Fleiri fréttir

Fallbaráttuslagurinn í dag

Nú þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir í Landsbankadeild karla og ljóst að FHingar hafa þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, beinast augu flestra að fallslagnum, sem er gríðarlega harður í ár.

Boris í góðum anda

Síðasta keppnin á mótaröðinni Sterkasti maður Íslands fór fram um helgina, en keppnin bar heitið Suðurnesjatröllið 2005. Keppnin hófst með látum í Hafnarfirði á föstudaginn, en þaðan lá leiðin í Garðinn og lokaátökin fóru fram í Grindavík.

Áherslan verður lögð á varnarleik

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í dag því sænska á Nobelstadion í Karlskoga í Svíþjóð, en leikurinn er hluti af undankeppni heimsmeistaramótsins. Lið Svíþjóðar er eitt það allra besta í heiminum og hefur margsinnis leikið til úrslita á stórmótum á síðustu árum.

Ólöf náði sér ekki á strik í gær

Kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir náði sér ekki nægilega vel á strik á fyrstu tveimur hringjunum á Opna finnska meistaramótinu í Helsinki um helgina, en hún lék á ellefu höggum yfir pari vallarins.

Ísland hafnaði í níunda sæti

Ísland lagði Ísrael að velli í leiknum um níunda sætið á heimsmeistaramóti piltalandsliða í handknattleik í Ungverjalandi í gær, 35-32.

Berjast frændurnir um KR stöðuna?

Jónas Kristinsson, stjórnarmaður í KR-sport, segir að verið sé að skoða þjálfaramálin hjá KR fyrir veturinn en ekkert sé nú orðið víst í þessum efnum. Teitur Þórðarson hefur verið orðaður við þjálfarastarfi að undanförnu, en hann er náskyldur Sigursteini Gíslasyni, núverandi þjálfara liðsins. 

Jol semur við Tottenham

Hollenski knattspyrnustjórinn Martin Jol hefur undirritað nýjan þriggja ára samning við Tottenham,  sem gilda mun út næsta ár og býður upp á möguleika á eins árs framlengingu eftir það, en Jol tók við liðinu af Frakkanum Jaques Santini í byrjun síðasta tímabils.

Addo hreifst af Herði og Guðmundi

Otto Addo, leikmanni Mainz í Þýskalandi þótti erfitt að leika í nepjunni á Laugardalsvelli í gærkvöldi í 2-0 sigri liðsins á Keflvíkingum, en þótti íslenska liðið standa sig vel og hvað þá Guðmund Steinarsson og Hörð Sveinsson hafa verið erfiða andstæðinga.

Luque á leið til Newcastle

Framherjinn Albert Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni, mun að öllum líkindum ganga í raðir Newcastle í dag, en hann mun gangast undir læknisskoðun hjá félaginu seinnipartinn eftir að spænska liðið samþykkti tilboð Newcastle upp á 9,5 milljónir punda í leikmanninn í gærkvöldi.

Liverpool staðfestir áhuga á Owen

Rick Parry, framkvæmdastjóri Liverpool, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á að fá Michael Owen aftur á Anfield og segir málið væntanlega skýrast eftir helgina.

Mourinho segir riðilinn erfiðan

Jose Mourinho viðurkenndi fúslega að riðillinn sem Chelsea leikur í í Meistaradeild Evrópu sé mjög erfiður og bendir á að liðið muni þurfa á sínu besta til að komast áfram.

Arsenal verður ekki í toppbaráttu

Bryan Robson, knattspyrnustjóri West Brom, segist fullviss um að Arsenal muni ekki verða í baráttunni um titilinn í ensku úrvalsdeildinni vegna brotthvarfs þeirra Patrick Vieira og Edu af miðjunni, en segir Manchester United vera líklegast til að berjast við meistara síðasta árs.

Börkur situr beggja vegna borðsins

Börkur Edvarsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, sem sakaður er um að hafa rætt ólöglega við Atla Jóhannsson leikmann ÍBV fyrr í vikunni, situr í nefnd innan KSÍ sem sér um að endurskoða reglugerðir um félagaskipti og samninga.

