Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimmtán manna áhöfn bjargað Sex skipverjum var bjargað úr spænskum togara um borð í breska herþyrlu við Scilly eyjur, 45 kílómetra frá Cornwall á Suðvesturodda Bretlands í dag. Sexmenningarnir urðu eftir fyrr í dag þegar níu manns var bjargað. Flogið var með þá til Brest í Norður Frakklandi. Fyrsta tilraun þyrlunnar til aðstoðar var að koma pumpu um borð í skipið sem er spænskt og heitir Mareton, en hjálparkall barst frá skipinu eftir að það fékk á sig sjó um 160 mílur vestur af Scilly eyjum. 29.1.2007 15:24
Kína varar við víni og konum Yfirvöld í Kína hafa varað ríkisstjórnina og starfsmenn Ólympíuleikanna við því að taka þátt í spillingu eða siðlausri hegðun þegar Ólympíuleikarnir fara fram í Peking árið 2008. Kommúnistaflokkurinn í Peking varaði embættismenn og opinbera starfsmenn við því að dreifa orku sinni í vín eða konur. Haft er eftir kínverska dagblaðinu, the China Daily, að fylgst verði með embættismönnum og hvort lífstíll þeirra sé nægilega ábyrgur. 29.1.2007 14:47
Verkfalli aflýst hjá British Airways Tveggja daga verkfalli flugliða hjá breska flugfélaginu British Airways hefur verið aflýst. Samningar náðust nú eftir hádegið milli félagsins og flugliða um aðalatriði deilunnar. Verkfallið var fyrirhugað frá miðnætti í kvöld til miðnættis á miðvikudagskvöld. Sættir um laun og veikindadaga tókust loks í dag. Þrátt fyrir að verkfallinu hafi verið aflýst er gert ráð fyrir einhverjum truflunum á flugi. 29.1.2007 14:07
Gámar fjarlægðir af strandaða flutningaskipinu Fjöldi björgunarbáta hóf í dag að fjarlægja meira en tvö þúsund gáma af flutningaskipinu MSC Napoli, sem strandaði undan ströndum Devon á Englandi 19 janúar. Risastór fljótandi krani er notaður til að færa gámana, sem innihalda allt frá barnableyjum til mótorhjóla. Verkið er bæði tímafrekt og vandasamt, en skipið má ekki breyta um stöðu þegar gámarnir eru teknir af því. 29.1.2007 13:54
Þrír dagar í reykingabann í Frakklandi Frá og með 1. febrúar næstkomandi verður bannað að reykja í opinberum stöðum, nema á kaffihúsum og veitinga- og skemmtistöðum í Frakklandi. Veitingasalar hafa ár til að aðlagast, þar verður bannað að reykja 1. febrúar á næsta ári. Reykingabannið mun breyta ásýnd Frakklands þar sem löngum hefur búið ein mesta reykingaþjóð Evrópu. 29.1.2007 13:30
Allt stefnir í verkfall hjá British Airways Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. 29.1.2007 12:45
Á fleygiferð í bíl í Illum Stórverslunin Illum á Strikinu í Kaupmannahöfn hefur eflaust líkst tökustað kvikmyndar í gærkvöld þegar tveir menn óku bifreið inn í verslunina og reyndu að ræna skartgripadeildina þar. 29.1.2007 12:41
Þrenn samtök lýsa ábyrgð Þrenn samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í Rauðahafsbænum Eilat í Ísrael í morgun. Þrír létu lífið í árásinni en hún var gerð í bakaríi í bænum, sem er fjölsóttur af ferðamönnum. 29.1.2007 12:30
Yfir 300 uppreisnarmenn féllu í bardögum Að minnsta kosti 300 uppreisnarmenn eru sagðir hafa fallið í heiftarlegum átökum við íraskar og bandarískar hersveitir í Najaf-héraði undanfarinn sólarhring. Að minnnsta kosti fimm íraskir hermenn liggja í valnum eftir átökin og tveir bandarískir. 29.1.2007 12:02
UNICEF þarf 43 milljarða til að sinna neyð Í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2007, sem kynnt var í dag, kemur fram að UNICEF þurfi rúmlega 43 milljarða til að aðstoða börn og konur á 33 neyðarsvæðum víða um heim. Verkefnin eru bæði í Darfur en eins í löndum sem fá minni fjölmiðlaathygli á borð við Haítí, Eritreu og Mið-Afríkulýðveldið. 29.1.2007 12:00
