Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bjórþystir flykkjast til München Mörg þúsund bjórþyrstir Þjóðverjar streyma nú til München þar sem hið árlega október fest hófst í dag. Þetta er í hundrað sjötugasta og þriðja sinn sem hátíðin er haldin þar í borg og er búist við að allt að sex milljónir manna sæki hátíðina, Þjóðverjar jafnt sem erlendir ferðamenn. 16.9.2006 16:45
Abbas og Bush funda í næstu viku Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, mun eiga fund með George Bush, Bandaríkjaforseta, á miðvikudag í næstu viku þegar leiðtogarnir sækja báðir fund Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Abbas mun leita stuðnings Bandaríkjaforseta við þjóðstjórn Hamas-liða og Fatah-hreyfingarinnar. 16.9.2006 16:15
Hófu sókn gegn Talíbönum á ný Mörg þúsund hermenn bandaríska herliðs í Afganistan hófu í dag, ásamt innfæddum hermönnum, nýja sókn gegn Talíbönum þar í landi. 16.9.2006 15:38
Týndi lífi í BASE-stökki Yfirvöld í Mexíkó hafa fundið lík þekkst ástralsks ævintýramanns sem týndi lífi í svokölluðu BASE-stökki í suðurhluta landsins fyrr í vikunni. Keppni var þar haldin í þessari glæfralegu íþrótt og verður nú rannsakað hvað fór úrskeiðis. 16.9.2006 14:00
Þök rifnuðu af 100 húsum Að minnsta kosti 30 slösuðust í Kólumbíu í gær þegar öflugur hvirfilbylur reif meira en 100 þök af byggingum í borginni Barranquilla. 16.9.2006 13:45
Óttast um öryggi páfa Óttast eru um öryggi Benedikts páfa XVI. vegna ummæla sem hann lét falla fyrr í vikunni sem hafa vakið mikla reiði meðal múslima. Eldsprengjum var kastað á tvær kirkjur í Nablus á Vesturbakkanum í gærkvöldi og í nótt. Páfagarður sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem segir að páfa þyki miður að orð sín hafi sært múslima. 16.9.2006 13:17
Lane orðinn 2. gráðu fellibylur Hitabeltisstormurinn Lane varð að annarar gráðu fellibyl þar sem hann færðist í átt að Baja á Kaliforníu skaga í gærkvöldi og nótt. Lane skall á Kyrrahafsströnd Mexíkó og flæddi yfir hafnarborgir. Sjö ára drengur týndi lífi þegar aurskriða féll á heimili hans. Yfirvöld í Mexíkó hafa sent frá sér viðvörun og hvatt fólk á syðri hluta Kaliforníu skaga til að hafa sig á brott. Margir íbúar og ferðamenn hafa þegar komið sér í öruggt skjól. Vindhraði í bilnum hefur mest farið í rúma fjörutíu metra á sekúndu og talið að Lane eigi enn eftir að sækja í sig veðrið. 16.9.2006 11:00
Annan hitti Kastró Fídel Kastró, forseti Kúbu, átti í fyrradag fund með Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Annan heimsótti Kastró á heimili hans í Havana. Af myndum virðist sem Kastró sé óðum að ná fyrri heilsu eftir að hafa lagst undir hnífinn í síðasta mánuði vegna blæðinga í meltingarvegi. Annan situr nú leiðtogafund ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Kúbu. Fulltrúar 118 ríki sitja fundi fram til morguns. 16.9.2006 10:35
Sprengjum kastað á kirkjur á Vesturbakkanum Leiðtogar múslima víða um heim hafa fordæmt ummæli sem Benedikt páfi XVI. lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar vitnaði hann til 14. aldar keisara kristinna manna sem sagði Múhameð spámann aðeins hafa fært heiminum illsku og miskunnarleysi. Óttast er um öryggi páfa. Eldsprengjum var varpað á tvær kirkjur á Vesturbakkanum í gær og í nótt. 16.9.2006 10:29
Múslimar æfir yfir ræðu páfa Múslimar víða um heim eru æfir Benedikt páfa sextánda vegna ummæla sem hann lét falla í ræðu í háskóla í Þýskalandi í vikunni. Páfi ræddi þá hugtakið "heilagt stríð" og vitnaði í fjórtándu aldar keisara sem sagði Múhameð spámann aðeins hafa fært heiminum illsku og miskunnarleysi. 15.9.2006 22:13
Mikil bráðnun jökla Hvítabirnir eru að drukkna og nýjar eyjar að koma í ljós undan ísnum á Norður-Heimskautinu, eftir mikla bráðnun jökla í sumar. 15.9.2006 20:51
