Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Van Persie kannski með Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að Robbie van Persie eigi möguleika á að spila leikinn um Samfélagsskjöldin á sunnudag. Van Persie á enn kæru yfir höfði sér vegna nauðgunarmáls en hann þurfti að dvelja í fangelsi ekki alls fyrir löngu vegna málsins. 3.8.2005 00:01
Guðmundur Steinars æfir með OB Guðmundur Steinarsson, sóknarmaður Keflavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu er nú staddur í Danmörku þar sem hann er á reynslu hjá OB í Óðinsvéum. Guðmundur er væntanlegur aftur til landsins á morgun og verður til í slaginn með Keflavík þegar liðið mætir Þrótti í deildinni á sunnudag. 3.8.2005 00:01
Unglingar valdir í golflandsliðið Staffan Johansson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi hefur valið fjóra kylfinga til að keppa á Evrópumóti karla sem fram fer í Belgíu dagana 17. - 20. ágúst n.k. Keppt verður á Antwerpen "Rinkven" golfvellinum. Íslensku keppendurnir eru Heiðar Davíð Bragason GKJ, Kristján Þór Einarsson GKJ, Magnús Lárusson GKJ og Ólafur B. Loftsson NK. 3.8.2005 00:01
Enn tapar Ísland U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag öðrum leik sínum í röð, nú fyrir Írum, 2-0, á Keflavíkurvelli, í A-riðli á Norðurlandamótinu sem hófst í gær. Ísland hefur þar með tapað báðum fyrstu leikjunum sínum eftir að hafa steinlegið fyrir Dönum á KR-vellinum í gær, 4-0. 3.8.2005 00:01
Zidane aftur í franska landsliðið Franska goðsögnin Zinedine Zidane hjá Real Madrid kom fótboltaheiminum í opna skjöldu í dag þegar hann tilkynnti endurkomu sína í franska landsliðið, um ári eftir að hann tilkynnti að hann væri endanlega hættur að leika með liðinu. Claude Makelele, miðjumaður Chelsea hefur einnig boðið þjónustu sína í landsliðið en hann hafði einnig sagt skilið við landsliðið. 3.8.2005 00:01
Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. 3.8.2005 00:01
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. 3.8.2005 00:01
Fram-FH í beinni á Vísi Leikur Fram og FH í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu hefst nú kl. 19:40 á Laugardalsvelli. Hægt er að fylgjast BEINT með leiknum á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. 3.8.2005 00:01
FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. 3.8.2005 00:01
FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. 3.8.2005 00:01
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. 3.8.2005 00:01
Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. 3.8.2005 00:01
Fram minnkar muninn gegn FH Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar. 3.8.2005 00:01
Fram jafnaði og framlengt gegn FH Leikur Fram og FH fer í framlengingu en Daninn Bo Henriksen jafnaði metin fyrir Fram 3 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma í bikarundanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvelli. Allt stefndi í öruggan sigur FH sem leiddi 2-0 með mörkum frá Allan Borgvardt í fyrri hálfleik. Andri Fannar Ottósson minnkaði muninn í 2-1 á 81. mínútu. 3.8.2005 00:01
Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. 3.8.2005 00:01
Ekkert enn skorað í framlengingu Síðari hálfeikur framlenginar var að hefjast í leik Fram og FH í undanúrslialeik liðanna í VISA bikar karla í knattspyrnu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2 og var ekkert mark skorað í fyrri hálfleik framlengingarinnar. Við fylgjumst með gangi mála hér á fréttahlutanum ef eitthvað markvert gerist. 3.8.2005 00:01
Vítaspyrnukeppni í Laugardal Leikur Fram og FH fer í vítaspyrnukeppni en ekkert mark var skorað í framlengingu. Staðan er því 2-2 eftir vejulegan leiktíma og framlengingu og munu úrslit hennar birtast um leið og hún er afstaðin. 3.8.2005 00:01
Fram í úrslitaleik VISA bikarsins Fram tryggði sér í kvöld farseðilinn í úrslitaleik VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu eftir ótrúlega dramatískan sigur á FH í framlengdum leik og þrefaldan bráðabana í vítaspyrnukeppni. Lokatölur urðu 9-8 fyrir Fram. 3.8.2005 00:01
Magnús Lárusson sigraði á Nesinu
Magnús Lárusson kylfingur úr Golfklúbbnum Kili hrósaði sigri í Einvíginu á Seltjarnarnesi annað árið í röð í gær. Hann bar sigurorð af Sigurpáli Geir Sveinssyni á lokaholunni Einvígið á Nesinu var haldið í 9.sinn í gær en það er góðgerðarmót og rann ágóðinn, 250.000 krónur, til styrktar Barnaspítala Hringsins.
