Fleiri fréttir

Bretar hóta því að ógilda hluta Brexit-samnings vegna Norður-Írlands
Utanríkisráðherra Bretlands sagði að bresk stjórnvöld gætu neyðst til þess að fella úr gildi hluta útgöngusamnings við Evrópusambandið er breytingar yrðu ekki gerðar á landamæra- og tollaeftirliti á Norður-Írlandi.

Lögregla frá þremur löndum leitar morðingja saksóknara
Líklegt er talið að paragvæskur saksóknari sem var skotinn til bana í Kólumbíu á þriðjudag hafi verið myrtur vegna baráttu hans gegn glæpum. Lögreglumenn frá Kólumbíu, Paragvæ og Bandaríkjunum leita nú morðingja hans.

Náðu fyrstu myndinni af risasvartholinu í miðju Vetrarbrautarinnar
Risasvartholið í hjarta Vetrarbrautarinnar okkar hefur náðst á mynd í fyrsta skipti. Hópur stjörnufræðinga kynntu afrekið sem er sagt veita mikilvægar upplýsingar um eðli risasvarthola í dag. Til þess notuðu þeir net útvarpssjónauka á stærð við jörðina.

El Salvador á barmi greiðslufalls vegna Bitcoin-hruns
Efasemdir eru um að ríkissjóður El Salvador geti staðið við skuldbindingar sínar vegna verðfalls á rafmyntinni bitcoin. Ríkisstjórn landsins gerði rafmyntina að lögmætum gjaldmiðli í fyrra.

Ríkissaksóknari Danmerkur vill ákæra fyrrverandi varnarmálaráðherra
Ríkissaksóknari Danmerkur vill að varnarmálaráðherrann fyrrverandi, Claus Hjort Frederiksen, verði ákærður fyrir að hafa deilt upplýsingum sem varða þjóðaröryggi til fjölmiðla og þar með gerst sekur um landráð.

Rúmlega milljón Covid-andlát í Bandaríkjunum
Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að skráð dauðsföll í landinu sem rakin eru til Covid-19 séu nú rúmlega ein milljón.

Þungunarrofsfrumvarp beið skipbrot í öldungadeild Bandaríkjaþings
Öldungadeild Bandaríkjaþings felldi frumvarp demókrata um að binda rétt kvenna til þungunarrofs í alríkislög í gærkvöldi. Fulltrúadeildin samþykkti lögin en allir öldungadeildarþingmenn repúblikana og einn íhaldssamur demókrati greiddu atkvæði gegn frumvarpinu.

Staðfesta fyrsta tilfelli Covid-19 í Norður-Kóreu
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa lýst yfir neyðarástandi í landinu eftir að fyrsta tilfelli kórónuveirunnar var staðfest í morgun.

Vaktin: Selenskí segir hernaðarlegan ósigur Rússa augljósan
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að eftir innrás Rússa í Úkraínu og samkomulag þeirra við Kína sé Rússland helsta ógnin sem heimurinn stendur frammi fyrir um þessar mundir.

„Finnland verður að sækja um aðild að Nató án tafar“
Stjórnvöld í Finnlandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau segjast vonast til að nauðsynleg skref verði tekin næstu daga til að greiða fyrir formlegri umsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu.

Reynslulaus farþegi lenti flugvél
Farþegi í flugvél neyddist til að taka við stjórn vélarinnar í háloftunum og lenda henni á flugvelli í Flórída eftir að flugmaðurinn varð rænulaus. Hann hafði enga flugreynslu en fékk leiðbeiningar við lendinguna frá flugturni.

Gætu skyldað tæknirisa til að finna og fjarlægja barnaklám
Drög að reglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur til meðferðar gæti sett skyldur á herðar tæknirisa eins og Google og Meta að finna og fjarlægja barnaklám á netinu. Persónuverndarsamtök óttast að friðhelgi samskipta fólks geti verið ógnað verði reglurnar að veruleika.

Saksóknari myrtur í brúðkaupsferðinni sinni
Paragvæskur saksóknari sem var þekktur fyrir baráttu sína gegn skipulögðum glæpasamtökum var skotinn til bana í brúðkaupsferð sinni á ferðamannaströnd í Kólumbíu. Eiginkona hans hafði tilkynnt að hún ætti von á barni aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann var myrtur.

Nýsjálendingar flýta frekari opnun landsins
Stjórnvöld í Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt að fyrirhugaðri opnun landsins fyrir ferðamenn verði flýtt um tvo mánuði. Landamærin hafa stórum hluta verið lokuð fyrir ferðamönnum síðan í mars 2020 vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Fréttakona Al Jazeera skotin til bana á Vesturbakkanum
Fréttakona frá Al Jazeera var skotin til bana af ísraelska hernum á Vesturbakkanum í nótt.

Vaktin: Rúmlega fimm þúsund milljarða króna fjárstyrkur á leið til Úkraínu frá Bandaríkjunum
Úkraínska gasfyrirtækið GTSOU segist þurfa að hætta að senda gas frá Rússlandi til Evrópu um eina af leiðslum sínum. Ástæðuna segir forstjóri fyrirtækisins vera inngrip rússneskra hersveita, sem hafa verið að beina gasinu til Donbas.