Óttast að njósnirnar verði flokknum af falli Frambjóðendur hægra bandalagsins í þingkosningunum í Svíþjóð geta ekki leynt gremju sinni yfir því að Göran Persson formaður Jafnaðarflokksins skyldi leyfa sér að nefna njósnahneyksli Þjóðarflokksins í sjónvarpsumræðum í gærkvöld. Engin leið er að spá fyrir um úrslitin á sunnudag, en Persson óttast að njósnirnar geti fært andstæðingum hans sigurinn. 15.9.2006 20:15
Býst við að funda með Írönum á næstu dögum Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, býst við að funda með aðalsamningamanni Írana í kjarnorkumálum, Ari Larijani, á næstu dögum um það að Íranar láti af auðgun úrans. 15.9.2006 15:48
Dauðadómur yfir Asahara staðfestur Hæstiréttur í Japan hefur staðfest dauðadóm yfir Shoko Asahara, leiðtoga sértrúarsöfnuðar þar í landi. Asahara var fyrir tveimur árum sakfelldur fyrir að hafa skipulagt taugagassárás á neðanjarðarlestakerfið í Tókýó fyrir ellefu árum og aðra árás ári áður. Nítján týndu lífi í árásunum. 15.9.2006 13:30
Múslimar æfir út í páfa Múslimar um allan heim eru æfareiðir Benedikti páfa sextánda fyrir ummæli sem hann lét falla í ræðu í Þýskalandi fyrr í vikunni. Þar ræddi páfi hugtakið "heilagt stríð". 15.9.2006 13:00
Kosningabaráttan í Svíþjóð harðnar stöðugt Skoðanakannanir skera ekki úr um hvort vinstri eða hægri flokkarnir i Svíþjóð fari með sigur af hólmi i þingkosningunum um helgina, en kosningabaráttan er stöðugt að harðna. 15.9.2006 12:30
Íranar ýja að viðræðum í kjarnorkudeilu Yfirrvöld í Frakklandi hafa staðfest að Íranar hafi gefið til kynna að þeir vilji hefja viðræður um það við Evrópusambandið að þeir hætti auðgun úrans. Frá þessu var greint skömmu fyrir hádegi. 15.9.2006 12:00
Fimm menn skotnir nærri heimili Haniyehs Byssumenn skutu fimm Palestínumenn til bana nærri heimili forsætisráðherrans Ismails Haniyeh á Gasaströndinni í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af atburðinum en talið er að einhverjir hinna látnu hafi verið í öryggissveitum palestínsku heimastjórnarinnar. 15.9.2006 11:45
Danska þjófélagið tapi stórfé vegna umferðartafa Helstu sérfræðingar Danmerkur í skipulagsfræði áætla að árið 2030 muni danska þjóðfélagið tapa tæpum 360 milljörðum vegna þess að umferðarmannvirki beri ekki alla þá bílaumferð sem þá verður á vegunum. 15.9.2006 11:45
Hitabeltisstormurinn Lane veldur usla í Meíkó Búist er við því að hitabeltisstormurinn Lane eflist í dag en hann skall á Kyrrahafsströnd Mexíkós í gær með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. 15.9.2006 11:00
Japansprins farinn af sjúkrahúsi Kiko Japansprinsessa og nýfæddur sonur hennar, Hisahito, fengu að fara heim af sjúkrahúsinu í Tokyo í morgun. Sonurinn kom í heiminn fyrir viku og er fyrsta sveinbarnið sem fæðist inn í keisarafjölskylduna í rúm 40 ár. Sló það á allar áhyggjur um erfingjaskort því samkvæmt japönskum lögum mega aðeins karlmenn erfa keisaratignina. 15.9.2006 10:45
Kastró hressist Fídel Kastró, forseti Kúbu, virðist óðum vera að ná fyrri styrk en hann átti í gær fund með Hugo Chavez, forseta Venesúela, á sjúkrastofu Kastrós á Havana. Fjölmargir þjóðarleiðtogar, þar á meðal Chavez, sækja nú árlega leiðtogafund samtkaa ríkja utan bandalaga sem haldinn er á Havana. 15.9.2006 10:30
Komið í veg fyrir sprengjuárás í Jemen Yfirvöld í Jemen staðfestu í morgun að öryggisverðir hefði fellt fjóra menn sem ætluðu sér að gera árás á tvö borsvæði þar sem olía og gas eru unnin. Einn öryggisvörður féll í átökunum. 15.9.2006 09:45