Lítill hestur er mikil hjálp Panda hefur allt sem maður gæti óskað sér í gæludýri og blindrahesti. Hún verndar eiganda sinn Ann Eide, lætur vita þegar hún þarf að gera stykkin sín, er ávallt viðbúin og elskar að elta hluti. Smáhesturinn Panda í Betlehem, New York, hefur hjálpað Eide, 58 ára, að komast ferða sinna í borgum og sveitum frá árinu 2003. Edie heyrði fyrst um blindrahesta árið 2000, en þá var hún með blindrahund. 29.1.2007 11:43
Ástralir drekki endurunnið skolp Íbúar í Queensland í Ástralíu munu bráðlega fá endurunnið skolpvatn í kranavatninu, að því er fylkisstjórinn hefur sagt. Hugmyndin nýtur afar lítilla vinsælda hjá íbúunum en fylkisstjórinn segir engra annarra kosta völ og sama muni eflaust eiga við um fleiri fylki Ástralíu á næstu árum. 29.1.2007 11:29
Hugsanleg brot Ísraelsmanna á vopnalögum Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna birtir Bandaríkjaþingi bráðabirgðaskýrslu í dag um það hvort vopnalög Bandaríkjanna hafi verið brotin þegar Ísraelar vörpuðu klasasprengjum, framleiddum í Bandaríkjunum, á íbúðabyggð í Líbanon síðastliðið sumar. 29.1.2007 10:46
Vígamenn Hamas ræna yfirmanni öryggissveita Fatah Vígamenn hliðhollir Hamas samtökunum rændu í kvöld yfirmanni öryggissveita Mahmoud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínumanna. Talsmaður palestínskra öryggissveita skýrði frá þessu í kvöld. Maðurinn sem var rænt heitir Sayyed Shabban og var yfir öryggissveitum á Gaza. 28.1.2007 20:46
Kabila treystir stöðu sína Stuðningsmenn Joseph Kabila, forseta Kongó, unnu auðveldan sigur í fylkisstjórakosningum í Kongó en úrslit voru birt í dag. Stjórnarandstaðan, undir forystu Jean-Pierre Bemba, mótmælti niðurstöðununum samstundis og sagði brögð í tafli. Kosningabandalag Kabila vann sex af níu fylkisstjórakosningum og sjálfstæðir frambjóðendur unnu tvær. 28.1.2007 20:29
Fimm hermenn felldir í Najaf Tveir bandarískir hermenn létu lífið þegar þyrla hrapaði í bardaganum í Najaf í dag. Þetta sagði fulltrúi bandaríska hersins í kvöld. Fréttamaður Reuters fréttaveitunnar sá þyrluna hrapa eftir að hafa lent í skothríð. Reykur liðaðist frá þyrlunni þegar hún hrapaði. 28.1.2007 20:09
250 uppreisnarmenn felldir í Írak Bandarískar og íraskar hersveitir hafa barist í allan dag við uppreisnarmenn úr röðum súnnía og sjía múslima í borginni Najaf. Bandaríski herinn hefur hingað til ekki viljað segja neitt um bardagann þar sem hann er enn í gangi en írösk yfirvöld sögðu rétt í þessu að fleiri en 250 uppreisnarmenn hefðu látið lífið. 28.1.2007 19:15
10 til 15 manns rænt í Nablus Herskáir bandamenn Abbas, forseta Palestínumanna, rændu í dag einum leiðtoga Hamas. Mannræningjunum virtist sama þótt mannránið væri myndað í bak og fyrir. Mannránið er enn eitt merki um stigmagnandi átök fylkinga Palestínumanna en á þriðja tug manna hafa fallið frá því átökin blossuðu upp á fimmtudag. 28.1.2007 18:30
Leyniviðaukar ræddir á Alþingi Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði fyrir tæpu ári að Íslendingar hefðu EKKI gengist undir kvaðir sem losuðu Bandaríkjamenn undan ábyrgð á að hreinsa varnarsvæði á Íslandi. Síðan þá hafa komið fram leyniviðaukar, við varnarsamninginn frá 1951, sem segja aðra sögu. Utandagskrárumræða um viðaukana er fyrirhuguð á Alþingi um miðja viku. 28.1.2007 18:30
Leiðtogar Fatah þekkjast boð Abdullah Leiðtogar Hamas og Fatah hreyfinganna hafa þekkst boð Abdullah, konungs Sádi Arabíu, um að hittast í Mekka og reyna að leysa ágreiningsmál sín. Adbullah kom með tilboðið í dag en hann sagði nauðsynlegt að palestínumenn sameinuðust um að komast undan hæl Ísraelsmanna. 28.1.2007 18:15
Sinn Fein samþykkir lögmæti lögreglunnar Sinn Fein, stjórnmálaflokkur írska lýðveldishersins, batt í dag enda á áratugalanga mótstöðu við lögreglu Norður Írlands. Félagafundur flokksins samþykkti lögmæti lögreglunnar en forystumenn Sinn Fein höfðu hvatt til þess á fundinum. 28.1.2007 17:54
