Fleiri fréttir

ESB lætur undan Þjóðverjum með bann við bensín- og dísilbílum
Evrópusambandið og Þýskaland hafa náð samkomulagi um framtíð jarðefnaeldsneytisbíla í Evrópu. Þjóðverjar fá í gegn að undantekningar verði á banni við sölu á nýjum bensín- og dísilknúnum bílum eftir árið 2035. Umhverfissamtök fordæma málamiðlunina.

Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn
Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda.

Gríðarleg eyðilegging í Mississippi
Að minnsta kosti 24 eru látnir eftir kraftmikinn hvirfilbyl sem herjaði á Missisippi í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þúsundir eru án rafmagns og stendur leit að fólki í húsarústum yfir. Óveðrið er hið mannskæðasta í tólf ár.

Stefnir stuðningsmönnum til Waco í skugga yfirvofandi ákæru
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda sinn fyrsta fjöldafund í kosningabaráttu sinni í borginni Waco í Texas í dag. Hann hefur undanfarna daga hvatt stuðningsmenn sína til mótmæla og hótað ofbeldi vegna mögulegra ákæra sem hann á yfir höfði sér.

Íslendingur í átta ára fangelsi fyrir nauðgun og gróft ofbeldi í Svíþjóð
Íslenskur ríkisborgari á fertugsaldri sem hefur þó verið búsettur í Svíþjóð allt sitt líf var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að nauðga ungri konu og beita hana grófu ofbeldi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn hefur ítrekað verið dæmdur fyrir kynferðisofbeldi í Svíþjóð.

Hneykslaðir foreldrar hröktu skólastjóra burt vegna Davíðsstyttunnar
Skólastjóri grunnskóla í Flórída í Bandaríkjunum sá sér þann kost vænstan að segja af sér vegna kvartana foreldra undan því að börnum þeirra hafi verið sýnt klám þegar þau sáu myndir af Davíðsstyttunni við kennslu í listasögu.

Þrjár ungar stúlkur ákærðar fyrir líkamsárás og frelsissviptingu
Þrjár stúlkur, tólf, þrettán og fjórtán ára, hafa verið ákærðar fyrir að hafa tælt þrettán ára stelpu á ótilgreint heimili í Ástralíu, svipt hana frelsi sínu og beitt hana ofbeldi. Athæfið mun hafa verið tekið upp á myndband.

Varar við „dauða og eyðileggingu“ verði hann ákærður
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, varaði í nótt því að „dauði og eyðilegging“ gæti fylgt því ef hann yrði handtekinn. Í sömu færslu kallaði Trump saksóknarann sem talinn er líklegur til að ákæra hann „úrkynjaðan geðsjúkling“ sem hataði Bandaríkin.

Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum
Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra.

Paltrow ber vitni í dag
Gwyneth Paltrow og Terry Sanderson, sem höfðað hefur mál gegn henni vegna atviks þar sem hann braut fjögur rifbein í skíðabrekku í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 munu líklega bæði bera vitni í dag. Réttarhöldin í þessu máli hófust í vikunni en Sanderson sakar Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum svo hann hafi brotið rifbein og hlotið heilaskaða.

Hættir við konunglega heimsókn vegna óróans í Frakklandi
Karl þriðji Bretakonungur frestaði í dag fyrirhugaðri heimsókn sinni til Frakklands vegna uppþotanna sem þar geisa. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór þess á leit að heimsókninni yrði slegið á frest.

Hyggst leita að tækni frá siðmenningu úr geimnum í Kyrrahafi
Eðlisfræðingurinn Avi Loeb, prófessor við Harvard-háskóla, hyggur á leiðangur á Kyrrahafi til að finna mögulegar leifar hlutar frá siðmenningu úr geimnum. Hluturinn hrapaði til jarðar undan ströndum Manus-eyja árið 2014.

Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás
Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni.

Árásarmaðurinn tvítugur og skaut á fólk af handahófi
Lögregla á Grænlandi segir að árásarmaðurinn, sem særði fimm manns á þyrluflugvellinu í Narsaq á miðvikudaginn, hafi fyrst skotið á byggingar í bænum áður en hann hélt að þyrluflugvellinum þar sem hann skaut á fólk af handahófi.

