Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lohan dæmd fyrir skartgripaþjófnað Lindsay Lohan hefur verið dæmd í 120 daga fangelsi fyrir að rjúfa skilorð sem hún var dæmd til að sæta árið 2007. Hún var fundin sek um að hafa stolið hálsmeni úr skartgripabúð í janúar. Til viðbótar við fangelsisdóminn, sem er sá fjórði sem hún fær, var Lohan dæmd til að gegna samfélagsþjónustu í 480 klukkustundir. 23.4.2011 09:41
Enginn ógnar Obama ennþá Þrátt fyrir þverrandi vinsældir er Barack Obama Bandaríkjaforseti enn sigurstranglegastur meðal líklegra frambjóðenda í forsetakosningum næsta árs. Helgast það fyrst og fremst af óánægju repúblikana með þá valkosti sem nú eru í boði. 23.4.2011 03:30
Naktir í ræktinni: Fjórir í fyrsta tímanum Eigendandi líkamsræktarstöðvar í Baskalandi, á Norður-Spáni, hefur farið heldur óhefðbundna leið til að reyna að ná til nýrra viðskiptavina í kreppunni. Á líkamsræktarstöðinni Easy Gym í Arrigorriaga er nú hægt að fara nakinn í ræktina. "Ég er sjálf ekki strípalingur, en mér finnst þetta samt ekkert tiltökumál. Þetta frumkvæði snýst bara um að græða peninga," segir Merche Laesca, eigandi Easy Gym í samtali við BBC. Laesca vann heimavinnuna áður en hún ákvað að fara þessa leið, en hún komst að því að í nágrenninu eru tvær sundlaugar þar sem fólki býðst mánaðarlega að fara nakið í laugina, og njóta þessir sérstöku nektartímar mikilla vinsælda. Þá eru minnst tólf strendur á svæði Baska þar sem fólk hittist nakið, fer í sólbað og spilar á spil. Ofan á allt saman er síðan árlegt fjöldahlaup um ströndina í borginni Sopelana. Laesca var því handviss um að hún hefði þarna fundið hið fullkomna viðskiptatækifæri. Hún varð því fyrir nokkrum vonbrigðum þegar aðeins fjórir mættu í fyrsta tímann. "Þeim sem mættu fannst þetta samt alveg frábært,“ segir hún. Frá og með næsta mánuði verður Easy Gym opið seinni hluta laugardags og allan sunnudaginn sérstaklega fyrir þá sem vilja æfa naktir. Eigandi hefðbundinnar líkamsræktarstöðvar segir í samtali við BBC, af þessu tilefni, að honum finnist fátt óhreinlegra en nakið fólk í tækjasalnum. "Þegar þú ert að æfa fer svitinn í fötin þín. Hvert fer svitinn ef þú ert nakinn? Á tækin? Á gólfið? Á fólkið sem er að æfa næst þér?,“ spyr hann. Laseca hefur þó séð fyrir þessu og býður fólki handklæði til að setja á tækin. Þannig er líka komið í veg fyrir að fólk renni til. Tíminn einn mun leiða í ljós hvort viðskiptin glæðis hjá Easy Gym. Ljóst er að framtakið hefur vakið mikla athygli og þegar hefur jógakennari haft samband við Laseca og boðist til að kenna hinum nöktu jóga. 22.4.2011 22:00
Lenín vakir enn yfir Barentsburg á Svalbarða Einn leyndardómsfyllsti bær á dögum kalda stríðsins var Barentsburg á Svalbarða en þar réðu Sovétmenn ríkjum. 22.4.2011 19:30
