Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Spilltasti útsendarinn“ segir fíkniefnastríðið vera leik José Irizarry, sem hefur verið kallaður spilltasti útsendari fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna (DEA), segir fíkniefnastríðið óvinnanlegt og þá sem heyja það gjörspillta. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur tekið ásakanir hans til skoðunar. 15.11.2022 17:08
Ástandið alvarlegt eftir umfangsmestu árás Rússa Úkraínumenn segja Rússa hafa skotið minnst 85 eldflaugum á skotmörk víða um landið í dag. Stór hluti landsins sé rafmagnslaus og sömuleiðis netleysi víða. Árásin er sögð vera mögulega sú umfangsmesta frá því innrás Rússa hófst í febrúar. 15.11.2022 16:08
Fyrsti mótmælandinn dæmdur til dauða í Íran Fyrsti mótmælandinn hefur nú verið dæmdur til dauða í Íran vegna mótmæla sem hafa geisað þar í landi. Mótmælandinn er sakaður um að hafa kveikt í byggingu stjórnvalda. 15.11.2022 14:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn með frumkvæðið og von á frekari gagnárásum Frelsun vesturbakka Dniproár og Kherson-borgar opnar margskonar tækifæri fyrir Úkraínumenn til að herja frekar á Rússa í Úkraínu. Fregnir eru þegar byrjaðar að berast af því að úkraínski herinn sé byrjaður að gera árásir á Rússa á austurbakkanum og undirbúa mögulegar gagnárásir á öðrum stöðum. 15.11.2022 13:35
Hitamet falla um Evrópu Hlýtt hefur verið í Evrópu á síðustu misserum, hæsti hiti í nóvembermánuði í Finnlandi frá upphafi mældist í Helsinki á dögunum og hafa mikil hlýindi verið í Bretlandi. Hiti hérlendis mælist yfir meðallagi miðað við árstíma. 15.11.2022 11:20
Jarðarbúar nú orðnir átta milljarðar talsins Sameinuðu þjóðirnar áætla að fjöldi jarðarbúa fari yfir átta milljarða í dag. 15.11.2022 08:45
Segir tímabært að binda enda á átökin en á forsendum Úkraínumanna Það er tímabært að binda enda á átökin í Úkraínu, sagði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti þegar hann ávarpaði leiðtoga G20-ríkjanna um fjarfundabúnað, á ráðstefnu leiðtoganna í Balí. 15.11.2022 08:03
Katie Hobbs lagði Kari Lake í Arizona Katie Hobbs, frambjóðandi Demókrata í ríkisstjórakosningum í Arizona hefur verið útnefndur sigurvegari í kosningunum sem fram fóru á dögunum og reyndust afar tvísýnar. 15.11.2022 07:46
Stríðsreksturinn sagður valda stórfelldri losun Innrás Rússa í Úkraínu hefur leitt til gríðarlegrar losunar á gróðurhúsalofttegundum, að sögn fulltrúa Úkraínu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þeir segjast safna upplýsingum um „umhverfisglæpi“ Rússa. 14.11.2022 23:20
Katrín aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gaf Björk Guðmundsdóttur, söngkonu, aldrei fyrirheit um að gefa út formlega yfirlýsingu um neyðarástand í loftslagsmálum, þvert á fullyrðingar Bjarkar. Þá var forsætisráðherra aldrei í samskiptum við Gretu Thunberg sem Björk sagði að hefði verið með í ráðum. 14.11.2022 17:58
Gagnrýndi orðræðu Kínverja í garð Taívans Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, og Xi Jinping, forseti Kína, funduðu í Indónesíu í dag og var það í fyrsta sinn sem þeir hittast síðan Biden varð forseti. Forsetarnir ræddu meðal annars aukna samkeppni ríkjanna, stríðið í Úkraínu og mótmælti Biden orðræðu kínverskra ráðamanna í garð Taívans. 14.11.2022 14:36
Tóku eigin málaliða af lífi með sleggju Rússneskir málaliðar Wagner Group birtu um helgina myndband sem sýndi meðlim hópsins tekinn af lífi með sleggju. Rússneski auðjöfurinn sem rekur málaliðahópinn og tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum, lofaði myndbandið. 14.11.2022 13:10
Leynilegu geimfari lent aftur eftir langa geimferð Geimher Bandaríkjanna lenti um helgina leynilegu geimfari á jörðinni eftir að það hafði verið út í geimi í 908 daga. Það er mettími en áður hafði geimfarið, sem ber heitið X-37B lengst verið 780 daga í geimnum. Þetta var sjötta geimferð X-37B. 14.11.2022 11:15
Selenskí heimsótti Kherson Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti Kherson-borg í morgun. Hersveitir Rússa hörfuðu nýverið frá borginni en eru þrátt fyrir það í nokkur hundruð metra fjarlægð, hinu megin við Dniproá. 14.11.2022 10:46
