Fleiri fréttir

Hæglætis veður í dag en lægð nálgast landið
Veðurstofan spáir hæglætis veðri á landinu í dag – hægri suðlægri eða breytilegri átt og dálítilli vætu á víð og dreif. Þó verður lengst af þurrt á Norðurlandi.

Lægðin heldur að nálgast landið aftur en farin að grynnast
Lægðin sem olli aftakaveðri á austanverðu landinu í gær er nú stödd 350 kílómetra norðaustur af Langanesi og er á leið suðsuðaustur. Lægðin er því heldur að nálgast landið, en á móti kemur að hún er farin að grynnast og missa kraft sinn.

„Veðurspáin lítur ekki vel út“
Rauð viðvörun vegna veðurs hefur nú tekið gildi á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir ofsaveðri með vindhviðum allt að 45 metrum á sekúndu. Hættustig almannavarna hefur verið virkjað og björgunarsveitir fyrir austan eru í viðbragðsstöðu. Almannavarnir hafa biðlað til almennings um að hjálpa þeim að koma skilaboðum um hið slæma veður til ferðamanna.

Óvissu- og hættustig almannavarna virkjuð vegna veðurs
Rauð viðvörun hefur verið gefin út fyrir Austfirði. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og Suðausturlandi. Gul viðvörun á við höfuðborgarsvæðið, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi og miðhálendi.

Kröpp lægð og gular viðvaranir um allt land
Fyrsta haustlægðin lætur að sér kveða þessa dagana en gular veðurviðvaranir taka gildi víða um land í kvöld og vara fram að mánudegi. Búist er við suðvestan hvassviðri eða stormi undir kvöld með snörpum vindhviðum.

Gular viðvaranir gefnar út vegna hvassviðrisins um helgina
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á vestur- og norðurhluta landsins vegna hvassviðrisins sem skellur á landið annað kvöld.

Vaxandi suðvestanátt á morgun og stormur seint um daginn
Veðurstofan spáir suðvestanátt í dag, strekkingi norðvestanlands en annars hægum vindi. Víða verður léttskýjað, en skýjað með köflum vestanlands. Hiti verður á bilinu sex til þrettán stig.

Norðvestan gola, skúrir og fremur svalt
Veðurstofan spáir norðvestan golu eða kalda í dag, skúraleiðingum og og fremur svölu veðri. Hitinn kemst þó líklega í þrettán til fjórtán stig á Suðausturlandi þegar best lætur.

Hiti að fjórtán stigum
Reikna má með hægviðri á landinu í dag, en sunnan fimm til tíu metrum á sekúndu með austurströndinni.

Rigning með köflum og áfram hlýtt
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, yfirleitt á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu, en að tíu metrum á sekúndu við suður- og vesturströndina. Má búst við rigningu með köflum, en bjartviðri austanlands fram á kvöld.

Suðlægar áttir og vætusamt í dag og á morgun
Suðlægar áttir verða ríkjandi með nokkuð vætusömu veðri bæði í dag og á morgun, einkum sunnan og vestantil. Þó má einnig gera ráð fyrir rigningu norðaustantil seint í dag og fram eftir kvöldi.

Allt að fimmtán stiga hiti í dag
Spáð er suðaustan átt þrír til tíu metrar á sekúndu í dag en hitinn verður um tíu til fimmtán gráður á suðvesturströndinni undir hádegi. Heldur hvassara verður í kvöld.

Þykknar upp og smá skúrir á víð og dreif síðdegis
Veðurstofan spáir að fremur hæg, vestlæg og suðvestlæg átt muni leika um landið og að smám saman muni þykkna upp og verða smá skúrir á víð og dreif síðdegis. Þó má reikna með bjartviðri á Suðausturlandi.

Víða rólegheitaveður með talsverðu sólskini
Vaxandi hæðarhryggur er nú yfir landinu sem er uppskrift að rólegheitaveðri með talsverðu sólskini. Má þannig reikna með hita á bilinu fjögur til tólf stigum.

Úrkoma á austanverðu landinu og hlýjast sunnantil
Reikna má með norðanátt í dag, yfirleitt golu eða kalda. Dálítil væta á norðaustanverðu landinu og skúrir á víð og dreif suðaustanlands, en bjart með köflum á Suðvestur- og Vesturlandi.

Snýst í norðlæga átt
Veðurstofan spáir að það snúist í norðlæga átt með þremur til tíu metrum á sekúndu. Reikna má með smávætu norðan- og austanlands í dag, en léttir smám saman til syðra.

Milt í veðri og hiti að sautján stigum
Veðurstofan spáir fremur rólegu veðri framundan og þar sem reikna má með sólarglennum í flestum landshlutum.

Sól fyrir sunnan en rok og rigning á Norður- og Austurlandi
Helgarlægðin er nú gengin yfir landið og komin suðaustur á mið. Búast má við örlitlu roki með súld norðan- og austanlands í dag en úrkoma mun minnka þegar líður á daginn.

Sendir úrkomusvæði yfir stóran hluta landsins í dag
Lægð er nú stödd vestur af Reykjanesskaga og sendir hún úrkomusvæði sitt yfir stóran hluta landsins í dag.

Suðlæg átt og sólríkast á Austurlandi
Veðurstofan spáir suðlægri átt í dag þar sem víða verðir þrír til átta metrar á sekúndu, skýjað með köflum og stöku skúrir.

Hægir vindar og víða bjartviðri
Veðurstofan spáir hægum vindum og víða bjartviðri í dag, en sums staðar þokubökkum við sjávarsíðuna og dálítilli rigningu suðaustantil síðdegis.

Áframhaldandi blíðvirði og hlýtt
Veðurstofan spáir áframhaldandi blíðviðri, björtu og hlýju veðri að deginum, en þó heldur meira skýjuðu þegar líður á vikuna. Hiti verður tíu til tuttugu stig yfir daginn þar sem hlýjast verður inn til landsins.

Hiti allt að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil
Veðurstofan spáir mildu og rólegu veðri næstu daga. Víða verður hæg breytileg átt í dag og léttskýjað, en sums staðar þokubakkar við ströndina.

Hiti gæti náð sautján stigum á Suðurlandi
Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag, þar sem reikna megi með strekkingi sums staðar en lægir svo með kvöldinu. Væta verður um landið austanvert, en bjartviðri suðvestantil.

Rólegra veður í vændum en síðustu rigningardaga
Mun rólega veður er í vændum eftir tvo væna rigningardaga. Þó má búast við skúrum um mest allt land í dag og einhverri vætu norðan- og austantil á morgun.