Ein elsta íslenska álftin felld í Wales
Í byrjun apríl fannst tæplega þrítug íslensk álft í Pembroke-héraði í Wales. Álftin var særð og þurftu dýraverndunarsamtök að fella hana.

Ákæra fyrrverandi þingmann vegna morðsins á forsetanum
Bandarísk yfirvöld hafa ákært fyrrverandi öldungadeildarþingmann frá Haítí vegna morðsins á Jovenel Moise, forseta eyríkisins, í fyrra. Þingmaðurinn er ákærður fyrir að leggja á ráðin um að drepa eða ræna forsetanum.

Fangavörður sem átti þátt í flótta lést af völdum skotsárs
Kvenkyns fangavörður á sextugsaldri sem hjálpaði grunuðum morðingja að flýja úr fangelsi í Alabama í Bandaríkjunum lést af völdum skotsárs á höfði í gær. Enn liggur ekkert fyrir um hvers vegna hún aðstoðaði fangann.

Karl krónprins flutti stefnuræðuna í fjarveru drottningar
Karl Bretaprins flutti í morgun stefnuræðu bresku ríkisstjórnarinnar í breska þinghúsinu í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 73 ára Karl heldur slíka ræðu, en hann var fenginn í verkið þar sem Elísabet drottning hafði boðað forföll vegna veikinda.

Yfirmaður spænsku leyniþjónustunnar rekinn vegna njósnaforrits
Spænska ríkisstjórnin rak Paz Esteban, yfirmann leyniþjónstunnar, vegna uppljóstrana um að umdeilt njósnaforrit hafi verið notað til þess að njósna um spænska ráðamenn. Esteban var fyrsta konan til að gegna embættinu.

Mótmæli á Filippseyjum eftir kosningasigur Marcos
Hundruð námsmanna mótmæltu kosningasigri Ferdinands Marcos yngri fyrir utan skrifstofur kjörstjórnar eftir forsetakosningarnar á Filippseyjum í dag. Sonur einræðisherrann er fyrsti frambjóðandinn í seinni tíð sem vinnur hreinan meirihluta í forsetakosningum.

Neðri mörk Parísarsamkomulagsins í hættu á næstu fimm árum
Helmingslíkur eru á því að hnattræn hlýnun nái 1,5°C að minnsta kosti eitt af næstu fimm árum. Líkurnar á því voru nærri því engar þegar skrifað var undir Parísarsamkomulagið sem miðar við að halda hlýnun innan 1,5°C ef þess er nokkur kostur.

Vaktin: Segja aðgerðirnar í Donbas vera langt á eftir áætlun
Vanmat Rússa á andspyrnu Úkraínumanna og áætlanagerð þeirra, þar sem gert var ráð fyrir að allt færi að óskum, hefur leitt til þess að aðgerðir þeirra hafa ekki gengið sem skyldi. Því gat Rússlandsforseti ekki fagnað sigri á „sigurdeginum“ í gær.

Strokufanginn í gæsluvarðhald eftir eftirför
Strokufanginn Casey White, sem slapp úr fangelsi með aðstoð fangavarðarins Vicky White, er nú kominn í gæsluvarðhald. Vicky var lögð inn á spítala eftir að þau náðust vegna skotsára.

Stærsti hvíti demanturinn til að fara á uppboð
Einn stærsti skorni demantur heims fer á uppboð í svissnesku borginni Genf á næstu dögum og mun í kjölfarið verða stærsti hvíti demantur sögunnar sem seldur er á uppboði.

Forsætisráðherrann segir af sér í kjölfar fjöldamótmæla
Mahinda Rajapaksa, forsætisráðherra Srí Lanka, hefur sagt af sér embætti. Afsögnin kemur í kjölfar fjöldamótmæla sem beinast gegn stjórnvöldum og hvernig þau hafa brugðist við bágri efnahagsstöðu landsins.

Sonur einræðisherrans gæti unnið stórsigur
Kosið er til forseta Filippseyja í dag og stefnir í að Ferdinand Marcos yngri, sonur alræmds einræðisherra eyjanna, gæti unnið yfirburðasigur. Búist er við mikilli kjörsókn en ekki er ljóst hvenær endanleg úrslit liggja fyrir.

Engar stórar yfirlýsingar og fátt nýtt í ræðu Pútín
Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur lokið við að flytja ræðu sína á Rauða torginu í tilefni sigurs Sovétmanna á nasistum í seinni heimstyrjöldinni. Þvert á væntingar margra var fátt um yfirlýsingar í ræðunni og engar stórar fregnir af fyrirætlunum Rússa í Úkraínu.

Vaktin: Þjóðverjar búa sig undir að Rússar skrúfi fyrir gasið
Vladimir Pútín Rússlandsforseti flutti í morgun ræðu sína á Rauða torginu í tilefni sigurs Sovétmanna á nasistum í seinni heimstyrjöldinni. Þvert á væntingar margra var fátt um yfirlýsingar í ræðunni og engar stórar fregnir af fyrirætlunum Rússa í Úkraínu.

