Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gabb í beinni útsendingu Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur þar sem keppt var um nýra úr dauðvona konu reyndist gabb eftir allt saman. Þetta kom fram á lokamínútum þáttarins í hollensku sjónvarpi í gærkvöldi. 2.6.2007 12:30
G8 mótmæli í dag Mótmælendur víða að streyma nú til hafnarborgarinnar Rostock í norðurhluta Þýskalands þar sem leiðtogar átta helstu iðnríkja heims funda í næstu viku. 13 þúsund lögreglumenn eru í viðbragðsstöðu í borginni en búist er við allt að hundrað þúsund mótmælendum í dag. Mótmæli eru einnig fyrirhuguð í Lundúnum í dag og hafa mótmælendur safnast þangað í stórum hópum í morgun. 2.6.2007 12:25
Frakkar vilja senda herlið til Tsjad Frakkar íhuga nú að biðja aðildarlönd í Evrópusambandinu um að senda allt að 12.000 hermenn til Tsjad til þess að aðstoða flóttamenn frá Darfúr-héraði Súdan. Talsmaður franska utanríkisráðuneytsins staðfesti í morgun að það væri að reyna að safna utanríkisráðherrum G8 ríkjanna, auk þess kínverska, fyrir viðræður um ástandið í Darfúr. 2.6.2007 11:33
Kínverjar gera lítið úr auknum hernaðarumsvifum Kínverjar freistuðu þess að róa Bandaríkjamenn á herráðstefnu sem fram fer í Singapore í dag. Þar sagði talsmaður kínverska hersins að stækkun hans væri eingöngu í varnartilgangi og að þeir ætluðu sér ekki að ráðast gegn neinu landi. Á meðal hlustenda var Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. 2.6.2007 11:13
Mótmælendur fjölmenna til Rostock vegna G8 fundar Mótmælendur komu sér fyrir í þýsku borginni Rostock í morgun til þess að mótmæla fundi G8 ríkja sem fram fer í Heiligendamm, smáþorpi rétt hjá Rostock, í byrjun næstu viku. Lögregla býst við allt að 100.000 mótmælendum en 40 samkomur á þeirra vegum verða haldnar víðsvegar um borgina um helgina. Búist er við því að mótmælin fari friðsamlega fram. 2.6.2007 10:49
Varaforsætisráðherra Kína látinn Húang Jú, varaforsætisráðherra Kína, lést í gær, sextíu og átta ára að aldri. Ekki hefur verið greint frá því formlega hvert banamein hans var en vitað er að hann hafði þjáðst af krabbameini síðan í fyrra. 2.6.2007 10:45
Kastró hefur að mestu náð sér Fídel Kastró, forseti Kúbu, hefur náð sér að mestu eftir magaaðgerði í fyrra. Þetta segir Ricardo Alarcon, þingforseti landsins. Þetta upplýsti hann í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð. Hann gaf þó ekkert upp um hvenær Kastró tæki aftur við stórnartaumunum. 2.6.2007 10:25
Æ færri Danir lesa dagblöð Marktækt færri lesa dagblöð í Danmörku í dag en fyrir hálfu ári síðan. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup sem skýrt var frá í dag. Þetta á við öll blöð í landinu ef undan er skilið viðskiptablaðið Börsen sem heldur sínum lesendahóp. 1.6.2007 23:19
Ófreskjan frá Alabama reyndist vera heimalningur - að nafni Fred Það vakti mikla athygli á dögunum þegar 11 ára drengur í Alabama felldi villisvín sem var það stærsta sem sögur fara af. Nú hefur hins vegar komið í ljós að villisvínið ógurlega var ekki villt, heldur var um að ræða alisvín sem kallað var Fred. Bóndi að nafni Phil Blissitt keypti grísinn árið 2004 og gaf konu sinni hann í jólagjöf. 1.6.2007 22:42