Lavrov sagður hafa farið á sjúkrahús á Balí Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, var fluttur á sjúkrahús í morgun, samkvæmt AP fréttaveitunni. Það var skömmu eftir að hann lenti á Balí á Indónesíu fyrir G-20 fundinn sem fer þar fram en utanríkisráðuneyti Rússlands segir það ekki rétt. 14.11.2022 09:24
Beina spjótum sínum að Trump Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump. 14.11.2022 09:21
Segir Rússa seka um stríðsglæpi í Kherson Úkraínuforseti segir að rannsakendur hafi nú þegar fundið sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa í Kherson héraði. 14.11.2022 07:31
22 handteknir í tengslum við árásina í Istanbul Lögregluyfirvöld í Istanbul hafa handtekið 22 í tengslum við sprengjuárás í borginni í gær, þar sem sex létu lífið og 81 særðist. Innanríkisráðherra Tyrklands segir vígamenn úr röðum Kúrda í norðurhluta Sýrlands ábyrga. 14.11.2022 07:30
Kjósendum hugnist ekki frambjóðendur sem afneita kosningaúrslitum Prófessor í sagnfræði segir að úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum bendi til þess að pólitískur klofningur sé í algleymingi í landinu. 13.11.2022 22:35
Lofar að láta Pútín heyra það Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, heitir því að láta ríkisstjórn Vladímírs Pútíns, forseta Rússlands, heyra það á fundi þjóðarleiðtoga stærstu þjóða heims í vikunni. 13.11.2022 16:23
Störfuðu sem læknar án þess að vera með réttindi Unglingspiltur í Madrid og tæplega þrítug kona á Norður-Spáni hafa verið handtekin, en þau hafa um nokkurt skeið starfað sem læknar án þess að hafa nokkra slíka menntun. Ungi pilturinn hefur áður þóst vera lögreglumaður og skólastjóri. 13.11.2022 15:39
Að minnsta kosti sex látin og 53 særð eftir sprengingu í Tyrklandi Sprenging varð í Istanbúl í Tyrklandi fyrr í dag á svæði sem vinsælt er meðal ferðamanna. Tugir eru sagðir særðir og sex látin. Forseti Tyrklands, Erdogan segir sprenginguna „svikula árás“. 13.11.2022 15:37
Harris gulltryggir öldungadeildina en fulltrúadeildin enn óljós Helstu miðlar vestanhafs greindu frá því í nótt að Demókratinn Catherine Cortez Masto hefði sigrað mótframbjóðanda sinn, Repúblikanann Adam Laxalt og tryggt flokknum öldungadeildarþingsætið í Nevada. Demókratar hafa nú tryggt sér 50 sæti á móti 49 sætum Repúblikana og eiga niðurstöður enn eftir að berast frá Georgíu. 13.11.2022 14:04
Demókratar halda meirihluta í öldungadeildinni Demókratar hafa tryggt sér fimmtíu sæti í öldungadeild bandaríska þingsins. Flokkurinn vann afar nauman og mikilvægan sigur í Nevada-ríki í nótt. 13.11.2022 07:40
Sýningarflugvélar skullu saman í lofti Talið er að sex manns hafi verið um borð í tveimur gömlum herflugvélum sem skullu saman í lofti á hersýningu í Dallas í Bandaríkjunum í dag. 12.11.2022 23:06
Lést á flugvellinum þar sem hann dvaldi í átján ár Mehran Karimi Nasseri, Íraninn sem dvaldi á Charles De Gaulle flugvellinum í París í átján ár er látinn. Hann lést á flugvellinum eftir að hafa snúið aftur þangað fyrir skömmu. Saga Nasseris varð kveikjan að kvikmyndinni vinsælu The Terminal með Tom Hanks í aðalhlutverki. 12.11.2022 19:19
Grunur um að lögregla eigi sök á dauða tuga flóttamanna Grunur leikur á að spænska lögreglan beri ábyrgð á öngþveiti sem skapaðist við landamæri Spánar og Marokkó í sumar með þeim afleiðingum að a.m.k. 23 flóttamenn létust þegar þeir tróðust undir og yfir 200 slösuðust. Lögreglan skaut táragasi, gúmmíkúlum, reykbombum og piparúða að mannfjöldanum til að hindra hann í að komast inn til Spánar. 12.11.2022 16:01
Óttast blóðugar hefndaraðgerðir yfirvalda Írönsk íþróttakona sem stundar bogfimi hefur nú bæst í hóp íþróttakvenna sem mótmæla harkalegum framgangi íranskra stjórnvalda í kjölfar andláts hinnar 22 ára Mahsa Amini. Ekkert lát virðist vera á mótmælunum þar í landi og eiga sumir yfir höfði sér dauðadóm vegna þátttöku í mótmælunum. 12.11.2022 14:56
Mjótt á munum í Nevada en Demókratar tryggja sér Arisóna Eftir liðna nótt eru Demókratar einu sæti frá því að tryggja sér meirihluta í öldungadeild bandaríska þingsins. Geimfarinn Mark Kelly tryggði sér þingsæti Arisóna. 12.11.2022 12:17