2.8.2005 00:01
Andy Johnson áfram hjá Palace
Markamaskínan, Andy Johnson, verður áfram í herbúðum Crystal Palace þrátt fyrir að liðið hafi fallið í B deild í vor. Johnson, sem var næstmarkahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð skrifaði undir fimm ára samning við Palace í gær. Þar með lýkur vangaveltunum um framtíð hans í bili að minnsta kosti.
2.8.2005 00:01
Stubbs til Sunderland Varnarmaðurinn, Alan Stubbs er genginn til liðs við nýliða Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en hann var leystur undan samningi við Everton í lok síðustu leiktíðar. Stubbs er 33 ára gamall og var fyrirliði Everton í fyrra sem lennti í fjórða sæti og vann sér sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. 2.8.2005 00:01
Leikið við Kólumbíu í ágúst Íslenska landsliðið í knatttspyrnu mætir Kólumbíu í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 17 ágúst n.k. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar hafa valið hópinn sem mætir Suður Ameríkumönnunum. 2.8.2005 00:01
Norðurlandamót drengjalandsliða Norðurlandamót drengjalandsliða í knattspyrnu hefst í dag , en leikið verður hér á landi. Leikið er í tveimur riðlum og taka átta þjóðir þátt í mótinu. Íslendingar mæta Dönum í fyrsta leik á KR vellinum hlukkan 14:30, en Ísland og Danmörk léku til úrslita á mótinu í Finnlandi á síðasta ári. Þá höfðu Danir sigur , 3 - 0 , en Ísland vann sigur á mótinu árið 2002. Íslendingar leika í A riðli ásamt Dönum , Írum og Norðmönnum. Í B riðli eigast við Svíar, Finnar, Færeyingar og Englendingar. 2.8.2005 00:01
Magnús Lárusson vann Einvígið Magnús Lárusson úr golfklúbbnum Kili sigraði í Einvíginu á Nesvelli annað árið í röð í gær þar sem tíu bestu kylfingar landssins öttu kappi í árlegu góðgerðarmóti. Magnús vann félaga sinn Sigurpál Geir Sveinsson úr Kili á síðustu holu. Íslandsmeistarinn , Heiðar Davíð Bragason , sem einnig er úr Kili féll úr leik á holunni á undan. 250.000 krónur runnu að þessu sinni til Barnaspítala Hringsins. 2.8.2005 00:01
Gunnar Berg frá vegna meiðsla Gunnar Berg Viktorsson handknattleiksmaður sem leikur með Króná Östringen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik verður frá keppni í fjóra mánuði vegna axlarmeins. Gunnar var skorinn upp á dögunum og þá kom í ljós að meiðslin voru mun alvarlegri en haldið var í fyrstu. Gunnar Berg mun ekki leika í þýsku deildinni til áramóta , en Króná Östringen vann sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni á nýjan leik á síðustu leiktíð 2.8.2005 00:01
Helsingborg - Djurgarden Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. 2.8.2005 00:01
Lyn skoðar Garðar Jóhannsson Forráðamenn norska liðsins Lyn sem er í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni hafa enn ekki gert upp við sig hvort þeir bjóði Garðari Jóhannssyni framherja KR samning hjá félaginu. Fulltrúar frá félaginu hyggjast fylgjast með Garðari í leik gegn FH í Landsbankadeildinni á sunudag og í framhaldi af því verður ákvörðun tekinn hvort Garðari Jóhannsyni verði boðinn samningur hjá norska félaginu. 2.8.2005 00:01
Ný miðjumaður til Fram Johann Karlefjard 21. árs sænskur miðjumaður frá sænska liðinu Örgryte hefur verið lánaður til Fram þar sem eftir lifir leiktíðar í Landsbankadeildinni. Þeim sænska er ætlað að fylla það skarð sem Daninn Kim Nörholt skildi eftir í Safamýrinni, en Nörholt varð að snúa heim vegna meiðsla. 2.8.2005 00:01
Newcastle á eftir Owen Komið hefur upp úr krafsinu að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle Utd þykir líklegast til þess að hreppa landsliðsmanninn Michael Owen hjá Real Madrid. Hefur Manchester United oftast verið nefnt í því samhengi en BBC hefur öruggar heimildir fyrir því að Man Utd hafi ekki falast eftir Owen. 2.8.2005 00:01
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. 2.8.2005 00:01
Barrichello yfirgefur Ferrari Brasilíski Formúlu 1 ökumaðurinn, Rubens Barrichello, ætlar að yfirgefa Ferrari liðið að þessu keppnistímabili loknu. Barrichello ætlar að ganga til liðs við BAR liðið á næsta tímabili. 2.8.2005 00:01
