Fleiri fréttir Slapp undan mörg hundruð býflugum Fimm barna móðir í Arisóna í Bandaríkjunum varð fyrir hræðilegri lífsreynslu á dögunum þegar mörg hundruð býflugur réðust á hana. Konan lifði árásina af. 1.3.2007 19:30 Grunaður barnaníðingur handtekinn í Leipzig Þýska lögreglan hefur handtekið mann á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað og síðan myrt níu ára strák fyrir tæpri viku. Maðurinn reyndi að svipta sig lífi en liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. 1.3.2007 19:15 Átök á Norðurbrú Til harðra átaka kom milli lögreglu og mótmælenda á Norðurbrú í Kaupmannahöfn síðdegis. Deilt er um ungdómshúsið svokallaða sem lögregla rýmdi með valdi í morgun. Ungmenni hafa haldið þar til í leyfisleysi síðustu mánuði og hundsað kröfur um að hverfa þaðan. Íslendingur á vettvangi telur líkur á áframhaldandi átökum næstu daga. 1.3.2007 18:55 Hlutabréf lækka enn Hlutabréf um allan heim héldu áfram að lækka í verði í morgun þegar að kauphallir opnuðu í Evrópu og Asíu. Það leiddi síðan til áframhaldandi lækkana á mörkuðum í Bandaríkjunum. FTSE vísitalan í Lundúnum lækkaði um 2% og markaðsvirði fyrirtækja þar lækkaði um alls 98 milljarða sterlingspunda, eða um tæpar 13 billjónir íslenskra króna. Þetta hefur leitt til þess að markaðssérfræðingar eru farnir að halda að lækkunin eigi eftir að halda áfram um einhvern tíma. 1.3.2007 18:00 Fyrstu friðargæsluliðar Afríkusambandsins komnir til Sómalíu Fámennt lið friðargæsluliða frá Úganda er komið til Baidoa í Sómalíu, aðseturs stjórnvalda í landinu. Þeir eru hluti af liðsafla friðargæsluliða Afríkusambandsins en samtals verða 1.500 hermenn frá Úganda í því liði. Í því eiga að verða 8.000 hermenn en hingað til hefur aðeins tekist að fá vilyrði fyrir 4.000 mönnum. 1.3.2007 17:26 Staðgengill óskast til flengingar Kínverskur kaupsýslumaður hefur auglýst eftir ungri konu sem er til í að láta flengja sig, gegn greiðslu. Kínverskir fjölmiðlar segja að eiginkona mannsins hafi reiðst mjög þegar hún komst að því að hann átti ástkonu. Hún krafðist þess að fá að flengja ástkonuna, að öðrum kosti myndi hún skilja við manninn. 1.3.2007 16:03 Alvöru koss Rúmenskt par flýtti sér á sjúkrahús eftir ástarleik sem var svo ákafur að konan gleypti gervitennur elskhuga síns. Læknar á sjúrahúsinu ætluðu varla að trúa sínum eigin eyrum, þegar þeir heyrðu ástæðuna fyrir sjúkrahúsheimsókninni. Þeir urðu þó að trúa sínum augum, því gervitennurnar sáust skýrt og greinilega á röntgenmynd. 1.3.2007 15:41 Eiga von á liðsauka frá allri Evrópu Íbúar ungdómshússins í Kaupmannahöfn segja að þeir eigi von á liðsauka allsstaðar að úr Evrópu. Ritt Bjerregård, borgarstjóri Kaupmannahafnar, hefur stytt frí sitt í Noregi og er á leið til höfuðborgarinnar. Íbúarnir reyna nú að koma af stað óeirðum í öðrum borgarhlutum, þar sem enginn kemst í gegnum 1.3.2007 15:16 Áfram hlegið Íbúum sænska smábæjarins Fjuckby hefur verið synjað um leyfi til þess að breyta nafni bæjarins. Íbúarnir eru 50 talsins og 15 þeirrra voru orðnir svo þreyttir á dónalegum athugasemdum sem þeir fá þegar þeir sögðu hvaðan þeir eru, að þeir sóttu um leyfi til þess að breyta nafninu. Þessar dónalegu athugasemdir tengjast kynferðislegum athöfnum, eins og hægt er að ímynda sér, með tilliti til nafnsins. 1.3.2007 14:33 Danir skera upp herör gegn mansali 1.3.2007 13:52
