Fleiri
Sprengjuógn í Lundúnum 11.1.2007 16:45 Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. 11.1.2007 16:29 Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. 11.1.2007 16:22 Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. 11.1.2007 16:05 Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. 11.1.2007 15:59 Bush harðlega gagnrýndur í þinginu Þingmeirihluti demókrata í báðum deildum bandaríska þingsins gagnrýnir harðlega áætlun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þingmennirnir segja ákvörðun forsetans ganga á svig við vilja almennings og ráðleggingar æðstu hershöfðingja. 11.1.2007 15:39 Beckham skrifar undir samning við Los Angeles Galaxy Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham fer frá spænska liðinu Real Madrid í lok tímabilsins og gengur í raðir Los Angeles Galaxy. Beckham sagði í samtali við Reuters fréttastofan í dag að hann væri reiðubúinn að skrifa undir fimm ára samning við bandaríska félagið. 11.1.2007 15:11 Rice tekur hart á friðarspillum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði í dag við því að Bandaríkin muni grípa til aðgerða gegn hverju því landi sem reyni að auka á ofbeldi og ójafnvægi í Írak. Aðeins eru nokkrir tímar síðan Bandaríkin réðust inn á ræðisskrifstofu Írans í norðurhluta Íraks. 11.1.2007 14:51 Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. 11.1.2007 14:40 Neyðarástand í Bangladesh Forseti Bangladesh hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og sett á útgöngubann um nætur sem gilda skal fram að kjördegi, þann 22. janúar næstkomandi. Mikill pólitískur órói hefur verið í landinu þar sem stjórnarandstaðan sakar valdamenn um spillingu og áætlanir um kosningasvindl. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hættu í morgun við kosningaeftirlit sitt. 11.1.2007 14:27 Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. 11.1.2007 14:02 Gengið gegn ofbeldi í New Orleans Íbúar New Orleans munu í dag ganga gegn ofbeldi í borginni, sem hefur farið stigvaxandi alveg frá því felllibylurinn Katrín skildi borgina eftir í rúst fyrir tæplega einu og hálfu ári. Ofbeldið heimtir að jafnaði um eitt líf á dag: níu eru látnir það sem af er ári. 11.1.2007 13:58 Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. 11.1.2007 13:45 Engar forsendur fyrir lýðræðislegum kosningum Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa hætt við kosningaeftirlit í Bangladesh, þar sem embættismenn þeirra segja grunninn fyrir lýðræðislegar kosningar í landinu hruninn. Stórfylking stjórnmálaflokka hafði hótað að sniðganga kosningarnar og sakaði ráðandi aðila um að ætla að hagræða úrslitunum. Kosningarnar áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi. 11.1.2007 13:35 Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: 11.1.2007 13:15 Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. 11.1.2007 13:15 Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. 11.1.2007 13:00 Þrumufleygur frá Englandsbanka 11.1.2007 12:59 Sjá næstu 50 fréttir
Starfsmaður S.þ. myrtur í Súdan Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna var myrtur í fyrirsát í suðurhluta Súdans í dag. Maðurinn vann fyrir Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Hann var farþegi í bíl sem setið var fyrir þrátt fyrir að bílnum fylgdu hermenn frá suður-súdanska hernum. 12.1.2007 16:08
Rússar fordæma árás á íranska ræðisskrifstofu Rússar fordæmdu í dag árás Bandaríkjamanna á ræðisskrifstofu Írana í gærmorgun. Yfirlýsingin sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér var harðorð, þar sem árás Bandaríkjamanna í gær var meðal annars kölluð "algjörlega óásættanleg" og "brot á alþjóðalögum". 12.1.2007 15:45
Hilary heldur til Íraks Hillary Clinton, öldungardeildarþingmaður Demókrata, er á leiðinni til Íraks um helgina. Hilary fer ásamt tveimur öðrum þingmönnum til að kynna sér ástandið í landinu eftir mjög umdeilda ákvörðun George Bush að auka herstyrk Bandaríkjamanna í landinu um 21.500 manns. 12.1.2007 15:44