Rússar og Indverjar halda sameiginlega heræfingu Rússar og Indverjar ætla sér að vera með sameiginlega heræfingu í september. Talsmaður rússneska hersins skýrði frá þessu í dag. Náin samskipi hafa átt sér stað á milli rússneska og indverska hersins og eru þau hluti af nýjum samskiptareglum þeirra en löndin voru bandamenn í kalda stríðinu. 28.1.2007 17:15
Bandarískur táningur gengur berserksgang Sextán ára bandarískur drengur, vopnaður miðaldasverði, myrti móður sína og særði systur sína og vin hennar. Atvikið átti sér stað á heimili drengsins. Þegar lögreglu bar að garði réðist hann að einum lögregluþjóninum með sverðið á lofti og tókst að særa hann. 28.1.2007 17:04
Konungur Sádi Arabíu býður til viðræðna Konungur Sádi Arabíu, Abdullah, bauð í dag leiðtogum Hamas og Fatah til Mekku, einnar heilögustu borgar múslima, til þess að ræða ágreiningsmál sín. „Ég býð þeim öllum... á mikilvægan fund í heilögu húsi guðs til þess að ræða vandamál sín í hinni vinalegu Sádi Arabíu án þess að nokkur sé að skipta sér af.“ sagði Abdullah konungur í opnu bréfi. Hamas hefur þegar þekkst boðið. 28.1.2007 16:39
Ríkisstjórn Sri Lanka nær meirihluta Ríkisstjórnin í Sri Lanka náði að tryggja sér meirihluta í fyrsta sinn eftir að 25 stjórnarandstöðuþingmenn gengu til liðs við hana. Við þessi vistaskipti fengu sumir liðhlaupanna ráðuneyti að launum. Ríkisstjórnin hefur nú 113 sæti af 225 sem mun hjálpa henni að koma lögum í gegnum þingið. 28.1.2007 15:05
Grunaður hryðjuverkamaður framseldur til Bandaríkjanna Íraskur Hollendingur var í gær framseldur til Bandaríkjanna fyrir að leggja á ráðin um sprengjuárásir á bandaríska þegna í Írak. Lögfræðingar mannsins, Wesam al Delaema, sögðu að þeir óttuðust að hann yrði pyntaður í Bandaríkjunum og að hann fengi ekki sanngjörn réttarhöld. 28.1.2007 14:46
Ísraelar skipa múslima í ríkisstjórn Ísraelar skipuðu í dag fyrsta múslimann í ríkisstjórn sína. Galeb Magadla sagði við Útvarpsstöð ísraelska hersins að „nú hefur fyrsta skrefið verið tekið og það hefur gefið ísraelskum aröbum þá tilfinningu að þetta sé líka ríkisstjórn þeirra.“ 28.1.2007 14:30
Sögulegar kosningar Sinn Fein í dag Sinn Fein, stjórnmálaarmur írska lýðveldishersins, hvatti í dag meðlimi sína til þess að samþykkja lögmæti lögreglunnar á Norður-Írlandi. Flokksmenn Sinn Fein greiða atkvæði síðar í dag um hvort þeir styðji lögregluna en meirihluti hennar eru mótmælendatrúar. 28.1.2007 14:17
Svört skýrsla um kínversk umhverfismál Kínverjum hefur ekki tekist að bæta frammistöðu sína í loftslagsmálum samkvæmt nýrri skýrslu sem kínversk yfirvöld gáfu út í gær. Staða Kínverja hefur ekki breyst síðan árið 2004. 28.1.2007 13:15
Íraksstríði mótmælt í Bandaríkjunum Tugir þúsunda Bandaríkjamann mótmæltu stríðsrekstrinum í Írak í gær. Mótmælin voru haldin víða um Bandaríkin. Þau fóru að mestu friðsamlega fram en í Washington varð að stöðva mótmælendur þegar þeir reyndu að gera áhlaup á þinghúsið. 28.1.2007 12:45
Sagðir hafa notað klasasprengjur þvert á samninga Stjórn Bush Bandaríkjaforseta mun á morgun gera Bandaríkjaþingi grein fyrir því að grunur leiki á að Ísraelar hafi brotið samkomulag við stjórnvöld í Washington um notkun klasasprengja. Sprengjurnar munu hafa verið notaðar til árása í íbúðabygg, sem þverbrjóti samninga. 28.1.2007 12:30
Viðræður halda áfram British Airways hélt viðræðum við stærsta stéttarfélag starfsmanna áfram í dag til þess að reyna að koma í veg fyrir að meðlimir þess fari í tveggja sólarhringa verkfall. Verkfallið, ef af verður, hefst á þriðjudag. Hvorugur aðili vildi þó segja hvernig viðræður gengju. British Airways hefur þegar aflýst rúmlega 1.300 flugferðum í vikunni vegna verkfallsins. 28.1.2007 12:15
Lögregla leggur teygjubyssunum Lögregla í borginni Tijuana í Mexíkó hefur undanfarnar tvær vikur þurft að hafast við án skotvopna. Herinn hefur verið við löggæslu í borginni og ákváðu yfirvöld þá að athuga hvort skotvopn einhverra lögreglumanna hefðu verið notuð í glæpum. Sumir lögreglumenn neituðu að fara út á götur án skotvopna en aðrir söfnuðu sér steinum og keyptu sér teygjubyssur. 28.1.2007 11:51
Konur kallaðar „barnsburðarvélar“ Heilbrigðisráðherra Japans, Hakuo Yanagisawa, sagði að konur væru „barnsburðarvélar“ og að þær ættu að reyna að fæða sem flest börn. Hann bætti þó við að það væri kannski ekki viðeigandi að kalla konur vélar. 28.1.2007 11:26
Fimm stúlkur láta lífið í árás á grunnskóla Fimm stúlkur létu lífið í árás á grunnskóla í Írak í dag. Tveimur klasasprengjum var kastað inn á skólalóðina nálægt hóp nemenda. Sprengingarnar brutu allar rúður í skólanum og slösuðust 20 nemendur vegna glerbrota sem yfir þá rigndu. Skólinn er staðsettur í hverfi súnnía. 28.1.2007 11:00
Spangir auka ekki vellíðan Að setja spangir í börn til þess að rétta tennur þeirra bætir ekki vellíðan eða lífsgæði síðar á ævinni. Þetta kom fram í nýrri breskri rannsókn sem kom út í byrjun janúar. 28.1.2007 10:45
Correa vill skipa konu sem varnarmálaráðherra Rafael Correa, forseti Ekvador, ætlar sér að skipa aðra konu í embætti varnarmálaráðherra landsins. Konan sem hann skipaði í embætti í byrjun janúar, Guadalupe Larriva, lést í voveiflegu þyrluslysi rúmri viku eftir að hún tók við embætti. 27.1.2007 20:53
Trúboðar myrtir í Kenía Bílræningjar vopnaðir AK-47 árásarrifflum skutu tvær konur til bana í Næróbí, höfuðborg Kenía, í morgun. Þær voru í bíl sem var eign bandaríska sendiráðsins. Lögregla skaut tvo af ræningjunum til bana eftir skotbardaga milli lögreglu og ræningjanna. Tveir lögreglumenn særðust í bardaganum. 27.1.2007 19:58
Fleiri vilja Hillary Fleiri demókratar í Bandaríkjunum vilja fá öldungardeildarþingmanninn Hillary Clinton í forsetaframboð fyrir flokkinn á næsta ári en Barack Obama, helsta andstæðing hennar. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar sem bandaríska tímaritið Time lét gera. 27.1.2007 19:45
Beckham leikur prinsinn Knattspyrnugoðið David Beckham hefur lagt fótboltaskó sína til hliðar um stund og tekið upp sverðið. Með því bjargar hann Þyrnirós líkt og í ævintýrinu forðum. 27.1.2007 19:30
Hætti að reykja eftir heilablóðfall Svo virðist sem vægar heilaskemmdir geti drepið löngun í sígarettur. Um er að ræða svæði í heilanum á stærð við tíukrónupening. Læknar í Bandaríkjunum þróa nú lyf sem getur haft áhrif á þennan hluta mannsheilans. 27.1.2007 19:15
Blóðug átök á heimastjórnarsvæðunum Til blóðugra átaka hefur komið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna síðustu tvo sólahringa og hafa þau kostað á annan tug manna lífið, þar á meðal tveggja ára dreng. Viðræðum um myndun þjóðstjórnar hefur enn verið frestað. 27.1.2007 18:45
Eþíópíumenn hefja brotthvarf frá Sómalíu Forsætisráðherra Eþíópíu, Meles Zenawi, sagði í dag að þriðjungur hersveita Eþíópíu yrði farinn frá Sómalíu á morgun. „Við erum að fækka í herliðinu í Sómalíu um þriðjung... því ferli ætti að vera lokið í dag eða á morgun.“ 27.1.2007 18:15
YouTube að deila auglýsingatekjum með notendum Chad Hurkley, annars stofnenda YouTube, skýrði frá því í dag að þeir ætli að gefa notendum sem setja sínar eigin bíómyndir á vefinn hluta af auglýsingatekjum sínum. Framtakið á að ýta undir sköpunargleði notenda og stendur til boða þeim notendum sem eiga höfundarréttin á því sem þeir setja á vefinn. 27.1.2007 16:53
15 látnir og 55 slasaðir Að minnsta kosti 15 manns létu lífið og 55 slösuðust í tveimur sjálfsmorðsárásum í austurhluta Bagdad í Írak í morgun. Árásin átti sér stað í hverfi sjía múslima og eins og undanfarnar sprengjur, nálægt markaði. 27.1.2007 16:40