KA sigraði HK

KA sigraði HK 2-1 á Kópavogsvelli í kvöld í 1.deild karla. KA komst í 2-0 með mörkum frá Hauki Ingvari Sigurbergssyni og Hreini Hringssyni en Rúrik Gíslason klóraði í bakkann fyrir Kópavogsliðið.

Teitur að taka við KR-liðinu?

Forráðamenn KR hafa samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins rætt við Teit Þórðarson um að hann taki við þjálfun liðsins fyrir næsta sumar. Eins og flestum ætti að vera kunnugt er Sigursteinn Gíslason núverandi þjálfari liðsins eftir að hafa tekið við af brottviknum Magnúsi Gylfasyni..

Marel aftur á heimaslóðir?

Knattspyrnumaðurinn Marel Baldvinsson, sem er á mála hjá Lokeren í Belgíu, hefur að undanförnu verið orðaður við sitt gamla félag hér á Íslandi, Breiðablik.

Dregið í riðla í meistaradeildinni

Í dag klukkan 14 að íslenskum tíma verður dregið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. 32 lið eru í pottinum, helmingur þeirra gekk í gegnum forkeppnina en hinn helmingurinn kemur beint inn í keppnina á þessu stigi. Örlög Evrópumeistara Liverpool eru spennandi en svo gæti farið að liðið dragist í sama riðil og Englandsmeistarar Chelsea.

Dregið í riðla í meistaradeildinni

Í dag klukkan 14 að íslenskum tíma verður dregið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. 32 lið eru í pottinum, helmingur þeirra gekk í gegnum forkeppnina en hinn helmingurinn kemur beint inn í keppnina á þessu stigi. Örlög Evrópumeistara Liverpool eru spennandi en svo gæti farið að liðið dragist í sama riðil og Englandsmeistarar Chelsea.

Dregið í riðla í Meistaradeildinni

Sterkustu knattspyrnulið Evrópu bíða nú í ofvæni eftir að dregið verði í riðla í Meistaradeildinni en drátturinn fer fram í dag kl. 14 að íslenskum tíma. Athygli vekur að Englandsmeistarar Chelsea eru ekki í efsta styrkleikaflokki enda hefur Jose Mourinho knattspyrnustjóri látið UEFA hafa það óþvegið í fjölmiðlum í morgun.

Siim ekki með FH á næsta ári

Miðvallarleikmaðurinn Dennis Siim mun ekki leika með FH-ingum á næstu leiktíð eftir því sem kemur fram á stuðningsmannasíðunni FHingar.net. Hann mun vera á leið aftur heim til Danmerkur þar sem konan hans mun hefja nám og telur hann líklegt að hann fái samning hjá liði í dönsku 1. deildinni.

Tveir toppslagir í neðri deildunum

Í kvöld fara fram tveir toppslagir í fyrstu og annarri deild karla. Á Kópavogsvelli klukkan 18.30 mætast Breiðablik og Víkingur R. annars vegar og þá mætast Stjarnan og Leiknir í Garðabænum í uppgjöri toppliðanna í annarri deildinni á sama tíma hins vegar.

Fyrsta tap Malmö á leiktíðinni

Ásthildur Helgadóttir var í liði Malmö sem tapaði 1-0 fyrir Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi, en þetta var fyrsta tap Malmö á þessari leiktíð. Malmö í öðru sæti í deildinni með 40 stig.

Stabæk tapaði fyrir Moss

Stabæk tapaði í gær 1-0 fyrir Moss í norsku 1. deildinni í knattspyrnu en er þrátt fyrir tapið í efsta sæti deildarinnar. Veigar Páll Gunnarsson var í liði Stabæk en fór af velli um miðjan síðari hálfleik.

Skjern úr leik í bikarkeppni

Íslendingaliðið Skjern í danska handboltanum er úr leik í bikarkeppninni en Álaborg vann Skjern 37-27 í gærkvöld.