Sjá næstu 50 fréttir
Slapp undan mörg hundruð býflugum Fimm barna móðir í Arisóna í Bandaríkjunum varð fyrir hræðilegri lífsreynslu á dögunum þegar mörg hundruð býflugur réðust á hana. Konan lifði árásina af. 1.3.2007 19:30
Grunaður barnaníðingur handtekinn í Leipzig Þýska lögreglan hefur handtekið mann á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa nauðgað og síðan myrt níu ára strák fyrir tæpri viku. Maðurinn reyndi að svipta sig lífi en liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsi. 1.3.2007 19:15
Átök á Norðurbrú Til harðra átaka kom milli lögreglu og mótmælenda á Norðurbrú í Kaupmannahöfn síðdegis. Deilt er um ungdómshúsið svokallaða sem lögregla rýmdi með valdi í morgun. Ungmenni hafa haldið þar til í leyfisleysi síðustu mánuði og hundsað kröfur um að hverfa þaðan. Íslendingur á vettvangi telur líkur á áframhaldandi átökum næstu daga. 1.3.2007 18:55
Hlutabréf lækka enn Hlutabréf um allan heim héldu áfram að lækka í verði í morgun þegar að kauphallir opnuðu í Evrópu og Asíu. Það leiddi síðan til áframhaldandi lækkana á mörkuðum í Bandaríkjunum. FTSE vísitalan í Lundúnum lækkaði um 2% og markaðsvirði fyrirtækja þar lækkaði um alls 98 milljarða sterlingspunda, eða um tæpar 13 billjónir íslenskra króna. Þetta hefur leitt til þess að markaðssérfræðingar eru farnir að halda að lækkunin eigi eftir að halda áfram um einhvern tíma. 1.3.2007 18:00
Fyrstu friðargæsluliðar Afríkusambandsins komnir til Sómalíu Fámennt lið friðargæsluliða frá Úganda er komið til Baidoa í Sómalíu, aðseturs stjórnvalda í landinu. Þeir eru hluti af liðsafla friðargæsluliða Afríkusambandsins en samtals verða 1.500 hermenn frá Úganda í því liði. Í því eiga að verða 8.000 hermenn en hingað til hefur aðeins tekist að fá vilyrði fyrir 4.000 mönnum. 1.3.2007 17:26
Staðgengill óskast til flengingar Kínverskur kaupsýslumaður hefur auglýst eftir ungri konu sem er til í að láta flengja sig, gegn greiðslu. Kínverskir fjölmiðlar segja að eiginkona mannsins hafi reiðst mjög þegar hún komst að því að hann átti ástkonu. Hún krafðist þess að fá að flengja ástkonuna, að öðrum kosti myndi hún skilja við manninn. 1.3.2007 16:03
Alvöru koss Rúmenskt par flýtti sér á sjúkrahús eftir ástarleik sem var svo ákafur að konan gleypti gervitennur elskhuga síns. Læknar á sjúrahúsinu ætluðu varla að trúa sínum eigin eyrum, þegar þeir heyrðu ástæðuna fyrir sjúkrahúsheimsókninni. Þeir urðu þó að trúa sínum augum, því gervitennurnar sáust skýrt og greinilega á röntgenmynd. 1.3.2007 15:41
Eiga von á liðsauka frá allri Evrópu Íbúar ungdómshússins í Kaupmannahöfn segja að þeir eigi von á liðsauka allsstaðar að úr Evrópu. Ritt Bjerregård, borgarstjóri Kaupmannahafnar, hefur stytt frí sitt í Noregi og er á leið til höfuðborgarinnar. Íbúarnir reyna nú að koma af stað óeirðum í öðrum borgarhlutum, þar sem enginn kemst í gegnum 1.3.2007 15:16