Einstakur viðburður í sögunni: Páfinn svarar spurningum í sjónvarpinu Benedikt páfi XVI hefur verið skráður á spjöld sögunnar sem fyrsti páfinn til að koma fram í sjónvarpsþætti og svara aðsendum spurningum. Þátturinn var sýndur á ítölsku sjónvarpsstöðinni Rai síðdegis í dag, á föstudaginn langa. Þúsundir sendu inn spurningar og voru sjö valdar úr. Þátturinn var ekki í beinni útsendingu heldur var það tekið upp fyrir viku þegar páfinn sat í bókasafni sínu í Vatíkaninu og svaraði spurningunum. Athygli vakti að engar spurningar komust í gegn sem tengdust kynferðislegu ofbeldi sem kaþólskir prestar hafa beitt sóknarbörn sín. Fyrsta spurningin sem páfinn svaraði kom frá sjö ára japanskri stúlku sem hafði orðið fyrir miklu áfalli í kjölfar jarðskjálftans mikla og flóðbylgjunnar í Japan. Hún spurði páfann af hverju hún og önnur börn þyrftu að vera svona hrædd. Páfinn sagðist sjálfur hafa spurt sig nákvæmlega þessarar spurningar. „Við höfum ekki svörin en við vitum að Jesús þurfti að þjást rétt eins og þú," sagði hann við litlu stúlkuna. Önnur spurningin var frá ítalskri móður drengs sem hefur verið í dái um langan tíma. Móðirin spurði hvort sonur hennar hefði enn sál, og sagði páfinn að sálin hefði hana sannarlega enn. „Ástandi hans má kannski helst líkja við ástand gítars með slitna strengi, og því gefur hann ekki lengur frá sér tóna," sagði hann. Sál drengsins gæti ekki lengur spilað, ef svo mætti að orði komast, en hún væri enn á sínum stað. Sjónvarpskonan Rosario Carello átti frumkvæði að því að fá páfann í þáttinn, og segir hún að páfinn hafi einfaldlega svarað spurningu hennar játandi þegar hún bað hann að koma í þáttinn. Hingað til hefur Benedikt fáfi XVI ekki veitt fjölmiðlamönnum viðtöl nema í flugvélum á ferðalögum hans erlendis, að því er BBC greinir frá. 22.4.2011 18:09
Tala látinna á Sýrlandi hækkar enn: Mótmælendur skotnir í tugatali Áfram berast fregnir af mannfalli á Sýrlandi og er tala látinna nú komin upp í 40. Fréttastofa greindi frá því fyrr í dag að öryggissveitir hefði skotið minnst 15 mótmælendur í höfuðborginni Damaskus. Samkvæmt fréttavef BBC er nú búið að skjóta fjörutíu manns en öryggissveitirnar réðust að mótmælendum með byssum og táragasi. Um 40 þúsund manns höfðu safnast saman í úthverfi borgarinnar. Mikil ólga ríkir í landinu og síðustu vikur hafa tugir þúsunda Sýrlendinga hópast út á götur og krafist þess að forseti landsins víki. Samkvæmt Amnesty International hafa 220 manns verið drepnir í Sýrlandi á síðustu vikum. 22.4.2011 16:22
Konungleg brúðkaupspítsa - kjóllinn úr osti Eigendur Papa John´s Pizza í Bretlandi fengu til liðs við sig matarlistamann sem gerði mósaíklistaverk úr áleggi sem sýndi brúðhjónin verðandi, Willam prins og Kate Middleton. Konunglega brúðkaupið fer fram þann 29. apríl og hefur gripið um sig eins konar æði í Bretlandi vegna þessa. Fjöldi fyrirtækja hefur reynt að nýta brúðkaupið til að vekja athygli á vörum sínum og þjónustu, og er leið Papa John´s Pizza vægast sagt frumleg. Á pizzunni góðu er brúðarslör Kate gert úr sveppum og kjóllinn hennar úr osti, en fatnaður Williams er búinn til úr salami-pylsu og papriku. Pizzuna þarf að sérpanta. 22.4.2011 15:40
Fimmtán mótmælendur drepnir á Sýrlandi Fimmtán mótmælendur á Sýrlandi, hið minnsta, eru látnir eftir að öryggissveitir réðust að þeim með skotvotpnum og táragasi. Dauðsföllinn áttu sér stað í höfuðborginni Damascus, samkvæmt Sky News fréttastofunni. Um fjörutíu þúsund mótmælendur höfðu safnast saman í Douma, úthverfu Damascus, og söngluðu: Fólkið vill stjórnina frá Þetta er sama ákall mótmælenda og áður kom frá borgurum í Egyptalandi og Túnis. Fregnir berast af mótmælum um allt Sýrlandi, meðal annars í strandborginni Banaias, þar sem mótmælin hófust fyrir um mánuði. 22.4.2011 15:14
Harmleikur í Frakklandi: Þrjú lík og fótleggur í bakgarðinum Franska lögreglan leitar fjölskylduföðurs eftir að þrjú lík og fótleggur, sem talin eru vera af eiginkonu hans og börnum, fundust í bakgarði fjölskyldunnar. 22.4.2011 13:16
Leita að líkum neðansjávar Bandarískir og japanskir vísindamenn leita nú að líkum í norðurhluta Japans með aðstoð neðansjávarvélmennis. 22.4.2011 06:00
Harðasti lögreglustjóri Bandaríkjanna heldur sérkennilega keppni Bandaríski lögreglustjórinn Joe Arpaio, sem er kallaður harðasti lögreglustjóri Bandaríkjanna í þarlendum fjölmiðlum, hefur tekið upp á sérkennilegri nýlundu í Arizona. 21.4.2011 21:00
Sekt fyrir að búa í kringum kjarnorkuverið í Fukushima Stjórnvöld í Japan hafa lýst svæði umhverfis kjarnorkuverið í Fukushima, í tuttugu kílómetra radíus, sem bannsvæði. 21.4.2011 09:53
Elísabet á afmæli í dag Elísabet Bretadrottning fagnar áttatíu og fimm ára afmæli sínu í dag. Hún hefur ríkt sem drottning í 59 ár eða síðan í febrúar 1952. 21.4.2011 09:49
Pattstaðan í Líbíu dregst á langinn Hörð átök hafa staðið um borgina Misrata, sem uppreisnarmenn hafa haft á valdi sínu. Einnig voru bardagar í fjöllunum skammt frá Túnis, og flúðu þúsundir manna yfir landamærin. 21.4.2011 00:30
Þurfa að sannfæra Bandaríkin Ísraelar og Palestínumenn féllust síðastliðið haust á að ljúka friðarsamningum í september á þessu ári. Ekkert hefur gengið í samningaviðræðum, en Palestínumenn virðast ætla að láta reyna á það hvort öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fallist ekki á stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu þegar þessi frestur er liðinn. 21.4.2011 00:00
Frakkar og Ítalir senda ráðgjafa til Líbíu Frakkar og Ítalir segjast ætla að senda hermenn til Líbíu til þess að vera uppreisnarmönnum til ráðgjafar í baráttunni gegn Gaddafí einræðisherra. Um fáa menn er að ræða, um það bil tíu frá hvoru landi en Bretar hafa þegar tilkynnt um svipaðar aðgerðir. 20.4.2011 13:35
Norðurlönd leiðandi í loftárásum í Líbíu Flugsveitir frá Danmörku og Noregi eru leiðandi í loftárásum á hersveitir Moammars Gaddafis í Líbíu. Hvort land um sig sendi sex F-16 orrustuþotur í stríðið. 20.4.2011 10:26
Fundu stærstu könguló sem lifað hefur á jörðinni Vísindamenn hafa lýst steingerðri könguló sem nýlega fannst í Kína sem stærstu könguló sem nokkurn tíma lifði á jörðinni. 20.4.2011 07:43
Obeidi gagnrýnir Breta harðlega Abdul Obeidi, utanríkisráðherra Líbíu, gagnrýnir harðlega þau áform breskra stjórnvalda að senda sveit hernaðarráðgjafa til Benghazi. 20.4.2011 07:40
Michelle Obama forsetafrú slapp með skrekkinn Michelle Obama forsetafrú Bandaríkjanna slapp með skrekkinn þegar Boeing 737 flugvél sem hún var í þurfti að hætta við lendingu í miðjum klíðum á Andrews herflugvellinum á mánudag. 20.4.2011 07:38
Morðingi rændi fórnarlömbin Lögreglan á Fjóni hefur nú lýst eftir manni í tengslum við morðið á hjónum í Óðinsvéum síðastliðið miðvikudagskvöld. 20.4.2011 00:45
Leiðtogarnir á Kúbu boða breytta tíma Fidel Castro bauð sig ekki fram í leiðtogakjöri Kommúnistaflokksins á Kúbu í gær. Þess í stað var bróðir hans, Raúl, kosinn leiðtogi flokksins. 20.4.2011 00:00
Hindrar hugsanlega framgöngu Brown hjá AGS David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur gefið til kynna að hann kunni að koma í veg fyrir að Gordon Brown verði næsti yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Forsætisráðherrann segir að maður sem hafi ekki séð fyrir að Bretland væri í skuldavanda yrði ef til vill ekki besti maðurinn til þess að stjórna alþjóðlegu fjármálaeftirlitskerfi. 19.4.2011 13:26
ESB vill senda fótgönguliða til Líbíu Evrópusambandið er reiðubúið að senda hersveitir till Líbíu til þess að aðstoða flóttafólk, ef Sameinuðu þjóðirnar fara framá það. Hermönnunum yrði ekki ætlað að berjast við sveitir Moammars Gaddafis heldur aðeins veita mannúðaraðstoð. 19.4.2011 13:05
Ný vopn Hamas auka hættu á stórátökum Aukin hætta er á hörðum árásum Ísraela á Gaza ströndina vegna nýrra fullkominna vopna sem Hamas samtökin hafa aflað sér. Hamas liðar skutu á dögunum leysigeislastýrðri rússneskri eldflaug á skólarútu og gjöreyðilögðu hana. 19.4.2011 13:00
Segir Dani verða að framselja Múhameðsteiknara Danir hafa skuldbundið sig til þess að framselja skopmyndateiknarann Kurt Westergaard til Jórdaníu að sögn borgarfulltrúa í Kaupmannahöfn. Réttarhöld yfir Westergaard hefjast þar í landi 25 apríl, vegna teikninga hans af Múhameð spámanni. 19.4.2011 11:21
Norðmenn ákváðu stríð í gegnum farsíma Ákvörðun um að senda norskar orrustuþotur til Líbíu hinn 19. mars var tekin í farsímum. Ríkisstjórnin hélt engan sérstakan fund um málið og þingið kom þar hvergi nærri. 19.4.2011 10:10
Castro hættir sem leiðtogi Kommúnistaflokks Kúbu Fidel Castro, hefur sagt af sér sem leiðtogi Kommúnistaflokks Kúbu, en árið 2006 afsalaði hann sér forsetaembættinu til Rauls bróður síns. 19.4.2011 08:17
Mikil mótmæli í þriðju stærstu borg Sýrlands Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í miðbæ Homs í Sýrlandi í gærkvöldi en Homs er þriðja stærsta borg landsins. 19.4.2011 07:48
Noma aftur kosinn besti veitingastaður heimsins Danski veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn er áfram besti veitingastaður heimsins eins og í fyrra. 19.4.2011 07:40
Endurkjörinn í skugga óeirða Goodluck Jonathan var í gær útnefndur sigurvegari forsetakosninga í Nígeríu, fjölmennasta ríki Afríku. Jonathan, sem tók við forsetaembættinu í þessu mikla olíuríki um mitt síðasta ár, fékk rúmlega tíu milljónum atkvæða meira en helsti keppinautur sinn, Muhammadu Buhari. Auk þess sigraði Jonathan í nógu mörgum fylkjum til að ekki þyrfti að kjósa aftur milli tveggja efstu. 19.4.2011 00:30
Þúsundir vilja flýja Misrata Nærri eitt þúsund manns, mest farandverkamenn, hafa verið fluttir frá hafnarborginni Misrata í Líbíu eftir að hafa verið þar í herkví í fimm vikur. Þúsundir til viðbótar bíða þess að komast frá borginni. 19.4.2011 00:00
Segja maraþonhlaupurum mismunað eftir kynþætti í Hollandi Keppnishaldarar maraþonsins í Utrecht í Hollandi eru sakaðir um kynþáttamismunun eftir að þeir samþykktu að veita hollenskum verðlaunahöfum mun hærri peningaverðlaun en öðrum. 18.4.2011 20:30
Súkkulaðijöfur lést af slysförum Ítalski súkkulaðijöfurinn Pietro Ferrero lést af slysförum í Suður Afríku samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins. 18.4.2011 20:00
Sannir Finnar sexfölduðu fylgi sitt Allt er á öðrum endanum í finnskum stjórnmálum eftir að ríkisstjórnin féll og þjóðernisflokkurinn Sannir Finnar nærri sexfaldaði þingmannafjölda sinn í kosningum í landinu í gær. Leiðtogi flokksins segir mikilvægt að Evrópa virði vilja finnsku þjóðarinnar. 18.4.2011 12:09
Nýbúar orðnir fleiri en 10% af íbúum Danmerkur Í fyrsta sinn í sögunni eru rétt rúmlega 10% af öllum íbúum Danmerkur eru nýbúar eða afkomendur þeirra. 18.4.2011 07:44
Hvirfilbylir valda neyðarástandi í Norður Karólínu Að minnsta kosti 45 fórust í suðurhluta Bandaríkjanna um helgina eftir að miklir stormar og hvirfilbylir herjuðu á íbúa þar. 18.4.2011 07:38
Goodluck endurkjörinn forseti Nígeríu Flest bendir til að Goodluck Jonathan hafi verið endurkosinn forseti Nígeríu í kosningum þar um helgina. 18.4.2011 07:27
Erlendum námsmönnum snarfækkar í Danmörku Verulega hefur dregið úr ásókn evrópskra námsmanna í danska skóla. Samkvæmt nýju yfirliti frá menntamálaráðuneyti Danmerkur sóttu um 1.000 færri námsmenn um háskólanám í Danmörku í ár en í fyrra. Þetta er samdráttur upp á um 33%. 18.4.2011 07:16
Branson flytur lemúra milli heimsálfa Áform viðskiptajöfursins Richards Branson um að bjarga lemúrum í útrýmingarhættu með því að flytja þá milli heimsálfa hafa vakið hörð viðbrögð annarra náttúruverndarsinna. 18.4.2011 05:00
Sex til níu mánuðir í viðbót Stjórnendur kjarnorkuversins Fukushima Dai-ichi í Japan telja að það taki sex til níu mánuði að stöðva geislavirknilekann þar og að kæla niður kjarnaofnana. 18.4.2011 04:00
Ný ríkisstjórn í kortunum í Finnlandi Þingkosningar fóru fram í Finnlandi í gær. Bráðabirgðaniðurstöður í gærkvöldi bentu til þess að hægristjórn Mari Kiviniemi forsætisráðherra væri fallin. Þjóðernisflokkurinn Sannir Finnar var sigurvegari kosninganna og fimmfaldaði fylgi sitt. 18.4.2011 04:00
Rúmlega 500 farþegar þurftu að fara frá borði Rýma þurfti Mexíkóskt farþegaskip í gær eftir að skipið varð rafmagnslaust úti fyrir ströndum landsins. 17.4.2011 19:10
Líklegt að ný ríkisstjórn verði mynduð í Finnlandi Samkvæmt fyrstu tölum í þingkosningunum í Finnlandi, sem birtar voru klukkan fimm þegar kjörstöðum var lokað, hefur Samstöðuflokkurinn fengið 20,2 prósent atkvæða sem hafa verið talin. 17.4.2011 17:28
Finnar kjósa til þings í dag Þingkosningar fara fram í Finnlandi í dag. Kannanir benda til þess að Samstöðuflokkurinn, flokkur Jyrki Katainen, núverandi fjármálaráðherra, fái rúmlega 21 prósenta fylgi og verði stærsti flokkurinn. 17.4.2011 14:38