Ræðu Pútín á „sigurdeginum“ beðið með eftirvæntingu
Heimsbyggðin bíður þess nú með eftirvæntingu að Vladimir Pútín Rússlandsforseti ávarpi rússnesku þjóðina í dag, þegar Rússar fagna sigri sínum yfir nasistum í seinni heimstyrjöldinni.

Minnst þrjátíu látnir eftir sprenginguna í Havana
Nú er talið að minnst 30 hafi látist í sprengingu við eitt af lúxushótelum Havana á Kúbu á föstudag. Björgunaraðgerðir standa enn yfir og fann leitarteymi þrjú ný lík í dag með aðstoð hunda. Að sögn yfirvalda verður eftirlifenda áfram leitað í rústunum en heilbrigðisráðuneyti Kúbu segir að 84 hafi slasast.

Bandaríkin: Bönnuðum bókum fjölgar frá degi til dags
Bókum, sem skólakerfið í Bandaríkjunum bannar í skólastofum og á bókasöfnum, fjölgar með ógnvænlegum hraða. Frá því í fyrrasumar og fram til þessa dags hafa að meðaltali fjórar bækur á dag verið bannaðar í einstökum ríkjum Bandaríkjanna.

77 ár liðin frá endalokum Þriðja ríkisins
Þann 8. maí árið 1945 skrifaði Karl Dönitz, forseti Þýskalands, undir uppgjafarsáttmála fyrir hönd Þjóðverja og batt þannig lok á þátttöku Þýskalands í seinni heimsstyrjöldinni.

Bætti sitt eigið met með 26. ferðinni
Sjerpinn Kami Rita bætti sitt eigið heimsmet í morgun þegar hann kleif Mount Everest í 26. skiptið. Rita er 52 ára gamall og fór fyrst upp á toppinn árið 1994.

Vaktin: Flugskeyti Rússa hafi lagt kirkjugarð í rúst
Serhiy Gaidai, ríkisstjóri Luhansk, segir að um 60 manns gætu hafa látist í sprengjuárás sem var gerð á skóla í þorpinu Bilohorivka.

Að minnsta kosti 25 látnir eftir sprengingu við lúxushótel í Havana
Að minnsta kosti 25 eru látnir og fleiri en 60 hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir að sprenging varð við eitt af lúxushótelum Havana á Kúbu.

„Ógnum frá Úkraínu við öryggi Rússlands verður útrýmt“
„Ég er sannfærður um að fyrr eða síðar mun það renna upp fyrir leiðtogum Vesturlanda að án raunverulegrar samvinnu og virðingu fyrir rússneskum hagsmunum getur heimurinn ekki haldið áfram að vera eins og hann er í dag.“

Útlit fyrir sögulegan sigur Sinn Fein
Allt stefnir í stórsigur Sinn Fein í kosningunum á Norður-Írlandi. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem flokkur þjóðernissinna er stærsti flokkur landsins.

Verða að klæðast búrku og eiga helst að vera heima
Talíbanar hafa skipað öllum konum í Afganistan að klæða búrku þegar þær fara út. „Við viljum að konurnar okkar búi við reisn og öryggi,“ segir Khalid Hanafi, ráðherra siðferðismála.

Hataðasti raðmorðingi Ástralíu er líklega saklaus
Einn virtasti ónæmisfræðingur Spánar telur að kona sem setið hefur í fangelsi í Ástralíu í nær 20 ár fyrir að hafa myrt öll fjögur börnin sín, sé saklaus og að öll börnin hafi látist vegna erfðagalla. 90 vísindamenn, þar á meðal Nóbelsverðlaunahafar, hafa skorað á áströlsk stjórnvöld að sýkna konuna.

Segir það frábæra hugmynd Trumps að kaupa Grænland
Carla Sands, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, hefur opinberlega hrósað Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, fyrir að hafa viljað kaupa Grænland. Hugmynd Trumps hafi verið frábær þar sem Danir hafi hvorki efni á að byggja upp Grænland né getu til að verja það.

Vaktin: Yfirmaður CIA segir ekki mega vanmeta hættuna á notkun kjarnorkuvopna
Í nótt tilkynntu ítölsk stjórnvöld að snekkja hafi verið gerð upptæk þar í landi. Snekkjan er með tengsl við rússneska ríkið og talið er að eigandi hennar sé Vladímír Pútín, forseti Rússlands.

Gasleka kennt um stærðarinnar sprengingu í Havana
Gasleki á þekktu hóteli í Havana leiddi til stærðarinnar sprengingar sem minnst níu dóu í. Um þrjátíu voru fluttir á sjúkrahús eftir sprenginguna en stór hluti framhluta byggingarinnar hrundi vegna hennar.

Sá sem veittist að Chappelle segist saklaus
Isaiah Lee hefur lýst yfir sakleysi sínu eftir að hann veittist að grínistanum Dave Chappelle á sviði í Los Angeles í vikunni. Hann var handtekinn eftir atvikið en lögreglan segir hann í raun ekki hafa framið glæp.