Áfram hlegið Íbúum sænska smábæjarins Fjuckby hefur verið synjað um leyfi til þess að breyta nafni bæjarins. Íbúarnir eru 50 talsins og 15 þeirrra voru orðnir svo þreyttir á dónalegum athugasemdum sem þeir fá þegar þeir sögðu hvaðan þeir eru, að þeir sóttu um leyfi til þess að breyta nafninu. Þessar dónalegu athugasemdir tengjast kynferðislegum athöfnum, eins og hægt er að ímynda sér, með tilliti til nafnsins. 1.3.2007 14:33
Raunveruleikaþáttur um Davíð og Viktoríu Vel verður fylgst með vistaskiptum Beckham-hjónanna sem flytja innan tíðar frá Spáni til Bandaríkjanna þegar knattspyrnukappinn David Beckham gengur til liðs við lið Los Angeles Galaxy frá Real Madríd. Spáð er fjölmiðlafári og hefur bandaríska sjónvarpsstöðin NBC samið um að fá að mynda flutninginn og sýna í raunveruleikaþáttaröð. 1.3.2007 13:00
Merkri sögu Ungdomshuset að ljúka Í dag lauk langri sögu Ungdomshuset sem hefur verið vinsæll samkomustaður fyrir ungmenni Kaupmannahafnar í marga áratugi. Átökin milli þeirra og borgaryfirvalda hafa stigmagnast á síðustu misserum og náðu hámarki með rýmingu hússins í morgun. Fróðlegt er að skoða forsögu hússins í ljósi atburða dagsins. 1.3.2007 12:15
Umsátur á Norðurbrú Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup á Ungdomshuset á Norðurbrú í morgun og rýmdi það á svipstundu. Til harðra átaka hefur komið. Óeirðir eru einnig að brjótast út í Kristjaníu þar sem ungmenni hafa reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. 1.3.2007 12:04
Pólár Sameinuðu þjóðanna hefst á morgun Fleiri en 60 þjóðir taka þátt í umfangsmestu vísindarannsókn á heimsskautasvæðunum en hún hefst á morgun. Hún á meðal annars að kortleggja svæðin sem að eru í hættu að bráðni vegna loftslagsbreytinga. 3.000 börn í Osló munu búa til snjókarla, virtir vísindamenn munu funda í París og hópur rannsóknarmanna leggur af stað frá Höfðaborg í Suður-Afríku áleiðis til Suður-Heimsskautsins. 28.2.2007 23:45
Vínið lengir lífið Að drekka lítið magn af víni á hverjum degi - minna en eitt glas á dag - eykur lífslíkur karlmanna um nokkur ár. Þetta kom fram í rannsókn hollenskra rannsóknarmanna sem var kunngjörð í hófi bandarískra hjartalækna í Flórídaríki í Bandaríkjunum í kvöld. 28.2.2007 23:20
Reykingar bannaðar á opinberum stöðum í Þýskalandi Þýska ríkisstjórnin samþykkti í dag frumvarp sem á að banna reykingar í almenningssamgöngum og opinberum byggingum. Þó verður hægt að segja upp sérstök reykherbergi á stöðum þar sem bannað verður að reykja. 28.2.2007 22:49
Evrópusambandið dregur úr herafla í Bosníu-Hersegóviníu Evrópusambandið ætlar að draga úr herafla sínum í Bosníu-Hersegóviníu. Herafli sambandsins var um 6.500 hermenn en mun fækka niður í 2.500 á næstu mánuðum. 28.2.2007 22:23
Anna Nicole verður jörðuð á Bahamas-eyjum Áfrýjunardómstóll í Flórídaríki í Bandaríkjunum hefur hafnað því að móðir Önnu Nicole Smith fái lík hennar afhent. Því er nú ljóst að Anna Nicole verður brátt lögð til hinstu hvílu á Bahamas-eyjunum. Fylkisdómstóll hafði áður hafnað kröfu móður Önnu, Virgie Arthur, en hún var að reyna að fá að grafa dóttur sína í Texasríki þar sem hún var fædd. Sérstakur umsjónarmaður var skipaður til þess að sjá um útför Önnu Nicole og hefur hann þegar hafið undirbúning að jarðarför hennar. 28.2.2007 22:00