Norsk börn smíðuðu gálga í "Saddams-leik" Árvakur kennari í Follo í Noregi náði að grípa í taumana í tæka tíð þar sem hópur skólabarna í þriðja bekk voru úti á skólalóðinni í Saddams-leik. Leikurinn gekk út á að taka einhvern af hinum börnunum til fanga og þegar kennarinn kom að stóð einn "fanginn" með snöru um hálsinn. 12.1.2007 15:27
Sýfilistilfellum fjölgar ört í Kína Ný skýrsla sem birtist í virtu læknatímariti leiðir í ljós að Kínverjar glíma nú við ört hækkandi tíðni kynsjúkdómsins syphilis. Sjúkdómnum var nánast útrýmt í Kína á sjöunda og áttunda áratugnum en nú þarf að bregðast við vaxandi útbreiðslu á ný. Sérstaklega vekur ugg að leiða má líkur að því að nýsmit annarra kynsjúkdóma haldist í hendur við vaxandi tíðni sýfilis. 12.1.2007 15:19
Stríðsherrar skila vopnunum Nokkrir stríðsherranna sem barist hafa í Sómalíu síðustu 16 árin hafa samþykkt að leggja niður vopn eftir að bardagar í morgun urðu að minnsta kosti 5 manns að bana. Stríðsherrarnir funduðu með forsetanum Abdullahi Yusuf í höfuðborginni Mogadishu í dag þar sem þetta varð niðurstaðan. 12.1.2007 14:14
Átök eftir föstudagsbænir í Bagdad Hópur vígamanna sem grunað er að hafi verið sjíamúslimar réðust til atlögu á súnnímosku þegar föstudagsbænum var að ljúka í Bagdad í dag. Tveir verðir sem vörnuðu þeim inngöngu særðust í árásinni en enginn særðist alvarlega. Mennirnir virtu að vettugi vikulegt bílabann í kringum föstudagsbænir á götum Bagdad. 12.1.2007 13:37
Al-Kaída-menn sagðir í Pakistan Leiðtogar al-Kaída hryðjuverkanetsins hafast við í Pakistan og þaðan vinna þeir að því að styrkja samtökin um allan heim. Þetta er mat Johns Negroponte, yfirmanns leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna og verðandi aðstoðarutanríkisráðherra. 12.1.2007 13:30
Flugskeyti skotið að bandarísku sendiráði Talið er að öfgasinnaðir vinstrimenn hafi verið að verki þegar flugskeyti var skotið að sendiráði Bandaríkjanna í Aþenu í Grikklandi í morgun. Enginn særðist í árásinni. 12.1.2007 13:05
Lofar reiðum hermönnum bættum aðstæðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lofaði í dag að bæta aðstæður hermanna í Bretlandi um leið og hann sagði hermönnum að þeir yrðu að halda áfram að berjast til þess að Bretar töpuðu ekki áhrifum sínum á alþjóðavísu. Þetta var í fyrsta skipti sem forsætisráðherrann viðurkennir reiði hermanna og lofar að bregðast við. 12.1.2007 13:04
Karlmenn 30 milljónum fleiri en konurnar Fullorðnir kínverskir karlmenn verða 30 milljónum fleiri en konur á sama aldri innan 15 ára. Þetta orsakast af strangri stefnu stjórnvalda til að ná tökum á fólksfjölgun í Kína, með því að takmarka barneignir við eitt barn á hvert par. Kynbundnar fóstureyðingar hafa verið stundaðar markvisst síðan þá. 12.1.2007 11:35
Segja 70 hirðingja hafa verið drepna í loftárásum í Sómalíu Bresku hjálparsamtökin Oxfam greindu frá því í dag að 70 hirðingjar hefðu verið drepnir í loftárásum sem átti að beina gegn íslamistum í Suður-Sómalíu á síðustu dögum. 12.1.2007 11:33
Nóbelsverðlaunahafi vill ekki stjórna landinu Mohammed Yunus, sem deildi friðarverðlaunum Nóbels með smálánabankanum Grameen sem hann stofnaði, hefur afþakkað að taka við leiðtogasæti í bráðabirgðastjórn heimalands síns Bangladesh. Tilboðið barst Yunus eftir að forseti landsins vék úr forsætisráðherraembætti í bráðabirgðastjórn landsins. 12.1.2007 11:01
Bandaríkjamenn handtaka sex Írani Íraski herinn skýrði frá því í kvöld að alþjóðlegt herlið undir forystu Bandaríkjamanna hneppti í dag sex Írana í varðhald eftir að hafa ráðist á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Irbil. Bandaríski herinn sagðist hafa handtekið sex manns á sama svæði en minntist ekkert Írana eða ræðismannsskrifstofu. 11.1.2007 23:30
Prestur dæmdur til dauða Hæstiréttur í Nígeríu hefur dæmt prest til dauða fyrir að hafa brennt sex konur en ein af þeim lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Presturinn, sem kallaður er séra Kóngur, var fundinn sekur um fimm morðtilraunir og eitt morð. 11.1.2007 23:15
Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau. 11.1.2007 23:00
Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. 11.1.2007 22:45
Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. 11.1.2007 22:30
Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. 11.1.2007 22:15
NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. 11.1.2007 21:47
Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. 11.1.2007 21:11
Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. 11.1.2007 20:53
Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. 11.1.2007 20:29
Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. 11.1.2007 20:09
Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. 11.1.2007 20:02
Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. 11.1.2007 18:45
Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. 11.1.2007 17:57
Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. 11.1.2007 16:29
Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. 11.1.2007 16:22
Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. 11.1.2007 16:05
Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. 11.1.2007 15:59
Bush harðlega gagnrýndur í þinginu Þingmeirihluti demókrata í báðum deildum bandaríska þingsins gagnrýnir harðlega áætlun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þingmennirnir segja ákvörðun forsetans ganga á svig við vilja almennings og ráðleggingar æðstu hershöfðingja. 11.1.2007 15:39
Beckham skrifar undir samning við Los Angeles Galaxy Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham fer frá spænska liðinu Real Madrid í lok tímabilsins og gengur í raðir Los Angeles Galaxy. Beckham sagði í samtali við Reuters fréttastofan í dag að hann væri reiðubúinn að skrifa undir fimm ára samning við bandaríska félagið. 11.1.2007 15:11
Rice tekur hart á friðarspillum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði í dag við því að Bandaríkin muni grípa til aðgerða gegn hverju því landi sem reyni að auka á ofbeldi og ójafnvægi í Írak. Aðeins eru nokkrir tímar síðan Bandaríkin réðust inn á ræðisskrifstofu Írans í norðurhluta Íraks. 11.1.2007 14:51
Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. 11.1.2007 14:40
Neyðarástand í Bangladesh Forseti Bangladesh hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og sett á útgöngubann um nætur sem gilda skal fram að kjördegi, þann 22. janúar næstkomandi. Mikill pólitískur órói hefur verið í landinu þar sem stjórnarandstaðan sakar valdamenn um spillingu og áætlanir um kosningasvindl. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hættu í morgun við kosningaeftirlit sitt. 11.1.2007 14:27
Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. 11.1.2007 14:02
Gengið gegn ofbeldi í New Orleans Íbúar New Orleans munu í dag ganga gegn ofbeldi í borginni, sem hefur farið stigvaxandi alveg frá því felllibylurinn Katrín skildi borgina eftir í rúst fyrir tæplega einu og hálfu ári. Ofbeldið heimtir að jafnaði um eitt líf á dag: níu eru látnir það sem af er ári. 11.1.2007 13:58
Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. 11.1.2007 13:45
Engar forsendur fyrir lýðræðislegum kosningum Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa hætt við kosningaeftirlit í Bangladesh, þar sem embættismenn þeirra segja grunninn fyrir lýðræðislegar kosningar í landinu hruninn. Stórfylking stjórnmálaflokka hafði hótað að sniðganga kosningarnar og sakaði ráðandi aðila um að ætla að hagræða úrslitunum. Kosningarnar áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi. 11.1.2007 13:35
Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: 11.1.2007 13:15
Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. 11.1.2007 13:15
Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. 11.1.2007 13:00