Átök í mótmælum vegna umdeildra breytinga á dómstólum
Benjamin Netanyahu, forsætisráherra Ísrael, sagðist í gær ákveðinn í því að knýja fram breytingar á lögum er varða dómstóla, þrátt fyrir hörð mótmæli síðustu vikna. Þúsundir mótmæltu breytingunum í gær og átök brutust út milli mótmælenda og stuðningsmanna Netanyahu.

Foreldrar fá algjöran yfirráðarétt yfir samfélagsmiðlanotkun barna
Ríkisstjóri Utah hefur undirritað lög sem skikka samfélagsmiðla til að fá samþykki foreldra áður en börn yngri en 18 ára geta notað smáforrit þeirra. Þá þurfa þau að fá staðfest að aðrir notendur séu að minnsta kosti 18 ára gamlir.

Báru eld að ráðhúsinu í Bordeaux
Mótmælendur í borginni Bordeaux í Frakklandi kveiktu í ráðhúsi borgarinnar í gærkvöldi en talið er að fleiri en ein milljón manna hafi mótmælt á götum úti í landinu í gær.

Ákæran felld niður og Roiland gagnrýnir slaufunarmenningu
Ákæra á hendur Justin Roilands, sem er maðurinn á bak við þættina Rick and Morty, hefur verið felld niður. Roiland var nýverið ákærður fyrir heimilisofbeldi.

Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá
John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani.

Selenskí þakklátur Íslandi
Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis.

Þrívíddarprentuð eldflaug á loft í fyrsta sinn
Starfsmönnum fyrirtækisins Relativity Space tókst loks í nótt að skjóta fyrstu þrívíddarprentuðu eldflauginni á loft. Tvær fyrri tilraunir höfðu misheppnast en bilun á efra stigi eldflaugarinnar leiddi til þess að hún komst ekki á braut um jörðu.

Fundu steindaský í lofthjúpi fjarlægrar risareikistjörnu
Ský úr sílíkötum eru á meðal þess sem James Webb-geimsjónaukinn fann í lofthjúpi fjarreikistjörnu sem er margfalt stærri en nokkur hnöttur í okkar sólkerfi. Mælingar sjónaukans á reikistjörnunni eru sagðar byltingakenndar.

Dæmd fyrir brot á lögum gegn þrælahaldi vegna nýrnaviðskipta
Háttsettur stjórnmálamaður frá Nígeríu, eiginkona hans og læknir hafa verið fundinn sek um að hafa borgað manni fyrir að ferðast til Bretlands til að „gefa“ nýra. Dóttir hjónanna, sem átti að fá nýrað, var sýknuð.

Lyfjaskortur í Bandaríkjunum eykst um 30 prósent
Lyfjaskortur í Bandaríkjunum jókst um 30 prósent á síðasta ári samanborið við árið 2021. Meðalbiðtími eftir því að lyf yrðu aftur fáanleg voru átján mánuðir en lyf hafa verið ófáanleg í allt að fimmtán ár.

Segir málaferli gegn Paltrow vera „kjaftæði“
Lögmaður Gwyneth Paltrow, lýsti í vikunni dómsmáli sem höfðað hefur verið gegn leik- og athafnakonunni sem „kjaftæði“. Réttarhöldin í máli manns sem sakað hefur Paltrow um að hafa rutt sig niður á skíðum í Utah í Bandaríkjunum árið 2016 hófust á þriðjudaginn.

Lögmaður Trumps þarf að afhenda skjöl og bera vitni
Lögmaður Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, þarf að afhenda öll skjöl sín sem tengjast rannsókn á meðhöndlun forsetans á opinberum og leynilegum skjölum til rannsakenda, M. Evan Corcoran, umræddur lögmaður, þarf einnig að bera vitni fyrir ákærudómstól vegna rannsóknarinnar.

Ákærður fyrir að halda úti vefsíðu og framkvæma og sýna geldingar
Marius nokkur Gustavson, 45 ára, mætti fyrir dómstól í Lundúnum í gær en hann er grunaður um að hafa sýnt frá geldingum og öðrum aflimunum á vefsíðu sinni og innheimt gjald af áhorfendum.

Fimm særðir eftir skotárás manns á Grænlandi
Fimm eru særðir eftir að maður hóf skotárás við þyrluflugvöllinn í Narsaq á suðvesturströnd Grænlands í gær.