Íranar ætla að taka þátt í ráðstefnunni í Írak Íranar hafa sagt að þeir ætli sér að taka þátt í ráðstefnu í Írak þann 10. mars næstkomandi. Ali Larijani, æðsti samningamaður Írana í kjarnorkumálum, sagði að Íranar séu tilbúnir til þess að beita hvaða ráðum sem er til þess að leysa vandamál Íraks. 28.2.2007 21:30
Prodi fær stuðning þingsins Forsætisráðherra Ítalíu, Romano Prodi, vann stuðningsyfirlýsingu í öldungadeild ítalska þingsins í kvöld. Yfirlýsingin bindur endi á þá krísu sem hefur verið í ítölskum stjórnmálum undanfarna viku. Prodi bauðst þá til þess að segja af sér eftir að frumvarp sem hann hafði lagt fram varðandi utanríkisstefnu Ítalíu var fellt. 28.2.2007 21:00
Myrti börnin sín fimm Belgísk kona myrti fimm börn sín og reyndi svo að taka eigið líf. Lögregla í bænum Nivelles, sem er um 30 kílómetra fyrir sunnan Brussel, skýrði frá þessu í dag. Lögreglan sagði að hún hefði fundið lík barnanna fimm sem voru á aldrinum þriggja til 14 ára. 28.2.2007 20:15
Viggó viðutan er fimmtugur Viggó Viðutan er fimmtugur í dag en þessi klaufi hefur komið mörgum til að hlæja með eindæma bögglulegri framgöngu sinni. 28.2.2007 19:45
Áhrif lækkunarinnar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum mátti finna á Íslandi Hlutabréf héldu áfram að lækka í Asíu og í Evrópu í morgun, annan daginn í röð, í kjölfar mikillar lækkunar á kínverska hlutabréfamarkaðinum í fyrradag. Áhrif lækkunarinnar mátti merkja hér á Íslandi annan daginn í röð. 28.2.2007 19:30
Lögreglumenn sprautuðu á slökkviliðsmenn Slökkviliðsmönnum og lögreglumönnum laust saman í Belgíu dag þegar þeir fyrrnefndu þustu út á götur borgarinnar til að mótmæla kjörum sínum. Lögreglan brást við með því að sprauta bókstaflega slökkviliðsmönnunum af götum Brusselborgar með vatnsslöngum.Talið er að um þrettán hundruð slökkviliðsmenn hafi verið samankomnir í miðborg Brussel og var andrúmsloftið afar eldfimt. Þrír lögreglumenn og tveir slökkviliðsmenn særðust. Ástæðan fyrir andófi belgísku slökkviliðsmannanna er sú að þeir vilja fá meiri menntun og fulla viðurkenningu á því að starf þeirra sé áhættusamt. 28.2.2007 19:15
10 þúsund manns sagt upp hjá Airbus Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus hefur tilkynnt að tíu þúsund starfsmönnum verði sagt upp störfum víðsvegar um Evrópu á næstu fjórum árum. Flestum verður sagt upp í Frakklandi og Þýskalandi. 28.2.2007 19:00
Enginn snjór féll í Tókíó í vetur Engin snjór féll á þessum vetri í japönsku borginni Tókíó og er það í fyrsta sinn síðan árið 1876 sem það gerist. Veðurstofan í Japan skilgreinir tímabilið frá desember út febrúar sem vetur. 28.2.2007 18:00
Bandaríkin og Norður Kórea funda Norður Kóreumenn munu funda með Bandaríkjamönnum í New york 5.-6. mars og ræða hvernig hægt er að koma samskiptum landanna í eðlilegt horf. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjamanna er ekki búist við byltingu í samskiptum landanna eftir þennan fyrsta fund. Sean McCormack talsmaður ráðuneytisins sagði: "Enginn mun veifa skjali um samkomulag eftir fundinn í næstu viku." 28.2.2007 16:13