Stökk út um glugga til að flýja hórmangara sinn Tvítug kona stökk út um glugga á þriðju hæð mótels til að flýja hórmangara sinn sem hafði selt hana í vændi. Hórmangarinn var handtekinn stuttu eftir að konan tilkynnti hann til lögreglu. 12.11.2022 09:23
Banksy staddur í Úkraínu Dularfulli listamaðurinn Banksy er staddur í Úkraínu um þessar mundir. Hann birti í gær myndir af verki sínu á Instagram. 12.11.2022 07:46
Hvetja Rússa sem eru í felum í Kherson til að gefast upp Úkraínumenn segja Kherson-borg hafa verið frelsaða úr höndum Rússa. Borgin var eina héraðshöfuðborgin sem Rússar hafa hertekið frá því innrás þeirra í Úkraínu hófst í febrúar en forsvarsmenn rússneska hersins tilkynntu á dögunum að til stæði að hörfa þaðan. 11.11.2022 17:18
Fundu brak úr Challenger fyrir tilviljun Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur staðfest að brak sem heimildarmyndargerðarmenn fundu fyrir tilviljun í sjónum undan ströndum Flórída sé úr Challenger-geimskutlunni sem fórst fyrir rúmum 36 árum. Ekki hefur verið ákveðið hvort hróflað verður við því. 11.11.2022 14:02
Eftirlýstur flóttamaður þóttist vera írskur munaðarleysingi Sannað hefur verið fyrir skoskum dómstólum að karlmaður sem kvaðst vera írskur munaðarleysingi er í raun Bandaríkjamaður á flótta undan réttvísinni. Dómstóll í Edinborg komst að þessari niðurstöðu í vikunni. 11.11.2022 13:39
Flóðbylgjuviðvörun á Tonga eftir öflugan skjálfta Flóðbylgjuviðvörun hefur verið gefin út í Tonga eyjaklasanum í Kyrrahafi eftir að 7,3 stiga jarðskjálfti greindist á svæðinu. Upptök skjálftans mældust rúmlega tvö hundruð kílómetra frá eyjaklasanum en flóðbylgjuviðvörun hefur einnig verið gefin út í Amerísku Samóa. 11.11.2022 11:49
Ætla að hafa upp á metanstórlosendum með gervihnöttum Net gervihnatta á braut um jörðu verður notað til að finna uppsprettur metanlosunar með nýju kerfi sem Sameinuðu þjóðirnar ætla að taka í notkun á næsta ári. Rannsóknir benda til þess að metanlosun í heiminum sé mun meiri en ríki gefa upp í losunarbókhaldi sínu. 11.11.2022 11:35
Pútín firrir sig ábyrgð á undanhaldinu Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir allar hersveitir Rússa hafa hörfað frá vesturbakka Dniproár í Kherson-héraði í suðurhluta Úkraínu. Á undanhaldinu felldu Rússar brúnna yfir Dnipro. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, firrir sig allri ábyrgð á undanhaldinu. 11.11.2022 10:48
Demókratar bæta við forskotið í keppni um lykilþingsæti í Arizona Geimfarinn Mark Kelly er nú með ríflega fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Blake Masters í keppninni um eitt af þremur öldungadeildarþingsætum sem gæti ráðið því hvort demókratar eða repúblikanar fara með völd í deildinni. Enn eru þó of mörg atkvæði ótalin til að hægt sé að lýsa annan þeirra sigurvegara. 11.11.2022 07:45
Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera. 11.11.2022 07:11
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. 10.11.2022 23:31
Enn bætist í skuldasúpu Jones vegna samsæriskenninga Það syrtir enn í álinn fyrir bandaríska samsæriskenningasmiðinn Alex Jones. Dómari í Connecticut-ríki hefur dæmt hann til að 473 milljónir dollara til viðbótar við þann tæpa eina milljarð sem hann hafði áður verið dæmdur til að greiða. 10.11.2022 21:40
Biðjast afsökunar á auglýsingu tengdri Kristalsnóttinni Skyndibitakeðjan KFC hefur beðist afsökunar á auglýsingaherferð sinni í Þýskalandi. Þar var fólk hvatt til þess að fagna því með ostum og kjúklingi frá KFC að 84 ár væru liðin frá Kristalsnóttinni. 10.11.2022 17:05
Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans. 10.11.2022 15:40
Afhjúpuðu nýja mynd af stjörnuverksmiðju í tilefni afmælisins Sjö ljósára langur stöpull Keiluþokunnar er viðfangsefnið á nýrri mynd sem Evrópska stjörnustöðin á suðurhveli (ESO) afhjúpaði til þess að fagna sextíu ára afmæli stofnunarinnar í dag. Stöpullinn er hluti af stærra svæði sem ungar út nýjum stjörnum. 10.11.2022 13:01
„Óvinurinn færir okkur ekki gjafir eða gerir okkur greiða“ Ráðamenn í Úkraínu og í Bandaríkjunum hafa miklar efasemdir um yfirlýsingar forsvarsmanna rússneska hersins um undanhald frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínumenn óttast gildru og segja Rússa stefna á að leggja borgina í rúst. 10.11.2022 11:53