„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“
Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður.

Boris segir samkomurnar hafa verið nauðsynlegar
Boris Johnson svaraði fyrir „Partygate“ málið svokallaða fyrir þingnefnd í dag. Þar sagði hann að allar samkomur sem haldnar voru á Downingstræti 10, á meðan samkomutakmarkanir voru í gildi, hafi verið nauðsynlegar.

Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús
Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést.

Deila vegna hundaleikfangs, viskís og hundaskíts ratar til Hæstaréttar
Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur í dag fyrir mál Jack Daniels gegn framleiðendum hundaleikfangs sem lítur út eins og viskíflöskur. Lögmenn brugghússins segja hundaleikfangið tengja viskíið við hundaskít.

Ákærður fyrir morðið á Miu
37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku fyrir rúmu ári síðan. Maðurinn kveðst vera saklaus.

Stöðva sýningu hryllingsmyndar um Bangsímon í Hong Kong
Búið er að stöðva sýningar hryllingsmyndarinnar Winnie The Pooh: Blood and Honey, eða Bangsímon: Blóð og hunang, í Hong Kong. Bangsímon hefur lengi verið óvinsæll í Kína vegna gríns um að hann og Xi Jinping, forseti, séu líkir.

Héldu handjárnuðum manni niðri í ellefu mínútur þar til hann dó
Héraðssaksóknari í Virginíu í Bandaríkjunum hefur ákært sjö lögregluþjóna og þrjá starfsmenn sjúkrahúss fyrir morð. Myndbönd úr öryggisvélum sýna hvernig hópur manna hélt handjárnuðum Irvo Otieno niðri í um ellefu mínútur, þar til hann dó.

Öfgafull fjölkærni sæfíla gæti orsakað ótímabær dauðsföll
Rannsókn vísindamanna við Háskólann í Tasmaníu hefur leitt í ljós að pressan á bak við „öfgafulla fjölkærni“ sæfíla í suðvestur Kyrrahafi gæti orsakað því að lífslíkur karldýra hrynji stuttu eftir kynþroska.

Trump sagður spenntur fyrir því að vera handjárnaður
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er sagður vera spenntur fyrir því að birtast handjárnaður í dómsal ef svo fer að hann verður handtekinn fyrir þátt sinn í því að hafa greitt klámmyndaleikkonunni Stormy Daniels mútur.

Öflugur skjálfti í Afganistan og Pakistan
Að minnsta kosti 12 eru látnir og tugir slasaðir eftir að jarðskjálfti sem mældist 6,5 stig reið yfir í Pakistan og Afganistan í gærkvöldi.

Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu
Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær.

Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína
Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda.

Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr
Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur.

Thunberg fær að stefna sænska ríkinu fyrir seinagang
Héraðsdómstóll í Svíþjóð gaf Gretu Thunberg og hundruð umhverfissinnum grænt ljós á að stefna sænska ríkinu vegna þess sem þau telja ófullnægjandi loftslagsaðgerðir þess. Krafa þeirra er að Svíar dragi saman losun sína um milljónir tonna.

Búa sig undir ákæru á hendur Trump
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, verður mögulega ákærður í dag eða á næstu dögum, fyrir brot á lögum um kosningar. Hann yrði fyrsti fyrrverandi forseti til að verða ákærður en Trump hefur sjálfur kallað eftir umfangsmiklum mótælum og Repúblikanar hafa brugðist reiðir við fregnunum.

Bretar banna dönskum Kóranbrennumanni að koma
Rasmus Paludan, stofnandi danska hægriöfgaflokksins Strangrar stefnu, fær ekki að koma til Bretlands. Hann ætlaði sér að brenna Kóraninn í bænum Wakefield í vikunni við upphaf föstumánaðar múslima.

Funduðu í fjóra og hálfan tíma
Xi Jinping og Vladimír Pútín, forsetar Kína og Rússlands og tveir valdamestu einvaldar heimsins, ræddu saman í einrúmi í fjóra og hálfan tíma eftir að Xi lenti í Moskvu í gær. Fyrir fundinn í gær lofuðu forsetarnir vinasamband ríkjanna tveggja og hvorn annan.