Fleiri fréttir

Sólskinsveðrinu lokið í bili og vætutíð framundan
Nú er sólskinsveðrinu lokið, í bili að minnsta kosti, og vætutíð framundan sunnan- og vestanlands.

Blíðviðrið senn úr sögunni
Eftir langan blíðviðriskafla virðist veður á höfuðborgarsvæðinu ætla að versna á næstu dögum.

Hiti að átján stigum og líkur á þokulofti víða
Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu í dag og léttskýjuðu. Allvíða séu líkur á þokulofti við suðvestur- og vesturströndina, og einnig austurströndina þegar líður á daginn.

Hlýtt loft yfir landinu orsakar mikla þoku
Mikil þoka lagðist yfir höfuðborgina í dag og segir veðurfræðingur það vera beina afleiðingu af því hversu hlýtt loft hefur verið yfir landinu undafarna daga.

Hiti fer yfir tuttugu stig
Bjart veður verður víða um land í dag og á morgun og fer hiti yfir tuttugu stig syðra þegar best lætur. Spáð er norðlægri eða breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu og víða bjartviðri, en skýjað með köflum vestast og sums staðar þokuloft við ströndina með kvöldinu.

Hæglætisveður um allt land
Það stefnir allt í ágætisveður víðast hvar á landinu í dag. Veðurstofan spáir allt að sautján stiga hita.

Allt að átján stig um helgina
Spáð er norðlægri átt, þremur til átta metrum á sekúndu og dálítilli súld norðan- og austanlands fram eftir degi en léttir síðan til. Annars víða bjart og sólríkt veður og ágætlega milt. Stöku síðdegisskúrir syðra. Hiti fjögur til fjórtán stig, hlýjast syðst.

Hlýr suðlægur loftmassi á leið yfir landið
Í dag er spáð breytilegri átt þremur til átta metrum á sekúndu og rigningu eða skúrum í flestum landshlutum. Hiti fimm til tíu stig.

Víða má búast við skúrum
Útlit er fyrir suðlæga eða breytilega átt og fremur hægan vindhraða í dag eða þrjá til átta metra á sekúndu.

Hiti að þrettán stigum og hlýjast sunnantil
Spáð er breytilegri átt í dag þar sem yfirleitt verða þrír til átta metrar á sekúndu, en norðaustan fimm til tíu norðvestantil á landinu.

Hiti að fimmtán stigum en svalara fyrir austan
Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, einkum síðdegis, en átta til þrettán metrum með rigningu á siðaustanverðu landinu.

Víða rigning eða skúrir í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði austanátt, fimm til þrettán metrar á sekúndur, í dag. Reikna má með rigningu í allan dag á Suðausturlandi en annars skúrir, einkum síðdegis og þurrt að kalla norðantil.

Úrkoma víða um land í dag
Úrkomubakki kemur inn á austanvert landið og færist svo til norðurs og vesturs í dag. Samt sem áður snertir hann Suðurland og sunnanverðan Faxaflóa lítið sem ekkert, en á móti má búast við skúrum á víð og dreif, einkum síðdegis og í kvöld.

Heldur skýjaðra en í gær og sums staðar rigning
Heldur skýjaðara verður á landinu í dag samanborið við í í gær og má búast við rigningu suðaustantil og jafnvel gætu komið nokkrir dropar um landið suðvestanvert eftir hádegi og fram á kvöld.

Austan strekkingur en víða þurrt og bjart
Veðurstofan spáir austan- og suðaustanátt í dag, strekkingi eða allhvössu syðst, en annars talsvert hægari vindur.

Gola og hlýnandi veður á kjördegi
Veðurstofan spáir austlægri átt í dag, golu eða kalda og skúrum á sunnanverðu landinu, einkum austantil.

Bjart fyrir sunnan en áfram vetrarlegt norðantil
Reikna má með norðlægri átt, víða golu eða kalda, en tíu til fimmtán metrar á sekúndu austast fram eftir degi.

Kalt loft streymir yfir landið
Kalt loft streymir yfir landið og nú í morgunsárið er víða ansi vetrarlegt um að litast.

Áfram norðlæg átt á landinu
Það verður áfram norðlæg átt á landinu, fimm til þrettán metrar á sekúndu og snjókoma eða slydda fyrir norðan.

Vetrarlegt um að litast á norðanverðu landinu
Veðurstofan spáir norðan- og og norðaustanátt í dag þar sem víða verður átta til fimmtán metrar á sekúndu. Norðanáttinni fylgir nokkuð kalt loft og það verður heldur vetrarlegt um að litast á norðanverðu landinu, snjókoma eða slydda með köflum.

Sumar og vetur berjast um völdin næstu daga
Sumar og vetur berjast um völdin í veðrinu á landinu næstu daga. Fremur hægur vindur og sums staðar skúrir í dag, en kólnar með rigningu eða slyddu um landið norðvestanvert í stífri norðaustanátt. Hiti verður á bilinu núll til fimm stig.

Lægð nálgast úr suðvestri með rigningu eða slyddu
Lægð nálgast nú landið úr suðvestri og koma skilin að Suðvesturlandi fyrir hádegi og fara norðaustur yfir landið í dag.

Dálítil él norðanlands og skúrir suðaustanlands
Veðurstofan spáir minnkandi norðlægri átt í dag, fimm til þrettán metrar á sekúndu en lægir smám saman í dag. Dálítil él á norðanverðu landinu og skúrir suðaustanlands, en annars yfirleitt þurrt.

Úrkoma um land allt
Dálítil lægð gengur austur yfir land í dag og fylgir henni austan og norðaustan kaldi eða strekkingur. Heldur hvassara verður í vindstrengjum norðvestantil á landinu.

Úrkomusvæði þokast inn á sunnanvert landið
Veðurstofan spáir að nú hlýni smám saman eftir kalda nótt þar sem var frost um nær allt land nema við suðurströndina.