Fleiri
Stór lottóvinningur 10.11.2006 16:50 Pólverjar íhuga að reisa kjarnorkuver vegna vantrausts á Rússum Pólverjar eru að íhuga að reisa kjarnorkuver til orkuframleiðslu, því þeir treysta ekki Rússum til þess að sjá sér fyrir orku. Rússar hafa sýnt sig að vera ekki mjög áreiðanlegir byrgjar, og nota orku sína í pólitískum tilgangi. 10.11.2006 16:24 Leita leiða til að lifa í breyttu loftslagi Evrópusambandið mun á næsta ári leita eftir hugmyndum um hvernig það getur bætt undirbúning sinn undir loftslagsbreytingar. 10.11.2006 15:41 Vörður um homma og lesbíur Öflugur lögregluvörður var um nokkur þúsund homma og lesbíur og stuðningsfólk þeirra, í skrúðgöngu á Hinsegin dögum í Jerúsalem, í dag. 10.11.2006 15:14 Náttúruverndarráð Noregs vill útrýma kóngakrabba í Noregi Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Hann er nýleg tegund í norskri lögsögu og skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn. 10.11.2006 15:07 Fyrsta ríkisstjórn Svartfjallalands staðfest Þing Svartfjallalands staðfesti í dag fyrstu ríkisstjórn þessa nýlega sjálfstæða ríkis. 10.11.2006 14:23 Uppstokkun í bresku ríkisstjórninni Breski iðnaðar- og viðskiptaráðherrann Alistair Darling mun taka við embætti orkumálaráðherra, til viðbótar við núverandi embætti. Malcolm Wicks, sem verið hefur orkumálaráðherra færist yfir í vísindaráðuneytið þar sem David Sainsbury lávarður ætlar að draga sig í hlé úr stjórnmálum eftir átta ár sem ráðherra. 10.11.2006 14:19 Miklir skipsskaðar í sjóorrustum á Sri Lanka Stjórnarherinn á Srí Lanka sökkti í morgun tveimur skipum tamíla-tígra sem sögð voru hlaðin sprengiefnum. Þá var háttsettur stjórnmálamaður úr röðum tamíla skotinn til bana í morgun í höfuðborginni Colombo. 10.11.2006 13:47 Sjá næstu 50 fréttir
Fulltrúi SÞ hitti leiðtoga Frelsishers Drottins Yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum flaug í gær til fundar við uppreisnarleiðtoga frá Úganda, sem sakaður er um stríðsglæpi. Hann hefst við í Súdan og er sagður halda konum og börnum í gíslingu. 13.11.2006 12:15
Leiðtogar arabaríkja vilja friðarráðstefnu Utanríkisráðherra aðildarríkja Arababandalagsins samþykktu á neyðarfundi sínum í dag að kalla eftir friðarráðstefnu vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem að kæmu fulltrúar Sameinuðu þjóðanna, Palestínu og Ísraels. 12.11.2006 21:04
Um 20 hermenn létust í umferðarslysi í Chile Að minnsta kosti 20 chileskir hermenn létust í dag þegar rúta sem þeir voru farþegar í steyptist fram af brú og ofan í á. Slysið átti sér stað í suðurhluta Chile. Ekki liggur fyrri hvernig það bar að en miklar rigningar höfðu verið á svæðinu. 12.11.2006 20:22
Páfi segir hungursneyðina í heiminum hneyksli Benedikt sextándi páfi sagði í dag að það væri hneyksli að fólk í heiminu sylti og kallaði eftir róttækum breytingum á efnahagskerfi heimsins til þess að binda enda á hungursneyð hundraða milljóna manna. 12.11.2006 20:15
Árásir andófsmanna hafa fjórfaldast á árinu í Afganistan 3700 manns hafa fallið í átökum í Afganistan og árásir andófs- og hryðjuverkamanna hafa fjórfaldast það sem af er ári samkvæmt nýrrri skýrslu eftirlitsnefndar sem fulltrúar afganskra stjórnvalda, erlendra stuðningsríkja og Sameinuðu þjóðanna eiga sæti í. 12.11.2006 19:40
Vilja segja sig úr lögum við Georgíu Suður-Ossetíumenn greiddu í dag atkvæði um hvort þeir segðu sig endanlega úr lögum við Georgíu. Atkvæðagreiðslan nýtur ekki viðurkenningar á Vesturlöndum en Rússar segja að virða beri niðurstöðuna 12.11.2006 19:30
Maliki boðar uppstokkun á stjórninni Demókratar vonast til að hægt verði að hefja brottflutning bandarískra hermanna frá Írak á næstu mánuðum. Forsætisráðherra Íraks boðar algera uppstokkun á ríkisstjórn landsins. 12.11.2006 19:00
Egeland fundaði með umdeildum uppreisnarleiðtoga Jan Egeland, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, átti stuttan fund með Joseph Kony, leiðtoga Uppreisnarhers Drottins í Úganda, í frumskógi í Suður-Súdan fyrr í dag. Þar hugðist Egeland reyna að fá Kony til þess að sleppa börnum, konum og særðum sem uppreisnarher hans hefur rænt en Kony sagði herinn aðeins halda hermönnum föngnum. 12.11.2006 18:38
Ráðist á breskan eftirlitsbát við Basra Fjórir breskir hermenn létust og þrír slösuðust alvarlega þegar árás var gerð á eftirlitsbát á ánni Shatt al Arab við borgina Basra í suðurhluta Íraks í dag. Frá þessu greindi breska landvarnaráðuneytið fyrri stundu. 12.11.2006 18:18
Telja að Castro sé með krabbamein Bandarísk stjórnvöld telja að Fidel Castro, forseti Kúbu, sé kominn með krabbamein og að hann muni ekki lifa út árið 2007. Frá þessu er greint á fréttavef bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN. Eins og kunnugt er fól Castro bróður sínum, Raul, að halda um stjórnartaumana fyrr á árinu eftir að hann veiktist. 12.11.2006 17:52
Rússneskir lögreglumenn grunaðir um morðið á Politkovskaju Rússneskir lögreglumenn, sem sinntu herþjónustu í Tsjetsjeníu, eru grunaðir um að standa á bak við morðið á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju. Frá þessu greinir rússneska blaðið Kommersant. 12.11.2006 17:28
1600 lík send í líkhús Bagdad í október Um sextán hundruð lík bárust líkhúsi Bagdad-borgar í októbermánuði sem gerir hann að næstversta mánuði ársins. Frá þessu greinir Reuters-fréttastofan og hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni sínum í Bagdad. Um 85 prósent þeirra sem fluttir voru í líkhúsið munu hafa látist í einhvers konar ofbeldisaðgerðum, flestir karlmenn af völdum skotsára. 12.11.2006 17:07
Óeirðir vegna dauða barns í Kína Til átaka kom milli hóps manna og lögreglu fyrir utan spítala í borginni Guangan í Suðvestur-Kína í dag eftir að þriggja ára drengur hafði látist eftir að hafa drukkið skordýraeitur sem geymt var í gosflösku. Læknar á spítalanum neituðu honum um þjónustu þar sem afi hans gat ekki greitt fyrir meðferðina. 12.11.2006 16:40
Neyðarfundur hjá Arababandalaginu vegna aðgerða Ísraela Utanríkisráðherrar aðildarríkja Arababandalagsins komu saman til neyðarfundar í Kaíró í dag til þess að ræða hernaðaraðgerðir Ísraela á Gasaströndinni undanfarna daga. 12.11.2006 15:22
Vilja hefja brottflutning hermanna innan hálfs árs Demókratar vonast til að geta þrýst á um að byrjað verði að kallað heim bandaríska hermenn frá í Írak eftir fjóra til sex mánuði og að herinn verði kallaður heim í áföngum. Þetta kom fram í máli demókratans Carls Levins, sem búist er við að verði nýr formaður hermálanefndar öldungadeildarinnar, í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC í dag. 12.11.2006 15:00
Maliki vill algjöra uppstokkun í ríkisstjórn Íraks Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vill stokka ríkisstjórn landsins algjörlega upp. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í dag. Maliki ræddi þetta mál á lokuðum fundi í írakska þinginu í dag í ljósi ástandsins í landinu en ekkert lát er á vígum í Írak. 12.11.2006 13:30
Stuðningur við Bush forseta í embætti aldrei minni Stuðningur við George Bush Bandaríkjaforseta mælist aðeins 31 prósent samkvæmt nýrri könnun sem bandaríska tímaritið Newsweek lét gera. Hefur stuðningur við forsetann aldrei mælst minni. 12.11.2006 13:00
Segjast munu bregðast af hörku við árásum Ísraela Íranar munu bregðast við að hörku ráðist Ísraelar á kjarnorkuvinnslustöðvar landsins. Þeir ætla að halda áfram auðgun úrans þrátt fyrir andstöðu Vesturveldanna og Ísraela. 12.11.2006 12:30
Fjöldagröf finnst nærri Srebrenica Enn ein fjöldagröfin hefur fundist sem geymir jarðneskar leifar fórnarlamba fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995. 11.11.2006 20:00
Ákærur gegn Rumsfeld íhugaðar Donald Rumsfeld, fráfarandi landvarnaráðherra Bandaríkjanna, gæti átt yfir höfði sér ákærur í Þýskalandi vegna illrar meðferðar á föngum í Abu Ghraib og Guantanamo-fangelsunum. 11.11.2006 19:00
Bandaríkin beita neitunarvaldi gagnvart ályktun um Ísrael Bandaríkin beittu í dag neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu um ályktun þar sem árás Ísraelshers á íbúðabyggð í Beit Hanoun fyrr í vikunni er fordæmd og Ísraelar hvattir til að kalla herlið sitt frá svæðinu. 18 manns féllu í árásinni, þar á meðal konur og börn. 11.11.2006 17:47
Fimm ráðherrar segja sig úr ríkisstjórn Líbanons Fimm ráðherrar úr röðum Hizbollah-samtakanna og stuðningsflokksins Amal-hreyfingarinnar, hafa sagt sig úr ríkisstjórn Líbanons eftir að viðræður stjórnmálafylkinga Líbanons um valdaskiptingu í landinu fóru út um þúfur í dag. Kröfum Hizbollah-samtakanna um að fá aukinn hlut í stjórn landsins var hafnað og því slitnaði upp úr viðræðunum. 11.11.2006 17:11
Slagorð hrópuð að ríkisstjórninni Talið er að áttatíu þúsund manns hafi fylgt Bulent Ecevit, fyrrverandi forsætisráðherra Tyrklands, til grafar í höfuðborginni Ankara í dag. 11.11.2006 15:11
Amfetamín líklega orsökin Lausn ráðgátunnar um hvers vegna um 1.500 evruseðlar af ýmsum verðgildum molnuðu í sundur skömmu eftir að hafa verið teknir út úr hraðbönkum í Þýskalandi kann að vera fundin. 11.11.2006 14:55
Al-Kaída fagnar afsögn Rumsfeld Í hljóðupptöku sem sögð er af ræðu Abu Hamza al-Muhajir, einnig þekktur sem Abu Ayyub al-Masri, höfuðsmaður al-Kaída hryðjuverkanetsins í Írak, lýsir hann ánægju sinni með afsögn Donalds Rumsfeld, landvarnaráðherra Bandaríkjanna. 11.11.2006 14:42
Viðræðurnar runnar í sandinn Viðræður stjórnmálafylkinga Líbanons um valdaskiptingu í landinu eru farnar út um þúfur eftir að núverandi ríkisstjórnarflokkar höfnuðu kröfum Hizbollah-samtakanna um að fá aukinn hlut í stjórn landsins. 11.11.2006 14:14
Ný fjöldagröf finnst í Bosníu Ný fjöldagröf með yfir 100 fórnarlömbuum fjöldamorðanna í Srebrenica árið 1995 hefur fundist í norðausturhluta Bosníu. Hópur réttarmeinafræðinga fékk nafnlausa ábendingu um gröfina en hún er í Snagova, um 50 kílómetra norður af Srebrenica. 11.11.2006 14:00
Ítalska mafían hafi náð fótfestu í Þýskalandi Ítalska mafían er að ná fótfestu í Þýskalandi og hefur meðal annars fjárfest í orkufyrirtækjum sem skráð eru í Frankfurt og rússneska gasrisanum Gazprom. Þetta hefur þýska dagblaðið Berlinger Zeitung í dag og vísar í rannsókn leyniþjónustu Þýskalands, BND. 11.11.2006 13:52
Sýknaðir af ákæru um að hafa kynt undir kynþáttahatri Nick Griffin, leiðtogi Breska þjóðarflokksins, og einn flokksbræðra hans voru í gær sýknaður af ákærum um að hafa kynt undir kynþáttahatri. Upptökur af ræðu Griffins á lokuðum fundi flokksins þar sem hann segir meðal annars að múslimar hafi breytt Bretlandi í kynþáttablandað helvíti voru kveikja ákæranna en þær voru síðar spilaðar í breska ríkisútvarpinu. 11.11.2006 13:00
Barsmíðar lögreglu í LA vekja reiði Myndir sem sýna lögregluna í Los Angeles beita miklu harðræði við handtöku hafa vakið bæði óhug og reiði. Talsmaður lögreglunnar telur hins vegar að eðlilega hafi verið staðið að handtökunni. 11.11.2006 12:30
John McCain hyggur á framboð í forsetakosningum í Bandaríkjunum árið 2008 Búist er við því að John McCain, öldungadeildarþingmaður repúblikana í Arisóna, ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum sem verða haldnar árið 2008. Þótt engin formleg ákvörðun hafi verið tekin segja nánir samverkamenn hans að vinna við hugsanlegt framboð sé þegar hafin. 10.11.2006 22:30
Rumsfeld hugsanlega sóttur til saka vegna fangelsanna í Abu Ghraib og Guantanamo Bandarísk samtök sem berjast fyrir stjórnarskrárbundnum réttindum fólks ætla sér að höfða mál gegn Donald Rumsfeld, fyrrum landvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, vegna meðferðar á föngum í fangelsunum í Abu Ghraib og Guantanamo. Málin verða sótt í Þýskalandi. 10.11.2006 21:39
Al-Kaída fagnar niðurstöðum þingkosninganna í Bandaríkjunum Leiðtogi Al-Kaída í Írak, Abu Hamza al-Muhajir, fagnaði í dag niðurstöðum bandarísku þingkosninganna og sagði bandaríska kjósendur hafa gert rétta hlutinn. Kom þetta fram í hljóðupptöku sem var birt á netinu í dag en ekki hefur enn verið staðfest að hún sé ósvikin. 10.11.2006 19:51
Fánahylling bönnuð í menntaskóla í Bandaríkjunum Nemendafélag háskóla eins í Orange County í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur ákveðið að banna hina svokölluðu fánahyllingu. Í henni er frasinn "under God" sem útleggjast mætti á hinu ylhýra sem "undirgefin Guði" en á undanförnum árum hefur hæstiréttur Bandaríkjanna bannað ýmsar trúarlega vísanir í hvers kyns opinberum athöfnum og þá sérstaklega í skólum. 10.11.2006 19:32
Spennan magnast í Kongó Ásakanir um kosningasvindl hafa komið fram í Kongó undanfarið og er óttast að þær bæti við þegar eldfimt andrúmsloft í landinu. Samkvæmt síðustu tölum hefur áskorandinn Jean-Pierra Bemba saxað á forskot sitjandi forseta, Joseph Kabila, sem hefur hlotið um 60% atkvæða þegar tveir þriðju atkvæða hefur verið talinn. 10.11.2006 19:03
Evrópsk varnarsamvinna að komast á nýtt stig Á mánudaginn mun Evrópusambandið stofna sjóð sem á að standa straum af kostnaði við evrópska varnarsamvinnu og það þrátt fyrir að Bretland ætli sér ekki að taka þátt. 10.11.2006 18:04
Fyrrum yfirmaður verkefnis breska hersins um fljúgandi furðuhluti varar við árás geimvera Rétt eftir að yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varaði við hryðjuverkaógninni kom önnur viðvörun, en í þetta sinn frá fyrrverandi yfirmanni verkefnis breska hersins um fljúgandi furðuhluti. Hann varaði við árásum geimvera, sagði að þær gætu átt sér stað hvenær sem er og einna helst á Bretlandi. 10.11.2006 17:31
Pólverjar íhuga að reisa kjarnorkuver vegna vantrausts á Rússum Pólverjar eru að íhuga að reisa kjarnorkuver til orkuframleiðslu, því þeir treysta ekki Rússum til þess að sjá sér fyrir orku. Rússar hafa sýnt sig að vera ekki mjög áreiðanlegir byrgjar, og nota orku sína í pólitískum tilgangi. 10.11.2006 16:24
Leita leiða til að lifa í breyttu loftslagi Evrópusambandið mun á næsta ári leita eftir hugmyndum um hvernig það getur bætt undirbúning sinn undir loftslagsbreytingar. 10.11.2006 15:41
Vörður um homma og lesbíur Öflugur lögregluvörður var um nokkur þúsund homma og lesbíur og stuðningsfólk þeirra, í skrúðgöngu á Hinsegin dögum í Jerúsalem, í dag. 10.11.2006 15:14
Náttúruverndarráð Noregs vill útrýma kóngakrabba í Noregi Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Hann er nýleg tegund í norskri lögsögu og skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn. 10.11.2006 15:07
Fyrsta ríkisstjórn Svartfjallalands staðfest Þing Svartfjallalands staðfesti í dag fyrstu ríkisstjórn þessa nýlega sjálfstæða ríkis. 10.11.2006 14:23
Uppstokkun í bresku ríkisstjórninni Breski iðnaðar- og viðskiptaráðherrann Alistair Darling mun taka við embætti orkumálaráðherra, til viðbótar við núverandi embætti. Malcolm Wicks, sem verið hefur orkumálaráðherra færist yfir í vísindaráðuneytið þar sem David Sainsbury lávarður ætlar að draga sig í hlé úr stjórnmálum eftir átta ár sem ráðherra. 10.11.2006 14:19
Miklir skipsskaðar í sjóorrustum á Sri Lanka Stjórnarherinn á Srí Lanka sökkti í morgun tveimur skipum tamíla-tígra sem sögð voru hlaðin sprengiefnum. Þá var háttsettur stjórnmálamaður úr röðum tamíla skotinn til bana í morgun í höfuðborginni Colombo. 10.11.2006 13:47
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent