Fleiri
Banna viðskipti við ríkisbanka 9.1.2007 16:46 Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 16:27 Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkjamenn neita loftárásum Bandaríkin hafa neitað því að hafa ráðist á skotmörk í Sómalíu í dag og segjast aðeins hafa gert árásir á mánudaginn síðastliðinn. Loftárásir voru þó gerðar og segja bandarísk yfirvöld að þar hafi verið að verki eþíópíski herinn. 10.1.2007 23:20
Chavez hyggur á frekari þjóðvæðingu Hugo Chavez var í dag settur í embætti forseta Venesúela til næstu sex ára. Hann vann stórsigur í kosningum í fyrra og hefur á þeim grundvelli ákveðið að ýta úr vör umfangsmiklum þjóðvæðingarverkefnum. Chavez hafði þegar sagt að hann ætlaði sér að þjóðvæða fjögur olíuverkefni sem og fjarskiptafyrirtæki en bætti svo við í ræðu eftir athöfnina í dag að hann hygðist þjóðvæða jarðgasverkefni líka. 10.1.2007 22:54
Bush fjölgar hermönnum um 21.500 Samkvæmt nýjustu fregnum mun George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, fjölga hermönnum í Írak um 21.500 manns. Áður var talið að það myndu verða 20.000. Einnig hefur verið skýrt frá því að Bush ætli sér að biðjast afsökunar á því að hafa ekki haft nógu marga hermenn í Írak eftir innrásina. 10.1.2007 22:25
Hvalur biðst afsökunar á árekstri Eigandi báts sem hvalir höfðu synt á og gert gat á sagði að hvalurinn sem gerði gatið hefði reynt að segja „Fyrirgefðu“ við sig þar sem hann fann svo góða tilfinningu streyma frá hvalnum. Maðurinn, sem heitir Lindsay Wright, var á siglingu 80 sjómílur vestur af Nýja-Sjálandi þegar þegar áreksturinn átti sér stað. 10.1.2007 22:15
Rússar skora á USA að samþykkja Kyoto samninginn Rússneska þingið samþykkti ályktun í dag þar sem skorað er á Bandaríkin að samþykkja Kyoto samninginn og um leið að fella úr gildi verslunarhömlur sem hafa verið í gildi í fleiri áratugi. Ályktunin var samþykkt af öllum meðlimum Dúmunnar nema einum, sem sat hjá. 10.1.2007 22:07
IAEA aðstoðar ríki Afríku Afrískar þjóðir sögðu í dag að þau hefðu ákveðið að herða öryggisgæslu við kjarnorkuver sem og kjarnaofna sem notaðir eru til rannsókna. Oft hefur verið sagt að öryggi í kringum þær sé ábótavant og alþjóðasamfélagið er farið að óttast að erlend öfl reyni að verða sér úti um úraníum í löndum í Afríku. 10.1.2007 21:49
Leitað að málverki eftir Da Vinci Ein af helstu ráðgátum listaheimsins gæti ráðist á næstu dögum. Miklar getgátur hafa verið um hvort að enn sé eitt mesta meistaraverk Leonardo da Vincis ófundið en listfræðingar segja að hugsanlegt sé að 500 ára gamalt verk meistarans sé falið bak við vegg í ráðhúsinu í Flórens. 10.1.2007 21:21
11 látnir og 14 slasaðir í árás í Kerbala Vígamenn í borginni Kerbala skutu í dag á tvær rútur fullar af shía múslimum sem voru að koma úr árlegri pílagrímsferð til Mekka með þeim afleiðingum að 11 létust og 14 særðust. Ríkisstjóri Kerbala sagði árásina sennilega vera hefndaraðgerð þar sem fregnir bárust af því í gær að rútu af súnní múslimum hefði verið rænt í nágrenni Anbar héraðsins en þær fréttir reyndust síðar rangar. 10.1.2007 21:04
Páfi stappar stálinu í Pólverja Benedikt páfi skoraði á pólska kaþólikka til þess að herða sig í ljósi áfalla sem pólska kirkjan hefur orðið fyrir undanfarið. Einn biskup og annar prestur hafa sagt af sér á stuttum tíma í Póllandi vegna þess að upp komst að þeir hefðu verið njósnarar fyrir kommúnistaflokk landsins á tímum Kalda stríðsins. 10.1.2007 20:17
Japanir vara við vopnasölu til Kína Japanir róa þess nú öllum árum að Evrópusambandið haldi í vopnasölubannið til Kínverja. Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, er á ferðalagi um Evrópu og Bandaríkin um þessar mundir til þess að afla framboði Japans til varanlegrar setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fylgis. 10.1.2007 19:55
Líf færist í olíuæðar Hvít-Rússa Olía Rússa gæti flætt um leiðslur Hvít-Rússa eins og hún gerði áður fyrr, eftir aðeins nokkrar klukkustundir, eða um leið og Hvít-Rússar skila olíunni sem þeir stálu. Sendiherra Rússa hjá Evrópusambandinu sagði frá þessu eftir fundi með orkumálaráðherra Evrópusambandsins. 10.1.2007 19:42
Léku eftir aftöku Saddams Litlu munaði að börn í bænum Gausdal í Noregi hengdu vin sinn á dögunum. Vinahópurinn hafði ákveðið að leika eftir aftöku Saddams Hússein, Íraksforseta, og fékk einn úr hópnum hlutverk einræðisherrans. 10.1.2007 19:00
Boða iðnbyltingu Evrópusambandið boðar iðnbyltingu í nýrri áætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Framkvæmdastjórn sambandsins vill að aðildarríkin minnki útblástur gróðurhúsalofttegunda um tuttugu prósent fyrir 2020. Evrópa verði að taka forystuna í að þróa efnahag sem byggi síður á kolefnum. 10.1.2007 18:45
Vopnhlé komið á í Súdan Ríkisstjórn Súdans og uppreisnarmenn í Darfur héraði landsins hafa samþykkt 60 daga vopnahlé og fundi til þess að ræða hugsanlegt friðarsamkomulag. Á bak við þetta standa Afríkusambandið og Sameinuðu þjóðirnar. 10.1.2007 18:15
Indverjar vilja halda kjarnorkutilraunum áfram Indverjar gætu dregið sig úr kjarnorkusamstarfi við Bandaríkin ef þeir fá ekki að framkvæma kjarnorkutilraunir og auðga úraníumúrgang þeirra kjarnorkuvera sem Bandaríkjamenn ætla að selja þeim. 10.1.2007 17:57
Bush þarf 497 milljarða í viðbót George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, þarf 6,8 milljarða dollara, eða um 497 milljarða íslenskra króna í aukafjárveitingu til þess að geta sent 20 þúsund viðbótarhermenn til Íraks. Inni í þessari upphæð er einnig kostnaður við uppbygginu og störf sem af henni hljótast en háttsettir embættismenn innan ríkisstjórnar Bush sögðu frá þessu í dag. 10.1.2007 17:30
Vildi ekki hulið höfuð Egypskur ráðherra rak aðstoðarkonu sína út af fundi, þegar hún neitaði að fjarlægja höfuðbúnað sinn, sem huldi allt nema augu hennar. Það var trúarmálaráðherra Egyptalands sem þetta gerði. 10.1.2007 17:00
Dani og Svíi dæmdir fyrir skipulagningu hryðjuverka Svíi og Dani fengu í dag þunga fangelsisdóma í Bosníu fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk. Svínn fékk fimmtán ára og fjögurra mánaða dóm en Daninn 13 ár og fjóra mánuði. Þá voru tveir Bosníumenn einnig dæmdir í fangelsi fyrir aðild að málinu. 10.1.2007 16:18
Hamas segist geta viðurkennt Ísraelsríki Æðsti leiðtogi Hamas samtakanna sagði í viðtali í dag að Hamas viðurkenndi að tilvera Ísraelsríkis sé staðreynd. Khaled Meshaal, útlægur leiðtogi samtakanna virðist þarna taka mildari stefnu gagnvart Ísrael en áður. Í viðtalinu segir Meshaal að Ísrael sé raunverulegt og að það verði áfram til ríki sem heitir Ísrael. Það sé staðreynd. 10.1.2007 15:40
Kúbverjar sem neitað var um hótelgistingu komnir til Noregs Kúbversk sendinefndinefnd sem neitað var um gistingu á hótelinu Edderkoppen í Osló í síðustu viku lenti á Gardemoen í dag. Berit Ås, fyrrverandi leiðtogi Sósíalíska vinstriflokksins, var meðal þeirra sem tók á móti hópnum með því að syngja kúbverska þjóðsönginn og þannig styðja málstað þeirra. 10.1.2007 15:23
Íþaka fundin ? Breskir fræðimenn telja sig vera búnir að finna hina foru eyju Íþöku þar sem hetja Hómers Ódysseifur bjó. Ef Íþaka er fundin er það varla minni atburður en þegar Trója fannst í Tyrklandi árið 1870. Vísindamennirnir hafa verið að bora djúpar holur á eynni Paliki til þess að leita vísbendinga um hvernig landslagið hafi breyst á síðustu árþúsundum. 10.1.2007 14:49
ESB boðar iðnbyltingu Evrópusambandið boðar iðnbyltingu í nýrri áætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Sambandið vill að aðildarríkin minnki útblástur gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir 2020. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir þurfa samræmd viðbrögð við loftslagsbreytingum. 10.1.2007 14:43
Beckham á leið frá Real Madrid Predrag Mijatovic, íþróttastjóri spænska stórliðsins Real Madrid, greindi frá því í dag í ítölsku sjónvarpi að samningurinn við enska knattspyrnumanninn David Beckham yrði ekki endurnýjaður en hann rennur út í vor. 10.1.2007 14:39
Sprengjutilræði í suðurhluta Filippseyja Tvær sprengjur hafa sprungið í dag á eyjunni Mindanao sem tilheyrir Filippseyjum. Sex létust og 23 særðust þegar sprengja sprakk á markaði í borginni General Santos og nokkrum stundum síðar sprakk önnur sprengja í höfuðborg eyjunnar, Kidapawan. Engar fregnir hafa borist af manntjóni þar. 10.1.2007 13:48
Flugvélar leitað á hafsbotni Hafrannsóknarskip bandaríska flotans sem aðstoðar við leit að indónesisku farþegaþotunni sem fórst fyrir níu dögum, ætti að geta varpað ljósi á hvort málmhlutir sem fundist hafa á hafsbotni, séu flak vélarinnar. 10.1.2007 13:43
Rússar og Hvítrússar semja um olíu Hvíta Rússland segir að samkomulag hafi náðst um að hefja aftur útflutning á Rússneskri olíu til vestur Evrópu, en hann hefur legið niðri í þrjá daga vegna deilu Rússlands og Hvíta Rússlands um verð á olíu frá fyrrnefnda landinu til þess síðarnefnda. 10.1.2007 13:15
Kaþólska kirkjan þolir ekki grínþátt Leiðtogi kaþólsku kirkjunnar í Litháen segir að kirkjan muni höfða mál á hendur sjónvarpsstöðinni MTV-Litháen vegna teiknimyndaflokksins "Páfabær" sem hann segir að hæðist að páfanum og öllum kaþólskum Litháum. 10.1.2007 13:12
Vel innréttaðir pyntingaklefar Til sölu: nokkur hundruð herbergja kastali frá fjórtándu öld, með blóði drifna sögu. Engin upphitun, en vel innréttaðir pyntingaklefar. Hellingur af veinandi draugum. Verð um þrír milljarðar króna. 10.1.2007 10:53
Obasanjo sýnir mátt sinn Leynilögreglan í Nígeríu, SSS, handtók í dag ritstjóra og framkvæmdastjóra dagblaðs í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Alls komu 15 lögreglumenn inn á skrifstofu blaðsins til þess að grafast fyrir um heimildarmenn greinar sem að deildi á einn af stuðningsmönnum forseta Nígeríu. Þegar ritstjórinn vildi ekkert gefa upp voru hann og framkvæmdastjóri blaðsins handteknir. 9.1.2007 23:45
Bretar styðja framboð Japans til öryggisráðs Bretar og Japanir samþykktu í dag að vinna saman að því að draga úr spennu í Asíu vegna kjarnorkuógnar Norður-Kóreu og Íran. Tony Blair og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, áttu fund í dag og sagði Blair að hann myndi styðja framboð Japans til varanlegrar setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en Japan telur það vera nauðsynlegt skref til þess að vernda hagsmuni sína gegn Norður-Kóreu. 9.1.2007 23:14
Fjárfestar flýja frá Venesúela Fjárfestar losuðu sig við eignir og hlutabréf í Venesúela í dag vegna yfirlýsingar Hugo Chavez í gær um að hann ætlaði sér að þjóðvæða hluta efnahagslífsins. Hlutabréfaverð hrundi og gjaldeyrir landsins lækkaði mikið í dag út af þessu. Fjármálamarkaðir voru nálægt því að hrynja þar sem Chavez lofaði því að binda endi á sjálfstæði seðlabanka ríkisins. 9.1.2007 23:11
20 þúsund hermenn til Íraks Áætlun George W. Bush Bandaríkjaforseta varðandi nýja stefnu í stríðinu í Írak þykir ekki boða miklar breytingar. 20 þúsund hermenn í viðbót verða sendir til Íraks og Írakar eiga að taka við öryggisgæslu í öllum héruðum fyrir lok nóvember. Meirihluti hermanna á að fara til Bagdad en 4 þúsund verða sendir til Anbar héraðsins. 9.1.2007 22:26
50 vígamenn láta lífið í Írak Íraskar hersveitir, með stuðningi bandarískra hersveita, bönuðu í dag allt að 50 manns við Haifa götuna í miðborg Bagdad. Bardagar hafa geisað þar í grennd í um fjóra daga. Íraskir embættismenn segja að allt að því 130 manns hafi látið lífið í átökunum síðan á laugardaginn var. 9.1.2007 22:08
Búist við dýrustu forsetakosningum í sögu USA Búist er við því að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári verði þær dýrustu í sögu Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur benda hins vegar á að kostnaðurinn eigi eftir að skilja að þá hæfu og þá óhæfu mjög fljótlega. Þegar hafa tíu manns lýst því yfir að þau ætli að bjóða sig fram og eru fjáraflanir þegar hafnar hjá sumum þeirra. 9.1.2007 21:38
Engin áform um þjóðvæðingu Helsti aðstoðarmaður Daniels Ortega, verðandi forseta Níkaragúa, sagði í dag að engar áætlanir væru uppi um að þjóðvæða fyrirtæki líkt og Hugo Chavez, forseti Venesúela og náinn samstarfsmaður Ortega, ætlar sér að gera. Ortega kemur þó til með að njóta efnahagsaðstoðar frá Venesúela til þess að berjast gegn hinni gríðarlegu fátækt í landinu. 9.1.2007 21:18
Fjögur kíló af sprengiefni gerð upptæk í París. Franskir lögreglumenn handtóku í dag tvo serbneska menn grunaða um að reyna að flytja sprengiefni til Frakklands. Lögreglumenn fundu fjögur kíló af hinu kraftmikla sprengiefni pentrite og eru mennirnir tveir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnið til glæpahópa í Frakklandi. Annar hinna grunuðu var rútubílstjóri sem keyrði reglulega frá Belgrad til París. 9.1.2007 21:00
Visa og Nokia í samstarf Visa, eitt stærsta kreditkortafyrirtæki í heimi, hefur hleypt af stokkunum nýju greiðslukerfi sem mun umbreyta þartilgerðum Nokia farsímum í nokkurs konar greiðslukort. Notendur munu geta greitt fyrir matvörur í verslunum með því að renna símanum yfir skanna í afgreiðsluborðinu og því næst ýta á hnapp til þess að staðfesta greiðsluna. 9.1.2007 20:49
iPhone á markað í sumar í BNA Hinn nýji iPhone frá Apple, sem var kynntur á ráðstefnu Apple í dag, mun verða kominn í búðir í júní í Bandaríkjunum og fyrir jól í Evrópu. Tvær gerðir verða í boði, annars vegar fjögurra gígabæta sem mun kosta 499 dollara, eða um 36 þúsund íslenskar krónur, og hins vegar átta gígabæta útgáfu sem mun kosta um 599 dollara, eða um 43 þúsund íslenskar krónur. 9.1.2007 19:40
31 láta lífið í flugslysi í Írak 31 manns létu lífið í flugslysi í Írak í dag. Þar var á ferð flugvél sem tyrkneskir vinnumenn voru í á leið til verkefna í Írak. 35 voru um borð og er einn slasaður og þriggja er saknað. Flugvélin var í eigu fyrirtækis frá Moldavíu. Bandaríski herinn, sem sér um lofthelgi Íraks, vildi ekkert segja um málið að svo stöddu. 9.1.2007 19:17
Óttast að olíudeila verði langvinn Óttast er að olíudeila Rússa og Hvít-Rússa eigi eftir að dragast á langinn. Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, sagði í dag hugsanlegt að draga verði úr olíuframleiðslu í Rússlandi sem þykir benda til að hann búist við langvinnri rimmu. 9.1.2007 19:15
Loftárásum haldið áfram Loftárásum Bandaríkjamanna á Sómalíu var haldið áfram í dag og fullyrða vitni að fjölmargir óbreyttir borgarar hafi fallið í þeim, þar á meðal fjögurra ára drengur. Skotmörkin eru al-Kaída-liðar, sem sumir eru sagðir bera ábyrgð á sprengjuárásum á sendiráð Bandaríkjamanna fyrir átta árum. Talið er að leiðtogi hryðjuverkasamtakanna í Austur-Afríku hafi verið í þeirra hópi en óvíst að hann hafi fallið. 9.1.2007 19:00
Hvíta húsið gagnrýnir Chavez Hvíta húsið sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem Hugo Chavez, forseti Venesúela, er harðlega gagnrýndur fyrir áætlanir sínar um að þjóðvæða fjarskiptafyrirtæki og olíuverkefni og sagði að bandarísk fyrirtæki sem yrðu fyrir tjóni vegna þjóðvæðingarinnar yrðu að fá bætur. 9.1.2007 17:34
Apple kynnir símtækið iPhone Steve Jobs, forstjóri Apple Computer steig á svið í Moscone sýningarhöllinni í San Francisco og tilkynnti innreið Apple á símamarkaðinn. Jobs sýndi nýtt tæki frá Apple, símtækið iPhone, sem er jafnframt, tölva með WiFi og Bluetooth tengingu, og tónlistar og vídeó-spilari. 9.1.2007 16:52
Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. 9.1.2007 16:27