Fleiri fréttir Tony Blair yfirheyrður Breska lögreglan yfirheyrði Tony Blair forsætisráðherra í annað sinn í morgun vegna rannsóknar á fjármálum og fjármögnun stjórnmálaflokka. Þetta upplýsti talsmaður forsætisráðherrans í morgun. Hann sagði ennfremur að Blair hafi réttarstöðu vitnis í málinu. Blair var áður yfirheyrður um sama mál í byrjun desember. 1.2.2007 11:35 Jesús elskar Ósama „Jesús elskar Ósama" stendur á skiltum fyrir utan kirkjur í Ástralíu. Þessi fullyrðing hefur vakið reiði hjá sanntrúuðum og kirkjusæknum Áströlum þó að þeir hafi neyðst til að viðurkenna að sennilega sé þetta hárrétt miðað við trúarbókstafinn. 1.2.2007 11:19 Tortilla-mótmæli í Mexíkó Tugir þúsunda gengu um götur Mexíkóborgar í gær til að mótmæla verðhækkunum á Tortilla-maíspönnukökum. Verðið á þessari algengustu fæðu Mexíkóa hækkaði nýverið um heil 400%. Ástæðan er sögð vera hækkandi verð á maís, meðal annars vegna þess að Bandaríkjamenn bjóða sífellt hærra verð í maísolíu sem er nýtt sem umhverfisvænt eldsneyti. 1.2.2007 10:46 Þjóðverjar lögsækja 13 útsendara CIA Þjóðverjar vilja handtaka 13 útsendara CIA, bandarísku leyniþjónustunnar fyrir mannrán á þýskum manni af líbönskum uppruna. Þýskur dómstóll gaf í gær út handtökuskipanir á útsendarana. Þetta er stærsta dómsmál sem CIA hefur staðið frammi fyrir til þessa. 1.2.2007 10:28 Pútín tilnefnir ekki eftirmann Vladímír Pútín Rússlandsforseti ætlar ekki að tilnefna eftirmann sinn, en hann ætlar sér að hætta fyrir kosningar 2008. „Það verður enginn arftaki. Markmið stjórnvalda er að halda lýðræðislegar kosningar", sagði Pútín í morgun á árlegum fréttamannafundi. 1.2.2007 09:58 Írak ekki vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, er þess fullviss að Íranar standi á bakvið nokkrar af þeim árásum sem gerðar hafa verið á bandaríska hermenn í Írak. Í viðtali sem fréttamaður bandarísku fréttastöðvarinnar CNN tók við hann sagði al-Maliki að hann myndi ekki leyfa það að Írak yrði vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana. 31.1.2007 22:50 Níu manns handteknir í aðgerðum bresku lögreglunnar Níu manns voru handteknir í nótt, í aðgerðum bresku lögreglunnar, grunaðir um undirbúning hryðjuverka í Bretlandi. Íbúar í Birmingham, þar sem handtökurnar fóru fram, eru felmtri slegnir og hissa. 31.1.2007 18:30 Bara ríkið Þúsundir stúdenta og kennara fóru í mótmælagöngu í Aþenu í dag, til þess að mótmæla endurbótum stjórnvalda á menntakerfinu, sem meðal annars felur í sér að einkareknir háskólar verða leyfðir. 31.1.2007 16:54 Svörtum íbúum Frakklands misboðið 31.1.2007 16:44 Bretar safna liði gegn hvalveiðum 31.1.2007 16:37 Tétsenar heiðra Krúsjoff Tétesenar endurskírðu í dag torg í höfuðborg sinni Grozny, eftir Nikita Krúsjoff, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Ástæðan fyrir þessum heiðri er sú að fyrir fimmtíu árum leyfði Krúsjoff Tétsenum að snúa aftur heim til sín úr útlegð. 31.1.2007 16:23 Mágur Osamas myrtur á Madagaskar Óþekktir byssumenn myrtu í dag mág Ósamas bin Laden, á eynni Madagaskar, sem er undan suðausturströnd Afríku. Jamal Khalifa átti þar demantanámu, og verslaði með eðalsteina. Tíu til tuttugu byssumenn eru sagðir hafa ráðist inn á heimili hans, skotið hann til bana, og stolið ýmsum eigum hans. 31.1.2007 15:41 Skaðræðisrollur í sælgætisleit Ný umhverfisvæn saltkorn sem notuð eru til að selta hála vegi í Wales í Bretlandi hafa reynst of góð – alla vega hjá kindurm í nágrenninu. Sykur-líkur hjúpur saltsins þykir það bragðgóður hjá sauðunum í Flintshire að þeir flokkast upp á vegina eftir að saltbíllinn hefur farið hjá, og borða saltið upp til agna. Hið umhverfisvæna salt er húðað sykurhlaupi svo það festist betur í hálku í stað þess að renna eða fjúka af veginum. 31.1.2007 15:26 Steinaldarþorp í grennd við Stonehenge Breskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir af stóru þorpi í grennd við Stonehenge, sem talið er að hafi tengst hinum fornu steinhleðslum. Þorpið er þá um 4600 ára gamalt og það stærsta sem fundist hefur í Bretlandi, frá síðari hluta steinaldar. Fornleifafræðingarnir telja sig hafa fundið tuttugu og fimm húsastæði og telja að þau séu mun fleiri. Þá grunar að íbúarnir hafi unnið við að reisa Stonhenge. 31.1.2007 14:50 Reyktu lyfin þín Bandarískt lyfjafyrirtæki er að þróa lyf sem hægt er að reykja, og hafa því áhrif þegar í stað, rétt eins og nikótín. Öll lyfjafyrirtæki leggja áherslu á að lyf þeirra hafi skjót áhrif, sérstaklega ef um er að ræða lyf við mígreni, verkjum eða ofsahræðslu. Staðreyndin er hinsvegar sú að lyfin taka frá fimmtán mínútum og upp í klukkustund, að virka. 31.1.2007 14:13 Fjórar milljónir hafa flúið í Írak 31.1.2007 13:55 Fjórir látnir í fjölskylduharmleik í Stafangri Tveir fullorðnir og tvö börn hafa fundist látin í íbúð í Storhaug í Stafangri í Noregi. Frá þessu er greint á vef Stavanger Aftenblad. Haft er eftir lögreglu, sem er nýkomin á staðinn að um fjölskylduharmleik sé að ræða. 31.1.2007 13:36 Olmert íhugar að víkka aðskilnaðarmúrinn Forsætisráðherra Ísraels er að kanna hvort víkka eigi aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum, til þess að hann umljúki tvær landnemabyggðir Gyðinga, sem þar eru. Það myndi hafa í för með sér að tugþúsundir Palestínumanna yrðu girtir af, frá sinni heimabyggð. Hæstiréttur Ísraels hefur oft gripið í taumana þegar þetta hefur verið reynt. 31.1.2007 13:26 Kenndi börnunum að drekka og reykja Lögreglan í Varsjá hefur yfirheyrt pólskan föður vegna grunsemda um að hann hafi kennt ungum sonum sínum að drekka og reykja. Eiginkona mannsins sýndi lögreglu myndskeið úr farsíma af manninum með fjórum sonum þeirra sem eru á aldrinum tveggja til átta ára. Mariuxz Lechniak, 35 ára frá Varsjá, mun hafa sagt lögreglu að hann vildi vera viss að synir hans yrðu “alvöru menn.” 31.1.2007 12:50 Dauðum gæludýrum umbreytt í demanta Gæludýraeigendur geta nú breytt dauðum gæludýrum sínum í demanta. Demantarnir eru framleiddir úr kolefni frá ösku dýranna sem fengið er frá dýralíkbrennsluhúsi í Hertfordshire í Bretlandi. Líkbrennslan tekur fyrir frá tæplega þrjú hundruð þúsundum króna upp í tvær milljónir eftir stærð demantsins. Duncan Francis talsmaður fyrirtækisins sagði dagblaðinu Metro að demantur kæmi á eilífri tengingu við gæludýrið og sumum þætti mikil huggun í því. 31.1.2007 12:09 Aðildarviðræður frestist nema Mladic verði framseldur Yfirsaksóknari glæpamannadómstóls Sameinuðu þjóðanna vegna stríðsglæpa í fyrrum Júgóslavíu skoraði á Evrópusambandið í dag að fresta aðildarviðræðum við Serbíu þar til eftirlýstir stríðsglæpamenn hafa verið framseldir. 31.1.2007 11:54 Nekt danska umferðarráðsins mest skoðuð á netinu Nekt selur og netið er öflugur miðill. Þessar staðreyndir sönnuðust enn á ný í herferð danska umferðaröryggisráðsins (RFFS) í nóvember sl, þar sem notast var við nútímalegar en jafnframt djarfar aðferðir til að ná niður ökuhraða á dönskum vegum. Markmiðið var að ná til þeirra ökumanna sem mestum skaða valda með hraðakstri: ungra karlkyns bílstjóra. Útbúið var myndskeið með berbrjósta hraðaeftirlitsmönnum og sett í sjálfvirka dreifingu á netinu. 31.1.2007 11:35 Milljónum dollara sóað í Írak Milljónir dollara sem bandaríkjamenn veittu til enduruppbyggingar í Írak hefur verið sóað, segja bandarískir endurskoðendur í skýrslu til Bandaríkjaþings sem varar við spillingu. Ónotaðar æfingabúðir fyrir lögreglumenn í Baghdad með risasundlaug er eitt af mannvirkjunum sem endurskoðendurnir benda á máli sínu til stuðnings. Milljarður íslenskra króna sem veittur hefur verið til uppbyggingar er enn ónotaður af íröskum stjórnvöldum. 31.1.2007 11:30 Ísraelskur ráðherra sakfelldur Ísraelskur dómstóll sakfelldi í dag dómsmálaráðherrann fyrrverandi Haim Ramon fyrir kynferðislega áreitni við konu í ísraelska hernum. Ramon sagði af sér í ágúst eftir að ákæra var gefin út á hendur honum. Sakir hans voru að hafa þröngvað konu í hernum til að kyssa sig eftir að hún bað hann um að mynd af þeim saman. 31.1.2007 11:13 Ísraelar ráðast gegn Heilögu stríði Ísraelsher ætlar að ráðast gegn palestínsku andspyrnu og hryðjuverkasamtökunum Heilögu stríði, eða Islamic Jihad. Þetta var ákveðið í gærkvöldi eftir samráðsfund forsætis- og varnarmálaráðherra landsins með yfirmönnum hersins. 31.1.2007 10:44 Kjúklingur með andarfit Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða. 30.1.2007 19:30 Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. 30.1.2007 19:00 Vopnahléið að mestu virt Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta. 30.1.2007 18:45 Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala. 30.1.2007 18:30 55 nunnur á flótta undan löggunni Fimmtíu og fimm grískar nunnur, úr tveimur klaustrum, eru farnar í felur eftir að prjónaverksmiðja sem þær stofnuðu, fór á hausinn. Klaustur þeirra, eru nú auð og yfirgefin og enginn veit hvar hinar skuldugu þernur Krists eru niðurkomnar. 30.1.2007 16:33 DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. 30.1.2007 16:02 Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. 30.1.2007 15:36 Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. 30.1.2007 14:39 Netníðingur fékk níu ár 30.1.2007 14:15 Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. 30.1.2007 13:44 Vilja aflétta banni af Palestínumönnum 30.1.2007 13:28 Tók ekki linsurnar úr í heilt ár Fjarlægja þurfti augnlinsur úr kínverskum manni með uppskurði eftir að hann hafði þær í augunum í heilt ár. Liu sem er fertugur fékk linsur fyrir ári síðan. Hann tók þær ekki úr augunum, því honum fannst það erfitt. Þegar hann fann fyrir óþægindum notaði hann augndropa. Fyrir stuttu fannst honum sjónin vera að versna og brá þá á það ráð að kaupa nýjar linsur, sem hann setti yfir þær gömlu. 30.1.2007 13:11 Vantar helming upp á friðargæslulið í Sómalíu Fulltrúar ríkja Afríkusambandsins reyndu í dag að safna í friðargæslulið til að taka við af herliði Eþíópíumanna sem hjálpaði stjórnarher Sómalíu við að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Markmiðið er að fá að lágmarki 8.000 hermenn til að gæta stöðugleikans í landinu en enn vantar helminginn upp á að það markmið náist. 30.1.2007 12:30 Aðalritari SÞ boðar til fundar um umhverfismál Ban ki-moon nýskipaður aðalritari Sameinuðu þjóðanna leggur nú drög að neyðarfundi í september á þessu ári. Þar mun helstu þjóðhöfðingjum heims verða stefnt saman til að ræða þau umhverfisvandmál sem steðja að heimurinn og leita leiða til að fylgja ákvæðum Kyoto-bókunnarinnar um hækkum hitastigs jarðar. 30.1.2007 12:08 "Bleika mjólkurvandamálið" leyst Bónda á Jersey í Bretlandi brá heldur betur í brún þegar kýrnar hans fóru allt í einu að framleiða bleika mjólk. Í ljós kom að eftir að bóndinn Peter Houghuez fór að gefa þeim gulrætur með heyinu, litaðist mjólkin. Peter brá þá á það ráð að gefa þeim hvítar gulrætur í staðinn sem hann keypti frá Frakklandi. Í dagblaðinu Metro sagði bóndinn að kýrnar væru "brjálaðar í gulrætur." 30.1.2007 11:50 Níu ára sjónvarpskokkur í Kína Níu ára gömul stúlka frá Shanghai í Kína er með sinn eigin matreiðsluþátt í sjónvarpi. Shi Yulan er auk þess að skrifa sína fyrstu matreiðslubók, en samkvæmt dagblaðinu Qianjiang Evening News hefur hún unnið í eldhúsinu heima hjá sér frá því hún gat staðið í lappirnar. Shi segist hafa hjálpað mömmu sinni í eldhúsinu frá því hún var tveggja ára með því að þvo leirtau. 30.1.2007 11:39 Manchester fær spilavítið Manchester hefur unnið keppnina um að fá að reisa fyrsta stóra spilavítið í Bretlandi, í anda spilaborgarinnar Las Vegas. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir gímaldið Þúsaldarhöllina á suðurbakka Thames-árinnar í London og Blackpool-bæ sem einnig vildu hýsa spilavélar og peningaplokkara. 30.1.2007 11:27 Svíar opna sýndarsendiráð Svíþjóð verður fyrsta landið til að opna sýndarsendiráð í tölvuleiknum Second Life. Nokkur stórfyrirtæki hafa þegar opnað útibú í sýndarheimnum þar sem rúmlega þrjár milljónir spilara eyða stórum hluta af sínum frítíma, eða jafnvel öllum sínum tíma. 30.1.2007 11:08 Hamas og Fatha semja um vopnahlé Meðlimir Hamas-samtakanna og Fatha-hreyfingarinnar í Palestínu hafa samþykkt vopnahlé. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir Mahmoud al-Zahar, utanríkisráðherra Palestínu, en fylkingarnar ætla að leggja niður vopn sín klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. 29.1.2007 22:06 Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. 29.1.2007 19:02 Sjá næstu 50 fréttir
Tony Blair yfirheyrður Breska lögreglan yfirheyrði Tony Blair forsætisráðherra í annað sinn í morgun vegna rannsóknar á fjármálum og fjármögnun stjórnmálaflokka. Þetta upplýsti talsmaður forsætisráðherrans í morgun. Hann sagði ennfremur að Blair hafi réttarstöðu vitnis í málinu. Blair var áður yfirheyrður um sama mál í byrjun desember. 1.2.2007 11:35
Jesús elskar Ósama „Jesús elskar Ósama" stendur á skiltum fyrir utan kirkjur í Ástralíu. Þessi fullyrðing hefur vakið reiði hjá sanntrúuðum og kirkjusæknum Áströlum þó að þeir hafi neyðst til að viðurkenna að sennilega sé þetta hárrétt miðað við trúarbókstafinn. 1.2.2007 11:19
Tortilla-mótmæli í Mexíkó Tugir þúsunda gengu um götur Mexíkóborgar í gær til að mótmæla verðhækkunum á Tortilla-maíspönnukökum. Verðið á þessari algengustu fæðu Mexíkóa hækkaði nýverið um heil 400%. Ástæðan er sögð vera hækkandi verð á maís, meðal annars vegna þess að Bandaríkjamenn bjóða sífellt hærra verð í maísolíu sem er nýtt sem umhverfisvænt eldsneyti. 1.2.2007 10:46
Þjóðverjar lögsækja 13 útsendara CIA Þjóðverjar vilja handtaka 13 útsendara CIA, bandarísku leyniþjónustunnar fyrir mannrán á þýskum manni af líbönskum uppruna. Þýskur dómstóll gaf í gær út handtökuskipanir á útsendarana. Þetta er stærsta dómsmál sem CIA hefur staðið frammi fyrir til þessa. 1.2.2007 10:28
Pútín tilnefnir ekki eftirmann Vladímír Pútín Rússlandsforseti ætlar ekki að tilnefna eftirmann sinn, en hann ætlar sér að hætta fyrir kosningar 2008. „Það verður enginn arftaki. Markmið stjórnvalda er að halda lýðræðislegar kosningar", sagði Pútín í morgun á árlegum fréttamannafundi. 1.2.2007 09:58
Írak ekki vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, er þess fullviss að Íranar standi á bakvið nokkrar af þeim árásum sem gerðar hafa verið á bandaríska hermenn í Írak. Í viðtali sem fréttamaður bandarísku fréttastöðvarinnar CNN tók við hann sagði al-Maliki að hann myndi ekki leyfa það að Írak yrði vígvöllur Bandaríkjamanna og Írana. 31.1.2007 22:50
Níu manns handteknir í aðgerðum bresku lögreglunnar Níu manns voru handteknir í nótt, í aðgerðum bresku lögreglunnar, grunaðir um undirbúning hryðjuverka í Bretlandi. Íbúar í Birmingham, þar sem handtökurnar fóru fram, eru felmtri slegnir og hissa. 31.1.2007 18:30
Bara ríkið Þúsundir stúdenta og kennara fóru í mótmælagöngu í Aþenu í dag, til þess að mótmæla endurbótum stjórnvalda á menntakerfinu, sem meðal annars felur í sér að einkareknir háskólar verða leyfðir. 31.1.2007 16:54
Tétsenar heiðra Krúsjoff Tétesenar endurskírðu í dag torg í höfuðborg sinni Grozny, eftir Nikita Krúsjoff, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Ástæðan fyrir þessum heiðri er sú að fyrir fimmtíu árum leyfði Krúsjoff Tétsenum að snúa aftur heim til sín úr útlegð. 31.1.2007 16:23
Mágur Osamas myrtur á Madagaskar Óþekktir byssumenn myrtu í dag mág Ósamas bin Laden, á eynni Madagaskar, sem er undan suðausturströnd Afríku. Jamal Khalifa átti þar demantanámu, og verslaði með eðalsteina. Tíu til tuttugu byssumenn eru sagðir hafa ráðist inn á heimili hans, skotið hann til bana, og stolið ýmsum eigum hans. 31.1.2007 15:41
Skaðræðisrollur í sælgætisleit Ný umhverfisvæn saltkorn sem notuð eru til að selta hála vegi í Wales í Bretlandi hafa reynst of góð – alla vega hjá kindurm í nágrenninu. Sykur-líkur hjúpur saltsins þykir það bragðgóður hjá sauðunum í Flintshire að þeir flokkast upp á vegina eftir að saltbíllinn hefur farið hjá, og borða saltið upp til agna. Hið umhverfisvæna salt er húðað sykurhlaupi svo það festist betur í hálku í stað þess að renna eða fjúka af veginum. 31.1.2007 15:26
Steinaldarþorp í grennd við Stonehenge Breskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir af stóru þorpi í grennd við Stonehenge, sem talið er að hafi tengst hinum fornu steinhleðslum. Þorpið er þá um 4600 ára gamalt og það stærsta sem fundist hefur í Bretlandi, frá síðari hluta steinaldar. Fornleifafræðingarnir telja sig hafa fundið tuttugu og fimm húsastæði og telja að þau séu mun fleiri. Þá grunar að íbúarnir hafi unnið við að reisa Stonhenge. 31.1.2007 14:50
Reyktu lyfin þín Bandarískt lyfjafyrirtæki er að þróa lyf sem hægt er að reykja, og hafa því áhrif þegar í stað, rétt eins og nikótín. Öll lyfjafyrirtæki leggja áherslu á að lyf þeirra hafi skjót áhrif, sérstaklega ef um er að ræða lyf við mígreni, verkjum eða ofsahræðslu. Staðreyndin er hinsvegar sú að lyfin taka frá fimmtán mínútum og upp í klukkustund, að virka. 31.1.2007 14:13
Fjórir látnir í fjölskylduharmleik í Stafangri Tveir fullorðnir og tvö börn hafa fundist látin í íbúð í Storhaug í Stafangri í Noregi. Frá þessu er greint á vef Stavanger Aftenblad. Haft er eftir lögreglu, sem er nýkomin á staðinn að um fjölskylduharmleik sé að ræða. 31.1.2007 13:36
Olmert íhugar að víkka aðskilnaðarmúrinn Forsætisráðherra Ísraels er að kanna hvort víkka eigi aðskilnaðarmúrinn á Vesturbakkanum, til þess að hann umljúki tvær landnemabyggðir Gyðinga, sem þar eru. Það myndi hafa í för með sér að tugþúsundir Palestínumanna yrðu girtir af, frá sinni heimabyggð. Hæstiréttur Ísraels hefur oft gripið í taumana þegar þetta hefur verið reynt. 31.1.2007 13:26
Kenndi börnunum að drekka og reykja Lögreglan í Varsjá hefur yfirheyrt pólskan föður vegna grunsemda um að hann hafi kennt ungum sonum sínum að drekka og reykja. Eiginkona mannsins sýndi lögreglu myndskeið úr farsíma af manninum með fjórum sonum þeirra sem eru á aldrinum tveggja til átta ára. Mariuxz Lechniak, 35 ára frá Varsjá, mun hafa sagt lögreglu að hann vildi vera viss að synir hans yrðu “alvöru menn.” 31.1.2007 12:50
Dauðum gæludýrum umbreytt í demanta Gæludýraeigendur geta nú breytt dauðum gæludýrum sínum í demanta. Demantarnir eru framleiddir úr kolefni frá ösku dýranna sem fengið er frá dýralíkbrennsluhúsi í Hertfordshire í Bretlandi. Líkbrennslan tekur fyrir frá tæplega þrjú hundruð þúsundum króna upp í tvær milljónir eftir stærð demantsins. Duncan Francis talsmaður fyrirtækisins sagði dagblaðinu Metro að demantur kæmi á eilífri tengingu við gæludýrið og sumum þætti mikil huggun í því. 31.1.2007 12:09
Aðildarviðræður frestist nema Mladic verði framseldur Yfirsaksóknari glæpamannadómstóls Sameinuðu þjóðanna vegna stríðsglæpa í fyrrum Júgóslavíu skoraði á Evrópusambandið í dag að fresta aðildarviðræðum við Serbíu þar til eftirlýstir stríðsglæpamenn hafa verið framseldir. 31.1.2007 11:54
Nekt danska umferðarráðsins mest skoðuð á netinu Nekt selur og netið er öflugur miðill. Þessar staðreyndir sönnuðust enn á ný í herferð danska umferðaröryggisráðsins (RFFS) í nóvember sl, þar sem notast var við nútímalegar en jafnframt djarfar aðferðir til að ná niður ökuhraða á dönskum vegum. Markmiðið var að ná til þeirra ökumanna sem mestum skaða valda með hraðakstri: ungra karlkyns bílstjóra. Útbúið var myndskeið með berbrjósta hraðaeftirlitsmönnum og sett í sjálfvirka dreifingu á netinu. 31.1.2007 11:35
Milljónum dollara sóað í Írak Milljónir dollara sem bandaríkjamenn veittu til enduruppbyggingar í Írak hefur verið sóað, segja bandarískir endurskoðendur í skýrslu til Bandaríkjaþings sem varar við spillingu. Ónotaðar æfingabúðir fyrir lögreglumenn í Baghdad með risasundlaug er eitt af mannvirkjunum sem endurskoðendurnir benda á máli sínu til stuðnings. Milljarður íslenskra króna sem veittur hefur verið til uppbyggingar er enn ónotaður af íröskum stjórnvöldum. 31.1.2007 11:30
Ísraelskur ráðherra sakfelldur Ísraelskur dómstóll sakfelldi í dag dómsmálaráðherrann fyrrverandi Haim Ramon fyrir kynferðislega áreitni við konu í ísraelska hernum. Ramon sagði af sér í ágúst eftir að ákæra var gefin út á hendur honum. Sakir hans voru að hafa þröngvað konu í hernum til að kyssa sig eftir að hún bað hann um að mynd af þeim saman. 31.1.2007 11:13
Ísraelar ráðast gegn Heilögu stríði Ísraelsher ætlar að ráðast gegn palestínsku andspyrnu og hryðjuverkasamtökunum Heilögu stríði, eða Islamic Jihad. Þetta var ákveðið í gærkvöldi eftir samráðsfund forsætis- og varnarmálaráðherra landsins með yfirmönnum hersins. 31.1.2007 10:44
Kjúklingur með andarfit Kólumbískur bóndi keypti sér egg á dögunum, sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að kjúklingurinn sem kom úr egginu skartar sundfitjum að hætti anda. Líklega er að um stökkbreytingu sé að ræða. 30.1.2007 19:30
Microsoft kynnir nýtt stýrikerfi Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækið kynnti í gær nýjustu kynslóð Windows-stýrikerfisins og hefur kerfinu verið gefið nafnið Vista. Búist er við að innan árs hafi yfir eitt hundrað milljónir tölvunotenda um allan heim tekið kerfið í sína notkun. 30.1.2007 19:00
Vopnahléið að mestu virt Allt hefur verið með kyrrum kjörum á Gaza-ströndinni í dag eftir að samkomulag náðist á milli stríðandi fylkinga um vopnahlé. Verslanir og skólar voru opnaðir á nýjan leik en starfsemi þeirra hefur legið niðri síðan á fimmtudaginn þegar sló í alvarlega brýnu á milli liðsmanna Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas forseta. 30.1.2007 18:45
Á fimmta tug pílagríma liggur í valnum Á fimmta tug pílagríma lét lífið í fjölmörgum árásum í nágrenni Bagdad í dag, um það leyti sem Ashura-trúarhátíð sjía stóð sem hæst. Þar af voru sjö skotnir til bana þegar þeir voru á leið með rútu frá hinni helgu borg Karbala. 30.1.2007 18:30
55 nunnur á flótta undan löggunni Fimmtíu og fimm grískar nunnur, úr tveimur klaustrum, eru farnar í felur eftir að prjónaverksmiðja sem þær stofnuðu, fór á hausinn. Klaustur þeirra, eru nú auð og yfirgefin og enginn veit hvar hinar skuldugu þernur Krists eru niðurkomnar. 30.1.2007 16:33
DNA til að finna skellinöðruþjóf Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægri manna í frönsku forsetakosningunum liggur undir ámæli fyrir það að lögreglan notaði bæði DNA prufur og fingraför til þess að hafa hendur í hári þjófa sem stálu skellinöðru frá einum sona hans. Sarkozy er innanríkisráðherra Frakklands og lögreglan heyrir undir hann. 30.1.2007 16:02
Grænlendingar vilja eiga olíuna einir Grænlendingar vilja eiga sína olíu óskipt, þegar og ef hún byrjar að streyma. Þeir telja ekki Dani eiga neitt tilkall til tekna af henni. Danir og Grænlendingar funda nú í hinni svokölluðu heimastjórnarnefnd, þar sem meðal annars er fjallað um efnahagsmál. Talið er að mikla olíu og önnur auðævi sé að finna á grænlenska landgrunninu. 30.1.2007 15:36
Vill girða Egyptaland af Varnarmálaráðherra Ísraels vill reisa girðingu á landamærunum við Egyptaland, til þess að koma í veg fyrir að palestinskir hryðjuverkamenn komist til Ísraels yfir Sínaí eyðimörkina. Aðstoðarmaður Amirs Peretz segir að hann hafi vakið máls á þessu eftir að þrír Gyðingar fórust í sprengjutilræði í hafnarborginni Eilat. 30.1.2007 14:39
Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. 30.1.2007 13:44
Tók ekki linsurnar úr í heilt ár Fjarlægja þurfti augnlinsur úr kínverskum manni með uppskurði eftir að hann hafði þær í augunum í heilt ár. Liu sem er fertugur fékk linsur fyrir ári síðan. Hann tók þær ekki úr augunum, því honum fannst það erfitt. Þegar hann fann fyrir óþægindum notaði hann augndropa. Fyrir stuttu fannst honum sjónin vera að versna og brá þá á það ráð að kaupa nýjar linsur, sem hann setti yfir þær gömlu. 30.1.2007 13:11
Vantar helming upp á friðargæslulið í Sómalíu Fulltrúar ríkja Afríkusambandsins reyndu í dag að safna í friðargæslulið til að taka við af herliði Eþíópíumanna sem hjálpaði stjórnarher Sómalíu við að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Markmiðið er að fá að lágmarki 8.000 hermenn til að gæta stöðugleikans í landinu en enn vantar helminginn upp á að það markmið náist. 30.1.2007 12:30
Aðalritari SÞ boðar til fundar um umhverfismál Ban ki-moon nýskipaður aðalritari Sameinuðu þjóðanna leggur nú drög að neyðarfundi í september á þessu ári. Þar mun helstu þjóðhöfðingjum heims verða stefnt saman til að ræða þau umhverfisvandmál sem steðja að heimurinn og leita leiða til að fylgja ákvæðum Kyoto-bókunnarinnar um hækkum hitastigs jarðar. 30.1.2007 12:08
"Bleika mjólkurvandamálið" leyst Bónda á Jersey í Bretlandi brá heldur betur í brún þegar kýrnar hans fóru allt í einu að framleiða bleika mjólk. Í ljós kom að eftir að bóndinn Peter Houghuez fór að gefa þeim gulrætur með heyinu, litaðist mjólkin. Peter brá þá á það ráð að gefa þeim hvítar gulrætur í staðinn sem hann keypti frá Frakklandi. Í dagblaðinu Metro sagði bóndinn að kýrnar væru "brjálaðar í gulrætur." 30.1.2007 11:50
Níu ára sjónvarpskokkur í Kína Níu ára gömul stúlka frá Shanghai í Kína er með sinn eigin matreiðsluþátt í sjónvarpi. Shi Yulan er auk þess að skrifa sína fyrstu matreiðslubók, en samkvæmt dagblaðinu Qianjiang Evening News hefur hún unnið í eldhúsinu heima hjá sér frá því hún gat staðið í lappirnar. Shi segist hafa hjálpað mömmu sinni í eldhúsinu frá því hún var tveggja ára með því að þvo leirtau. 30.1.2007 11:39
Manchester fær spilavítið Manchester hefur unnið keppnina um að fá að reisa fyrsta stóra spilavítið í Bretlandi, í anda spilaborgarinnar Las Vegas. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir gímaldið Þúsaldarhöllina á suðurbakka Thames-árinnar í London og Blackpool-bæ sem einnig vildu hýsa spilavélar og peningaplokkara. 30.1.2007 11:27
Svíar opna sýndarsendiráð Svíþjóð verður fyrsta landið til að opna sýndarsendiráð í tölvuleiknum Second Life. Nokkur stórfyrirtæki hafa þegar opnað útibú í sýndarheimnum þar sem rúmlega þrjár milljónir spilara eyða stórum hluta af sínum frítíma, eða jafnvel öllum sínum tíma. 30.1.2007 11:08
Hamas og Fatha semja um vopnahlé Meðlimir Hamas-samtakanna og Fatha-hreyfingarinnar í Palestínu hafa samþykkt vopnahlé. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir Mahmoud al-Zahar, utanríkisráðherra Palestínu, en fylkingarnar ætla að leggja niður vopn sín klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. 29.1.2007 22:06
Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. 29.1.2007 19:02