

Guo Gangtang hefur fundið son sinn Guo Xinzhen eftir 24 ára leit. Syninum var rænt fyrir utan fjölskylduheimilið árið 1997 þegar hann var aðeins tveggja ára gamall.
Minnst 45 hafa látist í óeirðum í Suður-Afríku. Óeirðirnar hófust eftir að fyrrum forseti landsins, Jakob Zuma, var fangelsaður.
Íbúi á Amerísku ströndinni á Tenerife kveðst finna lítið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Íslendingum hafi fjölgað mjög á svæðinu undanfarið.
Vígamenn Talibana tóku minnst 22 afganskra sérsveitarmenn af lífi eftir að þeir gáfust upp. Þetta var í bænum Dawlat Abad í síðasta mánuði en myndbönd af aftökunni hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum.
Fjöldi mótmælenda á Kúbu eru sagðir hafa verið handteknir í kjölfar umfangsmikilla mótmæla gegn ríkisstjórn landsins á sunnudaginn. Myndbönd hafa sýnt öryggissveitir handtaka og berja mótmælendur sem kallað hafa eftir umbótum í eyríkinu.
Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi.
Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir.
Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur kynnt hertar aðgerðir í landinu til að koma í veg fyrir aðra bylgju faraldursins. Þær munu einungis ná til þeirra sem ekki eru bólusettir. Hann ætlar einnig að skylda alla heilbrigðisstarfsmenn í landinu til að fara í bólusetningu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta.
Líkamsræktarstöðvum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og nágrenni hefur verið bannað að spila hraða tónlist í húsakynnum sínum, til þess að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar.
Fleiri en fimmtíu eru látin eftir að eldur blossaði upp inni á einangrunardeild fyrir Covid-sjúklinga á spítala í íröksku borginni Naririya.
Miguel Díaz-Canel, forseti Kúbu, ávarpaði þjóð sína í morgun og sagði mótmælin sem hófust um helgina vera skipulagða aðför að kúbverskum stjórnvöldum. Þá sagði hann mótmælin studd af bandarískum yfirvöldum og keyrð áfram á samfélagsmiðlum.
Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, hefur beðið þjóð sína afsökunar á dómgreindarbresti af sinni hálfu. Sá fólst í að aflétta sóttvarnatakmörkunum vegna Covid-19 of snemma.
Osló er sú borg í Evrópu hvar flestar rafskútur eru á hvern íbúa. Nú stendur til að fækka þeim verulega.
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar.
Áströlsk auglýsing sem ætlað var að hvetja fólk til þess að skrá sig í bólusetningu hefur vakið hörð viðbrögð í áströlsku samfélagi. Mörgum hefur þótt auglýsingin vera sett fram sem hræðsluáróður og þá hefur tímasetning hennar verið gagnrýnd, með tilliti til framgangs bólusetningarátaksins í landinu, sem gengur hægt.
Rasískum skilaboðum hefur ringt yfir þá þrjá ensku landsliðsmenn í knattspyrnu sem brenndu af vítaspyrnum sínum í úrslitaleik EM karla í gærkvöldi. Forsætisráðherra Bretlands fordæmir hatursorðræðuna en sætir sjálfur gagnrýni. Nítján lögreglumenn slösuðust í átökum við fótboltabullur og voru 49 handteknir.
Ellefu hið minnsta létu lífið þegar eldingu laust niður í gamlan virkisturn á Indlandi í gær. Atvikið átti sér stað í Jaipur héraði í norðurhluta landsins en virkið er vinsæll áfangastaður túrista og turn þess þykir sérlega vel fallinn til að taka svokallaðar sjálfumyndir á símann sinn.
Þúsundir þustu út á götur helstu borga og bæja á Kúbu um helgina til að mótmæla ríkisstjórn landsins og er talað um fjölmennustu mótmæli í kommúnistaríkinu í áraraðir. Fólkið hrópaði „niður með einræðisstjórnina“ og lögregla mætti mótmælendum með táragasi og kylfum.
Talsvert magn kókaíns fannst í pokum við strendur Austur-Sussex í Englandi. Talið er að söluandvirði efnisins sé rúmlega 340 milljónir íslenskra króna.
Miklir skógareldar brenna nú í vesturhluta Bandaríkjanna þar sem enn ein hitabylgjan slær nú met á fjölmörgum svæðum.
Lögregluyfirvöld á Haítí segjast hafa handtekið einn af höfuðpaurum árásarinnar á forseta landsins sem skotinn var til bana í síðustu viku.
Lögregluþjónar í Denver í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn fjóra á hóteli í borginni og lögðu hald á fjölda skotvopna og hundruð byssukúlna. Stjörnuleikur hafnaboltadeildar Bandaríkjanna fer fram í Denver á þriðjudaginn og er talið mögulegt að fólkið hafi ætlað að fremja fjöldamorð.
Stjórnarher Afganistans varðist áhlaupi vígamanna Talibana á Taluqan, höfuðborg héraðsins Takhar, sem liggur að landamærum Afganistans og Tadsíkistan. Talibanar hafa lagt undir sig mikið landsvæði í Afganistan að undanförnu en stjórnarherinn segir þá hafa orðið fyrir miklu mannfalli í þessari árás.
Glæpagengi á Haítí og ofbeldi vegna baráttu þeirra um yfirráðasvæði hefur valdið miklum usla undanfarið. Þúsundir hafa þurft af flýja heimili sín vegna átaka og glæpamenn fara ránshendi um heimili og fyrirtæki.
Allt að hundrað manns ruddu sér leið í gegnum vegatálma við Wembley-leikvanginum og reyndu að ryðja sér leið inn á leikvanginn sjálfan. Úrslitaleikur Evrópumótsins milli Englands og Ítalíu fer fram á vellinum í kvöld en fólkið mun hafa reynt að ryðja sér leið inn eftir klukkan fimm í dag.
Breski kaupsýslumaðurinn, Richard Branson, náði komst rétt í þessu upp að jaðri lofthjúpsins í geimferju sinni Virgin Galactic. Hann lagði af stað í ævintýraförina klukkan 14:30 í dag frá Nýju-Mexíkó en ferðin tók einungis fimmtán mínútur.
Ævidraumur Richards Branson, bresks kaupsýslumanns, rætist innan skamms þegar geimferjan Virgin Galactic skýst á loft klukkan 14:30 með honum innanborðs.
Níræð kona frá Belgíu, sem lést af völdum Covid-19, var smituð af bæði alpha- og beta-afbrigðum veirunnar á sama tíma.
Martine Moise, ekkja Jovenel Moise forseta Haítí, segir vígamenn hafa látið byssukúlum rigna yfir mann sinn á miðvikudagsmorgun og hann legið sundurskotinn í valnum.
Gróðureldar hafa stórmagnast í nokkrum af Vesturríkjum Bandaríkjanna sökum hitabylgju sem þar gengur nú yfir. Hitamet hafa verið slegin og búist er við áframhaldandi veðursveiflum.
Stytta af hershöfðingjanum Robert E. Lee sem stóð í Frelsisgarðinum í Charlottesville í Bandaríkjunum hefur nú verið fjarlægð eftir nokkurra ára deilur. Styttunni hefur verið mótmælt harðlega af þeim sem berjast gegn kynþáttahatri.
Xi Jinping og Kim Jong Un, ráðendur Kína og Norður-Kóreu, hafa heitið því að auka samvinnu ríkjanna. Það gerðu þeir í skilaboðum sem þeir sendu hvorum öðrum á dögunum. Í skilaboðum til Xi sagði Kim að náið samband Norður-Kóreu og Kína væri nauðsynlegt í ljósi óvinveittra erlendra afla.
Hitinn í Dauðadalnum svokallaða í Kaliforníu í Bandaríkjunum mældist í gær 54,4 gráður. Verði sú mæling staðfest er það álíka hátt 90 ára gömlu hitameti.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur hafnað beiðni ráðandi fylkinga á Haítí um að senda hermenn til ríkisins. Starfandi ríkisstjórn Haítí hefur einnig beðið Sameinuðu þjóðirnar um að senda þeim hermenn til aðstoðar eftir að Jovenel Moise, forseti landsins, var skotinn til bana á heimili sínu í vikunni af hópi málaliða frá Kólumbíu.
Hundruð palestínskra mótmælenda særðust þegar Ísraelsher hóf skothríð á þá í gær. Mótmælendurnir höfðu safnast saman við ólöglega útvarðarstöð Ísraelsmanna á Vesturbakkanum til að mótmæla henni.
Hvíta húsið tilkynnti í dag að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefði varað kollega sinn Vladimír Pútín við því að Bandaríkin myndu „verja þegna sína“ gegn rússneskum tölvuárásum.
Eldur kviknaði í matvælaverksmiðju í Bangladess í gær. Talið er að hluti fórnarlambanna hafi verið læstur inni í verksmiðjunni.
Vígamenn Talibana hafa ráðið minnst sjö flugmenn í flugher Afganistans af dögum á undanförnum mánuðum. Talibanar reyna markvisst að myrða flugmenn sem hafa verið þjálfaðir af Bandaríkjunum og Atlantshafsbandalaginu til að draga úr yfirburðum stjórnarhers landsins í lofti og loftárásum.
Níu fórust í flugslysi í Örebro í Svíþjóð í gær. Umfangsmikil rannsókn um orsakir og aðdraganda slyssins stendur nú yfir en samkvæmt gögnum sem sænska ríkisútvarpið hefur undir höndum er ekkert sem bendir til þess að bilun í vélinni hafi valdið því að hún hrapaði.
Breski lögreglumaðurinn Wayne Couzens hefur játað að hafa myrt Söruh Everard í mars síðastliðnum Couzens rændi Everard, þegar hún var að ganga heim frá vini sínum í Clapham þann 3. mars, áður en hann keyrði með hana í burt á bíl sem hann hafði tekið á leigu.
Grábjörn dró konu út úr tjaldi hennar í bænum Ovando í Montana og banaði henni í vikunni. Þrátt fyrir mikla leit hefur ekki tekist að finna og fella björninn. Konan hét Leah Davis Lokan og var 65 ára gömul. Hún var í hópi hjólreiðamanna sem var á ferð um svæðið.
Ný rannsókn um orsök Estonia-slyssins hefst í dag og munu kafarar meðal annars halda niður að flaki farþegaferjunnar til að rannsaka gat á síðu skipsins sem sænskir heimildargerðarmenn uppgötvuðu í fyrra. Skipið hvílir nú á hafsbotni í Eystrasalti eftir að hafa sokkið í óveðri aðfaranótt 28. september 1994.