Slökkviliðsmenn og lögregla slógust Sex slösuðust í mótmælagöngu tvö þúsund slökkviliðsmanna sem leystist upp í átök við lögreglu í Belgíu í dag. Átökin brutust út þegar þrjú hundruð lögreglumenn reyndu að koma í veg fyrir að slökkviliðsmönnunum tækist að brjótast inn á öryggissvæði við belgíska þingið. Slökkviliðsmennirnir mótmæla vinnuaðstæðum, fara fram á að fara fyrr á eftirlaun og fá betri bætur ef þeir slasast. 28.2.2007 15:16
Fjórir létust þegar lest fauk af sporinu Að minnsta kosti fjórir létust og 30 slösuðust þegar hluti kínverskrar farþegalestar fauk af sporinu í mjög öflugum vindhviðum í Kína í dag. Ellefu vagnar lestarinnar fuku af sporinu og gluggarúður brustu þegar fárviðri skall á í norðvesturhluta landsins. Haft er eftir embættismönnum að veðrið hafi skollið á stuttu eftir að lestin fór frá Turpan stöð í Xinjiang héraði. 28.2.2007 14:26
61 árs kona ól barn í Danmörku 61 árs gömul kona fæddi stúlkubarn á Ríkisspítalunum í Kaupmannahöfn fyrir rúmri viku, að sögn Ekstra blaðsins. Konan er elsta kona sem fætt hefur barn í Danmörku og sú níunda elsta í heimi. Hún er á eftirlaunum og hafði farið í tæknifrjóvgun í Englandi vegna 45 ára efra aldurstakmarks kvenna í tæknifrjóvgunum í Danmörku. Barnið vóg 12 merkur. 28.2.2007 13:43
Óttast minniháttar flóðbylgju Yfirvöld á Ítalíu óttast að eldgosið á Stromboli eyju geti skapað minniháttar flóðbylgju. Árið 2002 voru nær allir íbúar fluttir af eynni þegar skriðufall orsakaði bylgju og nokkrir slösuðust. Yfirvöld óttast að eldgosið nú gæti komið jarðfalli af stað en telja íbúana á eynni aðeins í lítilli hættu. Stromboli er 60 kílómetra norður af Sikiley og er þekkt fyrir minniháttar eldsumbrot. 28.2.2007 13:19
Áframhaldandi lækkun á hlutabréfum Hlutabréf héldu áfram að lækka í Asíu og Evrópu í morgun annan daginn í röð í kjölfar mikillar lækkunar á kínverska hlutabréfamarkaðnum í fyrradag. Hlutabréfavísitölur á Norðurlöndunum lækkuðu töluvert og áhrif þessarar lækkunar mátti merkja hér á Íslandi annan daginn í röð. 28.2.2007 12:08
Íraskir bræður stjórnmálamanns myrtir Byssumenn drápu tvo bræður mikilsmetins súnní stjórnmálamans í hverfi uppreisnarmanna í norður Baghdad í dag. Mennirnir voru bræður hófsama stjórnmálamannsins Saleem al-Jubouri, talsmanns stærsta súnní flokksins á íraska þinginu. Hann sagði fréttamönnum Reuters að bræður hans, Fuad og Ahmed, hafi látist samstundis þegar uppreisnarmenn skutu á þá í Diyala. 28.2.2007 11:26
Picasso-málverkum stolið Tveimur málverkum eftir Pablo Picasso hefur verið stolið af heimili barnabarns málarans í París. Verðmæti myndanna er rúmlega fjögur hundruð milljónir íslenskra króna. Sky fréttastofan hefur þetta eftir lögreglu á staðnum en hún vinnur nú að rannsókn málsins. 28.2.2007 10:51
Tíu létust í bílasprengju í Baghdad Tíu manns létust og 21 slasaðist nálægt grænmetismarkaði í Baghdad í Írak í dag. Þetta er haft eftir lögreglu sem segir að sprengjan hafi sprungið við verslunargötu í Bayaa hverfi írösku höfuðborgarinnar. Í hverfinu búa bæði síjar og súnnar og mikil mannmergð er vanalega á verslunargötunni. 28.2.2007 10:31
Bandarískum háskóla lokað vegna sprengjuhótunar Loka þurfti háskóla í Kansas borg í Missouri ríki í Bandaríkjunum í dag eftir að nemandi þarf sagðist hafa sprengju og miltisbrand meðferðis. Lögregla þar skýrði frá þessu í dag. 27.2.2007 23:31
Þrír franskir hjálparstarfsmenn myrtir í Brasilíu Þrír franskir hjálparstarfsmenn voru stungnir til bana á hótelherbergi sínu í Rio de Janeiro, höfuðborg Brasilíu, í dag. Lögreglan sagði að brasilískur samstarfsmaður þeirra, Tarsio Wilson Ramires, hefði játað að eiga þátt í morðunum. 27.2.2007 23:03
Bandaríkin munu sitja ráðstefnu í Írak Bandaríkin hafa staðfest að þau muni sækja ráðstefnu sem stjórnvöld í Írak ætla sér að halda í Apríl. Á henni verða meðal annars fulltrúar frá Íran og Sýrlandi. 27.2.2007 21:30
För Atlantis frestað Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, skýrði frá því í kvöld að hún yrði að fresta skoti geimskutlunnar Atlantis. Henni átti að skjóta upp þann 15. mars næstkomandi. Ástæðan fyrir þessu eru skemmdir á ytra byrði hennar. 27.2.2007 21:15
Súdan framselur ekki grunaða stríðsglæpamenn Stjórnvöld í Súdan ætla sér ekki að framselja þá tvo einstaklinga sem saksóknarar alþjóðaglæpadómstólsins í Haag nefndu í ákærum sínum vegna rannsókna á stríðsglæpum í Darfur. Súdan sagði að dómstóllinn hefði enga lögsögu í landinu og að þeirra eigin dómstólar væru fyllilega hæfir til þess að sjá um málsóknir af þessu tagi. 27.2.2007 20:45
Hinsti hvílustaður frelsarans sagður fundinn Jesús átti í ástarsambandi við Maríu Magdalenu og þau áttu son. Þetta er staðhæft í nýrri heimildarmynd bandaríska leikstjórans James Cameron þar sem segir að hinsti hvílustaður frelsarans sé fundinn. 27.2.2007 19:30
Átta ára og tæp 100 kíló Bresk yfirvöld íhuguðu það að taka átta ára dreng frá móður sinni og setja í öryggisgæslu vegna offitu. Drengurinn er rétt tæp 100 kíló, rúmlega þrefalt þyngri en jafnaldrar hans. 27.2.2007 19:15
Írakar ætla að funda með G8 Stjórnvöld í Írak ætla sér að koma á fundi háttsettra ráðamanna nágrannaríkja sinna ásamt fulltrúum G8 hópsins svokallaða. Þau ætla að reyna að halda fundinn strax í byrjun Apríl og á tilgangur hans að vera að koma á ró í landinu. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá þessu í kvöld. 27.2.2007 18:54
Íbúar í Uppsölum slegnir Sex létust þegar tveir strætisvagnar á leið í gagnstæða átt rákust saman rétt utan við borgina Uppsali í Svíþjóð í morgun. Á fimmta tug til viðbótar slösuðust, þar af nokkrir lífshættulega. Ekki er vitað til þess að nokkrir Íslendingar hafi verið í vögnunum þegar slysið varð. 27.2.2007 18:45
Bandaríkjamenn sprengja og slasa 30 Íraka Talsmenn bandaríska hersins í Írak sögðu að þeir hefðu sprengt upp sprengju í námunda við fótboltavöll í borginni Ramadi og að 30 hefðu slasast. Þar á meðal voru níu börn. Enginn hefði þó látið lífið. Írösk lögregla og ættbálkaleiðtogar sögðu frá því í dag að sprengjuárás nálægt knattspyrnuvelli hefði banað 18 manns og að meirihluti þeirra hefðu verið börn. 27.2.2007 18:35