Bush hótar að beita neitunarvaldi Nefnd bandarískra öldungadeildarþingmanna hefur farið gegn vilja Bush Bandaríkjaforseta og styðurlöggjöf þar sem skilgreint er hvernig rétta beri yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið því að beita neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Bandaríkjaforseti styður annað frumvarp sem myndi leyfa það að réttað yrði fyrir herrétti yfir föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru í haldi. Forsetinn mætti sjálfur á fund nefndarinnar í gær til að leggja áherslu á mál sitt. Fjölmargir Repúblíkanar eru andvígir því frumvarpi og styður Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, þá í andstöðu sinni. Samkvæmt frumvarpi því sem forsetinn styður yrðu hertari yfirheyrsluaðferðir leyfðar, frekari njósnir einnig og rýmri heimildir til að halda grunuðum. Með þessu væri í raun verið að endurskilgreina það hvernig bandarísk stjórnvöld uppfylli ákvæði Genfar-sáttmálans um meðferð stríðsfanga. Þessu er Powell andvígur og segir þetta í raun stefna lífi bandarískra hermanna á erlendri grundu í hættu og renna stoðum undir málflutning þeirra sem gagnrýna framferði Bandaríkjamanna og siðferði þeirra. Meðal þeirra sem eru andvígir hugmyndum forsetans er John McCain, sem barðist við Bush um útnefningu Repúblíkana fyrir forsetakosningarnar árið 2000. Búist er við að McCain sækist aftur eftir útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar eftir tvö ár. Hálfur mánuður er þar til fulltrúadeild Bandaríkjaþings frestar fundum sínum vegna kosninga í nóvember. Miðla þarf málum fyrir þann tíma. Ef það tekst ekki verður alls óvíst með framtíð fanganna í Guantanamo-fangabúðunum og hvernig mál þeirra verða meðhöndluð. 15.9.2006 09:00
Drepinn út af MP3 spilara Pólskur unglingspiltur hefur játað að hafa stungið belgískan dreng til bana þegar hann rændi af honum MP3 spilara. 14.9.2006 20:07
Íbúar í Montreal slegnir Ein kona týndi lífi og 19 særðust, þar af sex lífshættulega, þegar hálf þrítugur maður hóf skothríð á nemendur í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn. 14.9.2006 19:00
Senegalskir innflytjendur fluttir frá Spáni Spánverjar byrja í dag að flytja ólöglega innflytjendur frá Senegal til síns heima eftir að tafir urðu á flutningunum sem hefjast áttu í gær. Tvær vélar með um 100 Senegala hvor fljúga frá Kanaríeyjum í dag en þangað hafa um tólf þúsund senegalskir innflytjendur leitað í ár. 14.9.2006 13:50
Skotárás í Montreal í rannsókn Ein kona týndi lífi og minnst nítján særðust þegar ungur maður hóf skothríð á samnemendur sína í menntaskóla í Montreal í Kanada síðdegis í gær. Lögregla felldi árásarmanninn. Lögregla í Kanada rannsakar nú málið en ekki er vitað hvað olli því að ungi maðurinn greip til vopna gegn námsmönnum í skólanum. 14.9.2006 12:30
Þrír sagðir slasaðir eftir að þak flugstöðvar hrundi Þak á flugstöð á eyjunni Menorku við austurströnd Spánar hrundi í morgun. Óljósar fregnir hafa borist af slysinu en minnst þrír munu hafa slasast svo vitað sé. Talsmaður slökkviliðs á svæðinu segir að enginn sé fastur undir brakinu, en fyrstu fréttir bentu til þess að tuttugu verkamenn sem unnu að endurbótum á þakinu hefðu orðið undir því. 14.9.2006 11:50
Ofbeldi er ekki kynþokkafullt Eiginkonur og kærustur götuklíkumeðlima í Kólumbíu grípa nú til sinna ráða til að sporna við ofbeldi á götum Pereira, þar sem ofbeldi er einna mest í allri Kólumbíu. Tugir kvenna neita mökum sínum um allt kynlíf þar til byssurnar verði lagðar á hilluna. Að sögn einnar þeirra eru skilaboðin sem þær vilja senda mönnunum að ofbeldi sé síður en svo kynþokkafullt. 14.9.2006 10:45
Sjö námamenn fastir í kolanámu í Kína Björgunarmenn í Norðaustur-Kína reyna nú hvað þeir geta til að bjarga sjö námamönnum sem sitja fastir í kolanámu. Vatn flæddi inn í námuna þar sem nítján námamenn voru að störfum. 14.9.2006 09:09