Þeir bestu heiðraðir hjá UEFA

Chelsea skartar tveimur leikmönnum sem valdir voru bestu leikmennirnir í sinni stöðu á síðasta tímabili í Meistaradeild Evrópu á verðlaunaafhendingu sem var að ljúka á vegum UEFA í Mónakó. Þar stendur nú yfir drátturinn í riðlakeppni deildarinnar þetta tímabilið og verða niðurstöður hans birtar innan skamms. Besti sóknarmaðurinn var valinn...

Liverpool og Chelsea saman í riðli

Liverpool og Chelsea verða saman í dauðariðlinum (G) í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en Paolo Maldini fyrirliði AC Milan dró í riðlana í Mónakó nú síðdegis. Diego Forlan mætir sínum gömlu félögum í Man Utd sem dróst í riðil með Villareal. AC Milan lenti í riðli með PSV og nýliðar í Meistaradeildinni í Thun frá Sviss lenda á riðli með Arsenal.

Ísland lagði Suður Kóreu

U21 árs karlalandslið Íslands í hanbolta vann S. Kóreu í dag með eins marks mun, 34-33 á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi. Staðan í hálfleik var 15-17 fyrir Kóreuliðið. Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur Íslands með 13 mörk, Ernir Hrafn Arnarson með 6 og Árni Sigryggsson fjögur. Ísland mun því leika um 9. sætið á mótinu á laugardag.

Keflavík-Mainz á boltavaktinni

Síðari leikur Keflavíkur og Mainz frá Þýskalandi í Evrópukeppni félagsliða verður á boltavaktinni hér á Vísi í kvöld, þar sem fylgst verður grannt með gangi mála í leiknum.

Domino spil um Owen

Gerard Houllier knattspyrnustjóri Lyon hefur í hyggju að fá Djibril Cisse hjá Liverpool til liðs við sig áður en félagaskiptagluginn á fótboltamarkaðnum lokar nú um mánaðarmótin. Þetta fullyrða enskir fjölmiðlar í dag og rekja röð atriða sem púsla dæminu saman og snúast um að hjálpa Michael Owen að komast aftur til Liverpool.

Hópur Króata gegn Íslandi

Zlatko Kranjcar, landsliðsþjálfari Króata, hefur valið leikmannahópinn fyrir leikina gegn Íslandi og Möltu í undankeppni HM 2006 í fótbolta.  Króatar mæta Íslandi á Laugardalsvelli 3. september og Möltu, einnig á útivelli, fjórum dögum síðar. Þessi hópur er mjög svipaður þeim sem mætti Íslandi 26. mars síðastliðinn og Króatar unnu ytra, 4-0.

Leiknir upp í 1. deild

Leiknir tryggði sér í kvöld sæti í 1. deild karla í fótbolta að ári þegar Breiðhyltingar sigruðu Stjörnuna, 1-2 í Garðabæ. Með sigrinum náði Leiknir 4 stiga forskoti á toppi deildarinnar en Stjarnan er í 2. sæti. Blaðamaður Vísis skellti sér á Stjörnuvöllinn.

Breiðablik 1. deildar-meistarar

Breiðablik tryggði sér í kvöld sigur í 1. deild karla í fótbolta með því að gera 1-1 jafntefli við Víking R. í Fossvoginum. Blikar eru með 9 stiga forskot á Víking sem er í 2. sæti og aðeins 6 stig eftir í pottinum. "Þetta er ólýsanleg tilfinning og alveg magnað að vera búnir að vinna deildina."sagði Hjörvar Hafliðason markvörður Breiðabliks í viðtali við Vísi eftir leikinn.

Keflavík úr leik í UEFA Cup

Keflvíkingar eru úr leik í Evrópukeppni félagsliða en þeir töpuðu fyrir Mainz frá Þýskalandi, 0-2 á Laugardalsvelli í kvöld. Samanlagt tapaði Keflavík því 4-0 eftir að hafa tapað fyrri leik liðanna í 2. umferð með sömu markatölu ytra fyrir hálfum mánuði. Michael Thurk og Tom Geibler skoruðu mörk gestanna á 26. og 85. mínútum. Mainz var mun sterkari aðilinn í leiknum og náðu Keflvíkingar aldrei að ógna marki gestanna.

ÍBV kvartar vegna Vals

Knattspyrnufélagið Valur gæti átt yfir höfði sér sekt og áminningu eftir að ljóst varð að félagið gerðist brotlegt gagnvart reglum KSÍ. Knattspyrnudeild ÍBV hefur sent Knattspyrnusambandi Íslands formlega kvörtun vegna ólöglegra viðræðna Landsbankadeildarliðs Vals við leikmann Eyjaliðsins.

Suðurnesjatröllið hefst í dag

Síðasta keppnin á mótaröðinni Sterkasti maður Íslands verður háð nú um helgina, en hún ber heitið Suðurnesjatröllið 2005. Þar verða samankomnir margir af hrikalegustu aflraunamönnum landsins, með þá Auðun "Verndara" Jónsson og Kristin "Boris" Haraldsson í fararbroddi.

Owen vill fara til Englands

Knattspyrnumaðurinn Michael Owen hjá Real Madrid, átti fund með forseta félagsins í gær þar sem framtíð hans var rædd og forsetinn hefur samþykkt beiðni framherjans um að fá að fara sem lánsmaður til Englands til að eiga betri möguleika á að tryggja sæti sitt í enska landsliðinu.

O´Leary æfur út af rauða spjaldinu

David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, var ekki kátur með rauða spjaldið sem Nolberto Solano fékk gegn Portsmouth í gærkvöldi og ætlar að áfrýja dómnum.

Kóreumaður til Tottenham

Suður-Kóreumaðurinn Lee Young-Pyo hjá PSV Eindhoven í Hollandi er sagður vera á leið til Tottenham Hotspurs á Englandi fljótlega, en Pyo er öflugur vinstri bakvörður og er fasta maður í landsliði Kóreu.

Martin vill í landsliðið á ný

Orðrómur er uppi um það á Englandi að gamla brýnið Nigel Martyn gæti orðið kallaður inn í enska landslið á ný eftir hrakfarir David James á Parken á dögunum.

Woodgate sneri aftur í gær

Enski varnarmaðurinn Jonathan Woodgate sneri loksins aftur eftir meiðsli í gær, þegar lið hans Real Madrid sigraði amerískt úrvalslið á heimavelli sínum í æfingaleik í gær.

Tilboð Newcastle í Owen samþykkt

Real Madrid hefur samþykkt tilboð Newcastle í framherjann Michael Owen, sem er talið vera 15,5 milljónir punda, eða metfé í sögu Newcastle. Nú er boltinn hjá Michael Owen, sem mun væntanlega gera upp hug sinn fljótlega.

Ísland enn án stiga í milliriðli

Íslenska ungmennlandsliðið í handknattleik  tapaði fyrir Dönum með átta marka mun, 33-25, í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í gær. Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir Dani. Arnór Atlason var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Íslendingar hafa ekki fengið stig í milliriðlinum og mæta Suður-Kóreumönnum á fimmtudag, en íslenska liðið leikur um 9. til 11. sætið á mótinu.

Undanúrslit í bikarkeppni kvenna

Í kvöld verður leikið í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í knattspyrnu. Efstu liðin í Landsbankadeildinni, Breiðablik og Valur, eigst við í Kópavogi klukkan 17.30 og KR tekur á móti Fjölni.

Hamburg sló Valencia út

Í úrslitum um laust sæti í Evrópukeppni félagsliða vann Lenz Cluj frá Rúmeníu 3-1 og samanlagt 4-2. Marseille burstaði Deportivo 5-1 og samanlagt 5-3 og Valencia og Hamburger gerðu markalaust jafntefli, en Hamburg vann fyrri leikinn 1-0.

U19 ára landslið Íslands

Guðni Kjartansson, þjálfari U19 landsliðs karla í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahópinn sem mætir Hollendingum í vináttulandsleik í Hollandi 2. september.  Í hópnum eru fimm leikmenn sem eru á mála hjá erlendum liðum.

Sjá næstu 50 fréttir