Bush krefst þess að Íran sleppi fjórum úr haldi Bush Bandaríkjaforseti krafðist þess í kvöld að írönsk strjórnvöld sleppi fólki fjórum einstaklingum sem handteknir hafa verið í Íran. Fólkið er af írönsku og bandarísku bergi brotið og hefur verið ákært í Íran fyrir að reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli. 1.6.2007 21:20
„Dr. Dauði“ laus úr fangelsi Læknirinn Jack Kevorkian, sem kallaður hefur verið „Dr. Dauði“ fyrir að hjálpa dauðvona sjúklingum að binda enda á líf sitt, er laus úr fangelsi eftir átta ára vist. 1.6.2007 21:02
Nýrnaþátturinn reyndist gabb Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur hvar þáttakendur áttu að keppa um nýra úr dauðvona konu var gabb eftir allt saman. Konan er leikkona en keppendurnir eru raunverulegir nýrnasjúklingar sem vissu af gabbinu. 1.6.2007 19:56
Sérhanna barn til lækninga Richardsson-hjónin í Svíþjóð eygja nú von í baráttu fjögurra ára sonar þeirra við alvarlegan arfgengan sjúkdóm. Þau hafa fyrst Svía fengið leyfi að velja fósturvísa til að sérhanna barn til glasafrjóvgunar. Íslenskur kvensjúkdómalæknir segir Vísindasiðanefnd ákveða hvort slíkt yrði leyft hér. 1.6.2007 19:15
Með kúlu í höfðinu í 64 ár Læknar í Kína fjarlægðu á dögunum þriggja sentimetra langa byssukúlu úr höfuðkúpu tæplega áttræðrar konu. Kúlan hafði setið þar föst í 64 ár. 1.6.2007 19:11
Velta minni eftir bann Reykingabann á opinberum stöðum er í gildi víða. Bannið hefur haft áhrif á veltu veitingastaða í Noregi og knæpurekstur í dreifbýli á Írlandi. 1.6.2007 19:02
Bresk yfirvöld fordæma myndband af Johnston Tony Blair forsætisráðherra Breta, vottaði í dag fjölskyldu breska blaðamannsins Alan Johnstons samúð sína í kjölfar þess að myndband með Johnston, sem haldið er af mannræningjum í Palestínu, var gert opinbert. Gordon Brown fjármálaráðherra fodæmdi myndbandið sem hann sagði aðeins auka á áhyggjur fjölskyldu Johnstons. 1.6.2007 18:03
Erfðaefni úr óþekktum manni í herbergi Madeleine Erfðaefni úr óþekktum manni fannst í herbergi Madeleine McCann þar sem hún svaf þegar henni var rænt. Þetta kemur fram í portúgalska innanbæjarblaðinu 24 Horas. Blaðið segir að erfðaefnið sé hvorki úr foreldrum stúlkunnar né börnunum þremur. Það er ekki heldur úr þeim sem hafa legið undir grun í málinu. 1.6.2007 17:16
Skelfilegt kjarnorkuslys vofir yfir Evrópu Gríðarstórir geymar fullir af notuðum eldsneytis-stjórnstöngum úr vélum rússneskra kjarnorkukafbáta geta sprungið hvenær sem er. Þeir eru aðeins 50 kílómetra frá landamærunum við Noreg. Það yrði hrein kjarnorkumatröð, margfallt verri en kjarnorkuslysið í Chernobyl á sínum tíma. 1.6.2007 16:27
Berklamaðurinn sér eftir flugferðunum Bandarískur berklasjúklingur sem ferðaðist smitaður með tveimur farþegaflugvélum yfir Atlantshafið hefur beðist afsökunar á að hafa mögulega stofnað öðrum farþegum í hættu. Í þættinum Good Morning America sagði Andrew Speaker, lögmaður á fertugsaldri: “Mér þykir mjög leitt að hafa valdið farþegum raun og sársauka.” 1.6.2007 14:57
Venesúelska sjónvarpsstöðin sendir út á YouTube Venesúelska sjónvarpsstöðin RCTV sendir nú fréttaþátt sinn "El Observador" út á YouTube. Þannig fundu stjórnendur hennar leið til að koma efni fréttamanna til hluta áhorfenda sinna, þrátt fyrir að hafa misst útsendingarleyfið. Hugo Chavez forseti hafnaði endurnýjun leyfisins sem rann út á sunnudag. Fjöldamótmæli hafa verið haldin á götum Venesúela vegna málsins. 1.6.2007 13:35
Lucy in the Sky er fundin Bresk kona sagði í dag að hún hafi verið innblástur Johns Lennon að laginu Lucy in the Sky with Diamonds. Margir aðdáendur Bítlanna hafa talið að nafnið hafi verið lítt dulin lofgjörð um ofskynjunarlyfið LSD. Vegna þess var skífan ritskoðuð í mörgum íhaldssamari löndum og laginu um Lucy sleppt. Það var t.d. gert víða í Asíu. 1.6.2007 13:15
Átökin í Líbanon: Hræðilegt ástand í flóttamannabúðum Mannúðarsamtök segja ástandið í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon vera hræðilegt. Ekkert lát er á átökum meðlima hryðjuverkasamtakanna Fatah al-Islam og líbanskra hermanna sem staðið hafa í 13 daga. Sameinuðu þjóðirnar segja 31 þúsund manns vera innilokaða í búðunum, en 25 þúsund hafi flúið. Mannúðarsamtök segja ástandið hræðilegt. Um 80 manns hafa látið lífið í átökunum. 1.6.2007 10:57
Belja í fjöldagröf Bosnískur bóndi á í málaferlum við yfirvöld vegna belju sinnar. Hann segir að hún hafi drukknað í fjöldagröf sem yfirvöldum hafði láðst að fylla uppí eftir að líkin höfðu verið fjarlægð. Í gröfinni voru lík 50 múslima sem Serbar myrtu í Bosníustríðinu. Bóndinn segir að uxakleggi hafi stungið beljuna sem hafi brugðið svo að hún stökk út í vatnsfyllta fjöldagröfina. Uxakleggi er flugnategund sem leggst á nautgripi. 1.6.2007 10:11
Tengdafaðir berklasmitaðs manns vinnur við berklarannsóknir Bandaríkjamaðurinn sem smitaður er af illvígum berklum er tengdasonur vísindamanns sem rannsakar berkla hjá smitvarnastöð Bandaríkjanna í Atlanta í Georgíu. Tengdafaðirinn segir óhugsandi að tengdasonurinn hafi smitast í gegnum hann eða á rannsóknarstofu sinni. 31.5.2007 23:54
Útsendingum RCTV haldið áfram á YouTube Radio Caracas Television, sjónvarpsstöðin sem ríkisstjórn Venezuela synjaði um útsendingarleyfi á dögunum hefur fundið aðferð til að koma efni sínu á framfæri. Fréttamenn stöðvarinnar hafa haldið áfram vinnu sinni og er afraksturinn settur á Netið á vefsíðunni vinsælu YouTube. 31.5.2007 23:06
Reyklaus sígaretta Reyklausa sígarettan er orðin að veruleika. Hún er dönsk að uppruna, inniheldur nikótín og á að hafa hið fínasta tóbaksbragð. 31.5.2007 18:30
Bush hvetur til langtímamarkmiða gegn hlýnun jarðar Bandaríkjamenn hvetja þjóðir heims að samþykkja langtímaáætlun gegn losun gróðurhúsalofttegunda. George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í dag stefna á fund með 14 öðrum þjóðum sem losa hvað mest af gróðurhúsalofttegundum. Þeirra á meðal eru nokkur þróunarlönd. Með fundinum vill Bush setja markmið sem hamla hlýnun jarðar. 31.5.2007 16:53
Tyrkneska þingið samþykkir umbætur á stjórnarskrá Tyrkneska þingið samþykkti í dag umdeildar umbætur á stjórnarskrá landsins. Með því sniðgekk þingið neitun forsetans Ahmec Necdet Sezer. Hann hafði beitt neitunarvaldi gegn umbótunum sem meðal annars fela í sér að forsetinn verði kosinn beint af kjósendum, en ekki þinginu. Umbæturnar eru ætlaðar til að binda enda á pólitíska krísu í landinu. 31.5.2007 16:35
Yfirmaður NASA blæs á loftslagsbreytingar Yfirmaður bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, segir að það sé hrokafullt að skilgreina loftslagsbreytingar sem vandamál sem þurfi að takast á við. Dr. Micael Griffin lét þessi orð falla í útvarpsviðtali í Bandaríkjunum. Hann kvaðst ekki draga í efa að loftslagið væri að breytast. 31.5.2007 16:34
Rússar leggja gasleiðslu til Kína Rússar og Kínverjar eiga nú í samningaviðræðum um að Rússar leggi gasleiðslu til Kína. Áætlað er að verkinu gæti verið lokið á fimm til sex árum. Victor Khristenko orkumálaráðherra Rússa skýrði frá þessu í dag og sagði að áhugi væri frekari fjárfestingum í kínverska orkugeiranum. 31.5.2007 16:07
Bretar samþykkja lyf gegn tóbaksfíkn Einum mánuði áður en tóbaksbann tekur gildi í Bretlandi hefur nýtt lyf gegn tóbaksfíkn verið samþykkt og er nú fáanlegt í gegnum heilbrigðisyfirvöld. Pillan Champix er tekin tvisvar á dag. Rannsóknir sýna að eftir 12 vikur reynist lyfið tvöfalt áhrifaríkara gegn fíkninni en nikótíntyggjó og lyfið Zyban sem fæst meðal annars á Íslandi. 31.5.2007 15:42
Alltaf eru Danir ráðagóðir Í lögum um reykingabann á dönskum veitingahúsum segir að ef veitingastaðurinn sé yfir 40 fermetrar, séu reykingar bannaðar. Þó er heimilt að útbúa þar sérstakt reykherbergi. Þetta gladdi mjög veitingamann á Vesterbrogade í Kaupmannahöfn. Hann á veitingastað sem er 200 fermetrar. Hann er nú að innrétta 50 fermetra matsal og 150 fermetra reykherbergi. 31.5.2007 14:55
Ítalskir fangar vilja dauðadóma Hundruðir fanga sem sitja lífstíðardóma í ítölskum fangelsum hafa farið fram á það við stjórnvöld að þau taki aftur upp dauðadóma. Bréf fanganna þess efnis var sent forsetanum Giorgio Napolitano og birt í dagblaðinu La Republica. Næstum 1.300 fangar með lífstíðardóma sitja nú í ítölskum fangelsum. Rúmlega 200 þeirra hafa setið inni í meira en tvo áratugi. 31.5.2007 14:11
Pútin lýsir yfir nýju vígbúnaðarkapphlaupi Vladimir Putin forseti Rússlands lýsti í dag yfir nýju vígbúnaðarkapphlaupi sem hann sakar Bandaríkin um að hafa hrundið af stað. Putin sagði að tilraunaskot með langdrægri kjarnorkueldflaug í gær hafi verið svar við vígbúnaði Bandaríkjanna. Hann sagði einnig að Rússar myndu mæta Bandaríkjamönnum eldflaug fyrir eldflaug, til þess að viðhalda hernaðarjafnvægi í heiminum. 31.5.2007 13:04
Dvergurinn og mannránið Lögreglan í Bremen í norðurhluta Þýskalands setti af stað meiriháttar aðgerð þegar kona tilkynnti um mannrán. Hún varð vitni að því þegar „ungur drengur“ var læstur í skotti bíls sem ekið var af stað. Lögreglan setti þegar upp vegatálma og sendi út eftirlitsbíla. Þegar bíllinn fannst kom í ljós að um var að ræða dverg sem var bifvélavirki. 31.5.2007 13:00