Laudrup skoraði gegn Íslandi U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag fyrir Danmörku, 4-0, á KR-velli í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu sem hófst í dag. Mads Thunø Laudrup, sonur dönsku goðsagnarinnar Michael Laudrup, skoraði eitt marka danska landsliðsins í dag. Næsti leikur Íslands verður gegn Írum á morgun klukkan 14.30 á Keflavíkurvelli. 2.8.2005 00:01
Liverpool lánar Le Tallec Franski sóknarmaðurinn Anthony Le Tallec sem verið hefur hjá Liverpool í á þriðja ár hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland á árslöngum lánssamningi. Le Tallec er tvítugur og var keyptur til félagsins ásamt Florent Sinama-Pongolle í stjóratíð Gerard Houllier. 2.8.2005 00:01
Carson og Crouch í byrjunarliðinu Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í kvöld þegar Evrópumeistararnir taka á móti Kaunas frá Litháen í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rafael Benitez setur ungstirnið Scott Carson í markið í stað Jose Reina og þá er kóngurinn á Anfield, Steven Gerrard á varamannabekknum ásamt öðrum stórjöxlum. Leikurinn hófst kl. 18:45. 2.8.2005 00:01
Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik. 2.8.2005 00:01
Els frá í 4 mánuði Suður-afríski kylfingurinn, Ernie Els, verður frá keppni í allt að 4-5 mánuði en hann slasaðist illa á hné fyrir hálfum mánuði þegar hann var í siglingu með fjölskyldu sinni. Hann missir því af síðasta stórmóti ársins, USPGA-meistaramótinu sem og keppninni um Forsetabikarinn og í heimsmótinu í holukeppni. 2.8.2005 00:01
Shaq fær $100 millur næstu 5 árin Körfuboltasnillingurinn Shaquille O Neal komst í dag að samkomulagi við lið sitt í NBA deildinni, Miami Heat um nýjan 5 ára samning sem færir honum 100 milljónir dollara í laun á tímabilinu. O Neal er því launahæsti leikmaðurinn í deildinni og verður það að öllu óbreyttu a.m.k. næstu 2 tímabilin. 2.8.2005 00:01
Liverpool áfram í Meistaradeild Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum. 2.8.2005 00:01
Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. 2.8.2005 00:01
Vijay Singh vann Buick mótið Vijay Singh sigraði á opna Buick mótinu sem var haldið í Michigan sem var sýndur á Sýn. Vijay fór hringinn í gær á 70 höggum og endaði á samtals 24 undir pari. Tiger Woods og Zach Johnson urðu jafnir í öðru sæti 4 höggum á eftir. 1.8.2005 00:01
Chelsea - AC Milan Í gærkvöldi áttust við Chelsea og AC Milan. Didier Drogba kom Chelsea yfir en Portúgalinn snjalli Rui Costa jafnaði metin á 79. mín. Lokastaðan því 1-1. Eiður Smári var í byrjunarliði Chelsea en var tekinn útaf um miðjan seinni hálfleik. 1.8.2005 00:01
21. árs og yngri unnu Norðmenn Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri sigraði Norðmenn 34-31 í lokaleik liðsins á opna skandinavíumótinu en leikið var í svíþjóð. Arnór Atlason í Magdeburg var markahæstur hann skoraði 7 mörk. 1.8.2005 00:01
Góð byrjun hjá Glasgow Rangers Glasgow Rangers byrjuðu vel í skoska fótboltanum í gær. Þeir unnu Livingstone sannfærandi 3-0. Dado Prso skoraði fyrsta markið á 23 mín. Hinn nýi leikmaður Rangers Pierre-FanFan bætti við öðru marki á 53. mín. Það var svo Daninn Peter Lovendkrands sem innsiglaði góðan sigur Rangers manna. Rétt rúmlega 50 þús manns sáu leikinn á Ibrox. 1.8.2005 00:01
Start enn efst í norska boltanum Start frá Noregi sem Jóhannes Harðarson leikur með, er enn efst í norska fótboltanum. Start sigraði Molde 1-0 en Jóhannes var varamaður í leiknum og fékk ekki að spreyta sig. Start er með 33 stig. 1.8.2005 00:01
Owen til United? Michael Owen, leikmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni, til Manchester United eftir að Madrídarliðið keyti brasilísku framherjana Baptista og Robinho. Kaupverðið á Owen er talið vera um 12 milljónir punda. Glazer feðgar hafa fulllvissað stjórnarformann United, David Gill að nægt fjármagn sé til staðar til að styrkja liðið. 1.8.2005 00:01
Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Körfubolti