Umdeilt frumvarp varðandi hegðun ungmenna Innanríkisráðherra Frakklands, Nicholas Sarkozy, kynnti í gær umdeilt frumvarp á franska þinginu sem ætlað er að taka á óæskilegri hegðun ungmenna. Það sem harðast er deilt á er ákvæði sem heimilar bæjar- og borgarstjórum að svipta fjölskyldur vandræðaunglinga atvinnuleysis- og húsnæðisbótum ef þörf krefur. 14.9.2006 09:06
Kona lést í skotárásinni í Kanada Ein kona týndi lífi og minnst nítján særðust í skotárásinni í Montreal í Kanada í gær. Byssumaðurinn var felldur af lögreglu. 14.9.2006 08:30
Flestir leiðtogar í Mið-Austurlöndum telja innrásina í Írak mistök Flestir leiðtogar ríkja í Mið-Austurlöndum telja innrásina í Írak fyrir rúmum þremur árum hafa verið mistök. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, á blaðamannafundi í gær en hann er nýkominn úr ferð um Mið-Austurlönd. 14.9.2006 08:15
1000 pólskir hermenn til Afganistans Pólverjar ætla að senda eitt þúsund hermenn til viðbótar þeim hundrað sem þeir hafa þegar sent til Afganistan. Viðbótarliðið verður sent til landsins í febrúar á næsta ári. 14.9.2006 07:45
Lögregla segir að einn maður hafi verið að verki Á annan tug framhaldskólanema í Montreal í Kanada særðust þegar samnemandi þeirra hóf skothríð í skólanum á fimmta tímanum í dag. Byssumaðurinn var felldur af lögreglunni. 13.9.2006 21:59
Fjórir létust í árás byssumanna Að minnsta kosti fjórir eru látnir og sextán særðir eftir skotárás tveggja byssumanna í framhaldsskóla í Montreal í Kanada. Lögreglan í Montreal segir að svo virðist sem annar byssumannanna hafi svipt sig lífi en hinn var felldur af lögreglunni. 13.9.2006 18:41
Segir koma til greina að halda friðarviðræður við Tamil tígra á Íslandi Talsmaður ríkisstjórnarinnar á Srí Lanka segir koma til greina að halda friðarviðræður við Tamíl tígra á Íslandi. Stjórnin er hins vegar andvíg því að halda viðræðurnar í Osló í byrjun október. 13.9.2006 18:00
Framhaldsskóli rýmdur vegna skotárásar Byssumenn hóf skothríð í framhaldsskóla í Montreal á fimmta tímanum í dag. Lögreglan í Montreal segir óvíst hversu margir særðust í árásinni en fréttastofan Sky hefur eftir sjónvarvottum að fjórir að minnsta kosti hafi særst. 13.9.2006 17:55
Páfi heimsótti gröf foreldra sinna Benedikt páfi sextándi heimsótti í morgun gröf foreldra sinnna en hann er nú á ferð um Þýskaland, heimaland sitt. Í för með páfa í morgun var bróðir hans en gröfin stendur rétt fyrir utan Regensburg. 13.9.2006 17:45
Vilja ekki senda fleiri hermenn til Afganistan Þjóðir Atlantshafsbandalagsins eru ekki tilbúnar að senda fleiri hermenn til Afganistan. Yfirmenn öryggismála í Afganistan segja að þörf sé á tvö þúsund og fimm hundruð friðargæsluliðum til viðbótar til að geta tryggt öryggi borgara. 13.9.2006 17:14
Rekinn fyrir að týna skýrslu um Vollsmose-málið Starfsmaður leyniþjónustu dönsku lögreglunnar hefur verið rekinn úr starfi eftir að í ljós kom að hann hafði glutrað niður skýrslu um Vollsmose-málið, þar sem níu menn voru handteknir vegna gruns um að þeir væru að undirbúa hryðjuverk í Danmörku. 13.9.2006 16:15
Segjast hafa fengið keðjur til að hætta að selja fisk Grænfriðungar segjast hafa fengið sænskar verslanakeðjur til þess að hætta að kaupa þorsk sem veiddur er í Eystrasalti. Þeir segjast munu, í þessari viku, senda dönskum kaupmönnum bréf, þar sem þeir eru hvattir til þess að gera slíkt hið sama. 13.9.2006 15:45
Árásarmenn reyndust Sýrlendingar Mennirnir fjórir sem réðust á bandaríska sendiráðið í Damaskus í Sýrlandi í gær voru allir Sýrlendingar. Þrír þeirra féllu í átökum við öryggisverði. Mennirnir ætluðu sér að aka bifreið hlaðinni sprengiefni inn á afgirt svæði við sendiráðið. 13.9.2006 13:15
Ekki hafðir með í ráðum Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Fulltrúar þeirra eru þó tilbúnir til viðræðna hætti tígrarnir árásum. 13.9.2006 12:45
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent