Fleiri fréttir

Naumur sigur Arsenal

Arsenal vann 1-0 sigur á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu og var það Robin van Persie sem skoraði eina mark leiksins á 81. mínútu. Skot Persie hafði reyndar viðkomu í Stephen Clemence og breytti um stefnu, þaðan í Taylor markvörð og yfir línuna. Birmingham lék einum manni færri frá 24. mínútu.

Eiður ekki með gegn Liverpool

Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea sem mætir Liverpool nú kl. 15 í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu. Eiður hefur verið að ná sér eftir meiðsli en hann handarbrotnaði nýlega. Leikur liðanna fer fram á Anfield og eru liðin þannig skipuð;

Loks sigur hjá Middlesbrough

Middlesbrough vann 2-3 útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og lyfti sér með sigrinum upp í 10. sæti deildarinnar. Aiyegbeni Yakubu skoraði 2 mörk fyrir Boro, það seinna úr vítaspyrnu á 88. mínútu en George Boateng eitt. Luke Moore og Steven Davis skoruðu mörk Aston Villa sem er í fimmta neðsta sæti með 6 stig.

Cisse yfirheyrður

Djibril Cisse, leikmaður Liverpool hefur verið kallaður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í London en hann er sakaður um að hafa lagt hendur á 15 ára gamlan unglingspilt. Meint atvik á að hafa átt sér stað á föstudagskvöld þegar Cisse var í auglýsingatökum en þar var settur á svið ímyndaður landsleikur milli Englendinga og Frakka.

Chelsea komið yfir gegn Liverpool

Frank Lampard hefur komið Chelsea 1-0 yfir á 27. mínútu gegn Liverpool á Anfield í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lampard skoraði úr vítaspyrnu sem dæmd var á Djimi Traore en hann braut á Didier Drogba í vítateignum. Lampard fékk gult spjald fyrir fagnaðarlæti sín.

Gerrard jafnar fyrir Liverpool

Steven Gerrard hefur jafnað metin fyrir Liverpool gegn Chelsea, 1-1, í leik liðanna á Anfield. Markið kom eftir hornspyrnu John Arne Riise á 36. mínútu og náði Jamie Carragher að skalla boltann út í teiginn þar sem fyrirliðinn Gerrard hamraði boltann í hornið fjær úr mjög þröngu færi.

Mörkunum rignir á Anfield

Damien Duff hefur komið Chelsea aftur yfir gegn Liverpool þar sem staðan er orðin 1-2 og flautað hefur verið til hálfleiks. Duff skoraði eftir frábæran undirbúning Didier Drogba sem losaði sig skemmtilega við Sami Hyypia og kom boltanum á Duff. Markið kom á 42. mínútu.

Njarðvík vann mótið í Árósum

Njarðvík fór með sigur af hólmi á æfingamótinu Bakken Bears knock out cup í körfubolta sem lauk í Árósum í dag. Þetta er annað árið í röð sem Njarðvíkingar hampa þessum titli en þeir sigruðu Bakken Bears naumlega í úrslitaleik í dag, 69-67. Heimamenn voru yfir 67-60 en Njarðvíkingar áttu glæsilegan endasprett.

Veigar með tvö fyrir Stabæk í dag

Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Stabæk í 4-1 heimasigri á Kongsvinger í norsku 1. deildinni í dag. Sigurinn færði Stabæk skrefi nær sæti í úrvalsdeildinni að ári en liðið er nú efst með 58 stig, átta stigum ofar en Hønefoss sem er í 3. sæti deildarinnar og aðeins fjórar umferðir eru eftir.

Chelsea að afgreiða Liverpool

Joe Cole hefur komið Chelsea í 3-1 yfir gegn Liverpool í stórleik liðanna í ensku úrvalsdeildinni en seinni hálfleikur stendur nú yfir. Enn og aftur var það Didier Drogba sem skapaði mark fyrir gestina og lagði upp fyrir Cole á 63. mínútu.

Grétar fékk 6 mínútur með Alkmar

Grétar Rafn Steinsson lék síðustu 6 mínúturnar í liði AZ Alkmar sem tyllti sér á topp hollensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 3-2 sigri á NEC Nijmegen. Feyenoord sem er í 2. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Alkmar tapaði í dag fyrir Utrecht 3-1.

Chelsea valtaði yfir Liverpool

Chelsea heldur áfram óstöðvandi sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 4-1 sigri á Liverpool á Anfield í dag. Frank Lampard, Damien Duff, Joe Cole og Geremi skoruðu mörk Chelsea en Steven Gerrard mark Liverpool þegar hann jafnaði metin í 1-1.

Maldini skoraði tvö fyrir AC Milan

Sjálfur varnarmaðurinn og fyrirliðinn Paolo Maldini var hetja AC Milan í dag þegar hann skoraði bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Reggina. Með sigrinum lyfti liðið sér í 2. sæti Serie A í fótbolta á Ítalíu og er með 13 stig,  tveimur stigum á eftir toppliði Juventus sem á leik inni gegn Inter Milan í kvöld.

Osasuna kemur á óvart á Spáni

Osasuna gerði best toppliðanna á Spáni í dag þegar liðið lyfti sér upp í 3. sæti fótboltadeildarinnar La Liga með 1-0 útisigri á Deportivo La Coruna. Inaki Munoz skoraði sigurmarkið á 19. mínútu og er Osasuna með 12 stig í þriðja sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Getafe sem lagði Valencia í gærkvöldi.

Real Madrid í 3. sætið

Real Madrid færðist upp í 3. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með stórsigri á Mallorca, 4-0. Mörk Real voru albrasilísk í kvöld, Brasilíumaðurinn Roberto Carlos skoraði tvö af mörkum Real og landar hans Ronaldo og nýliðinn Julio Baptista eitt hvor. David Beckham átti stórleik og lagði þrjú af mörkunum.

Haukar fóru létt með St.Otmar

Haukastúlkur völtuðu yfir svissneska liðið St.Otmar í Evrópukeppni meistaraliða í handbolta kvenna í kvöld, með 16 marka mun 41-25. Hanna G.Stefánsdóttir var markahæst Hauka með 11 mörk, þar af þrjú úr vítum og Ramune Pekarskyte kom næst með 8 mörk. Leikurinn Seinni leikur liðanna fer fram á Ásvöllum klukkan 17:30 á morgun.

Juventus í 5 stiga forystu

Juventus náði 5 stiga forystu á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld með 2-0 sigri á Inter Milan. David Trezeguet og Pavel Nedved skoruðu mörk Juve sem er með 18 stig eða fullt húst stiga eftir 6 umferðir í Serie A. AC Milan og Fiorentina koma næst með 13 stig í öðru og þriðja sæti.

Stjarnan lagði HK

Einn leikur var á dagskrá í DHL deild karla í handknattleik í kvöld. Stjarnan vann sigur á HK í Digranesi 23-19, eftir að jafnt hafði verið í hálfleik, 9-9. Patrekur Jóhannesson og Kristján Kristjánsson voru markahæstir í liði Stjörnunnar með 5 mörk.

Brynjar Björn búinn að skora

Brynjar Björn Gunnarsson er búinn að koma Reading yfir gegn Sheffield United í toppslagnum í ensku 1. deildinni. Brynjar skoraði markið strax á 2. mínútu leiksins en hann er ásamt Ívari Ingimarssyni í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir.

Sheffield jafnar í toppslagnum

Sheffield Utd hefur jafnað metin gegn Reading í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta en Brynjar kom Reading yfir strax á 2. mínútu leiksins. Ívari Ingimarsson er einnig í byrjunarliði Reading. Liðin er í efstu tveimur sætum deildarinnar fyrir leikinn sem hófst kl. 14, Sheffield með 30 stig og Reading sex stigum á eftir.

Guðjón Valur skoraði níu mörk

Guðjón Valur Sigurðsson er baneitraður þessa dagana í þýsku Bundesligunni í handbolta en hann var markahæstur hjá Gummersbach með 9 mörk (3 úr víti) þegar liðið gerði jafntefli við Lemgo  í dag, 26-26. Róbert Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach sem var að tapa sínu fyrsta stigi í deildarkeppninni í vetur. Gummersbach er efst með 11 stig en Lemgo í 6. sæti með 8 stig.

Stjarnan yfir gegn ÍBV

Stjarnan var yfir gegn ÍBV í hálfleik, 17-12 í DHL deild kvenna í handbolta en fjórir leikir fara fram í deildinni í dag. Hálfleikstölur í öðrum leikjum eru sem hér segir:

Heiðar kemur inn á gegn Man Utd

Heiðar Helguson er kominn inn á sem varamaður í lið Fulham sem er 2-3 undir á heimavelli gegn Man Utd í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Heiðar kom inn á fyrir Brian Mc Bride á 71. mínútu og var dæmdur rangstæður innan við mínútu síðar og 2 mínútum eftir það straujaði hann Mikael Silvestre niður í baráttunni um boltann.

Naumur sigur Man Utd

Manchester United vann mikilvægan 2-3 útisigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Heiðar Helguson lék síðustu 20 mínúturnar í liði Fulham eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Tottenham vann ævintýralegan sigur á Charlton 2-3 eftir að hafa lent 2-0 undir og Newcastle gerði markalaust jafntefli við Portsmouth á útivelli. Þá vann Blackburn 2-0 sigur á W.B.A.

Brynjar var hetja Reading

Brynjar Björn Gunnarsson var hetja Reading og skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Sheffield Utd í toppslag ensku 1. deildarinnar í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði Brynjar á 89. mínútu. Hannes Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Stoke sem tapaði fyrir Bjarna Guðjónssyni og félögum í Plymouth.

ÍBV náði jafntefli gegn Stjörnunni

Fjórir leikir fóru fram í DHL deild kvenna í handbolta í dag. Topplið Stjörnunnar missti leik sinn gegn ÍBV niður í jafntefli, 24-24 eftir að hafa leitt 17-12 í hálfleik. FH vann 6 marka útisigur á Víkingi, 22-28. Framstúlkur eru enn án stig en þær töpuðu fyrir Gróttu, 13-18.

Valur í góðum málum í UEFA Cup

Valsmenn sigruðu finnska liðið Sjundeä, 27-33 á útivelli í dag en þetta var fyrri leikur liðanna annarri umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta. Þetta var fyrri leikur liðanna en sá seinni fer fram í Laugardalshöll um næstu helgi. Valur leiddi í hálfleik 18-15. Mohamadi Loutoufi var markahæstur Valsmanna með 11 mörk, Sigurður Eggertsson kom næstur með 8 mörk og Baldvin Þorsteinsson 7.

Notts County án sigurs í 6 leikjum

Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar gerði markalaust jafntefli á útivelli við Macclesfield í ensku D-deildinni í fótbolta í dag, eða 2. deild. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með 18 stig eftir 12 umferðir og hefur ekki unnið sigur í síðustu 6 leikjum.

Haukar undir í Meistaradeildinni

Haukar eru undir í hálfleik, 18-14 gegn danska liðinu Århus GF í Meistaradeild Evrópu í handbolta en leikið er að Ásvöllum. Jón Karl Björnsson er markahæstur með 5 mörk og Árni Þór Sigtryggsson með 4 mörk.

ÍR-ingar skoruðu 42 mörk

ÍR burstaði Selfoss, 42-33 í DHL-deild karla í handbolta í dag en leikið var í Austurbergi. Staðan í hálfleik var 21-18 fyrir ÍR. Ragnar Helgason var markahæstur heimamanna með 13 mörk fyrir ÍR en Ramunas Mikalonis hjá Slefyssingum með 12 mörk. Gísli Guðmundsson markvörður ÍR fór hamförum í markinu og varði 31 skot.

Sigurmark Fram á lokasekúndunum

Framarar unnu nauman sigur á Fylki nú síðdegis, 30-29 og eru enn með fullt hús stiga í DHL deild karla í handbolta að loknum 5 leikjum. Jóhann Gunnnar Einarsson skoraði sigurmark Fram 18 sekúndur voru eftir. Afturelding tapaði heima fyrir Þór Akureyri, 23-30 og Víkingur/Fjölnir og KA gerðu jafntefli í 60 marka leik, 30-30.

Haukar lágu naumlega fyrir Århus

Haukar töpuðu naumt fyrir danska liðinu Århus GF í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta nú síðdegis, 28-27. Leikið var að Ásvöllum og var þetta fyrsti leikur Hafnarfjarðarliðsins í riðlinum. Haukar áttu góðan endasprett eftir að hafa elt allan leikinn en staðan í hálfleik var 18-14 fyrir Århus.

West Ham í 6. sæti eftir jafntefli

Sunderland og West Ham skildu jöfn, 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu í dag en þetta var síðasta leikur dagsins í deildinni. Nýliðar West Ham eru nú í 6. sæti deildarinnar með 12 stig en Sunderland fikrar sig ofar eftir skelfilega byrjun í deildinni og er nú í 17. sæti með 5 stig.

Valsstúlkur með fullt hús stiga

Valur vann KA/Þór 28-19 í lokaleik dagsins í DHL deild kvenna í handbolta í dag. Alla Gokorian var markahæst Valskvenna með 6 mörk og Hafrún Kristjánsdóttir fimm. Berglind Hansdóttir fór á kostum í marki Vals og varði 23 skot. Valsstúlkur eru með fullt hús stiga eftir fjóra leiki eða 8 stig en KA/Þór hefur tapað þremur leikjum af fjórum.

Njarðvík leikur til úrslita

Njarðvíkingar leik til úrslita á æfingamóti í körfubolta karla sem fram fer í Árósum í Danmörku en það tryggðu þeir sér í dag þegar þeir lögðu Skovbakken 72-60. Brenton Birmingham var stigahæstur Njarðvíkinga með 26 stig. Þór Akureyri leikur um 5. sætið á mótinu en norðanmenn unnu Horsens með eins stigs mun í dag, 84-83.

Borgvardt og Laufey best

Allan Borgvardt sem lék með FH í sumar var valinn besti leikmaðurinn í Landsbankadeild karla á lokahófi KSÍ sem fram fór á Broadway í kvöld. Laufey Ólafsdóttir hjá Val var valin best í kvennaflokki. Þá var Hörður Sveinsson leikmaður Keflavíkur valinn efnilegasti leikmaður ársins í karlaflokki og Greta Mjöll Samúelsdóttir Breiðabliki í kvennaflokki.

Getur yfirstigið allar hindranir

Línur eru teknar að skýrast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er greinilegt að Chelsea ætlar sér ekki að láta meistaratitilinn af hendi baráttulaust. Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki leikið mikið með liðinu það sem af er vegna veikinda og meiðsla en hann er nú farinn að láta að sér kveða á nýjan leik

Pressan er öll á Liverpool

Liverpool og Chelsea mætast öðru sinni á innan við viku þegar liðin mætast á Anfield í dag en leikur liðanna í Meistaradeild Evrópu endaði með markalausu jafntefli. Úrslitin komu fáum á óvart enda hafa varnir liðanna verið afar sterkar það sem af er tímabilinu. Nú eru þrjú stig í boði í deildinni og það er ljóst að pressan er öll á Liverpool þar sem liðið er fjórtan stigum á eftir Chelsea, en reyndar á liðið tvo leiki til góða.

Sjá næstu 50 fréttir