Panda drapst eftir að hafa verið sleppt út í náttúruna Fyrsta risapandan sem alin var upp í dýragarði og síðan sleppt út í náttúruna er dauð. Xiang Xiang var karlkyns panda og fannst fyrr á árinu á verndarsvæðinu sem voru heimkynni hans í aðeins nokkra mánuði. 31.5.2007 12:45
Sakaðir um að smita fólk vísvitandi af HIV Fjórir hollenskir karlar hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa vísvitandi smitað fjölda fólks af alnæmi. Svo virðist sem þeir hafi ítrekað skipulagt kynsvall þar sem þátttakendum var byrlað ólyfjan. Þrír gerendanna eru HIV-smitaðir. 31.5.2007 12:15
Meyfæðing hákarls staðfest í fyrsta sinn Írskir og bandarískir vísindamenn hafa sannað að karlkyns hákarl kom hvergi nærri getnaði hákarls í bandarískum dýragarði. Þróunarlegt neyðarrúrræði segir forstöðumaður rannsóknarseturs. 31.5.2007 12:00
Hargreaves kominn til Manchester United Manchester United staðfesti í dag að Owen Hargreaves, leikmaður Bayern Munich, muni ganga til liðs við þá þann 1. júlí næstkomandi. Enn hefur ekki verið sagt frá því hversu hátt kaupverðið var en talið er að það sé í kringum 17 milljónir punda. 31.5.2007 11:41
Hvað er hægt að leggjast lágt ? Breskir lögreglumenn eru öskureiðir út í innbrotsþjóf sem stal trúlofunarhring af hendi 103 ára gamallar konu. Þeir kalla framferði hans fyrirlitlegan heigulshátt. Þeir vona að jafnvel glæpalýð landsins þyki þarna of langt gengið, og komi kauða undir manna hendur. 31.5.2007 11:07
Tuttugu fallnir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja Að minnsta kosti 20 eru fallnir og aðrir 20 særðir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja, vestur af Bagdad, í morgun. Maður gyrtur sprengjubelti gekk inn hóp manna sem hugðust sækja um vinnu hjá lögreglu og sprengdi sig í loft upp með þessum afleiðingum. 31.5.2007 11:01
Dauðdagi Fjörutíu og fimm ára fjölskyldufaðir í Danmörku lét lífið þegar hann varð fyrir garðsláttuvél. Ritzau fréttastofan segir að hann hafi verið bæjarstarfsmaður og verið að slá gras í almenningsgarði þegar slysið varð. 31.5.2007 10:40
Flaug í 9 tíma með slasaða farþega Japanska samgönguráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á því af hverju breiðþotu hollenska flugfélagsins KLM var ekki snúið við eftir að níu farþegar slösuðust í mikilli ókyrrð. Fimm þeirra voru fluttir á sjúkrahús eftir að vélin lenti í Osaka. 31.5.2007 10:02
Norskar konur drykkfelldari en aðrar Norskar konur eru drykkfelldari en aðrar konur á Vesturlöndum. Þar er meðal annars kennt um að jafnrétti hefur aukist milli karla og kvenna í Noregi, og norskar konur taka nú meiri þátt í atvinnulífinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norsku lýðheilsustöðvarinnar. 31.5.2007 09:51
Sakir bornar af Sadr Aðstoðarmaður shía klerksins Moqtada Sadr segir að menn hanns séu ekki viðriðnir rán á fimm Bretum í Sadr borg í gær. Utanríkisráðherra Íraks hafði áður sagt að hann teldi að Mehdi herinn hefði staðið á bakvið mannránin. 30.5.2007 23:53