiddur

Markahrókurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði 14. mark sitt á leiktíðinni fyrir Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni sem steinlá fyrir Djurgården 6-1 í gærkvöld. Hann meiddist hins vegar illa á ökkla þegar hálftími var eftir af leiknum og þurfti að fara af velli og segist líklega vera út úr landsliðsmyndinni gegn Póllandi og Svíþjóð.

Bjarni til Noregs

Valsmaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson fær tilboð í hendurnar í dag frá norska liðinu Odd Grenland en hann var til reynslu hjá liðinu í síðustu viku.

Jóna æfir sig í frönsku

Það má með sanni segja að Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, sextán ára gömul stúlka frá Neskaupstað, hafi dottið í lukkupottinn þegar henni var boðið að skrifa undir samning hjá franska blakliðinu Racing Club de Cannes, en það er eitt sterkasta blaklið Evrópu. Jóna Guðlaug ákvað að slá til og skrifaði undir sjö ára langan samning.

Dregið í UEFA bikarnum

Í morgun var dregið í undanriðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu, þar sem Íslendingar verða í eldlínunni í vetur. Bolton og Middlesbrough eru fulltrúar Englendinga í keppninni.

Atvik á Anfield í rannsókn

Enska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að hefja rannsókn á því hvort hlutum var kastað inn á völlinn þegar Frank Lampard fagnaði marki sínu úr vítaspyrnu í leik Liverpool og Chelsea um helgina. Lampard fékk að líta gula spjaldið fyrir að storka áhorfendum Liverpool þegar hann fagnaði marki sínu úr vítaspyrnu, en honum verður ekki refsað frekar.

Best á batavegi

Knattspyrnugoðið George Best er sagður á batavegi eftir að hafa lagst inn á sjúkrahús í London á dögunum, en er enn á gjörgæsludeild. Hann var lagður inn vegna flensueinkenna og fékk alvarlega sýkingu í nýru um helgina.

Butt fær lengra bann

Miðjumaðurinn Nicky Butt hjá Birmingham hefur fengið leikbann sitt framlengt um einn leik fyrir að bölva dómara í leik gegn Portsmouth þann 17 september sl. Butt mun því missa af grannaslag Birmingham og Aston Villa þann 16 október, en lið Birmingham má illa við því.

Eddy Curry til New York Knicks

Miðherjinn Eddy Curry, sem leikið hefur með Chicago Bulls síðustu fjögur ár, var í nótt skipt til New York Knicks, eftir að hann hafði neitað að fara í DNA próf hjá Bulls vegna hjartagalla. Antonio Davis fer einnig til Knicks, en í staðin fær Chicago til sín þá Tim Thomas, Michael Sweetney og Jermaine Jackson.

Stoudemire skrifaði undir í gær

Framherjinn Amare Stoudemire hjá Phoenix Suns skrifaði í gær undir nýjan fimm ára samning við félagið og fær fyrir hann rúmar 70 milljónir dollara. Stoudemire er talinn einnn efnilegasti leikmaður NBA deildarinnar í dag og segja má að hann hafi tryggt sér samninginn með frábærum leik sínum í úrslitakeppninni í vor, þar sem hann fór hreinlega hamförum.

Real Madrid þénar mest

Spænska stórveldið Real Madrid hefur velt Manchester United af stalli og er nú það félag í heiminum sem þénar mestar tekjur, ef marka má nýjustu tölur frá spænska liðinu.

Owen fer aldrei aftur frá Englandi

Framherjinn Michael Owen segir að hann muni aldrei leika annarsstaðar en á Englandi í framtíðinni, eftir að hann komst að því hvað það henti sér vel að leika í heimalandinu.

Keane hefur trú á arftaka sínum

Fyrirliði Manchester United, Roy Keane, segist hafa fulla trú á Alan Smith sem arftaka sínum í varnarhlutverkinu á miðjunni og segir að það eina sem Smith þurfi sé tími og alvöru leikir til að ná góðum tökum á nýju stöðunni.

Davíð mætir Golíat í kvöld

Fimm leikir verða á dagskrá í SS-bikarkeppni karla í handbolta í kvöld og þar á meðal er viðureign sem kölluð hefur verið Davíð gegn Golíat, en það er viðureign Fylkis 2 og aðalliðs Vals sem fram fer í Fylkishöll klukkan 20.

Fyrrum leikmaður Vals í fangelsi

Englendingurinn Mark Ward sem lék með Valsmönnum í efstu deild karla árið 1998 var í dag dæmdur í átta ára fangelsi, eftir að fjögur kíló af kókaíni fundust í íbúð hans í Liverpool í vor. Sigurbjörn Hreiðarsson fyrirliði Vals sem lék með honum á sínum tíma með Hlíðarendaliðinu lýsir Ward sem algjörum toppmanni.

Leverkusen sigraði á æfingamóti

Bayer Leverkusen Giants, lið Jakobs Sigurðarsonar í Þýskalandi, sigraði á æfingamóti í körfubolta sem haldið var í Hollandi um helgina. Leiktíðin í Þýskalandi fer nú senn að hefjast og forvitnilegt verður að sjá hvernig Jakob tekst til með nýju liði sínu.

Sigga Sveins-vörnin tryggði sigur

HK og Stjarnan áttust við í DHL-deild karla í Digranesi í gærkvöldi og það voru gestirnir úr Garðabænum sem höfðu betur í sannkölluðum hörkuslag. Leikur liðanna var hnífjafn allt fram í miðjan síðari hálfleikinn, þegar gamla kempan Patrekur Jóhannesson tók til sinna ráða og lagði grunninn að sigri sinna manna með þremur mörkum í röð.

Haukastúlkur kláruðu verkefnið

Haukar eru komnir áfram í næstu umferð EFH-keppninnar en þær lögðu St.Otmar að velli í tveimur leikjum, samanlagt 70-45. Mótspyrna svissneska liðsins var ekki mikil og það sást strax að styrkleikamunurinn á liðunum var töluverður.

Troðsla tryggði sigurinn

Njarðvíkingar sigruðu á æfingamóti í Aarhus í Danmörku þegar liðið lagði heimamenn í Bakken Bears að velli í úrslitaleik með 69 stigum gegn 67. Heimamenn voru sjö stigum yfir þegar skammt var til leiksloka en Njarðvíkingum tókst að skora níu síðustu stigin í leiknum og unnu því með tveggja stiga mun.

Logi byrjaði vel

Logi Gunnarsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir þýska 2.deildarliðið Bayreuth um helgina. Bayreuth vann Stuttgart með eins stigs mun, 91-90. Logi var stigahæsti leikmaður Bayreuth með 25 stig og þar af komu fimmtán úr þriggjastiga skotum.

Gervigrasið að reynast vel

Átta af hverjum tíu leikmönnum í norsku úrvalsdeildinni vilja ekki að deildakeppnin fari fram á gervigrasvöllum. Þá sýnir sænsk rannsókn að gervigrasvellir draga úr áhuga almennings að fara á völlinn en meiðslahætta leikmanna er hins vegar minni á gervigrasi.

Loeb tryggði sér titilinn

Franski ökuþórinn Sebastien Loeb hjá Citroen, tryggði sér heimsmeistaratitilinn í rallakstri annað árið í röð um helgina þegar hann hafnaði í öðru sæti í Japansrallinu, á eftir Marcus Grönholm. Stigin nægðu Loeb til að tryggja að enginn ökumaður getur náð honum að stigum í ár.

Mourhinho heimtar virðingu

Jose Mourinho segir að það sé kominn tími til að fólk fari að virða lið Chelsea, eftir að það tók Liverpool í kennslustund á Anfield í gær, en bendir á að nóg sé eftir af tímabilinu á Englandi þó Chelsea gangi vel í byrjun.

Nistelrooy fer ekki frá United

Umboðsmaður Ruud van Nistelrooy hjá Manchester United hefur gefið það út að hollenski framherjinn sé ekki á leið frá liðinu eins og fram hefur komið í fréttum undanfarna daga, en Nistelrooy hefur verið orðaður við Real Madrid á Spáni.

Beckham og Rooney sættust

Ensku landsliðsmennirnir Wayne Rooney og David Beckham, sem rifust heiftarlega á vellinum í tapi Englendinga fyrir Norður-Írum á dögunum, hafa nú náð sáttum á ný. Rooney brá sér yfir til Spánar í gærkvöld ásamt konu sinni og snæddi kvöldverð með Beckham hjónunum.

Enski landsliðshópurinn tilkynntur

Sven-Göran Eriksson hefur tilkynnt 24 manna landsliðshóp Englendinga sem mætir Austurríki og Pólverjum dagana 8. og 12. október næstkomandi. Athygli vekur að framherji Liverpool, Peter Crouch er kominn inn í hópinn á ný, en Danny Murphy frá Charlton hlýtur ekki náð fyrir augum Svíans, þrátt fyrir að leika mjög vel með liði sínu undanfarið.

Carsley aftur í aðgerð

Það blæs ekki byrlega fyrir botnlið Everton þessa dagana og í dag bárust þær fréttir að miðjumaðurinn sterki Lee Carsley hafi farið í aðra aðgerð á hné og verði því frá í lágmark sex vikur til viðbótar.

Sammi vill mæta Roma

"Stóri-Sam" Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, segist vonast eftir að mæta einhverjum af stóru liðunum í Evrópu þegar dregið verður í riðla í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu á morgun.

Jóna Guðlaug samdi við Cannes

Blaklandsliðskonan unga og efnilega, Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir úr Þrótti á Neskaupsstað, hefur gert sjö ára samning við stórliðið Racing Club de Cannes í Frakklandi.

Stelpurnar töpuðu fyrir Rússum

U-19 ára landslið kvenna tapaði lokaleik sínum í riðlakeppninni í undankeppni EM fyrir Rússum 5-1 á laugardaginn, en liðið er engu að síður komið áfram í milliriðla. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði eina mark íslenska liðsins, sem hafnaði í öðru sæti riðils síns.

Fyrsti sigurinn í þrjú ár

Suður-Kóreumaðurinn K.J. Choi vann fyrsta sigur sinn í þrjú ár í bandarísku mótaröðinni í golfi í gærkvöldi þegar hann hrósaði sigri á Greensboro-mótinu í Norður-Karólínu. Choi lék samtals á 266 höggum, 22 undir pari.

Montgomerie sigraði á Dunhill

Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie sigraði á Dunhill-mótinu í golfi í gær. Þetta var fyrsti sigur Montgomeries í 19 mánuði. Barátta hans við Kenneth Ferrie um sigurinn var ótrúlega spennandi.

Düsseldorf vann Minden

Düsseldorf bar sigurorð af Minden 33-31 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Markús Máni Michaelsson skoraði fimm mörk fyrir Düsseldorf og Snorri Steinn Guðjónsson fimm fyrir Minden.

Bandaríkin í efsta sæti hjá FIBA

Bandaríkin eru enn í efsta sæti styrkleikalista FIBA í körfubolta, þrátt fyrir að hafa ekki riðið feitum hesti frá stórkeppnum að undanförnu. Evrópumeistarar Grikkja verða að láta sér lynda áttunda sætið á listanum.

Best á gjörgæslu

Knattspyrnugoðið George Best hefur verið lagður inn á gjörgæslu á Cromwell sjúkrahúsinu í London, samkvæmt fréttum frá BBC. Ekki liggur ljóst fyrir hvað amar að Best, en hann lét græða í sig lifur fyrir þremur árum og hefur verið nokkuð heilsutæpur á síðustu árum.

Crouch valinn í landsliðið

Sóknarmaður Liverpool, Peter Crouch, var í gær valinn í enska landsliðið sem mætir Austurríki og Pólverjum í undankeppni Heimsmeistaramótins í knattspyrnu. Alan Smith hjá  Manchester Utd var einnig valinn en Wayne Rooney er í banni gegn Austurríki.

Heimsmeistarar í U-17 ára

Mexíkóar lögðu Brasilíumenn með þremur mörkum gegn engu í úrslitaleik Heimsmeistaramóts pilta 17 ára og yngri í knattspyrnu í Perú í gærkvöld. Þetta er fyrsti heimsmeistaratitill Mexíkóa í knattspyrnu.

OgVodafone styrkir Ólöfu Maríu

Atvinnukylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir hefur gert tveggja ára styrktarsamning við Og Vodafone, sem felst í því að fyrirtækið mun styðja við bakið á henni í keppnum á evrópsku mótaröðinn í golfi, en Ólöf varð í ár fyrsta íslenska konan til að tryggja sér þáttöku á mótaröðinni.

Mexíkóar heimsmeistarar U-17

Mexókóar komu mjög á óvart og sigruðu Brasilíumenn 3-0 í úrslitaleiknum í heimsmeistarakeppni knattspyrnulandsliða skipuðum leikmönnum 17 ára og yngri í Perú í gær.

Moyes áhyggjufullur

David Moyes, knattspyrnustjóri botnliðs Everton í ensku úrvalsdeildinni, hefur viðurkennt að martröð liðsins muni aðeins halda áfram í deildinni ef liðinu fer ekki að takast að skora mörk. Everton situr á botni deildarinnar með aðeins þrjú stig úr sjö leikjum, en því hefur aðeins tekist að skora eitt mark það sem af er.

Ísland U-19 tapaði fyrir Búlgaríu

Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum yngri en 19 ára, tapaði í dag fyrir Búlgaríu 1-0 í undankeppni EM. Markið kom á 50. mínútu leiksins úr vítaspyrnu, en einn leikmaður úr hvoru liði fékk að líta rauða spjaldið í leiknum.

Þrír 19 ára í U-21 árs liðið

Eyjólfur Sverrisson hefur valið þrjá leikmenn úr U-19 ára landsliði Íslands í U-21 árs hóp sinn sem mætir Svíum í undankeppni EM í Svíþjóð þann 11. október. Þetta eru þeir Theodór Elmar Bjarnason, Bjarni Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason.

Sjá næstu 50 fréttir